Morgunblaðið - 30.07.1953, Síða 12
Veðurúili! í dag:
Hæg breytilep átt, víða
léttskýjað
169. tbl. — Fimmtudagur 30. júlí 1953.
Keíiivikurbréf
á 7. síff'.i.
Allur síldveiðiflotinn var í
uótt í síld út af Langanesi
Mlesti söltimardagurinn á
Radfarlhöfn var í giærdag
I
RAUFARHÖFN, 29. júlí. — Allur síldveiðiflotinn íslenzki stundar
*nú veiðar út af Langanesi, en þar veður síld á stóru svæði, símar
:fréttaritari Morgunblaðsins á Raufarhöfn. Á þessu sama svæði eru
erlendu síldarskipin að veiðum. Var veiðin ágæt til kl. 10 árd. í
dag, síðan fremur lítil, en síldin tók að vaða aftur er líða tók á
daginn. Logn er nú á miðunum og hefur þokuna létt.
Mörg skip fengu ágætan afla og koma þau til hafnar á
hverjum klukkutíma. Á Raufarhöfn hefur ekki verið
saltað eins mikið áður á einum degi og í dag. Á söltunarstöð
inni Óskar Halldórsson var saltað í 1600 tunnur á 24 klst.
og á söltunarstöðinni Hafsilfur var saltað I 1500 tunnur
á 18 tímum. Vinna um 60 stúlkur að söltun hjá þessum
stöðvum.
HLAÐIN SILDARSKIP
í kvöld komu svo til sam-
síða hingað inn á höfnina
Smári frá ísafirði og Smári
frá Húsavík. Voru þeir báðir
drekkhlaðnir, líklega með um
1700 tunnur síldar samtals. —
Var dekkið á bátunum um
það bil feti fyrir neðan sjáv-
armál — svo mjög voru þeir
hlaðnir.
f dag var saltað í 4018 tunnur
síldar hér á Raufarhöfn og er það
mesta söltun á einum degi. Auk
þess var hér landað nokkru I
magni af síld til bræðslu.
Til söltunar lönduðu þessi!
■skip: Ingvar Guðjónsson 144
tunnur, Snæfugl 120, Guðmundur
Þorlákur 136, Björgvin KE 110,
Hafbjörg 97, Helga 202, Ágúst
Þórarinsson 100, Sæfell 100, Jón
Finnsson 83, Fram 109, Sæfari
128, Völusteinn 90, Milly 75, Frey
dis 100, Fiskaklettur 50, Víðir
4Eiskifirði 350, Mímir 104, Vörður
115, Þorsteinn 42, Björgvin, Dal-
vík 108, Kári 80, Haukur
I. 113, Týr 120, Björg, Eski-
firði 40, Súlan 90, Marz 155,
Einar Þveræingur 240, Helgi
Helgason 100, Særún 100, Böðvar
60, Svanur 81, Milly 40, Heimir
160.
Til bræðslu lönduðu Fram 111
hektólítrum, Guðmundur Þórðar-
sön 156 hl., Haukur I. 66 hl., Kári
Sölmundarson 1098 hl., Gullfaxi
261, Gylfi 390, Von, GK 222,
Sigurður 1230, Vörður 819, Heim-
fr 276, Flosi 54, Guðbjörg NK
132, Vöggur 744. Þá voru að landa
Fanney um 1500 hl., Hólmaborg
1000. —Einar.
SEYÐISFIRÐI, 29. júlí:
Á Seyðisfirði var líf í tuskun-
trm. Fjöldi stúlkna frá suðurfjörð
um hefur verið fenginn til síldar-
söltunar þar og munu um 200
wanns vinna að söltuninni.
f dag lönduðu þessi skip síld
tii söltunar og bræðslu á Seyðis-
firði, Rifsnes 1000 tunnur, Ásgeir
►RV 800, Valþór SF 900, Arin-
’björn RV 500, Heimaskagi 400,
*Hilmir KV 350. — Á leiðinni til
‘lands voru Snæfell með 1600 tunn
ur og Sæfinnur með 800 tunnur.
— Benedikt.
Síld
kom ©g tfór frá
Akranesi
AKRANE'SI, 29. júlí: — f dag
komu 6 reknetjabátar til Akra-
ness. Afli þeirra var samtals 240
tunnur síldar. Af bátunum var
Reynir með mestan afla — 70
tunnur. Síldin er fryst.
