Morgunblaðið - 03.10.1952, Blaðsíða 5
Föstudagur 3. okt. 1952
MORGUNBLAÐIÐ
Framh. af hi->. 1
frumvarpið verður að lögum,
verður óheimilt að stofnsetja
áfengisútsölu i kauptúni. Ákvæði
laga nr. 26/1943 um héraðataönn
hafa verið tekin upp í frumvarp-
ið, enda hefur nefndin féngið
Etaðfestingu utanríkisráðuneytis-
ins á því,. að þessi ákvæði séu
eigi andstæð neinum milliríkja-
samningum, sem íeland er aðili
að.
VEITINGALEYFI
í 12. gr. frumvarpsins eru fýr-
irmæli varðandi leyfi veitinga-
húsa til vínveitinga. Felst í þeim
ákvæðum mikil tareyting fi’á
gildandi lögum. Samkvæmt 11.
gr. gildandi áfengislaga er dóms-
málaráðherra heimilt að veita
einu veitingahúsi í Reykjavík
leyfi til veitinga á áfengum
drykkjum, sem til landsins má
flytja. í frumvarpinu felst að því
leyti til rýmkun, að ekki er í því
gert ráð fyrir, að heimildin sé
eingöngu bundin við eitt veit-
ingahús. Frumvarpið gerir ráð
fyrir, að í kaupstöðum, þar sem.
áfengisútsala er, geti dómsmála-
ráðherra veitt veitingahúsi eða
veitingahúsum leyfi til vínveit-
inga. þegar eftirtalin skilyrði eru
fyrir hendi.
a. Að veitingahúsið hafi á boð-
stólum mat og fjölbreytta ó-
áfenga drykki.
b. Að veitingahúsið sé að dómi
stjórnar S-ambands gisti- og
veitingahúseigenda fyrsta flokks.
Geta samkvæmt þessum fyrir-
mælum aðeins komið til greina
fullkomin og fyrsta flokks veit-
ingahús.
ÞJÓNUSTUGJALD AF
ÁFENGISÖLI
c. Að eigi sé greitt þjórfé (þjón-
ustugjald) al sölu áfengra
drykkja né veitingahúsið launi
starfsfólk sitt með hundráðs-
gjaldi af sölu þeirra.
Þetta bann 'við þjórfé af áfeng-
um drykkjum er hér algert ný-
mæli. Er það í samræmi við það
sjónarmið áfengislöggjafarinnar,
sem nefndin vill fyrir sitt leyti
undirstrika, að útiloka sem mest
má verða einkagróða af áfengi.
Með þessu ákvæði ætti að vera
loku skotið fyrir það, að þjón-
ustumenn geti haft nokkurra
hagsmuna að gæta í sambandi
við áfengisveitingar. Þeir geta
því enga hvöt haft til þess að
afgreiða áfenga drykki öðrum
beina fremur, nema síður sé. -—
Nefna má að svipað ákvæði er í
frumvarpi til norskra áfengis-
laga, sem sérstök nefnd, er haft
hefur áfengislöggjöfina til end-
urskoðunar, hefur samið.
ÁFENGISVARNARÁD
HAFI HÖND í BAGGA
Loks er það skilyrði, að leitað
sé Umsagnar áfengisvarnaráðs,
bæjarstjórnar og áfengisvarna-
nefndar í þeim kaupstað, sem í
hlut á, áður en veitingahúsi er
veitt leyfi til vínveitinga. Vildu
sumir nefndarmenn ganga enn
lengra og beinlínis binda leyfis-
veitingu því skilyrði, að áfengis-
varnaráð samþykkti hana, en
meiri hluti nefndarinnar taldi
ráðherra skapað nægilega mikið
aðhald með því að leita umsagn-
ar fyrrnefndra þriggja aðila og
mundi hann naumast veita leyfi
gegn rökstuddu áliti þeirra.
Skv. frumv. er aðalreglan sú,
yð leyfi til vínveitinga verði ekki
veitt veitingahúsum utan kaup-
staða. Frá þeirri meginreglu er
þó gert ráð fyrir undantekning.u.
Þegar telja má að veitingahús-
rekstur utan kaupstaða sé aðal-
lega vegna eriendra ferðémanna,
er dómsmálaráðherra að fengnu
samþykki áfengisvarnaráðs, og
að uppfylltum öðrum framan-
greindum skilyrðum, heimilt að
yeita slíkum veitingastað leyfi til
yínveitinga. Slíkar leyfisveiting-
ar eru jafnán bundnar sam-
þykki áfengisvarnaráðs.
