Morgunblaðið - 20.08.1953, Page 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagm' 20. ágúst 1953
..TriJiið* hófsöm og starfssrlöð æska er
það, sem ég vildi helzt óska þjóð minni44
í DAG á sextugsafmæli Margrét
'Jónsdóttir, skáldkona. Hún hefir
féngizt við kennslustörf og rit-
störf lengst af ævi sinnar og hafa
Ijóð hennar og sögur náð mikl-
um vinsældum, ekki sízt meðal
Barna og unglinga, enda hefir
Margréti alltaf þótt vænt um
æskuna og helgað henni störf sín
‘ög krafta af alúð þeirri og ein-
lægni, sem henni er lagin.
Mbl. hefir komið að máli við
Margréti skáldkonu í tilefni
þéssa merkisafmælis hennar til
að rabba við hana um það helzta,
;sém á daga hennar hefir drifið.
GEKK ALDREI
j BARNASKÓLA
— Ég fæddist að Árbæ í Holt-
um — segir Margrét — hinn 20.
,ágúst 1893. Faðir minn var ætt-
aður úr Skagafirði en móðir mín
yar vopnfirzk. Ég ólst upp í fá-
tækt með móður minni, á ýms-
ur bæjum í Rangárvalla- og
Arnessýslu. í barnaskóla gekk ég
gjdrei en ekkert tækifæri lét ég
,ónotað til að lesa það sem ég
npði í. Annars var bókakostur
,þeldur minni þá en nú gerist,
.helzt voru það ljóð og svo ís-
,lendingasögurnar, sem völ var á.
Það var mér einnig til láns að
mþðir mín var vel að sér um
raargt og lét sér mjög umhugað
pm, ég fengi að læra.
LEIDDIST
.SKRIFSTOFUSTÖRFIN
17 ára gömul fór ég á Kvenna-
skólann í Reykjavík og var þar
,4 tvö ár, 1910—12. Var síðan
næstu árin heimiliskennari uppi
úaveit og í kaupavinnu á sumrin
eins og þá tíðkaðist. Nokkur ár
fékkst ég við skrifstofustörf en
,þau leiddust mér alltaf þótt ég
yæri undir góða húsbændur gef-
jp, Árið 1926 tók ég kennarapróf
og var síðan kennari við barna-
shþlana hér í Reykjavík fram til
,þfsins 7943 en þá varð ég að láta
,af kennslustörfum sökum heilsu-
, þrests og hefi ég ekki tekið til
, y|ð þau síðan.
PYRJAÐI AÐ YRKJA FYRIR
INNAN FERMINGU
„ — En hvað getið þér sagt mér
,Vm ritstörf yðar?
Vi:— Þau hafa jafnan verið sem
(hver önnur aukastörf. Mér hefir
þkki fundizt ég mega helga þeim
,peinn tíma nema ég vissi, að öll-
um skyldustörfum mínum væri
fullnægt — og kennslustarfið er
.míkið starf.
; — Hvað voruð þér gamlar,
þegar þér fyrst byrjuðuð að
yrkja?
,, — Ég var nokkuð fyrir innan
.fermingu, þegar ég fór að búa
;|tjl vísur og einhvers staðar á ég
Jitla bók, sem ég orkti, þegar ég
yar 12 ára. Fyrsta kvæðið mitt,
,.§em birtist á prenti var „Mel-
■kprka“ í kvennablaðinu „19.
4úní“ árið 1920.
, Fyrsta kvæðabókin mín, „Við
.ílöll og sæ“, kom út árið 1933 og
önnur, „Laufvindar blása“, árið
1940. Nú á sextugsafmæli mínu
lpemur út sú þriðja, „Meðan dag-
er“. í henni eru bæði kvæði,
sém birzt hafa áður í ýmsum
hlöðum og tímaritum og önnur,
sem aldrei hafa birzt á prenti.
BARNABÆKUR — RITSTJÓRI
ÆEKUNNAR
— En hafið þér ekki einnig
skrifað nokkrar barnabækur?
— Jú, ég hefi sekrifað fimm
barnabækur, sem komu út á ár-
unum 1943—51 og svo auk þess
smásagnasafn fyrir fullorðna,
,Xjósið í glugganum". Einnig
hefi ég fengizt nokkuð við þýð-
-ingar, aðallega úr sænsku og enn-
fremur við samningu sönglaga-
texta og barnákvæða. Hefi ég nú,
á s.l. vetri, í samvinnu við frú
Guðrúnu Pálsdóttur samið texta
Samfal við skáldkonuna Hargréti
Jónsdóttur sexhiga.
