Morgunblaðið - 10.04.1952, Blaðsíða 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 10. apríl 1952
„Fansl og djöfullinn" í Tjarnarbíói
í TJARNARBÍÓI verður sýnd á ar.nan í páskum heimsfraeg ítölsk-
: merísk stórmynd, byggð á Faust eftir Goethc og samnefndri
c'-peru Gounods. Með aðalhlutverkin fara kunnir söngvarar eins
og Gino Mattera, sem leikur Faust og Italo Tajo er leikur Mephi-
stopheles. Hljómsveit Accademia di Cecilia í Róm leikur. Þessi
Faust-mynd er gerð af mikilli snilld.
Tollendursksðun, á
innkaupsreikningum
í DÁLKUM Morgunblaðsins 6.
april þ. á. „Úr daglega lífinu“ er
birt bréf frá Siglufirði, dags. 31.
marz s. 1., er varðar kröfu toll-
endurskoðunarinnar um það, að
innkaupsreikningar séu undir-
ritaðir.
í 13. gr. laga nr. 62 30. desem-
ber 1939 segir m. a.:
„í aðflutningsskýrslum þeim,
sem viðtakendur skulu afhenda
tollstarfsmönnum áður en vörur
eru teknar til tollmeðferðar, skal
tilgreindur sá dagur, sem sala
hinna aðfluttu vara fór fram.
Þá skulu viðtakendur skyldir
til að afhenda til tollmeðferðar
samrit af sölureikningi yfir hina
aðfluttu vöru. Reikningseintak
þetta, sem tollstofnunin heldur
eftir, skal vera dagsett og undir-
litað af seljanda eða þeim, er
samkvæmt lögum í landi selj-
anda hefir rétt til að rita firma
hans. Reikningur þessi skal skýrt
og greinilega tilgreina nöfn
þeirra vörutegunda, sem hann
raeðir um, verð og nettóþunga
hverrar vörutegundar, hvernig
vara er seld, hvenær sala fór,
fram, greiðsluskilmála og önnur
söluskilyrði, svo og i hvaða mynt
er reiknað, tegund, merki og
númer umbúða, eða merki og
númer á vörunni, ef hún er um-
búðalaus, stykkjatölu og þunga
þeirra með umbúðum. Allir tölu-
liðir reikningsins skulu lagðir
saman og aðalupphæð hans skýrt
tilgreind.
Viðtakendur aðfluttra vara,
sem ekki eru endanlega seldar
hingað til lands eða sendar til
útibúa eða umboðsaðila fyrir út-
lend fyrirtæki eða aðra aðila í
útlöndum, skulu afhenda til
tollmeðferðar samrit af vöru-
reikningi yfir vörurnar, og skal
reikningseintak þetta, sem toll-
stofnunin heldur eftir, tilgreina
eftir því, sem við á, sömu atriði
og sölureikningar yfir aðrar að-
íluttar vörur. Á reikningseintak
þetta skal auk þess vera skráð
undirrituð yfirlýsing þess, sem
sendir vöruna til útibús sins, um
boðsaðila- eða annats erindreka,
um það, að verð það, sem til-
greint sé á vörureikningum, sé
ekki lægra en almennt heild-
söluverð á samskonar vörum
eðá vörum af svipuðu tagi til út-
flutnings á þeim stað og tíma,
sém vara er send.“
; Eins og af þessu sést hefur
ákvæðið um það, að innkaups-
réikningar skuli vera undirritað-
ir, af seljanda vörunnar, verið í
gildi frá því að tollskrárlögin
tóku gildi, 1. janúar 1940, og þetta
hefur verið kunnugt eða hefur
átt að vera kunnugt öllum þeim,
sem nokkuð að ráði fást við inn-
flutning.
Ákvæði þetta mun vera sett
með það fyrir augum að lög-
gilda ákveðið form á innkaups-
reikningum til að vera sönnun
þess, að þeir væri réttir. Ef formi
þessu var fullnægt máttu toll-
starfsmenn leggja þá til grund-
vallar tollútreikningi.
Nú hefur verið misbrestur
á því að forminu væri fullnægt.
Einkum kvað að því á stríðsár-
unum, og var þó ekki um það
fengizt, með því að samgöngur
voru svo erfiðar, enda verður á
slíkum tímum oft að slaka á
reglum til þess að létta undir
með því, sem mikilvægara er
í bráð.
