Morgunblaðið - 20.08.1953, Síða 1
16 sáður
Sijórnarbyltiasey í JPersisa
eisarasinnar steypa Mossadek
Zahedi hershöfðingi tók
í taumana
Eftir liina misheppnuðu uppreisnartilraun um síðustu helgi flýði
Persakeisari land. Hann var staddur í Rómaborg í gær, ásamt
drottningu sinni Soraya, er fréttamaður Reuters bar honum
fregnirnar af stjórnarbyltingunni í Persiu.
Samtal við keisarann:
„99% jþjóðarinnur
gylgir mér að málum“
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
RÓMABORG, 19. ágúst. — Fréttaritari Reuters-fréttastofunnar
varð fyrstur til að færa keisara Persíu fregnirnar af atburðunum
í.heimalandi hans. En keisarinn dvelzt nú í Rómaborg, því að
hann varð að hverfa úr Persíu, eftir hina misheppnuðu tilraun
til að steypa Mossadek í síðustu viku.
Fréttaritari Reuters kvaddi sér<
inngöngu til keisarans á gistihúsi,
þar sem hann var staddur í dag.
Var honum vísað inn í setustofu.
Þar sat keisarinn í þægindastól
á skyrtunni og axlaböndum, og
fjLsppfif fiuð"
valtes"
LONDON 19. ágúst: — Moskvu-
útvarpið skýrði í dag frá atburð-
unum í Persíu. Sagði þar að lepp-
ar auðvaldsríkjanna hefðu gert
byltingu gegn hinni þjóðlegu i
stjórn Mossadeks. — Reuter,
hjá honum Soraya drottning og
tveir ráðunautar.
STÓRKOSTLEGAR FRÉTTIR
Reuters-maðurinn rétti keisar-
anum fyrstu fréttaskeytin af at-
burðunum í Teheran. Hendur
keisarans titruðu svo að hann
átti erfitt með að lesa fréttirnar.
Drottningin sat á stólbríkinni hjá
honum og las yfir öxl hans og
ráðunautarnir tveir rýndu líka í
skeytin.
FAGNAR ÞESSUM
ATBURÐUM
Drottningin hrópaði: „Þetta er
mjög æsandi'*. Keisarinn muldr-
! aði: „Ég vissi það alltaf, 99%
Götubardagar í Teheran. - Múgurinn
tætti utanríkisráðherrann sundur
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
TEHERAN OG LONDON 19. ágúst. — Hinn keisaraholli her Persíu hef-
uí' nú velt Mossadek úr stjórnarsöðli. Ekki er ljóst, hvar Mossadek er niður
kominn, en utanríkisráðherra hans, Fathemi, var að því er útvarpið í Te-
heran skýrði frá ,,tættur í sundur“ á aðaltorgi höfðuðborgarinnar. Lífvörður
Mossadeks veitti harðvítuga mótspyrnu með vélbyssum, kringum bústað
Mc-vsadeks.
Zahedi hershöíðingi, sem keisarinn hafði falið stjórnarmyndun, fyrir
hina misheppnuðu laugardagsbyltingii, hefur nú komið fram úr fylgsni sínu
og tekið við stjórnartaumunum. Hefur hann sent skeyti til Reza Pahlevi,
keisara, sem var staddur í Rómaborg og beðlð hann um að hverfa heim sem
skjótast, til að veita persnesku þjóðinni forustu í viðreisn frelsis hennar.
Yfirgefur ekki
Mossadek
WASHINGTON, 19. ágúst: —
Sendiherra Persíu í Banda-
ríkjunum, dr. Allah Yar Saleh
lýsti því yfir í dag, að hann
gæti ekki starfað fyrir and-
stæðinga Mossadeks. Hann
sagði að Mossadek túlkaði
vilja persnesku þjóðarinnar
og persneska þjóðin myndi
snúast gegn öllum tilraunum
til að níða Mossadek niður.
— Reuter.
Zahedi
FAZLOLLAN ZAHEDI var út-
nefndur forsætisráðherra Persíu
í s. 1. viku. Var þá gerð fyrsta
tilraunin til að steypa Mossadek.
Lögregla hefur leitað Zahedis
undanfarna daga, en í gær kom
hann fram í dagsljósið og studd-
ur her, lögreglu og almenningi
tók hann öll völd í sínar hendur
og er valdatími Mossadeks þar
með á enda.
Aðgerðir hersins hófust í dögun í morgun, en fyrstu fregn-
irnar, sem umheimurinn hafði af þessum atburðum var, að
skömmu eftir hádegi var skyndilega gert hlé á dagskrá út-
varpsins.
* UNDAN ÁNAUÐAROKI MOSSADEKS
Var þá fluttur af hljómplötu söngurinn „Shir Khoda“, sem
er keisarasöngur Persíu. Síðan kom fram í útvarpið Farhad
Sardar, höfðingi Bakhitiari þjóðflokksins, frændi Soraya keis-
araynju og las upp tilkynningu um að fylgismenn keisarans
hefðu „brotizt undan ánauðaroki Mossadeks og bjargað land-
inu frá kommúnismanum." Skoraði hann á alla þjóðflokka
Persíu að fylkja sér undir forustu keisarans.
Eftir þetta var skýrt frá aðgerðum keisarasinna. Hafði
Zahedi hershöfðingi, sem keisarinn hafði útnefnt fyrir for-
sætisráðherra, komið fram úr fylgsni sínu norðan borgarinnar.
Stjórnaði hann uppreisn herliðsins í höfuðborginni.
* GÖTUBARDAGAR í TEHERAN
Stækustu fylgismenn Mossadeks og lífvörður hans snerust
til varnar. Laust í götubardaga, þar sem um 300 manns munu
hafa fallið og nokkur hundruð manns særzt. En herinn tók
hverja stjórnarbygginguna á fætur annarri, útvarpsstöðina og
símstöðina. Geysilegur múgur manns safnaðist saman víða á
götunum. Hyllti fólkið keisarann og fagnaði er liðsauki hers-
ins ók inn í borgina á vörubílum.
Frh. á bls. 2.
Mossndek slapp
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
TEHERAN 19. ágúst: — Her keisarans hafði höfuð-
borgina alla á sínu valdi í kvöld. En Mossadek hef-
ur að því er síðustu fregnir herma, komizt undan
úr bústað sínum og vita menn ekki hvar hann er
niður kominn.
Er viðspyrna fylgismanna hans var hæld niður
í bústaðniun, ruddist múgurinn þangað inn, braut
allt og bramlaði og lagði eld í húsakynnin. Húsið
var mjög sterklega varið með stál-brynvörnum og
vélbyssum.
Umferðarbann er í Teheran í nótt og mun herlið
ið skjóta fyrirvaralaust á hvern þann sem ekki
lilýðir banninu.
Framhald á bls. 2.