Krístján Jóhanness&n setti eina
Isiandsmet meistaramótsins
Margrét Jónsdóttir
við 10 sönglög eftir Bach, sér-
staklega ætluð til söngs í barna-
| skólum.
| — Og einu sinni voruð þér
1 ritstjóri „Æskunnar“. — Var það
ekki mikið starf?
— Jú, það var það — og
skemmtilegt um leið. Mér hefir
alltaf þótt gaman að vera innan
um og vinna fyrir börn og ungl-
ina. Ég hefi trú á æskunni —
æskunni eins og hún er í dag,
enda þótt hún hafi breytzt að
ýmsu leyti frá því, er áður var.
Það er varla hægt við öðru að
búast, þegar tekið er tillit til
hinna gjörbreyttu þjóðfélags-
hátta á íslandi.
AFSKIPTI AF FÉLAGS-
MÁLUM
— Hafið þér ekki einnig haft
nokkur afskipti af félagsmálum?
— Ég hefi um langt skeið starf-
að innan Góðtemplarareglunnar
og í Lestrarfélagi kvenna hefi
ég verið í yfir 30 ár. í báðum
þessum félögum hefi ég verið
gerð að heiðursfélaga. Einnig hefi
ég tekið þátt í ýmiskonar kven-
félagastarfsemi og kennarasam-
tökum, hefi nokkrum sinnum far-
ið erlendis og setið fundi og þing
norrænna félagssamtaka.
— Og hvað hafið þér nú fyrir
stafni — alltaf að skrifa?
— Ég er að því alltaf öðru
hvoru. Annars vinn ég nú á Þjóð-
minjasafninu seinni hluta dags-
ins, þegar það er opið, en það er
ekki ýkja mikið starf. Ég á aldr-
aða móður á lífi og hefi ég hana
og heimili mitt að annast um. Ég
held, að ég sé ein af þeim lán-
sömu manneskjum, sem þykir
gaman að flestri vinnu, nema þá
helzt verzlunar- og skrifstofu-
vinnu — þesskonar störf hefi ég
aldrei getað fellt mig við — það
sem ég þekki til þeirra.
ÆSKAN OG ÍSLENZK
MENNING
— Og hafið þér nokkra sér-
staka ósk fram að færa á þessu
merkisafmæli yðar?
— Ekki þá aðra fremur en þá,
að æskan okkar megi bera gæfu
til að varðveita hinn dýrmæta arf
íslenzkrar tungu og menningar,
sem ég unni framar öllu öðru —
að hún gangi áfram götuna til
góðs og gleymi ekki guði sínum,
því að sjálfstæð, trúuð, hófsöm
og starfsglöð æska er það, sem ég
helzt vildi óska þjóð minni og
það, sem ég af veikum mætti
hefi viljað stuðla að.
sib.
AKUREYRI, 19. ágúst: — A
mánudagskvöldið hélt meistara-
mót íslands í frjálsum íþróttum
Kristján Jóhannsson
áfram hér á Akureyri. Keppt var
þá í 3000 m. hindrunarhlaupi og
fyrri hluta tugþrautar. Rigning-
arsuddi var og heldur leiðinlegt
veður svo sem verið hafði mestan
hiuta mótsins. Þrátt íyrir þetta
var 3000 m. hindrunarhlaupið
ein skemmtilegasta keppnin og
sem gaf eina íslandsmetið á mót-
inu. Úrslit urðu þau, að fyrstur
varð Kristján Jóhannsson, ÍR, á
9.47,1 mín. Annar varð Einar
Gunnlaugsson, Þór, á 9.59,6 míh.
Er þetta í fyrsta sinn, sem tveir
íslendingar hlaupa undir 10 mín.
Þriðji var Eiríkur Haraldsson, Á,
á 10.47,8 mín. og 4. Þórhallur
Guðjónsson, UMFK, 10.55,1 mín.
Eiríkur var fyrstur tvo hring-
ina, en þá fóru þeir Kristján og
Einar fram úr.
Tugþraut meistaramótsins fór
fram á mánudag og þriðjudag.
íslandsmeistari varð Valdimar
Örnólfsson, ÍR. Hlaut hann 4881
stig. Annar varð Leifur Tómas-
son, KA, hlaut 4540 stig.
