Morgunblaðið - 13.12.1953, Qupperneq 2
MORGUNBLAfílB
Smínudagur 13 des. 1953
Læknisráð vikunnar:
; Ferðala« fæð
t O
gegnum meltingarvegmn
MATURINN, sem við borðum, á
langa ferð fyrir höndum. Tyggja
jþarf hann og blanda hann með
munnvatni. Maganum fellur
bezt að taka við honum vel
tuggnum. En samtímis, sem við
tyggjum hann, gefst okkur kost-
ur á að njóta þess, hve vel hann
smakkast.
Meðan við njótum hins góða
.smekks, gera bragðtaugarnar boð
jmaga og þarmakirtlum, að nú sé
.kominn tími til að framleiða safa,
4>ví nú sé von á góðgæti, sem
þeir eigi að hirða um.
í fæðu manna á að vera eggja-
hvítuefni, fita, sykur og mjölvi,
vatn og sölt allskonar og fjör-
efni.
Veggir meltingarfæranna eru
þannig gerðir, að sama sem ekk-
ert af eðlilegum fæðutegundum
getur komizt í líkama vorn eða
í gegn um garnavegginn, nema
efni þessi séu klofin rækilega.
Eggjahvítuefnin þarf að kljúfa
í þau grunnefni sín, sem kallaðar
eru aminosýrur, sykurinn og
mjölefnin í þrúgusykur og á-
vaxtasykur, fituna verður að
kljúfa í glycerín og fitusýrur En
hvers vegna skyldi náttúran hafa
gerl lífsstarfséfni þessa svona
flónka. Það má vera að eitt dæmi
geti gert yður þetta skiljanlegra.
Ef dælt er eggjahvítuupplausn,
t.d. hænsnaeggjahvítu, beint í
blóð manns, sýnir það sig, að
verkanir þess eru sem um eitur
væri að ræða. Sé þessi dæling
endurtekin, fær viðkomándi
maður bráðiega hitasótt og önn-
ur sjúkdómseinkenni og hið
annarlega eggjahvítuefni skilst
fir líkamanum með þvaginu.
Hið annarlega eggjahvítuefni,
í þetta skipti hænsnaeggjahvíta,
en einu gildir frá hvaða dýri hún
er, nema hún sé runnin frá ann-
arri manneskju, getur með engu
móti komið mannslíkamanum að
jiotum. I meltingarfærunum
verður hún fyrst að klofna í ein-
faldari efnasambönd, aminosýr-
urnar, sem hún er byggð úr, en
t>ær komast leiðar sinnar í gegn
um veggi þarmanna og úr ami-
nosýrunum getur mannslíkum-
inn svo byggt upp sín sérstæðu
eggjahvítuefni á þann hátt, sem
honum hentar.
Eg tek annað dæmi.
Ef maður rífur múrsteinshús
til grunna, þá fær maður mikið
af lausum steinum og hægt er
að byggja úr þeim nýtt hús.
Vel má vera, að húsið, sem við
rífum, hafi verið hátt og jafnt á
allar hliðar. En húsið, sem við
byggjum að nýju úr sömu stein-
unum, getur orðið langt og lágt.
Sömu steinana höfum við not-
að í bæði húsin, en þau hafa
orðið næsta ólík.
Eggjahvíta úr hænsnum ....
eggjahvíta úr mönnum.
Melting manna verður með
tvennum hætti. Maturinn er tætt
uf sundur, tugginn, og hann verð
ur fyrir efnabreytingum af melt-
ingarvökvunum, er kljúfa efna-
.sambönd hans.
Þess vegna verður maturinn
að fara langan veg um vélindið,
niður í magann, en verður að
vera þar tímum saman og tekur
gagngerum breytingum. Frá mag
anum er hann sendur smátt og
smátt niður í skeifugörnina, sem
.svo er nefnd eftir lögun sínni og
er fyrsti hluti garnanna. í skeifu-
görninni mætir maturinn þarma-
^afanum — gallinu og brissafan-
um, en þaðan ýtist fæðan áðram
jniður gegnum hinar 8 metra
löngu garnir.
A leið sinni gegnum þarmana
heldur fæðan áfram að klofna í
sína . frpmparta og þær mynd-
breytingar komast í kring, en
upptaka hinna sundurleystu
fæðuefna byrjar. Fæðuefnin
komast leíðar sinnar í gegn um
þarmaveggina yfir í blóðið, nema
fituefnin fara krókinn, fyrst inn
í sogæðarnar, en þaðan inn í
hringrás blóðsins.
