Morgunblaðið - 15.10.1952, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.10.1952, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 15. okt. 1952 r 12 Getraunas Bilstjórar afskiptir nteð EINS og úrslitin á laugardag og vinningar reyndar bera með sér, reyndist 18. getraunaseðillinn auð veldur. Það virðist orðið nokkuð reglubundið, að aðra hverja viku er seðillinn erfiður en hina vik- una léttur, þ.e.a.s. þá leika sterk- ustu liðin flest heima. Næsti seðill, sá 19., verður að teljast erfiðari viðureignar, en slíkt kemur að sjálfsögðu ekki fram fyrr en úrslit eru kunn. — Gizkað er í 48 raða kerfi, sem geíið er í svigum, 8 heimasigrar, 7 jafntefli og 3 útisigrar. Wales — Skotland 1 (1 x) (1—0) Wales varð síðastliðinn vetur efst í keppni brezku landanna þó jafnt Englandi að stigum. Þá sigraði það meðal annars úrvals- lið frá binum löndunum 3. Liðið hefur verið í jafnri og stöðugri framför síðustu árin, enda hefur það á að skipa mörgum af þekkt- ustu leikmönnum ensku „lígunn- ar“, svo sem Barnes, h.bv. Arsenal Daniel, mfr. Arsenal og Ford, mfh. Sunderland. Skozka liðið var á síðasta ári í afturför, því að margir leikmannanna eru teknir að eldast. Burnley — Chelsea 1 <1—1, 1—4) í síðasta heimaleik tapaði Burnley fyrir Derby og ósenni- legt er að það tapi heima tvisvar í röð. Einnig hefur Chelsea að- eins fengið 2 stig (jafntefli) að heiman til þessa. Liverpool — Aston Villa 1 (1—2, 0—2) í fyrra bar Aston Villa sigur úr býtum í báðum leikjunum, en eins og nú háttar eru langsam- lega mestar líkur fyrir heima- sigri, og Liverpool hefur fengið 11 af 12 mögulegum stigum heima. Maneh. City — Bolton X (0-^3, 1—2) Bæði liðin hafa sýnt mun lak- ari leik en í fyrra, en þá sigraði Bolton í báðum leikjunum. Bolt- on hefur undanfarið gengið betur að heiman, en M. C. hefur fengið sín 3 stig á heimavelli og liggur því næst að x—a. Middlesbrough — Sunderland 2 (0—2, 1—3) Borgirnar eru svo nálægar, að næstum er um samborgararíg að ræða milli liðanna. Styrkleiki Sunderlands kemur bezt fram í því, að það fær stig jöfnum hönd- um að heiman sem heima, en Middlesbrogh er miðlungsgott heimalið. Newcastle — Charlton 1 (6—0, 0—3) Þrátt fyrir lélega frammistöðu í ár á Newcastle þó eftir að tapa heima og þótt búast megi við jöfnum og tvísýnum leik, eru líkur fyrir heimsígri meiri. Preston — Manch. Utd 1 (1 x) (1—2, 2—1) Óhætt virðist að taka tillit til þess, að Preston er jafnt og ör- uggt heimalið, en Manch. U. er enn að leita að beztu skipan liðs síns með engum árangri enn. Sheffield W. — Derby 1 Bæði liðin hafa náð sér vel á strik og eru á örri uppleið, en eftir gengi heimaliðsins að dæma undanfarið virðist 1 liggja næst. Stoke — Portsmouth X (2—0, 1—4) Stoke hefur fengið öll sín stig heima, en hefur ekki gert nema 1 jafntefli í 12 leikjum, en aftur á móti er Portsmouth hart jafnt heiman sem heima og með 6 jafn- tefli í 12 leikjum. . Tottenham—Blackpool 2 (x 2) '<2—0, 0—1) Báðum tapleikjum sínum í haust hefur Blackpool tapað í London, fyrir Chelsea og Arsen- al, og enska orðtækið í spilum: „þriðja sinn heppinn“ gildir hér sennilega, eins og formi liðanna er nú háttað. 