Sleppa varð 4x1500 m. boð-
hlaupi og 10 km. hlaupi vegna
óhagstæðs veðurs og þess að all-
margir keppendur utan af landi
voru farnir heim.
Heiðursbikar ÍSÍ hlaut Guð-
mundur Lárusson, Á, fyrir bezta
afrek mótsins, 49,5 sek. í 400 m.
hlaupi.
Mótið var hið ánægjulegasta
þrátt fyrir slæmt veður. Áhorf-
endur voru allmargir. Mótstjóri
var Haraldur Sigurðsson, gjald-
keri. — Vignir.
Aímæliskveðja frá stéttarbróður
ÞEGAR ég var nemandi í Kenn-
araskólanum, kynntist ég ungri
stúlku, ljóshærðri og laglegri,
sem Margrét hét, Jónsdóttir. Mér
finnst allskammt síðan — en í
dag er Margrét sextug og þjóð-
kunn, sem rithöfundur og kenn-
ari. Það er að vísu enginn stór-
viðburður að ná sextugsaldri,
þegar margir verða níræðir og
tíræðir. T. d. má nefna, að móð-
ir Margrétar, Stefanía Jónsdótt-
ir, er enn á lífi, komin nokkuð
yfir nírætt. Ég átti tal við hana
nýlega í síma og mér þótti hún
furðu ern og hress í máli. —
Sextugsafmæli er þó merkur á-
fangi í æfi hvers manns og því
ástæða til að líta yfir liðinn dag
og árna heilla.
Ég ætla hvorki að rita hér
eftirmæli né æfisögu, því að ég
vona að M. J. eigi eftir að lifa
og starfa mörg ár enn. En um
leið og ég flyt M. J. heillaósk-
ir mínar og starfsfélaga okkar
frá liðnum árum, vil ég rifja
upp nokkur atriði, er snerta
kennslustörf Margrétar og skyld
mál. Þeim æfiþáttum hennar er
ég kunnugastur.
Snemma bar á greind Mar-
grétar og námfýsi, en ekki átti
hún þess kost að hefja skóla-
göngu fyrr en 1910, að hún hóf
nám í 3. bekk Kvennaskólans í
Reykjavík og útskrifaðist það-
an með 1. einkunn vorið 19121
Næstu ár er hún heimiliskenn-
ari á ýmsum stöðum, en var síð-
an nokkur ár við verzlunar- og
skrifstofustörf. En ekki undi
hún þar lengi. Hugurinn virð-
ist hafa leitað kennslustarfsins.
Hún settist í 2. bekk Kennara-
skólans 1924 og tók kennara-
próf með ágætiseinkunn 1926.
Sama ár hóf hún kennslustarf
við Miðbæjarskólann í Reykja-
vík, en fluttist að Austurbæjar-
skólanum, þegar hann var stofn-
aður og kenndi þar meðan heils-
an leyfði. En 1945 fékk hún lausn
frá embætti vegna vanheilsu.
Tvívegis fór hún til Norður-
landa á kennsluárum sínum, tók
þátt í kennaranámskeiðum og
heimsótti skóla.
Margrét var hugkvæmur, vin-
sæll og stjórnsamur kennari,
sem naut álits og virðingar nem-
enda sinna og samkennara. Ég
tel hana Hiklaust í fremstu röð
þeirra kennara, sem ég hefi
kynnst. Félagsmál kennara lét
hún og til sín taka og naut þar
álits vegna gáfna sinna og áhuga,
varðandi heill og framfanr
stéttarinnar. Henni voru falin
þar ýms trúnaðarstörf, m. a. var
hún í nefnd, sem undirbjó barna
verndarlöggjöfina 1930—’31.
Samhliða kennslustörfum var
hún ritstjóri Æskunnar árin
1928—’42 og varð þjóðkunn
á þeim árum. Henni fórst
ritstjórnin prýðilega úr hendi.
Þá kom í Ijós að hún var skáld
gott, ritar fallegt mál og hefir
næman skilning á eðli og blæ-
brigðum íslenzkrar tungu. Hún
skilur einnig barnseðlið og á
því svo létt með að ná hugum
og hjörtum barnanna, með ljóð-
um sínum, leikritum og sögum.
