Morgunblaðið - 23.09.1953, Page 16
Veðurúliit í dag:
Norðaustan gola, lcttskýjað.
unlilatiií)
215. tbl. — Miðvikudagur 23. scptcmber 1953.
Fjárflutninganiir úr Þing-
eyjarsýslu eru hálfnaðir
Haf narf ja rSarbáta r
öfluðu vel um
belgina
. HAFNARFIRÐI — Affli neknetja-
Skipaí var út í fyrsiu báfana á Veslfjörðum í
ir þeirra hátt á asraiaSS ihíandrað
Á ÞESSU hausti verða um 20 þús. líflömb flutt á fjárskiptasvæðin j tunnur. í gær vaar hefdvrr minni
'1* Árnes- og Rangárvallasýslum og Mýrdalinn, 6—7 þús. úr Þing- j veiði. — Röskar 5000 tunnur
•t-yjarsýslu, 8-—9 þús. frá Vestfjörðum og nokkuð austan úr Síðu hafa nú verið saltaðar hér I bæ.
og Öræfum. — Flutningarnir að norðan hófust s.l. laugardag, og
var um helmingur fjárins lagður af stað þaðan í gær, samkvæmt
upplýsingum, er blaðið fékk hjá Sæmundi Friðrikssyni, fram-
•'kvæmdastj óra Sauðf j árveikivarnanna.
l/M 60 BILAR
í FLUTNINGUM
Líflömbin úr Þingeyjarsýslu
'■eru tekin á svæðinu milli Fnjósk-
-ár og Jökulsár á Fjöllum. Fá það
bændur í Árnessýslu til viðbótar
'fjárstofni þeim, er þeir fengu í
•fyrra haust. — Flutningarnir fara
fram með bílum, og er þeim eins
Fjölbreytt
skemmtun í
Austurbæjar-
bíoi í kvöld
í KVÖLD kl. 11,15 verður fjöl-
breytt skemmtun í Austurbæjar-
bíói, þar sem fram koma lands-
kunnir skemmtikraftar. En auk
þess mun hinn brezki óperusöngv
ari Ronald Lewis syngja á
skemmtun þessari vinsæl óperu-
lög og óperuaríur með aðstoð
Fritz Weisshappels píanóleikara.
Aðstoðarprestur
að Hvanneyri
BORGARNESI, 22. sept. — Guð-
mundur Sveinsson, prestur að
Hvanneyri, hefur fengið frí frá
StörfiSn í nokkra mánuði.
Ráðinn hefur verið aðstoðar-
prestur til að gegna störfum sókn
arprestsins, cand. theol. Árni
Sigurðsson, og mun hann hefja
starf sitt í október, strax að lok-
inni vígslu.________
Fleusborgarskóli
HAFNARFIRÐI — Flensborgar-
skóli var settur í gær. — Um
200 nemendur verða í skólanum
'í vetur og er það svipuð tala og
í fyrra.
Fastir kennarar verða hinir
sömu og í fyrra, en þrír stunda-
kennarar bætast við, þeir Hall-
dór Halldórsson dósent, Magnús
Már Lárusson prófessor og Eirík-
ur Smith listmálari, sem kennir
teiknun. —G.
háttað og s.l. ár. Um 60 bílar eru
notaðir við flutningana og tekur
hver þeirra 50—60 lömb.
FLUTNINGAR AÐ, VESTAN
HÓFUST í GÆR
Á Vestfjörðum verða líflömbin
tekin á svæðinu vestan Kolla-
fjarðar og ísafjarðar, og fara þau
í Rangárvallasýslu austan Ytri
Rangár, en þar hefur verið fjár-
laust síðan í fyrra haust. Nokkur
hluti lambanna verður fluttur
með bílum frá Djúpi á ákvörð-
unarstað, en annars fara flutn-
ingarnir fram sjóleiðis, og hófust
þeir í gær. Var þá skipað út í
fyrstu bátana á Þingeyri og Flat-
eyri. Gekk útskipunin vel eftir
því sem blaðið frétti að vestan í
gær. Lömbin eru sett í stíur bæði
í lest og á þilfari. Allt að 500
lömb Verða flutt í ferð.
