Morgunblaðið - 26.11.1953, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.11.1953, Blaðsíða 1
16 síður 40. árgangur 270. tbl. — Fimmtudagur 26. nóvember 1953 Prcntsmiðja Morgunblaðsin* Rödd íslands hjá S. Þ. Kvsðs skal á éff sfrandrí fan Einkaskeyti til Mbl. frá NTB NEW YORK, 25. nóv. — Fulltrúi íslands í þjóðréttarnefnd S. Þ. Ilans G. Andersen lýsti því yfir í dag að hann teldi ósanngjarnt og óréttlátt að strandríkj geti ráðið yfir náttúruauðæfum í hafs- botni, en geti hinsvegar ekki haft sama eftirlit með fiskveiðum á hinu sama svæði. Er hugmyndin um Evrópu- MIKILVÆGARA ic íslenzki fulltrúinn benti á það að lífið í hafinu ofan sjávarbotns, það er að segja fiskveiðarnar, gætu verið enn þýðingarmeiri fyrir efnahag strandríkisins en nýting nátt- úruauðæva úr botni. ★ Þessvegna hélt hann því fram, að ef þjóðréttarnefndin ætlaði að gera tillögu um að strandríki ættu að hafa yfir- ráð yfir landgrunninu að vissu dýpi, þá bæri nefndinni sam- tímis að slá því föstu að strand ríkið megi hafa eftirlit og sér- réttindi við fiskveiðar á land- grunninu. ENGIN OLIA, EN 4, ★ Að því er við bezt vitum, sagði Hans, er engin olía finn- anlega í hafsbotni undan I ströndum íslands. Hinsvegar j stendur og fellur allt efna- hagslíf íslands með fiskveið- unum við strendur lajjdsins. ★ Þjóðréttarnefndin hefur gert það að tillögu sinni að ríki skuli hafa yfirráðaréttindi yfir landgrunni sínu út að 200 metra dýpi, hvað viðvíkur nýtingu náttúrugæða í hafs- botni. Hinsvegar gefi það rík- inu ekki heimild til að skipta sér af siglingum og fiskveið- um á þessu svæði. Fá 6 milljón pirnda aðstoð LUNDÚNUM, 25. nóv. Templer hershöfðingi sagði í dag, að brezka stjórnin hefði ákveðið að veita Malayabúum 6 milljón punda framlag á næsta ári til að mæta þeim halla, sem er á fjár- lögunum vegna mikilla útgjalda til hernaðar. Enn fremur sagði hann Breta mundu hjálpa betur upp á sakirnar, ef með þurfti. it Hershöfðinginn sagði enn- fremur, að um 100 leiðtogar upp- reistarmanna hefðu verið hand- teknir síðustu vikur og va*ri ai- menningur óðum að snúast gegn uppreisnarmönnum. Meira að segja kvað hann stóran hóp upp reisír.rmanna hafa ger.gið í ]ið með stjórnarvöldum iandsins. —-Reuter. 12 þús. atvinnuleysingjar. HELSINGFORS, 25. nóv. — Nú eru um 12 þúsund atvinnuleys- ingjar í Finnlandi. — NTB Aukið viðskiptafrelsi og afnánt haftanna fyrir for- iismanna Fré Varðarfundi í gærkvöldi. MIKIÐ fjölmenni var fundi landsmálafélagsins „Varðar“ í gær- kvöldi í Sjálfstæðishúsinu. Ingólfur Jónsson, viðskiptamálaráð- herra, var frummælandi á fundinum og ræddi hann um hið nýja frumvarp ríkisstjórnarinnar um afnám fjárhagsráðs, auknar hygg- ingarframkvæmdir o. fl. Ráðherrann rakti efni frumvarpsins, sem í fellst stóraukið verzlunarfrelsi og afnám þeirra hafta, sem gilt hafa í innflutningsverzlun og byggingarframkvæmdum á und- anförnum árum. Með þessu frumvarpi nær sú grundvallarstefna Sjálfstæðisflokksins fram að ganga, sagði ráðherrann, að veita þjóðinni frelsi til aukinna athafna og framkvæmda og hin ill- íæmdu höft eru jaínframt afnumin að mestu