Fæðuefnin eru notuð til að
bæta upp efnatap líkamans og
slit líffæranna, til að halda við
líkamshitanum, blóðrásinni, and-
ardrættinum og annarri nauð-
synlegri líkamsstarfsemi, til
orku fyrir líkamshreifingarnar,
eða í stuttu máli, til að halda við
lýði hinni margbreyttu starf-
semi, sem þarf til að halda hin-
um mannlega líkama lifandi og
starfandi. Ef við tökum til okkar
meiri fæðu en við þurfum á að
halda, safnast afgangurinn og
leggst fyrir í líkamanum til
betri tíma, þegar hans verður
þörf. Matarlystin stjórnar með
undraverðum hætti tilhneiging-
um okkar tii matar, svo flestir
fullorðnir menn halda nokkurn
veginn sama líkamsþunga ár eft-
ir ár.
í ristlinum síast vatnið úr inni-
haldi þarmanna, svo það verður
mátulega fast í sér og hægðirnar
verða mátulega þéttar til að fara
út um endaþarminn, þegar tími
er til þess kominn.
En þetta er löng ferð, sem
fæðan fer í gegn um meltingar-
veginn, og tekur einn til tvo sól-
arhringa.
Frófkosising
Sjálfstæðismanna
í Reykjavík
PRÓFKOSNINGIN um val
manna á lista Sjálfstæðis-1
flokksins í Reykjavík stendur .
yfir. J
Allir kjósendur Sjálfstæðis- J
fiokksins i bænum hafa rctt,
til þess að taka þátt í henni. •
Þeir, sem ekki eru skráðir
mcðlimir í ncinu Sjálfstæðis-
félagi hér í bænum, geta greitt
atkvæði síh í kjörstoíunni í
skrifstofu flokksíns í Sjálf-
stæðishúsinu. I
Félagsbundið fólk, sem ekki
hefir fengið kjörgögn heim tii
sín, verður að koma í kjör-
stofuna og greiða þar atkvæði.
Kjörstofan er opin frá kl.
2—7 í dag og allan daginn á
morgun (mánudag). !
Sjálfstæðiskjósendur: Það
er í yðar valdi að ráða því,
hvernig listi flokksins við
næstu bæjarstjórnarkosning-
ar verður skipaður. — Takið
þátt í prófkosningunni og,
veljið þá sem þið treystið bezt.
Kjörnefnd Sjálfstæðis-
fclaganna í Reykjavík.
áttatillaga íslands í lúnisdeilunni
6æfi ieift fii mikiis, \ákmh og varasiiegs árangars
úss Akraness
AKRANESI — í gær, laugardag-
inn 12. des. afhenti frú Ingunn
Sveinsdóttir gjöf frá gömlum
Akurnesingi. sem nú er í Reykja-
vík, peninga að upphæð kr.
2.000,00, sem er gjöf frá honum
til Sjúkrahúss Akraness.
Fyrir þessa myndarlegu gjöf
leyfi ég mér að færa beztu þakk-
ir. — Ráðsmaður Sjúkrahússins.
Doktorsvörn fór fram við
Háskólann í ?ærdag
O o
Guðni Jónsson varði ritgerð sína um
Búendur og bólstaði í Slokkseyrarhreppi.
í GÆRDAG fór fram við Háskóla íslands doktorsvörn magisters
Guðna Jónssonar, skólastjóra Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. —
Athöfnin, sem fór fram í hátíðasal, hófst kl. 1,30 og stóð yfir í tvo
og hálfan tíma. Athöfnin var hin virðulegasta, svo sem vera ber.
BÚENDUR OG BÓLSTAÐIR
í STOKKSEYRI
Athöfnin hófst með því, að
einn þriggja dómnefndarmanna,
dr. Símon Jóh. Ágústsson, pró-
fessor, setti hana með fáum orð-
um. Því næst tók doktorsefnið
til máls og lýsti riti sínu, sem
Dr. Guðni Jónsson
fjallar um búendur og blóstaði
í Stokkseyrarhreppi. Hafði hann
að þessu formála um nám sitt
í Háskólanum og aðdraganda
ritsins. Kvaðst hann æfinlega
hafa haft hinn mesta áhuga á
ættfræðirannsóknum, enda er
Guðni Jónsson einhver færasti
maður í þeirri grein hér á landi.
