Morgunblaðið - 21.03.1952, Blaðsíða 1
39. árgangur.
67. tbl. — Föstudagur 21. marz 1952
Prentsmiðja Margunblaðsina.
Einkaskcyti til Mbl. frá Rpuler-NTH
PARÍS, 20. marz. — Ráðherranefnd Evrópuráðsins hélt áfram
fundum sínum í Parísarborg í dag. Fyrir lá tillaga frá Eden um
að breytt skuli stofnlögum ráðsins þannig að það geti haft yfir-
umsjón með Evrópuhernum og Schumanáætluninni. Hafa ráð-
herrar Frakklands, Ítalíu, Noregs, Hollands, Belgíu og Danmerk-
úr mælt með tillögunni.
AFSTAÐA SVÍA &
Unden utanríkisráðherra
Svía gagnrýndi hins vegar til-
lögur.a og kvað Svía ekki
myndu taka þátt í samkundu
siíkri sem Evrópuráðinu ef
það ætti að fara með yfirum-
sjón með Evrónuhcrnum og
Schumanáætluninni.
Kvað Unden Svía hafa gerst
aðiia að Evrópuráðinu vegna
þess að þeir trúðu að þar yrðu
ekki rædd hernaðarmálefni,
enda hefði svo verið ákveðið í
stofnlögum ráðsins.
ÞINGIÐ RÆÐIR MÁLIÐ
Sænska þingið mun nú fá það
mál til umræðu, hvort Svíar
skuli framvegis halda áfram þátt
töku í ráðinu.
Sfrandar ú
2 atriðum
TOKÍÓ 20. marz: — í dag urðu
sáttasemjarar í Panmunjom
ásáttir um hvernig haga skuli
eftirliti með væntanlegu
vopnahléi í Kóreu og vantar
nú aðeins samkomulag um 2
atriði.
Kommúnistar krefjast bess
enn, að Rússland verði viður-
kennt sem hiutlaust land sem
skipi fulltrúa í eftirlitsnefnd-
inni.
Fulltrúar S. Þ. halda og fast
við þá ákvörðun sína að ekki
megi bvggja eða uera við f’ug-
ur meðan vopnahlé stendur.
Hugðusf ráðasf
inn í ráðhúsið
NAPOLI, 20. marz. — Hópum
lögreglumanna var i gær stefnt
til þorpsins Villa Literno við
Napoli, og þar ríkir raunveru-
lega hernaðarástand eftir að
þændur sökuðu yfirvöldin um
hlutdrægni við úthlutun lóða.
Söfnuðust bændur í hópa og
liugðust ráðast inn í ráðhúsið.
Lögreglan átti fullt í fangi
með að stöðva þá. Einn bænd-
anna lét lífið í árekstrinum
en lögregiumaður særðist. Ró
ríkir aftur í þorpinu.
•— Reuter.
Brezkir útgerðarmenn boða hefndar-
ráðstafanir gegn íslenzkum fiskiskipusn
Geir landar í Eng-
landi á morgun
TOGARINN GEIR verður fyrsti
íslenzki togarinn sem til Bret-
lands kemur eftir úttvíkkun frið-
arsvæðisins. Hann á að selja í
Grimsby á laugardaginn.
Vesturveldiih undirbúa
svur sifit fiil Rússu
Eden, Schuman og Ádenauer sammála
Einknskeyti til Mbl. frá Reuter-ISTB
PARÍS, 20. marz. — Utanríkisráðherrarnir Eden og Schuman áttu
í dag viðræðufund með Adenauer ríkiskanslara. Fundurinn fór
fram fyrir luktum dyrum, en ráðherrarnir ræddu um hvert skyldi
vera svar Vesturveldanna við tillögu Rússa um fjórveldaráðstefnu
^r fjallaði um friðarsamninga við sameinað Þýzkaland.
Eftir fúnd sinn í dag hafa ráðherrarnir lagt uppkast að svari
fyrir sérfræðinga í París og Lundúnum og beðið er nú þess eins
að utanríkisráðuneytið í Washington staðfesti uppkastið.
TILMÆLI TIL RÚSSA ®
Meðal stjórnmálafréttarit-
ara í París var það kunnugt að
í svarinu felist tilmæli til Ráð
stjórnarríkjanna þess efnis að
greidd verði gata þeirrar nefnd
ar Sameinúðu þjóðanna, sem
nú ferðast um Vestur-Þýzka-
land, — að henni verði veitt-
ur greiður aðgangur til ferða-
laga um alla Berlínaborg, svo
henni megi takast það verk-1
efni sitt að rannsaka hvort
* , möguleikar á leynilegum kosn
ingum eru fyrir hendi þar.