Vestfjarðalömbunum, sem flutt
eru með bátum, verður skipað
upp hér í Reykjavík, en farið
verður með þau austur á bílum.
Þá verður fé flutt austan af
Síðu og úr Öræfum á fjárskipta-
svæðið í Mýrdalnum og eitthvað
í Rangárvallasýslu.
Togarinn Júní kom síðastlið
inn mánudag af Grænlandsmið-
um með 360 lestir af fiski, sem
verður hertur. Hann fór aftur á
veiðar í gærkvöldi. — Bjarni
riddari seldi nýlega í Þýzkalandi
218 lestir fyrir 72 þúsund mörk.
_________________— G.
Námssfyrkir á vegum
Brifish (ouncil
THE BRITISH COUNCIL hefur
gefið út tilkynningu um náms-
styrki fyrir námsárið 1954—55.
Veittur verður styrkur til handa
einum íslenzkum námsmanni eða
konu, æskilega á aldrinum 25—
35, og sem útskrifazt hafa frá
Háskólanum, eða hafa samsvar-
andi menntun. — Ekki eru sett
nein takmörk unj námsefni og
verða umsóknir frá t. d. læknum,
kenrmrum, listfræðwagum o. fl.
teknar til greina. Til greina get-
ur komið að námsstyrkurinn
verði framlengdur um eitt ár.
Aðeins þeir umsækjendur, sem
hafa góða enskukunnáttu koma
til greina.
Umsóknir skulu sendar til
Brezka sendiráðsins, Templara-
sundi, Reykjavík, fyrir 30. nóv.
n.k. — Umsóknareyðublöð má fá
í sendiráðinu.
Ólafsfjarðarmúli. — Þar sem strikin eru dregin þvert yfir mun
vegarstæðið vera fyrirhugað. Niður í sjó eru um 200 m.
— Ljósm.: Guðmundur Ágústssom
Gera þarf víðfækari
rannsóknir á vegastæðinu
fyrir Ólafsfjarðarmúla
Hrikalegasta vegastæði á landinu
SamtaS við Snæbjðrn jónsson, verkfræðing
AKUREYRI, 22. sept. — í gær kom hingað til Akureyrar Svein-
björn Jónasson verkfræðingur vegamálaskrifstofunnar, eftir að
hafa skoðað fyrirhugað vegarstæði fyrir Ólafsfjarðarmúla. 1 gær-
morgun fór hann til Dalvíkur, en þangað var hann sóttur á trillubáí
frá Ólafsfirði. í fylgd með Sveinbirni var Guðmundur Benedikts-
son vegaverkstjóri.
„Iðnvarninpr, sem ekki er
leyfður innflutningur í
FÍI óskar eftir athugun á meinhun brolum
á tollalöggjöfinni
FÉLAG íslenzkra iðnrekenda hefur skrifað fjármálaráðuneytinu
bréf, þar sem skorað er á hlutaðeigandi yfirvöld að „skerast tafar-
laust í leikinn um það, að ekki sé á boðstólum í verzlunum iðnaðar-
varningur, sem ekki er leyfður innflutningur á“. Óskar félagið
eftir því að upplýsinga verði aflað á hinum meintu brotum á tolla-
löggjöfinni og „bundinn endi á allt misferli, sem koma kann í ljós
við þá athugun.“ — Frá þessu er skýrt í síðasta blaði „íslenzks
iðnaðar“.