2 í upphafsröð en x til vara. i WBA — Wolves 1 (1x2) (2—1, 4—1) Nágrannar, sem oft hafa elt saman grátt silfur, en vegna þess að „ÚlTárnir“ eru nú í efsta sæti, leggur V7BA sig meir frarn en t clla, en hyggilegast sýnist að þrí- j -ryggja. Birmingh. — Huddersied 1 (1 x) 1 Annarrar deildar leikirnir eru oft erfiðir og óútreiknanlegir, og við flesta nægir ekki minna en þrítryggja, en vegna takmarksins á kerfinu er ekki nema tvítrygg- ing eftir, og sýnist bezt að treysta á heimaliðið með jafntefli til vara. í ----------2--------------- Viðgeriarkðsfnagur á gcrnlum bílum gífurlsgur Á FUNDI, sem stjórn bifreiðastjórafélagsins Hreyfils átti í gær með fréttamönnum, skýrði Bergsteinn Óuðjónsson, formaður fé- lagsins, frá þvi hve atvinnubíistjórar hefðu orðið útundan á síð- ust-u árum með innflutningsleyfi á bifreiðum. — Kvennasíða Framh. af bls. 6 um, að ástandið í þessum mál- um kunni að lagast eftir því, sem uppeldisfræðin nær meiri órangri í framtíðinni? — Jú, það er ég. Margar ung- ar konur sýna einlægah áhuga á að fræðast um þessi efni og það er góðs viti. Hinsvegar ber of mikið á þeirri afstöðu hjá mörgum eldri mæðrum, að það sé fyrir neðan virðingu þeirra að þiggja ráð og leiðbeiningar um uppeldi barna þeirra. j Æskilegt væri, að hægt væri að uppræta þá röngu hugmynd, I að uppeldisfræðingar telji ;)sig hafa á takteinum tilbúnar að- ( ferðir, sem gilda eigi við öll börn og undir öllum kringumstæðum, (Því fer víðs f jarri. Því að svo Ier margt sinnið sem skinnið. En sálarlíf manna lýtur almennum lögmálum og þekking á þeim stuðlar að skilning á eðli ein- | staklingsins. Farsælt uppeldi j byggist ekki á neinni vélrænni . tækni. Það er öllu fremur list — þáttur úr listinni að lifa, — | sem byggist á innsýn og skiln- ingi á sálarlífi annarra, og heil- brigðri og þroskaðri skapgerð. Það, sem óhætt er að brýna fyrir hverjum þeim, sem við barnauppeldi fæst er, að hann geri sér sem mest far um að reyna að þekkja og skilja til hlítar skapgerð og þarfir barns- ins, að hann komi á móti því og hjálpi því áfram á brautinni áleiðis til þroska og manndóms. Ég þakka frú Valborgu kær- lega fyrir samtalið, og læt í ljós ósk mína um, að draumur hennar um vaxandi framgang uppeldis- i fræðinnar á íslandi megi rætast sem skjótast, og í sem ríkustum mæli. sib. IIKIT AÐ Al’CLÝSA í MOKGUmiLifíimj BILSTJÓRAR AFSKIPTIR ® Sagði Bergsteinn, að 6 ár væru nú liðin frá því atvinnubíl- stjórar hefðu fengið innflutn- ingsleyfi fyrir bifreiðum. Það var 1946, þegar þeir fengu flutt- ar inn 36 bifreiðar. Taldi hann þetta mjög illa farið, því að bif- reiðar væru atvinnutæki þess- arar stéttar. Á þeim ynnu þeir dag og nótt í þjónustu almenn- ings. f YFIR 1000 BÍLAR FLUTTIR INN Á árunum frá 1946 