Drangajökull lestaði hér í dag
70 tonn af frystri síld til Austur-
Evrópu og Svisslands. — Oddur.
I Efst til vinstri er húsið, eftir aff þaff hefur verið flutt út á Laugaveginn. A myndinni efst til hægri
I er húsið á gatnamótum Ingólfsstrætis og Bankast rætis. — Neffri myndin til vinstri sýnir húsiff, þar
sem þaff er komið niður á Lækjartorg, og á myndinni til hægri er húsiff komiff inn í Kleppsholt,
þar sem því hefur veriff búinn framtíðarstaður. — Ljósm.: Ól. K. M. og Örn Bernhöft.
í 25 höggum
NÝLEGA kom danskur maður,
sem beið hér eftir fari til Græn-
lands, í Tjarnargolfið við Sóleyj-
argötu. Samkvæmt frásögn fé-
laga hans tókst honum að fara
allar brautirnar, 15 talsins, í 25
höggum. — Er það mjög góður
árangur og algert met.
Síðar í sumar mun Tjarnar-
golfið veita verðlaun þeim, er
beztum árangri nær, og þar sem
afrek Danans er óstaðfest verð-
ur það ekki reiknað með.
Haiskipabryggjan
á
SEYÐISFIRÐI, 29. júlí: — Segja
má að hin nýja hafskipabryggja
hér hafi verið vígð í dag, en þá
lagðist að henni fyrsta stóra skip
ið, sem hingað kemur eftir að hún
varð fullbúin. Var það Dettifoss,
sem kom hingað með steypijárn
o. fl. —- B.
Keynt aff koma sykurverði í
fastar skorffur
LONDON: —- Alþjóðleg ráð-
stefna til að reyna að koma á föstu
verðlagi á sykur, var haldin hér
nýlega.
■SIGLUFIRÐI, 29. júlí:
Hér út af Siglufirði er þoka
■og allur fiotinn er við veiðar á
Austurvsæðinu. Einn bátur kast-
p.ði hér fyrir utan og fékk 30—40
tunnur, en ekkert hefur verið
liægt að leita á Vestursvæðinu fyr
ir þoku. —
Hingað komu i dag Sigurður
Pétur með 1000 tunnur, Ásmund-
«r með 400, Sjöstjarnan með 8—
ÍKiO. — Höfðu skipin fengið þessa
stld austur áf Langanesi.
— Guðjón.
Sefclir fyrir veiSiþlófni
ólöglega veiði sférhækksðar
Á S.L. ÁRUM hefur alltaf nokkuð borið á veiðiþjófnaði í ám og
vötnum. Hendur hafa verið hafðar í hári flestra veiðiþjófanna, og
þeir látnir sæta ábyrgð gerða sinna, samkvæmt lögum. En lögin
eru gömul og sektarákvæðin voru því lág á nútíma mælikvarða.
Á s.l. þingi var því refsiákvæðunum breytt og sektir allar fyrir
ádrátt og veiðiþjófnað stórhækkaðar.
Munaði aðeins þremur
Comimim, að húsið kæmist
ekki niður Laugavee
c* o
Fiulningurinn gekk prýðilega inn i Kleppshoif.
— Ekki svo mikið sem rúða brolnaði
FLUTNINGURINN á hinu 120 fermetra stóra húsi Kristjáns Sig-
geirssonar gekk samkvæmt áætlun, og er húsið komið upp í Efsta-
j sund, þar sem það bíður þess að verða sett á nýja grunninn. —•
Morgunblaðið átti í gær viðtal við Sveinbjörn Pálsson, vélsmið,
sem séð hefur um flutning þessa mikla húsbákns og innti hann
frétta af þessum viðburði. Vann hann þá við að koma húsinu fyrir
í Efstasundi ásamt öðrum þeim, sem að flutningnum hafa unnið,
og hafði honum ekki komið dúr á auga á annan sólarhring. Var
hann hinn ánægðasti með öll málalok og skýrði blaðinu svo frá:
ÓLÖGLEG VEIÐI ‘
Samkvæmt hinum nýju
refsiákvæðum varðar þaff nú
allt að 15.000 kr. sekt aff veiða
ólofað í veiðivatni annars
manns, auk þess, sem eigandi
vatnsins skal fá veiðifangið
bætt auk bóta fyrir annað
tjón, er hann kann aff verffa
fyrir af völdum veiðiþjófa. Ef
maffur meff veiðarfæri hittist
viff veiffivatn annars manns.
fyrir utan venjulega vegi,
skal hann sektaður sem hann
væri sekur um ólöglega veiði,
nema sannað sé, aff hann hafi
haft þar lögmætt erihdi.