Til stuðnings tilmælum sínum ’ selja sælgæti í Reykjavík og víða
bendir félagið m.a. á amerískt úti á landi er nú til sölu amerískt
tyggigúmmí. Segir um það: • | tyggigúmmí, sem eigi er leyfður
„I flestum verzlunum, sem innflutningur á. Að vísu munu
Verð osfa og skyrs hækkar
— en mjólkur- og smjörverð
steradur í stað
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnaðarins hefur tilkynnt nokkra verð-
hækkun á skyri og ostum. Mjólkurverð og smjörverð mun hins
vegar haldast óbreytt. Stafar hækkunin á smjöri og ostum af því
að verðlagsvísitala landbúnaðarafurða hækakði um 3,2%.
AUKNAR
NIÐURGREIÐSLUR
Mbl. átti í gærkvöldi tal við
Svein Tryggvason framkv.stjóra
og skýrði hann svo frá að mjölk-
orverð og verð á smjöri myndi
haldast óbreytt frá því sem verið
hefur vegna þess að niðurgreiðsl-
ur úr ríkissjóði á þessum vörum
myndu aukast. Greiðir ríkið nú
hvern líter mjólkur niður um 96 j
aura í stað 86 aura áður.
OSTAR OG SKYR HÆKKA
Ostar hækka um 3%. Hvert
kg af 40% osti kostar því nú
24,80 í stað 24,10 áður. — Skyr
hækkar, einnig í verði. Það kost-
ar nú 5,85 kr. pr. kíló í stað 5,70
kr. áður.
sjómenn fyrir alllöngu síðan hafa
fengið tollafgreitt nokkuð af
þessu sælgæti og eitthvað mun
hafa verið tollafgreitt vegna mis-
skilnings í sambandi við frílist-
ann, en þó má ætla að mest af því
magni, sem nú er á boðstólum í
verzlunum, muni vera smyglað.
Þá fæst nú í sælgætisverzlunum
hér í bænum átsúkkulaði með
ýmsum erlendum merkjum, þótt
engin innflutningsleyfi hafi ver-
ið gefin út fyrir þeim vörum“.
Þá er bent á súkkulaðiduft,
sem tollafgreitt hafi verið sem
kakaó, brjóstahaldara frá Banda-
ríkjunum, ýmsar fatnaðarvörur
frá Bandaríkjunum, sem fluttar
væru inn á „bátalista", en bundn
ar væru við clearing-svæði, eða
væru háðar leyfum, og að allvíða
í bænum hafi verið til sölu nátt-
föt og ýmiskonar bómullarnær-
fatnaður, sem aðeins væri leyfð-
ur innflutningur á utan dollara-
svæðisins. Fleira er og getið.
Frá Ólafsfirði héldu þeir félag-
ar gangandi í fylgd með Birni
Stefánssyni kennara, en hann er
ásamt Sigurði Ringsted bílstjóra
og fleirum þar á staðnum, mikill
áhugamaður um lagningu vegar
fyrir Múlann.
STUTT LÝSING Á LEIÐINNI
Þeir þremenningarnir voru 6
klst. til Dalvíkur og gerðu nokkr-
ar mælingar og athuganir á leið-
inni sem er 18 km löng. Fyrst er
um það bil 3 km langur kafli frá
Ólafsfjarðarkaupstað og út að
svonefndri Ófærugjá. Eru þetta
gilskornar grjótskriður, nokkuð
grónar næst kaupstaðnum, en
verða brattari er utar dregur og
því sem næst gróðurlausar. —
Ófærugjá er mikið klettagil með
grjótskriðu í hotninum ofan til
í fjallshlíðinni, en neðst á annað
hundrað metra þverhnýpt kletta-
skora. Þarf að sprengja stall í
gjárvegginn fyrir veginn og ann-
að tveggja að brúa yfir gjár-
botninn eða fylla hann með
grjóti. Norðan Ófærugjár tekur
við sjálft bjargið, er liggur fyrir
Múlann og er víða um 200 m
hátt. Ofan bjargbrúnarinnar er
snarbrött klettahlíð með smá-
skriðum um 900 m löng út að
svonefndu Flagi. Þar þarf víðast
að sprengja veginn í klettahlíð-
ina, sem og víða annars staðar á
leiðinni. Flagið er nokkurra
metra breið móhelluhlíð, sem
erfitt er að fóta sig í, sökum þess
hve hörð hún er. Aðeins mótar
fyrir fjárgötum í hellunni. Er
þetta glæfralegasti kafli leiðar-
innar gangandi manni, að sögn
Snæbjarnar. Innan við Flagið
tekur svo við skriðuhlíð suður
Múlann en framan við hlíðina er
veggbratt bergið og fer lækkandi
eftir því, sem nær dregur Dal-
vík. Kaflinn frá Dalvík og út að
Flagi er sæmilegt vegastæði,
fyrst um nokkuð gilskorna bakka
út að skriðunum.
