Tíminn - 05.05.1965, Qupperneq 12
■ :
99. fbl. Miðvikudagur 5. maí 1965 — 49. árg.
Surtseyjarbók-
in endurprentuð
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Snrtseyjarbók Almenna bóka-
félagsins sem út kom seint á síð
asta ári, hlaut frábærar viðtökur
ems og kunnugt er enda falleg og
fróðleg bók. Nú er verið að end-
urprenta bókina þó hún hafi verið
gefin út í 10 þúsund eintökum í
upphafi.
Tíminn hafði í dag tal af Bald-
vin Tryggvasyni framkvæmdastjóra
AB vegna Surtseyjarbókarinnar.
Sagði Ihaim aS bókin hefði verið
gefin út í 10 þúsund eintökum á
síðasta ári, og upplagið nú á þrot
m Hefði því verið ráðizt í að
endurprenta bókina, og stæði sú
prentun nú yfir. Er þetta þar
með lang mestí eintakafjöldi sem
AB hefur gefið út af nokkurri
bók, og áreiðanlega ekki margar
Hádegisklúbburinn
kemur saman í kvöld, miðviku-
dag, kl. 7 síðdegis í Glaumbæ
uppi.
Kvöldskemmtun
FUF í Súlnasal
SOS FUF í Reykja
kvöldskemmt-
- næstkomandi
-■ ^ fimmtudags-
i kvöld. Meðal
Hs skemmtiatriða
K Ét jHiffiÍl má nefna ávarp
Einars Ágústssonar, alþingismanns
og spurningakeppni milli yngri
manna og eldri. Taka þátt í henni
þrír fulltrúar frá Félagi ungra
Framsóknarmanna og þrír frá
Framsólanarfélagi Reykjavíkur.
Hlutlausir aðilar sjá um fram-
kvæmd keppninnar. Ingvar Gísla-
son alþingismaður mun semja
spurningarnar og verður dómari,
en keppnisstjórí verður Sigurður
Jóhannesson formaður Félags
ungra Framsóknarmanna á Akur-
eyri. Þá mun Jón Gunnlaugsson
fara með skemmtiþátt og fram
fer verðlaunaafhending til sigur-
vegara i bridge-mótum FUF
Da«s verður stiginn til kl. 1 eftir
miðnætti. Boðsmiðar á skemmtun
ina eru afgreiddir i skrifstofu
Framsóknarflokksins að Tjarnar-
götu 26, sími 16066. Stjórn FUF.
bækur íslenzkar sem prentaðar
hafa verið í svo miklu upplagi.
Mikið af bókinni heíur án efa
verið sent út fyrir landssteinana,
enda er þetta eín bezta gjöf sem
hægt er að senda út. Kemur þar
til að bókin er merkilegt heimild
arrit um landmyndun, hún er vel
úr garði gerð, og vekur án efa
forvitni manna á íslandi.
FOKKERINN
AFHENTUR
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
f dag var hin nýja Fokker
Friendship skrúfuþota Flugfélags
íslands afhent félaginu við hátíð-
Iega athöfn á Schuphol-flugvelli í
Amsterdam. Öm O. Johnson, for-
stjóri, veitti hinni nýju flugvél,
sem hlotið hefur einkennisstafina
TF-FIJ, móttöku fyrir hönd fé-
lagsins.
Fjórir flugstjórar Flugfélags ís
lands eru nú í þjálfun í Amster-
dam. Þessi nýja flugvél er vænt
anleg til íslands um miðjan þenn
an mánuð.
GB—Reykjavík, þrlðjudag
Húsið á myndimni hér að of
an má muna sinn fífil fegri,
enda var fyrsti íbúi þess land-
Iæknirinn á íslandi, Jón Thor-
steinssem, sem lét byggja það
sem bústað sinn fyrir röskum
130 árum. En í dag ber það
ekki með sér að hafa eitt s'inn
verið íbúðarhús eins helzta
embættismanns í Reykjavík, og
ókunnugum er það ráðgáta,
hvers vegna það gengur undir
nafninu Doktorshúsið. Það
Framnalö s iz dðu
Munu aðeins f Ijúga
12 st. á sólarhring
JHM-Reykjavík, þriðjudag. I morgun, þegar forseti Islands
Verkfalli Loftleiðaflugmanna, undirritaði hin nýju lög um gerðar
sem fljúga RR 400 vélum, lauk í dóm í launadeilunni. f gærkveldi,
NÝJAR MJÓLKURUMBÚDIR
HJÁ KEA Á FIMMTUDAGINN
MB-Reykjavík, þriðjudag.