Samkvæmt frumvarpinu eru
leyfi veitingahúsa til vínveitinga
Joundin tímatakmörkunum.*Verða
þau éigi veitt til lengri tíma> en
fjögurra ára í senn.
Vérði áfengisútsala lögð niður
í kaupstað samkv. fyrirmælum
10. gr. frumvarpsins verðdr vín-
veitingaleyfi veitingahúss í þeim
kaupstað ekki framlengt að gild-
istíma loknum. Leyfi skal bundið
við nafn og veitir leyfishafa að-
eins rétt til veitinga í því hús-
næði, er hann hefur þegar honum
er veitt leyfið.
MÁ TAKMARKA LEYFI
Víf) LÉTT VÍN
Þá má binda vínveitingaleyfi
þeim skilyrðum, sem dómsmála-
ráðherra cg áfengisvarnaráð telja
nauðsynleg, m. n. er heimilt að
binda leyfið eingöngu við veit-
ingu léttra vína. Ennfremur má
kveða svo á, að dans megi ekki
fara fram í þeim salarkynnum
vínveitingahúsa, þar sem vin er
veitt. Er ráðherra með ákvæði
þessu veitt færi á að binda leyfi
hvers konar skilyrðum, sem nauð'
synleg eru eða reynslan sýnir að
til bóta horfa.
SKORÐUR VID
EINKAGRÓÐA
Nánari fyrirmæii um vinveit-
ingar, þ. á. m. um veitingatíma,
eftirlit. á veitingastað og. álagn-
ingu ber að setja í reglugerð.
Telur nefndin það sérstaklega
nauðsynlegt, að það sé ófrávíkj-
anlegt skilyrði, að á hvérjum
veitingastað sé jafnan eftirlits-
maður, skipaður af hinu opin-
bera, en laun hans séu greidd af
veitingahúsinu. Álagningu ber að
stilla svo í hóf, að skorður verði
reistar við einkagróða af vínveit-
ingum. Urn þessi atriði öll hefur
áfengisvarnaráð tillögurétt.
EKKI PÓSTKRÖFUSEND-
INGAR
I 13. gr. frumvarpsins er það
nýmæli, að bannað er að senda
Vín gegn póstkröfu. Þar er og
mælt svo fyrir að áfengi megi
einungis selja gegn staðgreiðslu,
en eftir gildandi lögum skal það
ákveðið í reglugerð.
VEGABRÉF TIL SANNINDA-
MERKIS UM ALDUR
I 16. gr. er það nýmæli upp
tekið, að kaupandi áfengis skuli
jafnan sanna aldur sinn rrieð
vegabréfi eða á annan fullnægj-
andi hátt, en haldið er reglu
gildandi laga, að óheimilt sé að
afhenda eða veita yngri mönnum
en 21 árs áfengi. Nýmæli er það
og í sömu gr. að skylt skal að
tilkynna útsölustöðum Áfengis-
verzlunarinnar jafnóðum, hverjir
gerzt hafi brotlégir samkyæmt.
þeirri grein, en óheimilt er að
selja slíkum mönnum áfengi.
VÍNVEITINGALEYFUM
FÆKKAR
í 20. gr. frumvarpsins eru sett
ný og þrengri ákvæði um vín-
jveitingaleyfi, sem lögreglustjóri
getur gefið. Samkvæmt þeirri
grein getur lögreglustjóri aðeins
gefið leyfi til vínveitinga, nema
í veizlum, samsætum og öðrum
slíkum samkvæmum, innanfélags
manna og félagsgesta, þar sem
sýnt er, að félagsskapurinn í
heild eða einstakir þátttakendur
í honum hafa ekki hagnað af.
Skemmtifélögum má alls- ekki
gefa slík leyfi. Ekki má heldur
veita slík leyfi til vínneyzlu í
samkvæmum,. sem haldin eru á
veitingastöðum, ef ætla má, að
til þeirra sé stofnað í tekjuskyni
fyrir veitingabúsið. Meö. þessum
fyrirmælum, sem eru að nokkru
leyti sniðin eftir 16. gr. reglug.
nr. 126/1945 en að nokkru ný-
mæli, ætti að vera nokkurn veg-
inn tryggt, að vínveitingaleyfum
fækki.
