Tíminn - 05.05.1965, Side 4
/
16
TlMJNN
MIÐVIKUDAGUR 5. mai 19®
SVEIT
Röskur 10 ára strákur vill komast til snúninga
í sveit í sumar.
Meðgjöf að einhverju leyti kæmi til greina.
Upplýsingar á afgreiðslu Tímans. Sími 18300
Meistari í rennismíði
Meistari í rennismíði sem getur tekið að sér
kennslu nema 1 rennismíði óskast.
Góð laun.
Vélaverkst. Sig. Sveinbjörnssonar h. f.
Skúlatúni 6.
BRflyn KM32
Hrærivélin
• 400 W. MOTOR — 2 SKÁLAR — HNOÐARI — ÞEYTARl
• VERÐ INNAN VIÐ 4000 KR.
• ÚRVAL AUKATÆKJA JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
• BRAUN HRÆRIVÉLIN FÆST í RAFTÆKJA
VERZLUNUM f REYKJAVÍK OG VÍÐA UM LAND
BRAUN UMBOÐIÐ
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS H/F REYKJAVlK
Bremsuborbár
Á aö greiða niöur '
landbúnaðarvörur?
Nú undanfarið hefur mikið ver-
ið rætt og ritað um verðuppbæt-
ur þær, sem greiddar eru á land-
búnaðarvörur, hefur sumum ráð-
herrum og ýmsum fleiri orðið ær-
ið brjóstþungt í sambandi við
þann mikla „styrk,“ sem ríkið
greiddi til landbúnaðarins. Ekki
ætla ég að ræða þá hlið málsins
hér, það hefur verið gert af öðr-
um og er engu þar við að bæta.
Hitt kom mér í hug að víkja
nokkrum orðum að því hver áhrif
það mundi hafa, ef þessum nið-
urgreiðslum væri hætt, og land-
búnaðarvörurnar seldar á því
raunverulega verði, sem bændurn
ir þurfa að fá fyrir þær.
Það segir sig sjálft, að ríkið
þarf með einhverju móti að fá
það fé, sem til niðurgreiðslnanna
þarf. Til þess ei engin önnur leið,
en að taka það með einhverju
móti af skattþegnunum, fólkinu
í landinu, sem og hefur verifS gert
gegnum söluskatt o.fl. En mun
það þá vera heppilegra að fara
þessa krókaleið til að greiða vör-
urnar en að borga þær beínt til
framleiðenda raunverulegu verði?
Ég get ekki séð það.
Skal þetta nú athugað nokkru
nánar. Efns og tekið er fram hér
á undan þarf ríkið með einhverju
móti að afla fjár í niðurgreiðsl-
urnar. Til þess notar það t.d. sölu-
skatt. Talið hefur verið að á hon-
um yrðu hálfdánarheimtur, og
að allmikið af því sem innheimt
væri af fólkinu týndist á leiðinni
og kæmist aldrei í ríkiskassann,
og par við bætist svo sá kostnað-
ur, sem innheimtunni fylgir. Þá
er ekki vafi á, að mjög mikill
kostnaður er samfara þessu nið-
urgreiðslu fyrirkomulagi, sem
landsfólkið þarf auðvitað að borga
en mundi að sjálfsögðu hverfa, ef
þetta kerfi væri lagt niður, og
vörurnar seldar á réttu verði. Það
er því mín tillaga, að þetta fyrir-
komulag verði lagt niður og bænd-
urnir verðleggi sjálfir sína vöru
á þvi verði, sem þeir þurfa að
fá á hverjum tíma til þess að fram
leiðslan beri sig. Sjálfsagt væri,
að fylgzt væri með verðlaginu af
opinberri hálfu, og væri bændum
skylt að leggja fram nauðsynieg-
ar skýrslur í því sambandi til að
fyrirbyggja að þeir yrðu vændir
um okur. En trúa mín er, að yrði
þetta fyrirkomulag upptekið,
mundu bændur leggja sig enn
meir fram um að ná hagkvæmni
í búrekstri, og framleiða sem ódýr
asta og bezta vöru.