Á fimmtudaginn verða nýjar
mjólkurumbúðir teknar í notkun
hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags Ey
firðinga og jafnframt verður mjólk
í þessum umbúðum send heim til
þeirra húsmæðra á Akureyri sem
þess óska. Ætlunin er að sá hátt
ur verði síðar tekinn upp víðar
á samlagssvæðinu.
Jónas Kristjánsson, forstjóri
mjólkursamlagsins, skýrði blað-
inu svo frá að á fimmtudag yrðu
nýjar umbúðir teknar í notkun
hjá samlaginu. Eru það pappa-
kassar, fóðraðir að innan með
plasti og tekur hver kassi tíu
lítra af mjólk. Eru kassarnir við
það miðaðir að unnt sé að geyma
þá í kælihólfi ísskápa og er á þeim
krani, • svo ekki þarf að taka kass
ann út, fyrr en mjólkin er búin.
Hefur geymsluþol mjólkur í slík
um umbúðum í kæligeymslu verið
prófað og reynzt mjög mikið, eða
upp í meira en viku.
Mjólk í þessum nýju umbúðum
verður seld í öllum matvörubúð-
um Kaupfélags Eyfirðinga og
munu þær senda hana heim til
húsmæðra á Akureyri og síðar
fleiri stöðum í nágrenni kaupstað
arins, svo sem Grenivik, Hrís-
ey og Dalvík. Verð hvers lítra í
þessum nýju umbúðum verður sex
krónur og áttatíu aurar, en heim
sendingarkostnaður verður 20 aur
ar á lítra, þannig að tíu lítra kassi
kostar heím kominn sjötíu krónur.
Hinir nýju kassar eru banda-
rísk uppfinning og eru þeir enn
sem komið er lítið notaðir í
Evrópu, nema hvað þeir eru nú
að ryðja sér til rúms í Svíþjóð.
Kassagerð Reykjavíkur hefur um-
boð fyrir framleiðendur þeirra
hérlendis.
mánudag, hélÆu flugmenn fund og
var þar m. a. ákveðið að þeir
myndu fljúga 60 tíma á mánuði og
ekki meira en 12 tíma á sólarhring.
Blaðið ræddi við Stefán Gísla-
son, flugmann og formann samn-
inganefndar flugmanna um fund-
inn í gærkveldi og um viðbrögð
flugmanna við kjaradómslögunum.
Stefán sagði, að flugmennirnir á
RR 400 hefðu ákveðið að fljúga
60 stundir á mánuði, miðað við
rúma 100 klst. á DC 6B, en samt
sem áður næðu þeir sama ferða-
fjölda. Þá sagði Stefán, að þeir
hefðu einnig ákveðið að vinna
aldrei meira en 12 tíma á sólar-
hring, en tímafjöldinn miðast við
Framhald á 12. síðu
Karlakór Reykjavíkur
til Norðurlands í dag
Karlakór Reykjavíkur heldur í
söngför til Norðurlands í kvöld
(miðvikudag) með flugvél frá
á Sauðárkróki kl. 9.30. Á fimmtu
dag syngur kórinn á Siglufirði og
Ólafsfirði og á föstudaginn á Ak-
ureyri og Skjólbrekku. Á Akur-
eyri syngur hann tvisvar á laug-
ardaginn.
Páll Pampichler Pálsson er
stjórnandi en einsöngvarar eru
þeir Guðmundur Jónsson og Guð-
mundur Guðjónsson, óperusöngv
arar og þrír kórfélagar syngja
einnig einsöng, þeir Friðbjörn G.
Jónsson, Jón Hallsson og Garðar
Guðmundsson. Undirlei'karl á
píanó er Guðrún Kristinsdóttir.
Karlakór Reykjavíkur hefur ný-
lokið við að syngja vorkonserta
sína fyrir styrktarfélaga þrisvar
sinnum í Háskólabíói við framúr
skarandi undirtektir og aðsókn og
hefur verið ákveðið að kórinn end
urtaki þessa skemmtun strax eft
ir norðurförina.