Síðustu árin hefur hinsvegar
verið gengið ríkt eftir því, að
innkaupsreikningar væru svo úr
garði gerðir, sem lög mæla fyr-
ir. Langflestir innkaupsreikntng-
anna eru það, cg munu það því
vera ýkjur einar, að allir inn-
flytjendur á Siglufirði hafi orðið
að endursenda sölufirmum eitt
eintak af innkaupsreikningi til
þess að fá hann undirritaðan.
Sömuleiðis eru það ýkjur, að
athugasemd hafi verið gerð við
það, að nafn, sem átti að vera
undirritun á innkaupsreikningi
hafi verið of ofarlega sett á inn-
kaupsreikninginn. Undirritunin
sem staðfesting á því, að inm
kaupsreikningurinn sé réttur, er
venj.plega skrifuð, neðarlega á
reikninginn, en ekki .skiptir máli
hvar á blaðinu hún er, ef hún-
ctvírætt á að vera slík stað-
festing.
Það eru að sjálfsögðu gerðar
sömu kröfur til allra innflytjenda
á landinu. Til þeirra verður m. a.
að gera þær kr.öfur að þeir kynni
sér almennar reglur laga um
það hvernig innkaupsreikningar
eiga að vera úr garði gerðir. Þeir
geta fengið upplýsingar um
helztu reglurnar hjá hvaða toll-
yfirvaldi sem er á landinu, og
bréfritar.inn á Siglufirði hefði án
efa getað fengið fullnægjandi
upplýsingar um það á bæjar*
fógetaskrifstofunni á Siglufirði,
að reglurnar um undirritun inn-
kaupsreikninga hafa verið í gildi
í mörg ár og munu vera kunnar
langflestum innflytjendum.
Fjármálaráðuneytið, Tollendur-
skoðun, 9. apríl 1952.
Einar Bjarnason. .
getum vér útvegað frá Chrysler verksiniðlurí;-
um 0 IStiEiílciríkjununi, yfirbyggða og óyfir-
byggða DODGE og FARGO seudiferðabiia.
Aðalumboð:
Ueyiedihtóóovi dJ Cdo. L^.
Söluumboð:
.ϗir
LOFTKÆLDAR DIESELVÉLAR
MINNKIÐ REKSTURSKOSTNAÐINN
MEEl NOTKUN DIESELVÉLA
Getum nú útvegað loftkældar Deutz dieselvélar tilbúnar til að setja í flestar gerðir
vörubifreiða, langferðabifreiða og strætisvagna. — Loftkæling dieselvéla hefur í för
með sér einfaldari byggingu vélanna, minna slit á stimplum og strokkum, auk þess
sem vélarnar verða sparneytnari en vatnskæld vél sömu stærðar. Vélarnar eru fljótari
í gang og ná fyrr hæfilegum notkunarhita.
Aðalumboðsmenn fyrir KLÖCKNER-HUMBOLDT-DEUTZ A. G.
OAIVf AR h.f.9 Tryggvagötu, sími 1695
Reykjavík — Hafnarfjörður
Ferðir nm hátiðarnar verða sem hér segir:
Skírdagur: 1. ferð kl. 10 f. h. — Síðasta ferð kl. 0,30.
Föstudagurinn langi: 1. ferð kl. 14 — Síðasta ferð kl. 0,30.
Laugardagur: 1. ferð kl. 7 f. h. — Síðasta ferð kl. 19,00.
Páskadagur: 1. ferð kJ. 14 — Síðasta ferð kl. 0,30.
Waterman’s,
Parker,
Schaeffer
og fleiri tegundir af pennum
nýkomnar.
H. ^áskadagur: 1. ferð kl. 10 — Síðasta ferð kl. 0,30.
Amerísfcir kúlupennar
á 37.50. AukafyUiny ókeypis.
Landleiðir h.f.
IUildB útborgisn
Vil kaupa nýtízku íbúðarhæð 6-—8 herbergi, með ný-
tízku þægindum. Útborgun allt að 300 þúsund kr. —
Tilboð merkt: „Mikil útborgun — 580“, sendist blaðinu
fyrir 18. þ. m.
íbúð —íbúð
Er kaupandi að stórri nýtízku íbúð, helzt á hitaveitu-
svæðinu. Há útborgun. Tilboð óskast send afgr. blaðsins
merkt: „ABC — 581“ fyrir 19. þ. m.
Bókaverzliin
Snœbjarnar Jónssonar
&Co.
Austurstræti 4 Sími 1936.
:=r-T' 1 „ ‘J
Pc
Sks í tpoltsu
Steikiirpöaoi'r
Katlar
á rafmagnsr bvéla-
Einkaum'boð:
Jón Jóhanncsson & Co.