leyti. Áheyrendur tóku hinni prýðiiegu ræðu ráðherrans mjög vel, og gerðu liinn bezta róm að ræðum þeirra, sem síðar töluðu. — Fundarstjóri var Birgir Kjaran, formaður Varðar. FYRIR RUSSA LUNDÚNUM, 25. nóv. — Brezka stjórnin hefur veitt skipasmíða- stöðvum í Bretlandi leyfi til að byggja 30 togara fyrir Rússa. — Sem kunnugt er, fór Sovétstjórn- in þes sá leit við Breta í haust, að þeir smíðuðu togara fyrir fyrir hana. —Reuter. herlnn daull? Fellur stfórn Laniels ? Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB PARÍS, 25. nóv. — Fréttaritari Reuters Harold King segir, að ef stjórn Laniels falli nú (sem er skoðun margra stjórnmálamanna vegna afstöðu Gaullista) geti það valdið mikilli stjórnmálaringul- reið, ekki sízt á Burmudafundinum. lyr utanríkis- ráierra Austurríkis VINARBORG, 25. nóv. — Dr. Figl fyrrum kanslari Austurríkis hefur tekið við embætti utanrík- isráðherra í stað dr. Grubers, sem knúinn var fyrir tveim vik- um til að láta af embætti vegna ýmissa ummæla, sem fram komu í sjálfsævisögu hans og mikla gremju vöktu í Austurríki. — Dr. Figl var kanslari Austurríkis frá 1945 til marzmánaðar s.l. —Reuter. Bók um brezka flotann. LUNDÚNUM, 23. nóv.: — í dag gaf brezka flotamálaráðuneytið út bók um þátttöku þrezka flot- ans í Kóreustríðinu. — NTB. Fjöldaframleiðsla á kvæð- um er Elisabet kom Konungshjónin í hðði í Karahiika haíinu Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. LUNDÚNUM, 25. nóv. — í dag komu brezku konungshjónin til Jamaica frá Bermuda. — Vegalengdin er um 1200 mílur og voru þau innan við 5 klst. að komast þá leið. — Móttökur voru hinar hátíðlegustu, allir helztu forsvarsmenn Jamaica tóku á móti kon- ungshjónunum og var brezki þjóðsöngurinn leikinn. FAGNA SIGRI Fréttaritarinn segir enn- fremur, an andstæffingar Ev- rópuhersins í Frakklandi fagni nú miklum sigri og haldi því fram, aff meff því að vilja ekki samþykkja umræffur um affild Frakklands aff Evrópu- hernum nú þegar (tillaga þess efnis var felld í þinginu í nótt er ieiff meff 325:247 atkv.) hafi franska þingiff sýnt, svo aff ekki verið um deilt, aff þar sé ekki meiri hluti fyrir þátt- töku Frakka í sameiginlegum vörnum Vestur-Evrópu. — DREPIN í FÆÐINGU? Hafa því margir stjórnmála- menn hneigzt aff þeirri skoff- un, að hugmyndin um Evrópu herinn hafi veriff drepin í fæðingu. HEFJA UMRÆÐUR Á MORGUN Fréttir frá Brussel herma, að belgiska þingið muni hefja um- ræður um aðild Belga að Evrópu hernum á morgun. STEFNAN MORKUÐ Ingólfur Jónsson viðskiptamála ráðherra, rakti í framsöguræðu sinni í stórum dráttum sögu Fjár hagsráðs síðan það var sett á stofn. í öll þau ár, sem það hefur starfað hafa landsmenn átt undir það að sækja um flestar sínar framkvæmdir. Og þeir fimm menn, sem því hafa stjórnað, nálguðust það 'að verða einvaldar í verzlunar- og viðskiptalífi lands manna. Almenningur hefði á síð- ustu árum verið æ óánægðari með Fjárhagsráð og störf þess, enda hefði það legið sem lamandi hönd á þjóðinni. Það hefði verið að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins, er lýsti því | yfir á landsfundi sínum í