Ég sé ekki, að þetta fyrirkomu-
lag þyrfti að auka dýrtíðina, held-
ur raunar þvert á móti hið gagn-
stæða. Það sem neytendur þyrftu
að borga meira fyrir landbúnaðar-
vörurnar, sparaðist aftur á útgjöld
um til ríkisins, og rúmlega það,
því eins og bent var á hér að
framan, fer mikið fé til að halda
uppi þessu niðurgreiðslukerfi,
auk þess, sem týnist svo í meðför-
unum (sölusk.). Líka mundi drag-
ast frá vöruverðinu sá hluti, sem
bændur borga nú úr sínum vasa í
uppbæturnar gegnum söluskatt
o.fl. Mér sýnist því, að þessu at-
huguðu, að hagkvæmara mundi
verða að greiða landbúnaðarvör-
urnar réttu verði og afnema allar
krókaleiðir í því sambandi.
Sennilega yrði þó rétt að halda
áfram að greiða uppbætur á út-
fluttar landbúnaðarafurðir en
láta ekki það, sem á söluverðið
kynni að vanta til að bera uppi
framleiðslukostnað leggjast á inn
anlandssöluna. Væri niðurgreiðsl-
um hætt, yrði það bæði óeðlilegt
og óréttlátt.
Ef horfið væri að því ráði, sem
hér hefur verið stungið upp á,
mundi að fulíu verða kveðin nið-
ur hin leiða deila um það í hverra
þágu niðurgreiðslurnar séu. Með
þessu fyrirkomulagi yrði línumar
hreinar. Er það útaf fyrir sig nokk
urt atriði, sem allir ættu að geta
fagnað.
Stefán Kr. Vigfússon.
I rúllum fyrirliggjartdi.
] 3/8’ 1 1/2’ - 1 3'4’’’.—
.2’ - 2 1/4 — 2 1/2’ X'3/16v '
3’ - 3 1/2’ - 4’ - 5’ X 5/lb
4' _ 5’ - X 3/8’ 4’ X 7 16’ 4 X l/2“.
Einrug bremsuhnoð gott úrval.
, SMYRILL
Laugaveqi l/O.
Simi 1-22-60.
SREB
jfeSLAAERI * RANDERS
/ /
RANDERS STALVIRAR
HEILDSÖLUBIRGOIR
KRISTJÁN Ó SKAGFJÖRÐ
Simi 2-41-20
Fljótlegra aö fara með strætis-
vagni til borgarinnar, en aö bíða
eftir réttum biðtóni í símanum
Nýlega var haldinn aðalfundur
Framfarafélags Seláss og Árbæjar
bletta F.S.Á. Þar var til umræðu
meðal annars hið nýja skipulag
hverfisins, sem mun að fullu lok-
ið, að minnsta kosti fyrir Árbæj-
arbletti, enda framkvæmdir' hafn-
ar þar við götulagnir með skólp
og vatnslögnum. Einnig er þegar
byrjað á byggingum.
í þessum hverfum er fyrirhug-
að að búi um 7—8 þúsund manns.
Vissulega má gera sér vonir um
að starfsemi F.S.Á. megi eflast á
ókomnum árum í vaxandi byggð-
arlagi austan Árbæjar, með sam-
vinnu við hina nýju íbúa til
áframhaldandi starfa að hagsmuna
málum sínum. Einkum á sviði
menntamála, tómstunda- og æsku-
lýðsstarfs, sem og annarra fram-
faramála.
Félagsheimilið, sem byggt var
fyrir liðlega 10 árum síðan, fyrir
gjafafé og í sjálfboðavinnu íbú-
anna, sýnir, að máttur s...ntak-
anna orkar miklu til jákvæðs fé-
lagslífs, og stofnun F.S.Á. hefur
stuðlað að ýmsum framfaramál-
um okkar.
