Morgunblaðið - 26.08.1952, Blaðsíða 2
f 8
MOttGVNBLABlB
Þriðjudagur 26. ágúst 1952 I
r Sigfingar fi! Miðjarðarhafslanda;
Athugnsemd frá Eim-
skspaf élagi tslands h/f
S GREIN er birtist í Morgun-
blaðinu 20. ágúst, fara> hr. Elías
Þorsteinsson og hr. Finnbogi
Guðmundsson þess á leit, að
Eimskipafélag íslands „beini að
verulegu leyti ferðum skipa
sinna til Spánar, ítalíu og ísrael.“
Félaginu er ljúft að taka til at-
hugunar allar vinsamlegar tillög-
ur um hagkvæmt siglingafyrir-
Jtomulag, og í því sambandi vill
J>að taka eftirfarandi fram:
Eimskipafélagið hefur fengið
beiðnir frá viðskiptamönnum sín-
um um að hafa fastar áætlunar-
ferðir bæði innanlands og til út-
landa, og m. a. til allra eftir-
taldra landa: Ameríku, Finn-
lands, Noregs, Svíþjóðar, Þýzka-
lands, Hollands, Belgíu, Eng-
lands, Spánar, Ítalíu og ísrael.
N'okkrar tilraunir voru gerðar
árin 1946 og 1947 að koma á föst-
um ááetlunarferðum til nokkurra
af þessum löndum, ásamt helztu
hafna innanlands. — Reynslan
sýndi þá, að til þess að geta
haldið uppi slíkum áætlanaferð-
um og jafnframt annað nauðsyn-
legum flutnlngum til og frá er-
lendum höfnum, þurfti auk eigin
skipa mörg dýr erlend leiguskip.
Skipum félagsins hefur verið
toeint þangað sem flutningsþörfin
hefur verið mest á hverjum tíma,
miklu leyti sem skipakostur fé-
lagsins hefur leyft. Að því er
snertir vöruflutninga til og frá
Spáni, þá hefur samkvæmt upp-
lýsingum, sem félagið hefur feng-
ið, aðeins farið einn farmur af
saltfiski um 1000 tonn til Spánar
fyrstu sex mánuði þessa árs, og
munu kaupendur á Spáni hafa
ráðið því að sá farmur var send-
ur með erlendu skipi. Þá skal á
það bent að vér höfum flutt sam-
tals aðeins 282 tonn af vörum frá
Spáni og frá Ítalíu 206 tonn á
þessum sex mánuðum. Þessar
vörur voru fluttar með um-
hleðslu í Antwerpen og Rotter-
dam. Sama máli er að gegna um
ísrael. Flutningar þaðan hafa
verið mun minni. Þetta sýnir að
enginn grundvöllur hefur verið
fyrir hendi til þess að Eimskipa-
félagið beindi ferðum skipa sinna
„að verulegu leyti“ til Sþánar
eða annarra Miðjarðarhafslanda.
Hvað framtíðin kann að bera
í skauti sínu, er annað mál. Ef
viðskipti við Spán aukast til
muna, þannig að grundvöllur
verði fyrir auknar skipaferðir
þangað eða til annarra Miðjarð-
arhafslanda, mun ekki standa á
Eimskipafélaginu að hefja sigl-
ingar þangað eins og til annarra
þeirra landa, sem íslendingar
eiga viðskipti við, ef flutnings-
Blósnakertð hefndi fyrir stg
%
:4
-c
V:
-a
C£1
a
0lórna, p o ttj, y.
PyAhiJ* —
og með því hefur tekizt að nota
skiprúmið eftir beztu föngum og | magnið er nægilegt.
jafnframt sinna þörfum bæði út- |
flytjenda og innflytjenda, að svo I H.f. Eimskipafélag íslands.
Eldflaugar í 80 knu hæð
í RÁÐI er að senda eldflaugar upp í háloftin frá Grænlandi og
eiga þær að komast upp í 80 km hæð. Hraði þeirra er 5000 km á klst.
Uppdráttur þessi sýnir allkyndugan árekstur milli fólksbifreiða
og blómakers, sem varð á Lækjargötunni s.l. laugardag. Lítil Ford- 1
bifreið R—1937 kom akandi norður Lækjargötuna og ætlaði að
heygja upp Bókhlöðustíginn. í sama mund kom Austin-bifreiðin |
It-4102 akandi aftan Ford-bifreiðarinnar, ætlaði fram úr henni á
gatnamótum. Bifreiðarnar snertu hvor aðra, en framhluti Austin-
bifreiðarinnar lenti á stóru stcinsteyptu blómakeri, sem stóð á mið-
gangstétt Lækjargötunnar, svo að það rann af stað. Bifreiðarstjóri
Austin-bifreiðarinnar hægði á ferðinni, svo að það stóð á jöfnu,
að blómakerið sem rarn í hálfhring aftur vestur á bóginn dró
hann uppi og skall með braki og brestum framan til á Austin-
bifreiðina. Þar skemmdiSt hún mest og blómakerið brotnaði í mél.
