Morgunblaðið - 28.12.1951, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.12.1951, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 28. des. 1931 niKnm ÁRAMÖTAIANSLEIKUR áífrsð 5 §ær: % Cuðríður Stefanía Þórðardóttir ÁTTRÆÐISAFMÆLI átti 27. des. merk kona vestur í Dölum, frú Guðríður Stefanía Þórðar- dóttir á Ballará á Skarðsströnd. Þar dvelur hún nú hjá einkadótt- ur sinni Elinborgu Guðmunds- dóttur og Magnúsi Jónssyni manni hennar, sjálfseignarbónda á Ball- ará. Frú Stefanía er dóttir hins merka bónda og aiþingismanns Þórðar Þórðarsonar dbim. á Rauðkollsstöðum í Miklaholts- hreppi og konu hans Ásdísar Gísladóttur. Hún ólst upp í föður- húsum og var sett til mennta í Kvennaskólanum í Reykjavík, þeg- ar hún hafði aldur til. Árið 1893 giftist hún Guðjóni Ágústi Guðmundssyni Breiðdal ljósmyndara frá Efri-Breiðdal í Önundarfirði og eignuðust þau saman þrjá syni, sem mörgum eru kunnir hér og við Breiðafjörð, þar sem þeir ólust upp. Ágúst Hólm innheimtumaður hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur, Kristján Breiðdal útibússtjóra á Vegamót- um í Snæfellsnessýslu og Guð- mund Hólm sjálfseignarbónda á Krossi í Skarðshreppi í Dalasýslu. Um aldamótin fluttist Guðjón til útlanda og réðist þá frú Stefanía vestur til Breiðafjarðar með börn sín og tengdamóður, dvaldi fyrst eitt ár í Rauðseyjum hjá Boga Magnússen og Kristínu Jónasdóttur konu hans, er bjuggu þar þá, en gerðist 1902 ráðskona í Skarðsstöð hjá Guðmundi kaup manni og bónda Jónassyni. Á hans stóra heimili var hún húsmóðir í 11 ár, unz verzlunin lagðist niður og búskapur í Skarðstöð 1913, er verzlunar og íbúðarhúsið þar brann. Þau Guðmundur og Stefanía eignuðust saman eina dóttur, Elinborgu, og hefir hún nú dvalið allmörg síðari árin hjá henni á Bailará. Frú Stefanía var orðin nokkuð roskin kona, er ég sá hana fyrst, en ekki þurfti næmt auga fyrir kvenlegri fegurð til þess að sjá, að sú kona mundi hafa verið af- burðafríð á sínum beztu árum, enda heyrði ég menn segja, er þekktu hana þá, að þeir minntust ekki að hafa séð meiri friðleiks- konu. Hún ólst upp við allsnægtir á efnaheimili og borin á höndum af góðum foreldrum, svo efnileg og vel gefin sem hún var. En þegar að heiman var horfið var skammt til alvöru- og erfiðleika- áranna. Ein varð hún að annast og uppala þrjá unga syni og réð- ist því í að taka að sér forstöðu mjög umfangcmikils heimilis, þar sem mikil var gestkvæmd, margt í heimili ‘og margt um að sýsla. Sama árið tók Guðmundur í fóst- ur systurdóttur sína, prestsdótt- urina frá Hvalgröfum, Theódóru Guðlaugsdóttur, sem naut elsku og móðurumhyggju frú Stefaníu 10 árin af æsku sinni og er nú orðin formaður Sambands breið- firskra kvenna, gift Óskari Kristjánssyni sjálfseignarbónda á | Hóli í Hvammssveit. Og á síðustu árum sínum í Skarðsstöð, eða 1910, eignaðist hún sjálf dóttur til um- önnunar. Það þurfti mikilhæfa konu til þess að taka að sér, svo vel færi, jafnstórt og íburðarmikið heimili og var í Skarðsstöð á þeim árum, þar sem búið var stórbúi, rekin mikil verzlun og gestkvæmd mikil af æðri og lægri, innlendum og útlendum. Þetta mikla starf innti frú Stefanía af hendi með þeim myndarskap, sem vel gefinni konu einni er fært og mun margur minnast hennar með hlýjum huga frá þeim árum. Eftir að hún á efri árum fluttist á heimili dóttur sinnar hefur hún ekki heldur setið ■ auðum höndum, því dótturbörn- Bezt að aaglýsa í Mor gunblaðinu voru þær lengst af samvistum a unum fjölgaði ört. Oft liðsinnti hún einnig