Þyngd er nokkuð viðurlög að
því ef opinberir starfsmenn,
starfandi læknar, lyfsalar eða
þjónar þeirra eru ölvaðir við
störf sín sbr. 22. og 23. gr.
AUKNAR ÁFENGISVARNIR
í frumvarpinu er lagt til að
áfengisvarnir séu stórauknar. —
Samkv. 26. gr. skal starf áfengig-
varnáráðunauts -gert að aðal-
starfi, en fram til þessa hefur
það verið aukastarf. Er áfengis-
varnaráðunaut ætlað að vera
íormaður og' framkvæmdarstjóri
áfengisvarnaráðs. En áíengis-
varnaráði er ætlað að fara með
yfirstjórn allra áfengisvarna í
landinu, stuðla að bindindissemi
og vinna gegn ofnautn áfengra
drykkja og reyna að afstýra skað-
legum áhrifum áfengisneyzlu.
Et' það ný stofnun. Skal það skip-
að 5’mönnum. Áfengisvarnaráðu-
nautur er formaður, eins og áður
segir. Hinir neíndarmennirnir
skulu kjörnir hlutfallskosningu í
sameinuðu Alþingi, að afstöðn-
um hverjum almennum alþingis-
kosningum. Þykir heppilegt, að
leggja yfirstjórn áfengisvarna í
hendur fjölskipaðs stjórnvaids,
sem ætla má að allir aðal s-tjórn-
málaflok-kar eigi hlut að. Aðstaða
þessarar stofnunar ætti því að
vera sterk, og jafnframt er gerð
tilraun til að útiloka tortryggni.
ÁFENGISVARNASJÖÐUR
Þá er það og nýmæli að stofna
skal sérstakan sjóð, áfengisvarna-
sjöð, til að standa straum af öll-
um kostnaði við áfengisvarnir.
j Skulu í sjóð þann renna 3% af
: rekstrarhagnaði Áfengisverzlun-
ar ríkisins. Virðist sanngjarnt og
' eðlilegt að einhverju af þeim
hagnaði, sem verður af áfengis-
■ verzlun sé einmitt varið til þess
| aö girða fyrir skaðlegar afleið-
j ingar áfengisnautnar.
Loks er aigert nýmæli í 33.
! gr. frumvarpsins. Samkvæmt því
ákvæði skal á næstu 5 árum
leggja árlega til hliðar 6% af
hreinum ágóða Áfengisverzlunar
ríkisins. Skal helmingi þeirrar
upphæðar varið til byggingar
drykkjumannahæla og lækn-
ingastöðva handa drykkjumönn-
um, sjúkrahúsa og eiliheimila
eftir nánari ákvörðun heilbrigð-
ismálaráðherra. Hinum helmingi
upphæðarinnar skal varið að
jöfnu til þess að veita féiags-'
heimilum og hótelum vaxtalaus
ián, og skulu þau hótel, sem ekki
hafa vínveitingaleyfi ganga fýrir.
Nýmæli þetta.byggist á því sjón-
armiði nefndarinnar að gera eigi
ríkissjóð smátt og smátt óháðan
áfengisgróða.
SEKTIR FJÓRFALDAST
Sektir ailar samkvæmt frum-
varpinu eru fjórfaldaðar frá því
sem er í núgildandi lögum, en
lítragjald er tífaldað.
Auk þess, sem nú hefur verið
talið, eru nokkrar smærri breyt-
ingar, sem ekki þykir ástæða til
jað rekja.
Þess skal að lokum getið, að
um sum nýmæla þeirra er hér
hafa verið greind hefur verið á-
greiningur innan nefndarinnar
og hafa nefndarmenn gert grein
fyrir afstöðu sinni í athugasemd-
um við frumvarpið.
STULKA
vön heimilisstörfum óskast.
Miklubraut 6f>, vinstri dyr.
með svölum, til leigu. Miklu
braut 66, vinstri dyr.
Reglusöm
STUIKA
óskar eftir einhvers konar
atvinnu húlfan dagiim (ekki
vist). Upþi. í aíma 7318.
STÉLKA
óskast í vfst. Ujrpiýsingar
f síma 98-94.
Vill ekki einhver lána mér
í stuttan tíma. H'áir vextir.
Tilboð sendis-t afgr. Mbl.
fyrir kl. 6 í kvöld, merkt:
„Fljótt — 724“.