RÆÐUE
ANDMÆLENDA
Andmælendur voru þeir dr.
Þorkell Jóhannesson próf. og dr.
Björn Karel Þórólfsson skjala-
vörður. Fyrri andmælandi, dr. ^
Þorkell, ræddi einkum um jarð-
irnar sjálfar og ýmis hagfræði-
leg atriði í því sambandi. Benti
andmælandi á nokkrar misfellur,
sem doktorsefnið gaf síðan skýr- |
ingar á. — Þá tók til máls síðari
andmælandi, dr. Björn Karel. *
Vék hann að ættfræði ritgerð-1
arinnar og benti á nokkrar vill-
ur og ályktanir, sem hann taldi
lýta verkið. — Doktorsefnið
þakkaði dr. Birni Karel ábend- ‘
ingarnar og kvað upplýsingar
þessar vera þarflegar viðbætur
við verkið, enda er aðeins eitt
bindi af þrem um sögu Stokks-
eyringa komið út.
Dómnefndin vék nú frá um
stund. Síðan lýsti dr. Símon Jóh.
doktorsvörnina hafa verið tekna
gilda af heimspekideild Háskóla
íslands.
Sleit hann síðan athöfninni og
dómnefndarmenn óskuðu hinum
nýja doctor philosophiae Guðna
Jónssyni til hamingju.
Líður vel
SÍÐUSTU fregnir af brezku
konungshjónunum herma, að
þeim líði ágætlega á siglingunni
yfir Kyrrahaf.
THOR THORS, aðalfulltrúi
íslands hjá S. Þ. flutti eftir-
farandi ræðu, er hann lagði
fram sáttatillögu íslands í
Túnisdeilunni.
Frú Pandit, forseti!
ÍSLENZKA sendinefndin leyfir
sér að flytja breytingartillögur
við ályktun þá, sem fyrsta ncfnd-
in hefur samþykkt í Túnismál-
inu.
Breytingaftillögur þessar eru
að finna á skjali A/L 166.
Fyrsta breytingartillagan er
við þriðju málsgrein inngangs-
orðanna, sem nú hljóða þannig:
„Þar eð markmiði ályktunar
þessarar hefur enn ekki verið
náð“. Var málsgrein þessi nokk-
uð ágreiningsatriði í fyrstu
nefndinni og við viljum þess
vegna að hún sé felld niður.
Önnur og þriðja breytingartil-
lagan eru við niðurstöður álykt-
unarinnar, sem nú hljóða þannig:
„1. Allsherjarþingið mælir
með því, að allar nauðsynlegar
ráðstafanir séu gerðar til þess
að tryggja íbúum Túnis rétt
þeirra til fullveldis og sjálf-
stæðis.
2. Allsherjarþingið fer þess á
leið við aðalritarann, að hann af-1
hendi ályktun þessa og fundar-
gerðir frönsku stjórninni og
flytji allsherjarþinginu skýrslu
um málið á 9. fundi þess“.
Tillögur íslenzku sendinefnd-
arinnar eru, að í staðinn fyrir
þessar tvær málsgreinar, sem
a. m. k. að nokkru leyti hafa vald
ið ágreiningi í fyrstu nefndinni,
komi ein málsgrein svohljóðandi:
„Allsherjarþingið mælir með því
að samningar verði hafnir milli
Frakkladns og Túnis með það
fyrir augum, að íbúum Túnis
verði tryggður réttur þeirra til
sj álf sákvörðunar".
Með tillögum þessum vill ís-
lenzka sendinefndin komast hjá
ágreiningsatriðum þeim, sem
risu í fyrstu nefndinni. Ennfrem-
ur er aðalritari leystur undan
þeirri skyldu að hafa afskipti af
máli þessu og ekki er til þess
ætlast, að hann gefi skýrslu um
málið á 9. fundi þingsins.
Breytingartillögur íslenzku
sendinefndarinnar eru lagðar
fram til sátta. Við getum ekki
lokað augunum fyrir þeirri stað-
reynd, að hér eru tveir aðilar
sem eiga í deilu. Það er skylda
SÞ að sýna báðum aðilum við-
eigandi virðingu og tillit. Þess
vegna gerum við það að tillögu
okkar, að allsherjarþingið mæli
með því áð samningar fari fram
milli Frakklands og íbúanna í
Túnis.