konum við bamsburð og þótti þar sérstaklega nærfærin og heppin. Tengdamóður sinni reyndist hún sem dóttir væri og PÓiAR rafgeymnr Undanfarna mánuði hafa hinir íslenzku PÓLAR rafgeymar verið í notkun í ýmsum tegundum bifreiða. Hafa þeir reynzt mjög vel og í engu gefið eftir beztu tegundum erlendum. Pólar rafgymarnir eru framleiddir í öllum algengum stærðum 6 og 12 volta. Ennfremur framleiðum við eftir pöntun diesel- rafgeyma 12 volta upp í 240. amperstundir. Þegar þér þurfið að endurnýja rafgeymirinn, þá spyrjið fyrst um nafnið PÓLAR og tryggið yður kraftmikinn og endingargóðan geymi. Eflið innlendan iðnað, kaupið og notið íslenzka framleiðslu, sem í engu stendur erlendri að baki. Leitið frekari upplýsinga hjá okkur. /?4 eymcu'erhóMÍ&jan f^óíar Hverfisgötu 89. — Sími 81401. Happdrætti Hóskóla íslands Fyrirhugað er að seíja upp happdrættisumboð í Lang- holtshverfi. — Þeir, sem kynnu að hafa hug á umboð- inu, eru beðnir að snúa sér hið fyrsta til háskóla- ritara (sími 3372 eða 2133). verður haldinn í Breiðfirðingabúð d gamldrskvöld kl. 9 Aðgöngumiðar seldir í dag og d morgun frd kl. 5—7 e.h. í anddyri hússins. Ath. Dökk föt og síðir k^ólar. meðan hún lifði og hjá henni dó hún háöldruð. Fyrir mína hönd, vandamanna hennar og vina, flyt ég hinni mætu aldurhnignu konu hugheilar af- mæliskveðjur og einlægar óskir um hlýtt og friðsælt ævikvöld. Ásgeir Ásgeirsson. Tíð umferðarslys KAUPMANNAHÖFN — 43 Dan- ir létu lífið í umferðarslysum í nóvembermánuði. Hefur slegið miklum óhug á fólk vegna hinna tíðu umferðaslysa þar í landi. Til samanburðar má geta þess, að í nóvembermánuði í fyria biðu 28 manns bana í umferðaslysum. Dán artala komin upp í 343 en var 253 í fyrra. Á áttunda þúsund manns hafa hlotið áverka af þessum sökum. Ein orsök þessa er hinn mikli fjöldi erlendra ökumanna, sem til Danmerkur kemur á ári hverju og gera sig seka um of hraðan akstur. — Leikfjelagið. Framh. af bls 5 Gerfi hennar er gott og röddin þægileg og fer vel við hlutverkið. Guðjón Einarsson leikur Tsæ, fyrrum dómara, föður Tsæ-Jong. Er það mesta hlutverk Guð- jór.s hingað til og fer hann einkar vel með það. Er lcikur hans sann- ur og innilegur og auðséð að hann hefur lagt mikla alúð við hlut- verkið. Áróra Halldóradóttir leikur konu Tsæ dómara og móður Tsæ- Jong. í byrjun leiksins fannst mér hún ekki ná fullum tökum á hlut- verkinu, en úr því raknaði er á leið, og er hún bað tengdadóttur sína fyrirgefningar var leilcur hennar mjög góður. Guðlaugur Guðmundsson fer mcð hlutverk Tsjíang vinar Tsæ dómara af nærfærni og góðum skilningi. Athyglisverður er og leikur Bergljótar Garðarsdóttur, er fer með hlutverk hjúskaparmiðlara. Önnur hlutverk eru smærri, en yfirleitt vel með þau farið. Gunnar R. Hansen hefur teikn- að búningana og leiktjöldin og „staðfært“ hljómlistina. Lothar Grundt hefur málað leiktjöldin. Eru þau afgbargðs vel gerð og hæfa vel leikritinu. Hljóðfæraleikarar eru Snorri Þorvaldsson og Lárus G. Jðnsson. Tómas Guðmundsson skáld hef- ur þýtt leikritið eftir sænskum og enskum textum á fagurt mál og ljóðrænt. Að leikslokum voru leikstjóri og leikendur kallaðir fram hvað eftir annað, og þeir ákaft hylltir með dynjandi lófataki og stórum og fögrum blómvöndum. Voru allir hlutaðeigendur vel að þeim fögn- uði komniri því hér er um fá- gætan leiklistarviðburð að ræða. Hafi leikstjórinn, Gunnar R. Han- sen og Leikfólag Reykjavíkur þökk fyrir þetta ágæta afrek. Sigurður Grímsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.