..-aeKIIL
Bílvegur um KIoSrIbej
lær iólksbiireiðum
FÆRT er nú orðið fólksbifreiðum fyrir Klofning í Dalasýslu. Ann-
ars er unnið að því að gera brýr á veginum og næsta sumar ættu
allar þær brýr sem mynda helztu farartálma að verða brúaðar, ef
allt gengur að óskum.
VÍSINÐALEGS EÐLIS
Markmiðið með þessum eld-
flaugasendingum er einungis vís-
indalegs eðlis. Mæla á geislun
gufuhvolfsins við segulskaut
Norðurpólsins, sem. er í Tule-
héraði. Er það háskúlinn í Iowa,
sem stendur fyrir þessum rann-
sóknum, og kemur leiðangur frá
honum á skipi til Tulestrandar.
1 80 KM HÆÐ
Eldflaugunum verður ekki
skotið frá skipinu, heldur svífa
þær i um 15 km hæð í sérstökum
loftbelgjum og þaðan er þeim svo
skotið með til þess gerðum sjálf-
virkum tækjum og er gert ráð
fyrir, að þær komist upp i efsta
lag gufuhlofs jarðar. —- Hingað
til hafa menn aðeins þekkt geisl-
unina í 20—25 km hæð. Nú er
þess hins vegar vænzt, að þekk-
ingin nái þrisvar sinnum lengra
upp í gufuhvolfið, og ástæðan
fyrir því, að rannsóknin verður
gerð í Tule, er sú, að geislun
gufuhvolfsins beinist í átt til
jaröar fyrir tilstuðlan segulkrafts
skautanna.
í STÖÐUGU SAMBANÐI
VIÐ LEIÐANGURSMENN
Fremst í eldflaugunum eru
stuttbylgjutæki, sem hafa stöð-
ugt samband við leiðangurs-
menn. Fá þeir þannig jafnóðum
niðurstöður þeirra mælinga, sem
hin ýmsu tæki eldflauganna gera. i
ást við fyrsfu sýn
í LARVÍK gerðist það nýlega, aðj
framreiðslustúlka á Grand Hótel
þar í bæ bar á borð fyrir dansk-
an gest, sem þangað kom. Daginn
eftir kom stúlkan til forstöðu-
manrjsins og sagði upp starfi rúnu,
þvi að .þún ætlaði sér að giftast
þeim danska. Forstöðumaðurinn1
lét hana fara við svo búið og!
næsta mánudag tjvj dögum eftir
að hún hafði séð danskinn voru
l^au komin í heilagt hjónaband. (
Glæsilegt héraðsmól
Sjálfslæðismanna
að Ölver i
i
AKRANESI, 25. ágúst — Héraðs-
mót Sjálfstæðismanná í Ölver var
haldið sunnudáginn 24. þ. m. og
hófst kl. 4 e. h. Formaður Sjálf-
stæðisfélagsins á Akranesi, Jón
Árnason, setti samkomuna með
ávarpi og bauð menn velkomna.
Böng þá Guðmundur Jónsson.
Síðan flutti Pétur Ottesen al-
þingismaður skörulega ræðu.
Gerði hann lærdómsríkan saman-
burð á kjörum og lífi fólksins í
landinu á liðnum öldum við það,
sem ætti sér stað í dag. Var hon-
um óspart þakkað, er hann hafði
lokið máli sínu. Næst las Brynjólf
ur Jóhannesson leikari upp
kvæði, og söng gamanvísur af
sinni alkunnu snilld. Þá talaði
Magnús Jónsson frá Mel. Og
flutti eina af sínum skeleggu
hvatningaræðum til ungu kyn-
slóðarinnar, um að skera upp her-
ör og fylkja sér af einlægni og
dug um hugsjónir Sjálfstæðis-
manna á íslandi. Guðm. Jónsson 1
söng mörg lög við mikla aðdáun
og hrifningu áheyrenda. Og hefir
sjaldan tekizt betur upp að kunn-
ugra sögn.