taldi Berg- steinn að til landsins hefðu ver- ið fluttar 1000 til 1200 bifreiðar. Ekki hefðu það samt verið bif- reiðar fyrir atvinnubílstjóra, heldur til einstakrá manna, sem á þessum árum hefðu sumir snd- urnýjað bifreiðaeign sína mörg- um sinnum. HÁR VIÐGERÐAR- KOSTNAÐUR Atvinnubílstjórar verða því ýmist að kaupa bifreiðar, sem þurfa stöðugar viðgerðir. Værii þess dæmi að úiðgerðarkostnað- ur á einstökum bifreiðum kæm- ust upp í 40 þús. kr. á ári. BÍÐA ENN BÍLA S. 1. vor var atvinnubílstjór- ,um gefinn ádráttur um að þeir skyldu fá innfluttar bifreiðar, ef síldarvertíðin gengi vel. Sildin fór nú eins og hún fór. Hinsveg- ar kemur nú til greina að kaupa amerískar bifreiðar, sem fluttar hafa verið langa leið og verða því dýrari en ella. Er því óvíst hvort bifreiðastjórar geta tekið þessu boði, en þeir vænta þess að breyting verði á því að geng- ið sé framhjá þeim, með inn- flutningsleyfi fyrir bifreiðum, þar sem þeir eru sú stétt þjóðfé- iagsins, sem hefur viðurværi af akstri leigubifreiða, sem sé nauð- synleg almenningsþjónusta. Leikfiokkurinn „Giaðir gestír Fyrsfa spilafcvöld í Hafnarfirði FYRSTA spilakvöld Sjálfstæðis- félaganna í Hafnarfirði verður n. k. föstudagskvöld kl. 8,30 í Sjálf- stæðishúsinu. Verður spiluð félagsvist og verðlaun veitt á hverju spila- kvöldi þeirri dömu og þeim herra sem flesta slagi fá. Fyrsta kvöldið verða Verðlaunin aðgöhgumiðar á Sjómannadagskabarettinn. Auk þess verður þeirri dömu og þeim herra, sem flcsta slagi fá samanlagt öll spilakvöldin til ára móta, veitt sérstök verðiaun. rr LEIKFL.OKKURINN „Glaðir gestir" frá Reykjavík sýndi gam- anleikinn „Karólina snýr sér að leiklistinni“, eftir Harald Á. Sig- urðsson, s.l. mánudagskvöld i Grindavík. Húsfyllir var á sýn- ingunni. Leikstjóri var hin vinsæla leik kona Emelía Jónasdóttir. Leikend ur fóru vel með hlutverk sín, og allir voru þeif úr Reýkjavík að undanskilinni aðalieikkonunni, en hún var frú Jóhanna Hjaltalín úr Hafnarfirði. Áhorfendur skemmtu sér prýði lega og eitt af því, sem mjög jók á gleði þeirra var, að í lengsta hléinu kom hin góðkunna Emelía Borg fram á sviðið og lék nokkur lög á píanó, en áhorfendurnir tóku undir. Grindvíkingar vilja færa fram þakkir sínar til leikflokksins „Glaðir gestir“. — Áhorfandi. Haður meiddist en alvarlegu slysi var forðað í GÆRKVELDI slasaðist maður fyrir framan Hótel Borg. Slysið varð með þeim hætti, að maður þessi greip í hurðarhún á bíl, sem stóð fyrir framan Borgina, en rétt í sama mund ók bifreið- in af stað, svo maðurinn féll í götuna. Munaði iitlu að alvar- legt slys yrði, því að önnur bif- reið kom akandi rétt á eftir, en tókst að hemla á síðustu stundu, annars runnið yfir manninn. J— Maðurinn var marinn á brjósti og hruflaður á höndum. Hann var fluttur á sjúkrahús, þar sem gert var að sárum hans, en eftir það færður heim. Verfcfall framundan TÓKÍÓ — Japanskir námaeigend ur létu það boð út ganga í dag til 240 þús. námamanna, sem