Jl Trovatore" frum-
sýnd í Nýja bíói
á morgun
NÝJA BÍÓ frumsýnir á morgun
ítalska óperukvikmynd, II Trova-
tore, byggða á samnefndri óperu
með hljómlist eftir G. Verdi. —
Hljómsveit og kór frá óperunni
í Róm aðstoða við sýninguna.
í hlutverkaskrá leikara getur
;að iíta eftirfarandi nöfn: Enzo
Mascherini, Gino Sinimberghi,
Vittoria Collonello, Gianna Peder
zini. En aðalsöngvararnir eru
Gianna Pederzini. ’.nezzó i ópran,
Franca Sacchi sópr.an, Antonio
Salverezza tenór, Enzo Mascher-
ini baritón, Enrico Formicchi
bassi.
Hljómurinn í myndinni er frá-
munalega góður og myndin í alla
staði prýðileg og þess sannar-
lega virði að sjá hana. — A.
IiEZT AÐ AUGLÝSA
t MOKGUISBL4ÐINU
ibúð ésktBsl
í bænum eða utan við bæ-
inn. Mikil _fyrirfram-
greiðsla. Upplýsingar í
síma 80943 kl. 1—5 e.h.
IIERBERGI
til leigu á hitaveitusvæði í
Vesturbænum. Uppl. gefur:
Siguiður Steindórswin
Bifrt'iðasiöS Steindórs.
Get tekið
Fermingarkjóla
til að sauma. Sníð einnig
og máta. —
Sara Finnljogadóttir
Lækjargötu 8, gengið inn
frá Skólabrú.
11L LEiGU
Góð stofa til leigu, aðgang-
ur að baði og síma. Uppl. i
síma 6201 eða á Kvisthaga
18, II. hæð.
2|a herb. íbúð
með húsgögnum óskast sem
fyrst fyrir starfsmann hjá
ameríska sendiráðinu. Sími
1084. —
6»ð stúikeb
óskast í létta vist. Upplýs-
ingar á Vésturgötu 19. ■—
S-ími 3442. —
Vörubifreið
Til sölu er 5 tn. Austin. ■—
Smíðaár 1946. Hagstætt
vefð. Mikið af varahlutum.
Uppl. í síma 80258 milli kl.
6 og 8 í kvöld og næstu
kvöld. —
tiÞ sölu.
Upplýsingar í síma 2842.
Opna í dag nýja fiskbúð að
Hverfisgötu 74.
Jólusnn Guðjónsson
5 manna Armstrong Sid-
denly, model 1946, til sölu.
Bíllinn er í ágætu iagi. —
Skipti á minni bíl hugsan-
leg. Til sýnis á Snorrabraut
32 kl. 4—7 í dag. Sími 5517.
G ó ð
Forstofusfofa
á fyrstu hæð, til leig.u
strax. Sá, sem hefur s-íma,
gengur fyrir. Kvisthaga 14.
4ra msnHœr
ný sprautuð, í góðu lagi og
á góðum gúmmíum, til sölu.
Upplýsingar í síma 81404.
TIL SOLU
Barnavagn og stígin sauma
vél í hnotuskáp, sels! mjög
ódýrt. Upplýsingar Reyni-
mel 22, kjallara, sími 80862
STULK4
Rösk og vön s-túlka óskar
eftir vinnu við afgreiðslu-
störf eða á matsöluhúsi,
strax. Upplýsingar i síma í
3912. —
TIL SOLU
fermingarkjóll og barna-
kerra. Snorrabraut 48, 3.
hæð til vinstri.
tiuglingsstúlka
getur fengið atvinnu í tó-
baks- og sælgætisverzlun frá
hádegi. — UppL í Tó-
baksbúðinni Austurstræti 1,
milli kl. 6—7 í dag.
RÓLEG stúlka getur fengið
afhot af
Siofu
gegn húshjálp 2—3 kvöld í
viku. Fæði gæti komið til
greina. Upplýsingár Efsta-
sund 28. —
11L SOLU
ljósakróna (3ja arma); rúm
fatakassi; harmonikubeddi;
skíðabuxur og peysa (12
ára dreng). Reynimel 54,
(kjallara), eftir kl. 18.00.
Ísskáfnis*
Norge-ísskápur til sölu. —
Verð 3.500 kr. Upplýsingar
á Laugaveg 8, uppi.