Þessvegna' hefur hún unnið sér
velvild og virðingu íslenzkra
barna, enda í fremstu röð þeirra
rithöfunda, sem ritað hafa fyrir
börn á síðari árum. Einnig hefur
hún þýtt nokkrar góðar barna-
bækur. Mér telzt til að 7—8
barnabækur hafi hún sent frá
sér, 2 Ijóðabækur og eitt smá-
sögusafn. Bækur hennar hafa
hlotið góða dóma og ljóðabæk-
urnar eru löngu uppseldar. Það
mun því gleðja lesendur M. J.,
að í dag mun koma út þriðja
Framh. á bls. 12
Gefraunirnar að hefjast á ný
EFTIR nokkurra vikna hlé hefj-
ast getraunir að nýju eftir miðj-
an mánuðinn. Fyrsti seðillinn er
nú kominn út og liggur frammi
hjá umboðsmönnum. Leikir
fyrsta seðilsins fara fram laugar-
daginn 22. ágúst og verða það
leikir 2. umferðar ensku deilda-
keppninnar, en leikirnir verða
þessir:
Arsenal — Huddersfield
Blackpool — Chelsea
Cardiff^— Aston Villa
Charlton — Burnley
Liverpool — Manchester Utd.
Manch. City — Wolves
Middlesbro — Preston
Newcastle — Sunderland
Portsmouth — Sheffield Utd
I Sheffield W. — Tottenham
W. B. A. — Bolton
Fulham — Stoke
f vetur verður eingöngu gizkað
á enska leiki, sem fram fara
hvern laugardag til loka apríl.
j Úrslit leikjanna verða birt í
blöðum og hádegisútvarpi á
sunnudögum.
Eins og kunnugt er, eru leik-
irnir á seðlinum 12, en í þeim
50 leikvikum sem getraunirnar
hafa starfað, hefur aðeins 2svar
tekizt að gizka rétt á alla leikina.
Var fyrri vinningurinn 2500 kr.
en sá síðari 6600 kr.
í siðara skiptið var greiddur
aukavinningur fyrir að fá alla
leiki rétta, og verður það einnig
í vetur, verður greiddur auka-
vinningur allt að 5000 kr. fyrir
12 rétta leiki.
Hjá umboðsmönnum, ennfrem-
ur hjá héraðssamböndum, íþrótta
bandalögum, ungmenna- og
íþróttafélögum um ailt land er
nú hægt að fá seðla, sem þátt-
takendur geta fyllt út fyrir marg-
ar vikur í senn. Gilda þeir ó-
breyttir eins margar vikur og
þátttakendur óska. Þetta íyrir-
komulag, fastar raðir, er ekki
alveg óþekkt, og er þess skemmst
að minnast, er Englendingur
hlaut 100.000 £ fyrir röð, sem
hann fyllti út viku eftir viku.
Með þessu fyrirkomulagi geta
getraunirnar náð yfir allt landið,
en áður var þátttökusvæðið bund
ið við reglulegar og tíðar sam-
göngur við Reykjavík.
I Þegar íþróttasjóður hóf starf-
’ rækslu getrauna í fyrravor, var
mjög stuðst við þann árangur,
sem slik starfsemi hefur náð á
Norðurlöndum, einkum í Noregi
og Finnlandi, þar sem aðstæður
eru líkastar og hér. íþróttasjóður
er mjög féþurfi vegna bygginga
íþróttavalla, — húsa og sund-
lauga um landið en reynsla Norð
manna af getraununum er slík,
að íþróttahreyfingin norska fær
um 5 millj. kr. árlega frá starf-
seminni. Afréð íþróttasjóður því
að gera tilraun með slíka starf-
semi hér. Nú er það komið undir
1 félögum íþróttahreyfingarinnar
! íslenzku, hvort árangur hér verð
ur eitthvað í líkingu við það.
Vesfinannaeyíngar
unmi m i
VESTMANNAEYJUM, 19. ágúst:
— Körfuknattleiksflokkur úr ÍR
kom í heimsókn hingað til Eyja
15. ágúst s.l. og keppti tvo leiki
við flokk frá íþróttabandalagi
V estmannaey j a.
Fyrri leikinn vann ÍBV með
24 stigum gegn 9 og þann síðari
með 26 gegn 18. Báðir leikirnir
voru mjög spennandi og skemmti
legir, og éiga ÍR-ingar þakkir
skvldar fyrir komuna hingað.
Körfuknattleikur er ný íþrótt
hér. Hefir aðeins verið keppt einu
sinni áður í honum og virðist, ef
dæma má eftir áhuga fólksins á
þessum leikjum, ætla að verða
mjög vinsæl íþrótt. — Bj: Guðro.