Vinsamleg samskipti félagsins
við borgaryfirvöld, hafa verið því
i mikill styrkur, og vonandi /erð-
I ur framhald á því.
Skólastarfsemi hefur verið rek-
in í húsi félagsins um árabil, í
góðri samvinnu við fræðsluyfir-
völd. í húsinu hefur einnig farið
fram unglingastarf. svo sem skáta
starf, barnastúka, tómstundastarf
í samráði við æskulýðsráð, barna-
guðsþjónustur séra Bjama Sig-
urðssonar sóknarprests og æfingar
kirkjukórs Árbæjarkirkju. Ung-
mennafélag fékk einnig afnot af
húsinu.
Félagið sækir fast að fá úthlut-
aðri lóð undir byggingu veglegs
félagsheimilis, og áhugi er fyrir
íþróttastarfsemi og sundlaugar-
byggingu. \
Á aðalfundi félagsins voru til
umræðu vandamál þeirra félags-
manna, sem eru svo óheppnir að
hús þeirra lenda utan ramma
skipulagsins.
Hér var upphaflega leyft að
byggja flytjanlega sumarhús ur
timbri, 25 fermetra að stærð. Ár-
ið 1955 leyfði bæjarráð að byggð
væru 65 fermetra hús. Varð það
til þess að hér risu varanlegri
hús, sem búið var í allt árið.
Sum þessara húsa verða nú að
hverfa á næstunni, og samþykkti
fundurinn að sanngjarnt væri að
eigendum þeirra væri greitt fullt
brunabótamat fyrir þau. Leit fund
urinn svo á að vænta mætti1 skiln-
ings ráðamanna borgarinnar á
þessum lágmarkskröfum, og því
ekki trúáð að vandamáli fólksins
sem í hliit á, verði svarað á nei-
kvæðan hátt. Félagið hét því
þessu fólki aðstoð sinni, eins og
öllum meðbræðrum er skylt, og
kaus þriggja manna nefnd til sam-
ráðs við borgaryfirvöld um úrbæt-
ur.
Á aðalfundinum skýrði fráfar-
andi stjórn frá viðleitni sinni úl
að fá símamál hverfarina í -etra
horf.
Sjálfvirkt samband símans kom
hér á síðasta ári, og eftir að hafa
verið aðnjótandi hálfs-sjálfvirks
sambands um árabil, gerðu not-
endur sér vonir um að sjálfvirkt
samband við borgina yrði snurðu-
lítið. Önnur varð raunin á, varð
samband símans svo slæmt, að al-
talað var að fljótlegra væri fyrir
símnotendur að fara með strætis-
vagni til borgarinnar, en að bíða
réttrar tóntegundar biðtóns sím-
ans, eru þó ferðir strætisvagn-
anna strjálar svo ekki sé meira
sagt.
Boðið var bæjarsímstjóra á sím-
notendafund, þar sem hann upp-
lýsti ýmsa tæknigalla á apparat-
inu, ásamt fleiri erfiðleikum í
sambandi við hið flókna kerfi
hinnar nýju stöðvar. Kvað bæjar-
símstjóri unnið að lagfæringum
dag og nótt.
Tillaga var samþykkt á sím-
notendafundinum að leita ásjár
neytendasamtakanna fyrir símnot
endur, sem töldu að um svikna
þjónustu væri að ræða og því
engan veginn hægt að selja fullu
verði, eins og forráðamenn sím-
ans heimta þó. Liggur sú mála-
leitun hjá neytendasamtökunum
til úrlausnar.
íbúar hverfisins eru undrandi
yfir að ekki skuli lagðir stokkar
í hinar nýju götur fyrir hitaveitu.
Hefur félagið þó skorað á borgar-
ráð að hitaveita fyrir húsin sé
tekin með í framkvæmdunum. Á
því hlýtur að sparast mörg krón-
an, þegar svo djúpir skurðir eru
Framhald á síðu 22.