Morgunblaðið - 13.12.1953, Page 11
Sunnudagur 13. des. 1953
MORGVNBLAÐIÐ
11
Evlalia Guomundsdóttir 75 ára
FRÚ EVLALÍA GUÐMUNDS-
DÓTTIR í Bolungarvík varð 75
ára s.l. föstudag. Hún er fædd að
Heydal í Reykjarfjarðarhreppi h.
11. desember 1878. Var faðir
hennar Guðmundur Bjarni Arna
son, síðar bóndi að Fossum í
Skutulsfirði, en móðir, Sigríður
Bjarnadóttir. Hún ólst að mestu
upp hjá móður sinni til 11 ára
aldurs, en eftir það vann hún
aigjörlega fyrir sér sjálf. Seytján
ára að aldri réðist hún í vist til
merkishjónanna Jóns Einarsson-
ar, bónda að Garðstöðum í Ögur-
hreppi, og konu hans, Sigríðar
Jónsdóttur. Var hún þar í 2 ár,
og síðan 1 ár í Ögri hjá hinum
landskunna atorku- og fram-
faramanni Jakobi Rósinkarssyni
og konu hans, Þuríði Ólafsdótt-
ur. Á þessum árum fékk Evlalía
greitt hærra kaup, en aðrar
vinnukonur á sama tíma, og er
það til marks um, að þá þegar
hefur í ljós komið hið afburða
starfsþrek og trúmennska, sem
einkennt hefur Evlalíu allt henn-
ar líf.
Árið 1901 giftist Evlalía Sig-
urði Þórðarsyni. Sigurður var
einn af 10 börnum Þórðar Gísla-
sonar og konu hans, Guðrúnar
Ólafsdóttur, en þau voru síðustu
búendur að Hestfjarðarkoti í
Hestfirði.
Þau Sigurður og Evlalía byrj-
uðu búskap að Markeyri í Ögur-
hreppi, en þar hafði Þórður, fað-
ir Sigurðar, þá reist nýbýli. Fá-
um árum síðar fluttust þau að
Folafæti í Súðavíkurhreppi og
bjuggu þar til ársins 1916, en þá
lézt Sigurður eftir þunga legu í
lungnabólgu.
Sigurður var sérstakur atorku-
og dugnaðarmaður. Hann stund-
aði búskap og sótti sjó jöfnum
höndum, eins og títt var um
bændur við ísafjarðardjúp á
þeim árum. Hann byggði mjög
myndarlegt íbúðarhús á ábýlis-
jörð sinni á þeirra tíma vísu, og
þrátt fyrir það, að börnunum
fjölgaði eftir því sem árin iiðu,
komust þau hjón þó vel af og
áttu snoturt bú.
Við lát manns síns stóð Evla-
lía ein uppi með 7 börn í ómegð,
og reyndi nú mjög á þrek henn-
ar og dugnað. Hún hélt áfram bú-
skap, og réðist þá til hennar sem
ráðsmaður, Jón Pétursson, ættað-
ur úr Reykhólasveit. Bjuggu þau
saman æ síðan, þar til er Jón
lézt árið 1936.
Árið 1935 brá Evlalía búskap,
og fluttist til Bolungarvíkur og
hefur átt þar heimili síðan. Eftir
komu sína þangað tók hún að
stunda vélprjóna sem atvinnu,
og hefur gegnt því starfi síðan af
alkunnum dugnaði og vand-
virkni.
Evlalía heldur ennþá ótrúlega
lítið skertu sínu mikla starfs-
þreki og situr enn langa vinnu-
daga við prjónavélina, og því fer
mjög fjarri, að hún hafi lært að
tileinka sér nútímakröfur um
daglegan vinnutíma og laun fyrir
starf sitt. Og víst er um það, að
margur Bolvíkingur hefur notið
góðs af þessu starfi hennar fyrir
litla greiðslu.
Evlalía hefur á liðnum árum
orðið að þola þungar raunir af
völdum ástvinamissis. Tvö af
börnum hennar dóu í bernsku,
dóttur sína, Sigurbergu, missti
hún á æskuskeiði, og sonur henn-
ar, Þórarinn, hinn mesti efnis-
maður, fórst í fiskiróðri með vél-
bátnum „Sæbjörn" frá Súðavík,
veturinn 1930. Öllu þessu hefur
Evlalía tekið með stakri hugarró
og þreki, sem aldrei lætur bug-
ast.
Börn Evlalíu, þau sem á lífi
eru, eru þessi: Guðrún, hús-
freyja; Sigurgeir, verksmiðju-
stjóri; Hannes, vélstjóri; Björg,
húsfreyja, — öll búsett í Bolung-
arvík, og Þórður, skipstjóri, á ísa
firði. Öll eru börnin hið mesta
atorku- og dugnaðarfólk, svo
sem þau eiga kyn til. Þeir Sigur-
geir og Hannes hafa til skamms
tíma verið útgerðarmenn og
skipstjórar á bátum frá Bolung-
arvík, og reynzt mjög fengsælir
og atorkusamir sjómenn.