GLÆFRALEGUR VEGUR
Snæbjörn telur veg fyrir Ól-
afsfjarðarmúla mun glæfralegri
heldur en Óshlíðarveginn á leið-
inni frá ísafirði til Bolungarvík-
ur. Sérstaklega er kaflinn frá
Flagi og nokkuð inn fyrir Ófæru-
gjá um VA—2 km, erfiður til
vegargerðar. — Segir Snæbjörn
leiðin fyrlr Ólafsf jarðarmúla
hættulega gangandi mönnum, eo
Björn Stefánsson kennari er leið-
inni kunnugur og var þeim fé-
lögum öruggur leiðsögumaður.
Gömul sögusögn ségir það af-
rek mikið, er kona gekk fyrir
Múlgnn með prjóna sína í hönd-
um og prjónaði á leiðinni. —«
Ekki fara sögur af því, að önnur
kona hafi gengið fyrir Ölafsfjarð-
armúla.
Þessi ferð þeirra Snæbjarnar
er ekki sú fyrsta sem farin er á
vegum vegamálaskrifstofunnar,
því að í hitteðfyrra fór Sveinn K.
Sveinsson verkfræðingur, þessa
sömu leið og nokkrir menn með
honum.
VEGUR RUDDUR í HAUST
í Ólafsfirði er ríkjandi mikill
áhugi fyrir vegarlagningu þessari
og hefur verið efnt til fjársöfn-
unar til byrjunarframkvæmda
við hana. Munu hafa safnazt um
12.000 krónur og hefur jarðýta
verið að verki að undanförnu og
rutt út hlíðina frá kaupstaðnum.
Nú ætlar vegagerð ríkisins að
leggja fram 10 þús. krónur til
viðbótar, og er áætlað að það
muni nægja til að ryðja veg út
að hinum snarbröttu skriðuns
sunnan Ófærugjár. — Snæbjörn
Jónasson segir, að frekari fram-
kvæmdir vcröi látnar bíða til
næsta vors og þá athugað hver
áhrif snjóflóð og skriðuföli hafi
haft á veginn rudda eftir vetur-
inn, en að sögn þeirra, sem búa
norðan megin Ólafsfjarðar sjá
þeir snjóflóð falla þarna af og
til. Ekki kvaðst Snæbjörn hafa
orðið var við nýfallnar skriður á
leið sinni fyrir Múlann.
VÍÐTÆKARI RANNSÓKNIR
Að lokum sagði Snæbjörn Jón-
asson verkfræðingur að gera
þyrfti miklu víðtækari rannsókn-
ir á vegastæðinu áður en endan-
lega væri hægt að ráðast í lagn-
ingu fnllkomins vegar fyrir Ól-
afsf jarðarmúla eða gera um hann
nákvæma kostnaðaráætlun.
Engum blandast hugur um
hina miklu þýðingu vegarins sem
samgöngubót fyrir Ólafsfirðinga
og raunar fleiri. Hitt er vitað,
að vegarstæði þetta er hættulegt,
og milljónum króna þarf að kosta
til þess að fullgera þarna sóma-
samlegan veg. — Vignir.