Klukkan átta hófst dansinn. (
E.S.-kvintettinn, hin vinsæla
danshljómsveit lék fyrir dansin-1
um. Veitingar voru framreiddar
á staðnum.
Sumir ætlþðu x herjaheiði jafn-
framt, en þeir létu berin eiga
sig, og feögðust ekki geta yfir-
gefið svona góða skemmtun. —
Um sama leyti og skemmtunin
hófst, gerði sólskin og batnaði
veðrið því meir, sem á daginn
leið. —Oddur.
FÆRT FÓLKSBIFREIÐUM
í sumar hefur verið unnið að
brúargerð yfir Brúardalsá á
Skarðströnd og tvær smáár. Og
sjálfri vegarlagningu er svo langt
komið að alltaf er fært fyrir
jeppa og venjulegar fólksbifreið-
ar komast leiðina vel, þegar lítið
er í hinum óbrúuðu ám, eins og
verið hefur undanfarinn þurrka-
tíma.
Eftir er að brúa þrjár ár á
Skarðströndinni Krossá, Nípurá
og Fagradalgá og eina í Saurbæ,
sem er Hvolsá og verður von-
andi haldið áfram smíði þeirra
j næsta sumar. Er þetta til góðra
íramfara í sveitinni. Þar á ofan
1 bætist svo, að verið er að leggja
síma um Skarðströnd, svo að
notendasímar koma brátt á flesta
bæi. — Fréttaritari.
Jón á Laxamýri
heiðraður
ÁRNESI 5. ágúst. — HINN 31.
f. m. heimsóttu sveitungar og
vinir Jón H. Þorbergsson á Laxa-
mýri í tilefni af sjötíu ára af-
mæli' hans.
í þessu tilefni veitti óðalsbónd-
inn á Laxamýri gestum sínum
veglegt kaffi í stóru veizlutjaldi
heima á staðnum og sátu þar til
borðs á annað hundrað manns.
Baldvin Friðlaugsson á Hvera-
vöílum, f.v. oddviti Reykja-
hrepps, flutti afmælisbarninu
þakkir f. h. sveitunga með ræðu
og færði því að gjöf frá þeim
stækkaða ljósmynd með áletrun.
Meðal annarra gjafa, sem bárust,
var stækkuð ljósmynd af Laxa-
mýri, er Búnaðarsamband S-
Þingeyinga gaf með áletraðri
þökk fyrir langt og vel unnið
starf fyrir sambandið, en Jón
hafði verið einn af stofnendum
búnaðarsambandsins og formað-
ur þess í 20 ár.
Margar árnaðaróskir bárust
Laxamýrarbóndanum í símskeyt-
um þennan dag, og kvæði og
þakkarræður voru fluttar undir
borðum til afmælisbarnsins, enda
er Jón á Laxamýri fyrir löngu
þjóðkunnur fyrir störf sín' og
brennandi áhuga á málefnum ís-
lenzks landbúnaðar, sérstaklega
sauðfjárrækt og verðlagsmálum,
sem hann barðist fyrir á sínum
tíma. — Fréttaritari.
Frá kirkjukórunum í
V.-Skaflafellssýslu
KIRKJUBÆJ ARKLAUSTRI: —
Sunnudaginn 17. ágúst kom
kirkjukórinn í Skaftártungu á-
samt sóknarprestinum, sr. Val-
geiri Helgasyni, hingað austur á
Síðu og annaðist guðsþjónustu í
Prestsbakkakirkju. Guðsþjónust-
an fór mjög vel frám og var all-
fjölmenn.
Um kvöldið hafði kirkjukór
I Prestsbakkasóknar almenna
skemmtun í Múlakoti - og bauð
þangað Kirkjukór Skaftártungu.
I Auk dansins var þetta til
skemmtunar: Ilelgi Þorláksson,
• kennari í Rvík, hélt ræðu, sr.
(Valgeir Helgason Ias upp fjögur
frumsamin og þýdd kvæði og Sig-
ríður Kristjánsdóttir í Skaftár-
| dal söng þrjú lög með undirleik
Helga Þorlákssonar.
| Var gerður góður rómur að öll-
um þessum skemmtiatriðum. —
Samkoman fór ágætlega fram og
var sótt af fjölmenni víðsvegar
að. — Fréttaritari.
leikar á isafkði
ÍSAFIRÐI, föstudag: — í gær.
kvöldi efndu tveir ungir lista-
menn, Ingvar Jónasson fiðluleik-
ari og enskur píanóleikari, ung-
frú Hilary Leech, til sameigin-
legia tónleika í Alþýðuhúsinu á
vegum Tónlistarfélags Isafjarðar.