Evlalía á nú 39 barnabörn og
er langamma 18 barna.
Á afmælisdaginn var hlýtt og
bjart á heimili Evlalíu. Ástvinir
hennar og aðrir vinir, þeir er til
náðust minntust við hana, og
þökkuðu henni af heilum huga
alla hennar umhyggju, ástúð og
mildi á liðnum árum, og færðu
henni óskir um gleði og gæfu á
ókomnum tíma. Undir þær óskir
og þakkir munu allir þeir, er
Evialíu hafa kynnst, einhuga
taka.
Vinur.
— Reykjavíkurbréf
Framh. af bls. 9.
Þjóðin vill meira
athafnafrelsi
NEI, stjórnarandstaðan skapar
sér áreiðanlega ekki aukið traust
með því að berjast gegn tillög-
um ríkisstjórnarinnar um aukið
athafnafrelsi. Þjóðin vill meira
athafnafrelsi. — Hún er orðin
þreytt' á því, að þurfa að sækja
ótal leyfi til opinberra nefnda
og ráða. — Hún íagnar því, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur reist
merki vaxandi byggingafrelsis.
Hana vantar mikið af nýjum og
fullkomnum íbúðarhúsum í stað
gamalla og lélegra húskumbalda,
bragga og skúra.
Henni er aS vísu Ijóst, að
öllu siæmu húsnæði verður
ekki útrýmt í einu vetfangi.
En byggingafrelsið er fyrsta
sporið að því takmarki. Síðan
verður eftir fremsta megni,
og í samræmi við fjárhags-
getuna á hverjum tíma, að
afla lánsfjármagns til þess að
byggja fyrir. Almenn spari-
fjársöfnun verður að aukast
og lánastofnanirnar að eflast
til þess að þær geti sinnt því
mikilsverða hlutverki sinu að
styðja byggingarframkvæmd-
ir í landinu.
Að þessu vinnur Sjálfstæð-
isflokkurinn markvíst og til
þcss að koma þeessari stefnu
sinni fram beiðist hann lið-
sinnis allra frjálslyndra
manna.
- Veðrið
Framh. af bls. 1.
andi um sinn hag, en þar er skíða
tíminn vanur að hefjast í janúar.
EN BAÐSTRÖND FYLLIST
FÓLKI
í baðstaðnum Brighton í Eng-
landi var 30 stiga hiti s.l. sunnu-
dag og þúsundir manna á bað-
strönd. Á sama tíma í fyrra var
þar 2 stiga hiti. í Lundúnum eru
menn að velta því fyrir sér, hvort
ekki verði bráðum hægt að rækta
banana að vetrarlagi í útborg-
um Lundúna.
A ISIZT AÐ AUGLÝSA A
T / MORGUMiLAÐINU ,T
Nýjar sænskar plötur:
Sju ensamma kváller
Elizabeth
Göm det i hjartet
Sángen frán Moulin Rouge
Jag vántar pá min ván — o. m. fl.
Sungnax af Harry Brandelius, Ingalill Rossvald, Ingalill Gahn, Marion Sundh
og Deep River Boys.
FÁLKINIM H.F.
Hljómplötudeild (Sími 8-16-70)
2 nýjar píötur
með Else Miihl:
Aria úr operunni „Töfraflautan" (Mozart):
„Der Königin der n.acht“ DB30006
íslenzk vögguljóð á hörpu
Fuglinn í fjörunni
Tvö hjarðljóð frá 18. öld DA 30000
ÞORSTEINN HANNESSON:
Sverrir konungur (Sv. Sveinbjörnsson)
Vetur (Sv. Sveinbjörnsson) JORXIOI
FALKINN H.F.
Hljómplötudeildin — (Sími 8-16-70)
i Den slore Iranske kog^ebogf
j
I
í
I
3
l
|
í
Vor
Síðasta sendingin fyrir jól kemur í búðina í dag. —
Þair, sem pantað hafa þessa fallegu matreiðslubók eru
vinsamlega beðnir að sækja hana sem allra fyrst, því
upplagið er mjög takmarkað.
Leksikon
Örfá sett eru nú til af þessari eftirsóttu alfræðabók.
Pantanir, sem þurfa að afgreiðast fyrir jól, óskast sóttar
fyrir miðvikudagskvöld.
Eól? auerzíum ^dóapoldar
f
■J
l
iJ
m
í
Jólabók
telpnanna
Þeir foreldrar, sem bera fram-
tíð barnanna fvrir brjósti, velja
bækur, sem hafa gildi fyrir upp-
eldi þeirra.