farið hafa fram á kauphækkun, að lækkun kaupsins væri nær lagi en .hækkun. Verkamennirnir hafa hafið 4 stunda verkfall til að leggja áherzlu á kröfur sínar. Búizt er við að verkfallið muni breiðast út. — NTB-Reuter. mmm Framhald af bls. 9 treýsti á prentsmiðjurnar, lét þær framleiða ógrynm af verð- lausum seðlum, sem gerðu marga iaunþega að öreiga miiljónamær- ingum. Hermenn, kennarar, skrifstofu menn og sumir verkamenn \'oru | bláfátækir oftir styrjöldina. En þegar friður komst ó, voru þeír rúnir inn að skinni með verð- bólgunni. Betur var óstatt með bændum, með því að þeir gátu þó haft í sig og á, þótt fátækir væru. •—■ Kínverjar sögðu að þessir verð- lausu saðlar væru „andapening- ar“,'það er pappír, ssm notaður er til að færa öndum forfeðr- anna fórnir. Pappírnum er brennt en á hann eru skrifaðar afar háar upphæðir peninga, sem tal- ið er að þannig konnzt til skila yfir í annan heim. Þetta nefndu þeir til saman- burðar og skýringar á skoðun- um sínum varðandi ástandið í landinu. —- Á meðan spiluðu syn- ir og dætur auðkýfinganna fjár- hættuspil um gullmoia, sem geymdir voru í kössum ó hinum gömlu, fínu heimilum, en einka- hermenn héldu vörð við hlið hinna háu múra, til þess að erfingjunum yrði ekki rænt mannráni. Þá segir í hinni rauðu sögu að fjórar auðugustu fjölskyldur landsins hafi til samans átt tuttugu þúsund milljómr Banda^ | ríkj adollara skömmu oftir striðs- jlok. ÓHÓFSLÍF OG LÉTTÚÐ ' AUÐKÝFINGANNA Þetta er eflaust nokkuð ýkt, en meðal erlendra manna í Cliung- king var mikið talað um auð- söfnun þeirra. Gekk sú saga meðal Amcríku- manna að ein af þeim hefðar- frúm hafi látið flytja hunda og tikur flugleiðis inn í landið í Rauða kross flugvél þegar mjög lá á því að fá meðalaforða flutt- an ipn. Ævað sem því líður, þá var léttúð þessara manna og kvenna og ábyrgðarleysi mjög svo ör- lagaríkt á þessum tímum. Ekki bætti það úr ^skák að kommúnistum tókst að stöðva verðbólguna á sínum svæðum, þótt fátæk væru, en það gerðu þeir með sjálfsafneitun og striti. fryslihúsa Framhald af bls 11 kvæmdir, að sendinjenn erlsndra þjóða og annað stórmenni er kall að á vettvang til að dást að „nýjungunum“. Svona ört breyt- ast viðhorfin. Mér hefur þótt við ciga — vegna síðari tíma — að koma með þessa litlu athugasemd eða leiðréttingu. Gísli J. Johnsen. Markús: Eítir Ed Dodá. I MUST RUN NUW AND SEE JEFF... I'LL CALL / rl m r >1 !-!■'? v_rri--.rs. i... AND AS SOON C i OET THIS UTTLE „03 I HOPE VOWRB —• - 0 1) — Ég þarf ekki að spyrja þig, hvað þú ætlar að gera til þess að sýningin heppnist vel. Ég veit, að ef þú lofar því, þái 3) — Jæja, ég verð að flýta verður það. 2) — Ég segi þér það heídur mér, elskan. Ég verð strax að ekki strax. Þú átt sjálf að koma fara og tala við Jafet um sýn- og sjá það. inguna. 4) — Nú er ég hamingjusamur maður og strax og ég hef lokið þessu verki, þá vona ég að við getum gifzt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.