vor, að hann vildi Fjárhagsráð afnumið, að inn í málefnasamning ríkis- stjórnarinnar hefði verið tekið, að ráðið skyldi niður fellt. Þessu hefffi Sjálfstæðisflokk urinn affeins komiff til leiffar, sökum liins vaxandi fylgis síns og áhrifa á Alþingi og meffal þjóffarinnar allrar. Ef hinir flokkarnir hefffu fengiff aff ráffa þessum málum, hefffi Fjárhagsráff aldrei veriff lagt niður, heldur stóraukið og höftin gerff enn þyngri. Um það þyrfti enginn að efast, sem þekkti stefnu andstæff- ingaflokkanna í atvinnu- og verzlunarmálum. Samkvæmt frumvarpinu skal innflutningur til landsins gefinn frjáls og fer um framkvæmd þess á hverjum tíma eftir reglugerð, sem ríkisstjórnin setur. A því er reginmunur og þeirri skipan er áður gilti. Ríkisstjórnin mun leit- ast við að hafa reglugerðina svo rúma, sem auðið er, en fram- kvæmdin fer að sjálfsögðu eftir gjaldeyrisforða landsins á hverj- Framh. á bls. 7. I dag héldu konungshjónin til suðurstrandarinnar og var mik- ill mannfjöldi þar saman kominn til að hylla þau. Gert er ráð fyr- ir, að þau fái sér það í Karaþiska hafinu, áður en þau halda ferð sinni lengra áfram á þessum heitu slóðum. Þess má og geta að lokum, að mörg hundruð kvæði, hafa verið ort þeim hjón- um til heiðurs síðan þau komu til eyjarinnar. 70 milljónir Kosningar til Súdansþings KHARTOON, 25. nóv. — í dag lauk kosningum til fulltrúadeild- ar súdanska þingsins og hafa þær staðið yfir undanfarið. Þingmenn verða kosnir úr 92 kjördæmum og er þetta í fyrsta skipti, sem til þings er kjörið í Súdan. Úrslitin verða ekki kunn fyrr en um miðjan næsta mánuð. —NTB OSLO, 25. nóv. — I vöruskipta- samningi Finna og Norðmanna, sem gildir frá 10. des. 1953, til 13. nóv. 1954, er gert ráð fyrir því, að vöruskiptin nemi um 70 milljónum norskra króna. NTB Hann iékk tjénið bætf með gjölum énefndra LUNDÚNUM, 25. nóv. Anthony Loraine, flugmaðurinn er stjórn- aði flugvélinni, sem flutti brezku konungshjónin til Bermuda varð fyrir því óhappi, að frá honum var stolið sem svarar rúmri Vz millj. króna, á meðan hann flutti drottningu yfir hafið. Nú hefur honum verið bætt tjónið, því að í dag fékk kona hans senda ávísun frá einhverjum ónefndum, sem hljóðaði upp á 600 pund og seinna í dag aðra 3000 punda ávísun. Var sú einnig frá ónefndum manni. Laniel biður um traust PARÍS, 25. nóv. — Síðdegis í dag hófust aftur umræður í franska þinginu um aðild Frakka að Ev- rópuhernum. — Laniel, forsætis- ráðherra Frakka hefur farið fram á traustsyfirlýsingu þingsins á utanríkisstefnu stjórnar sinnar. Ungverjar unnu Englediuga 6:3 X LUNDÚNUM, 25. nóv. — í dag fór fram milliríkjakapp- leikur í knattspyrnu milli Eng- lendinga og Ungverja. Leikurinn fór fram á Wembley-leikvangin- j um í Lundúnum. Ungverjar sigr-! uffu lið Englendinga meff 6 mörk-1 um gegn 3, og er þaff í fyrsta sinnt sem knattspyrnuliff frá megin- landi Evrópu sigrar landsliff Breta á heimaleikvangi. — 100 þús. manns hóttu kappleikinn. í hálfleik stóðu leikarnir 4:2. Settu Ungverjar mark á fyrstu mínútu eftir að leikur hófst. ■—Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.