í 1. grein, 2. lið sáttmála SÞ
segir svo, að einn aðaltilgangur
SÞ sé, „að vinna að vinsamleg-
um samskiptum þjóðanna á
grundvelli virðingar fyrir jafn-
rétti og sjálfsákvörðunarrétti
þjóðanna". Það er því eðlilegt að
við leggjum til, að samningar
milli Frakklands og íbúa Túnis
skuli tryggja það, að íbúar
Túnis nái rétti sínum til sjálfs-
ákvörðunar. Háttvirtu samþings-
menn, ég spyr ykkur: er ekki
þetta skuldbinding semvið höfum
allir tekizt á herðar og sem við
þess vegna verðum að virða og
framfylgja?
Eins og ég sagði áðan eru
breytingartillögur ísl. sendinefnd
arinnar frambornar með sáttfýsi
í huga og ég vil bæta því við,
með auðmýkt í huga. Við erum
að sjálfsögðu ekki aðili í þessari
deilu, en eins og allar þjóðir höf-
um við skyldur samkvæmt sátt-
mála SÞ. Við óttumst einnig að
stöðugt öngþveiti af hendi SÞ,
eins og við sáum nýlega í Mar-
occomálinu, hljóti óhjákvæmi-
lega að orsaka það, að mikill
fjöldi fólks víðsvegar um heim
glati trú sinni á SÞ og þetta verði
til þess að grafa undan áliti,
veldi og styrkieika SÞ. Ef þaS
fólk í heiminum, sem er óánægt
með hlutskipti sitt í lifinu, örlög
sín eða íramtíðarhorfur, finnur
að það hefur ekkert að sækja til
SÞ, þá mun þetta fólk, áður ers
stundir líða, leita fullnægingu
óska sinna á einhvern annan hátt
og sennilega ná sínu markmiði
Thor Thors
á þann hátt, að dýrkeypt reyri'st
í mannslífum og fjármunum fyr-
ir hina stríðandi aðila, og -að»
öllum líkindum fyrir fjöida
marga aðra, heldur en rc.Ur)!
mundi á verða, ef friðsamle?ar
leiðir SÞ gætu reynzt til bjargar
og bóta.
Frú forseti, breytingartilU'gur
okkar eru frambornar til þess að
leitast við að fá meiri hluta íyr-*-
ir veikri tillögu, sem gæti srmt
sem áður leitt til mikils, já-
kvæðs og varanlegs árangurs. og
þser eru frambornar með rirð1-
ingu fyrir báðum aðilunvm I
þessari deilu og með fullu t'lliti
til sjónarmiða þeirra begg :a. Ef
við færum á þann veg a"> 'áði
okkar þá geta SÞ orðið : 'j því
liði í þessu máli, sem næ í: til
heillavænlegs árangurs.
Síðasia sýning á
Harvey fyrir jól
„HARVEY“, hinn óvenjuicgi og
ágæti gamanleikur Mary Cnase,
sem Þjóðleikhúsið sýnir nú, verð-
ur sýndur í síðasta skipti fy ir jól
í kvöld, sunnudag.
„Harvey“, hin háttvísa og ó-
sýnilega kanína félagi Elv/ood P.
Dowds, hefir þegar afla'ð sér
trausts vinahóps hér, ekki síður
en annars staðar, þar sem þessí
gamanleikur hefir verið sýndur,
Aðsókn hefir líka verið mjog góð
hér, en leikur Lárusar Páksonar
og Arndísar Björnsdóttur, sem
fara með aðalhlutverkin, hefir
vakið hrifningu gesta og lelí dóm
enda. — í kvöld cru sem sagt
síðustu forvöð að sjá Harvey fyr-
ir jólin.
Handknaliieiksnu liS
eri
HANDKNATTLEIKSÍ.TÓT
Reyykjavíkur heldur áfram í
kvöld. Þá keppa: II. fl. kvenna:
Ái'mann — Valur. III. fl. kvenna:
Fram — KR. III. B. fl. Valur —
Víkingur. II. fl. karla Fram —
KR. II. fl. karla ÍR — Þróttur.
II. fl. karla Ármann — Valur.
Annað kvöld keppa: III. fl. B„
karla ÍR — Valur. III. fl. karla
AB ÍR — Þróttur. III. fl. karla
AB Ármann — ÍBH. III. .fl. karla
AA Fram Víkingur. III, fl. karla
AA KR — Valur. I. fl. karla Val-
ur — Þróttur. I. fl. karla Fram —
KR.