Framh á bls. 8
Mikið liggur við
WASHINGTON —- Paul G. Hoff-
man, fyrrum yfirmaður Marshall
aðstoðarinnar, hefur fengið frí
frá störfum sínum við Fordverk-
smiðjurnar, þar til í nóvember,
en á tímabilinu mun hann hafa
yfirumsjón með skipulagningu
kosningabaráttunnar fyrir Eisen-
hower. Hoffman er talinn einn
fremsti skipulagningarmaður
Bandaríkjanna. — Reuter—NTB
Viija að liskkaupmenn
kaupi ekki afla þeirra
LUNDÚNUM, 20. marz. — Seint í gærköldi barst Morgun-
blaðinu Reutersskeyti þess efnis að fiskveiðimenn í Hull
hefðu hótað því í gær að grípa til hefndarráðstafana gagn-
vart íslenzkum fiskiskipum.
Ákvörðun þessi er tekin, segir í skeytinu, vegna hinna
nýyfirlýstu takmarkana gegn veiðum erlendra fiskiskipa
við ísland, sem felast í útvíkkun friðunarsvæðisins frá 3
mílum í 4 mílur.
f 1 hinum miklu jarðskjálftum^
sem gengu yfir Japan fyritf
skömmu, • eyðilögðust hundruS.
húsa og íbúamir eru nú mikilli
neyð staddir. — Á myndinni sést
hvernig ein hinna þjáðu japönskm
fjölskyldna hefur búið um sig í.
rústum fyrrverandi heimilis sinSý
Myndin er tekin á eynni Hokkaido,
Vetrarveður og snjókomur gera{
aðstæðurnar nær óbærilegar fyrir',
hinar bágstöddu fjölskyldur.
Neyðarástand
í Nevada
VILL AÐ FISKKAUPMENN
NEITI AÐ KAUPA
ÍSLENZKAN FISK
Ritari sambands togaraeig-
enda í Hull, Mr. Oliver, lét
svo um mælt, að það myndi
hafa heppileg áhrif, ef ís-
lenzkum skipum yrði neitað
um afgreiðslu í Bretlandi og
að fiskikaupmenn neituðu
að kaupa af þeim fisk. Kvað
hann nægilega hafa verið
troði.5 á brezku þjóðinni að
undanförnu.
HELMINGUR HULL-
FLOTANSSTUNDAÐI
ÞAR VEIÐAR
Varaformaður sambands
útgerðarmanna, R. P. Röss,
sagði, að brezkir togaraeig-
endur yrðu að stíga næsta
skrefið. Ríkisstjórn Islands,
sagði hann, lokar fiskimið-
um, sem eru dýrmæt við öfl-
un úrvalsfisks og þar sem
um helmingur alls fiskveiði
flotans frá Hull, hefur stund
að veiðar sínar.
Brezka utanríkisráðuneyt-
ið hefur að svo komnu máli
neitað að gera athugasemd-
ir sínar v»5 hinar nýju tak-
markanir, sem tilkynntar
voru á miðvikudag, en ganga
í gildi 15. maí. — Talsmað-
ur ráðuneytisins heftir látið
svo um mælt, að ráðuneytið
hafi málið til athugunar.
i
i
SAN FRANSISKÓ 20. marz: —.
Neyðarástandi hefur verið lýst í
Nevada eftir gífurlega snjókomu,
sem orsakað hefur hungurdauða
600 þús. húsdýra. Fjöldi manna
hefur einnig látið lífið.
Fylkisstjórinn í Nevada hefuif
látið svo um mælt að framleiðslu
tapið nemi 10 milljónum dala.
Hefur hann beðið um aðstoð og
er talið að fyrsta skrefið verði a'ð
varpa heyi úr flugvélum til
skepnanna.
Líkur til að Eisenhower
hverfi heim innan skamms
Tafl dregur sig lii baka í Nýju Jersey
Einkaskeyti til Mbl.
frá NTB—Reuter.
NEW YORK 20. marz: — „Hin
stjórnmálalega sprenging“
eins og blöðin kalla sigur
Eisenhowers í prófkosningun-
um í Minnesota varð í dag or-
sök athyglisverðra yfirlýsinga.
Eisenhower Iét svo um mælt
í Parísarborg í dag að cftir
þennan óvænta sigur sinn yrði
hann að verða við kröfum kjós
cndanna, og endurskoða sínar
fyrri yfirlýsingar þess efnis
að hann hverfi ekki heim iil
þátttöku í kosningarbarátt-
unni.
Yfirlýsing Trumans um að
yfirhershöfðingjanum sé hve-
nær sem er heimilt að liverfa
til Bandaríkjanna frá starfi
sínu í Evrópu, hefur og vakið
mikla athygli og í New York .
sagði helzti keppinautur Eisen
howers, Robért Taft, að hann
myndi draga sig til baka við
prófkosningarnar í Nýju
Jersey 5. apríl n.k.
Á vikulegum fundi er Tru-
man átti með blaðamönnum
kvað hann afstöðu sína varð-
andi framboð enn óákveðna.
Hann neitaði blaðafregn um
að hann biði með ákvörðun
þar til séð yrði um framgang
vopnahlésviðræðnanna.
Klofning í Evrópwráðinu?
Breyling á slofnlögum, sesn Svíar gera
a@ fréfararalriði, nýfur mikils fylgis
Þúsundir manna misstu heimili sín