SPRENGIOG DEYFANDI
Samkvæmt hinum nýju refsi-
ákvæðum veiðilaganna varðar
það allt að 8.000 kr. sekt að nöta
sprengiefni, eitruð efni eða deyf-
andi við veiði.
(hurchll vill enn
þríveldafund
LUNDÚNUM, 29. júlí: — Saiis-
bury, lávarður, utanríkisráðherra
Breta, lýsti því yfir við upphaf
umræðu um utanríkismál í þingi í
dag, að hann hefði talað fyrir til-
lögu Churcchills um þríveldafund,
er utanríkisráðherrar þríveldanna
komu saman í Washington. Ráð-
herrann sagði: „Ef hægt er að
tala um, að okkur utanrrkisráð-
herrunum hafi orðið sundurorða,
þá var það helzt i þessu máli“.
Churdhill er sjálfur enn þeirrar
skoðunar, að róa beri að því öll-
um árum, að hann hitti þá Eisen
hower og Malenkov á 3ameigin-
legum fundi. — Reuter—NTB
— Við höfðum komið triliun-
um undir húsið um 4 leytið í
nótt, tveimur að framan og einni
að aftan. Drógu stórir kranabíl-
ar þær, sem voru að framan-
óerðu, en þriðji kranabíllinn ýtti
afturtrillunni á undan sér. Við
vorum 2 klukkustundir niður
Laugaveg og Bankastræti, og
var það erfiðasti hluti leiðarinn-
ar. Munaffi t. d. afar Iitlu, aff hús-
iff kæmist milli Laugavegs 10 og
11, eða affeins um 3 tommum á
hvora hliff. Má af því sjá, að ekki
mátti miklu skeika, ef allt átti
ekki að standa fast. Svo varð þó
ekki, sem betur fer.
URÐU AÐ HLAÐA
UNDIR TRILLURNAR
| Efst á Bankastrætinu urðum
við að hlaða undir trillurnar, því
að þar eru grindur á gangstétt-
unum, um meters háar. Urðu
þessar hindranir til nokkurs
trafala. — Að öðru leyti gekk
flutningurinn niður Lgugaveg
og Bankastræti ágætlega, enda
höfðum við tekið niður götuvita
og snúið við þeim ljósastaurum,
sem fyrir voru.
i
4Ý2 TÍMA FERÐ
| Um 6 leytið vorum við komnir
niður á Lækjartorg og héldum
leið okkar út á Skúlagötu. . Gekk
það eins og í sögu. Síðan ókum
við eftir Skúlagötunni, upp
Höfðatún, inn Suðurlandsbraut
og beygðum síðan norður Lang-
holtsveg. Vorum við komnir
hingað klukkan hálf níu í morg-
un og hafði ferðin því aðeins tek-
ið um 4%* tíma. Klukkan 12 í
dag vorum við búnir að taka hús-
ið af triiiunum og erum jiú að
koma því fyrir, eins og þú sérð.
ÞESS MÁ geta, að þeir voru all-
margir, sem voru í vafa um,
hvort flutningur þessi tækizt. Er
ekki nóg með, að sú hefur orðið
raunin á, heldur gekk ferðalag
þetta svo mjög að óskum, að ekki
er ein einasta rúða í öllu hús-
inu brotin, hvað þá annað.
HÚSIÐ, sem flutt var, er 120
fermetrar, eins og fyrr er getið.
Það er tvær hæðir, auk íbúðar-
riss. Er það rúmlega hálfrar ald-
ar gamalt, byggt 1902. Það er hið
vandaðasta í alla staði og mjög
traustbyggt. — Er ekki annað að
sjá en það kunni prýðilega við
sig í hinu nýja umhverfi. —
Geta má þess að lokum, að all-
margir leikmcnn fylgdust í alla
nótt með ferðum hins miðaldra
„ferðalangs."