Fyrsta verkið á efnisskránni
var sónata í A-dúr eftir Mozart
fyrir fiðlu og píanó. Síðan lék
ungfrúin Prelude eftir Rachman-
inof og Scherzo í B-moll eftir
Chopin. Þá var einleikur á 'iðlu
með píanóundirleik. Lék Ingvar
fyrst Polonaise Rilliante í A-dúr
eftir Wieniawski og La Caprici-
euse eftir Elgar. Að lokum léku
þau sónötu fyrir fiðlu og píanó
eftir Cesar Franck.
Listamönnunum var fádæma
vel tekið, og urðu þau að leika
fjölda aukalaga við mikla hrifn-
ingu áhorfenda, r,em klöppuðu
óspart lof í lófa.
Tónlistarmönnunum barst.
fjöldi blómvenda. — Ingvar
Jónasson hefir stundað tónlistar-
nám í Englandi s.l. tvö ár við
Royal College of Music í London
og hefir hann notið þar kennslu
og leiðsagnar danska fiðluleikar-
ans Henry Holst. Lauk hann í vor
5. gráðu prófi skólans með ágæt-
um vitnisburði og stundar næsta
vetur nám í efsta bekk skólans.
I vor tók hann þátt í sam-
keppni, sem háð var í skólanum
um peningaverðlaun og hlaut
hæstu verðlaun í fiðluleik.
Ungfrú Hilary Leech hefir
stundað nám við sama skóla og
hafa námsgreinar hennar verið
píanó og sellóleikur. Er hún talin
með beztu og efnilegustu píanó-
leikurum skólans.
Þau Ingvar og ungfrú Leech
munu halda héðan til Akureyrar
og halda tónleika um. mánaða-
mótin. Einnig er áformað, að þau
leiki í útvarpið. Ungfrú Leech
hefir fengið tilboð um að leika
einleik á píanó í brezka útvarpið
fyrir hönd skólans í dagskrárlið,
sem margt ungt fólk sér um. Og
einnig hefir hún fengið tilboð um
að leika á selló í sjónvarp fyrir
hönd sinfóníuhljómsveitar hér-
aðeins, sem hún býr í. — J.
Norrænir vikinpr
í Hollywood
i
NÚ er mikið um það rætt, hvort
gömlu víkingarnir og sögurnar
um þá verði ekki framtíðarvið-
fangsefni bandarískra kvik-
mynda. Byrjað er nú að gefa út
1 sögur um þá í litum, handhægum
lútgárum. í Bandaríkjunum, og
hafa þær verið seldar gífurloga
þar í landi. — í ráði er nú að gera
'fjórar víkingakvikmyndir 1
j Bandaríkjunum og verður ein
'þeirra fullgerð á þessu ári, The
l'Viking Raiders.
Rótaryklúbbur Húsa-
víkur heimsótti 1
Sauðárkrék !
SAUÐÁRKRÓKI, 25. ágúst —
Síðastliðfnn laugardag heimsótti
rótaryklúbbur Húsavíkur rótary-
klúbb Sauðárkróks, og er það í
fyrsta skiptið, sem þessi klúbbur
heimsækir Sauðárkrók.
Um kl. 21,00 hófst sameiginleg-
ur fundur félaga og gesta þeirra,
Ræður fluttu umdæmisstjóri, sr,
Friðrik Friðriksson, Einar J.
Reynis, Jón Þ. Björnsson og Sig-
urður Sigurðsson bæjarfógeti.
Ennfremur fluttu forsetar beggja
klúbbanna ávörp.
Á sunnudagsmorgun söfiiuðust
klúbbfélagar saman að nýju ög
var Húsvíkingum sýnt hið mark-
verðasta í bænum og kringumí
hann. — Klúbburinn lagði af stað
heimleiðis upp úr hádegi sama
dag með viðkomu að Hólum |
Iljaltadal. —Jón.__ t
Sjóflvarpað frá ræðu
WASHINGTON. — Eisenhowet!
ætlar að hefja kosningabaráttuna
í fullum krafti hinn 4. sept. —
Ætlar hann þá að halda mikla
ræðu í Fíladelfíu og verður bæði
sjónvarpað og útvarpað frú
henni. Síðan rekur hver stórræð-
an aðra.
Enn liggur ekkert fyrir um, hvð
nær Adlai Stevenson æltar að
hleypa úr hlaði. Sagt er, að hanni
ætli að ferðast um gervallt land-<
ið í járnbrautarlest og vélflugu*