Morgunblaðið - 13.12.1953, Síða 16
Veðurútiii í dag:
AHhvass eða hvass S og skúrir
eða slydduél.
286. tbl. — Sunnudagur 13. dcsembcr 1953
ísl. sjómenn þriðju í frjálslþr.
keppni norrænna farmanna
Hrepptu verðlaun í 4 greinum af S.
FVRIR forgöngu dansks félags, „Handelsflaatens Velfærdsraad",
var í sumar efnt til keppni í frjálsum íþróttum milli farmanna á
fríorðurlöndunum. Keppni þessari er nú lokið með þeim úrslitum
að ísl. sjómenn hafa orðið í þriðja sæti á eftir Svíum og Finnum.
rélðgsheimifi Víkings
FYRIRKOMULAG
Fyrirkomulag keppninnar er
þannig að sjómenn á verzlunar-
akipum geta keppt hvar sem þeir
koma í land, en verða að hafa til
staðar viðurkennda frjálsíþrótta-
dómara. Keppnistímabilið var
allt sumarið, en síðan voru gefin
stig eftir unnum afrekum samkv.
eænsku stigatöflunni.
JÖFNUNARTÖLUR
Verzlunarfloti Norðurlanda-
þjóðanna er mjög misjafn að
*tærð. Var því ákveðið að gefa
þjóðunum sérstaka jöfnunartölu
sem lögð yrði til grundvallar við
lokastigaútreikning. Norðmenn
eiga stærsta flotann og flesta
Sraupskipasjómenn og er þeirra
jöfnunartala því 0. Heildarstiga-
tala Svía var að loknu keppnis-
tímabilinu margfölduð með 1,5,
stigatala Dana með 3, stigatala
Finna með 5 og stigatala Islend-
inga með 10, þar sem þeir eru
langfæstir. — Alls tóku 1371 sjó-
. maðijr frá þessum 5 þjóðum þátt
í keppninni — 683 Svíar, 337
Norðmenn, 172 Finnar, 133 Danir
og 36 íslendingar. Úrslit urðu
jþau að Svíar hlutu 646,904 stig,
Finnar 619,330, íslendingar 388,
380, Danir 298,485 og Norðmenn
233,188 stig. — Keppnisgreinarn-
ar voru 5, 100 m hlaup, kúluvarp,
langstökk, hástökk og 4x100 m
boðhlaup.
VERÐLAUN AFHENT
Sjómannastofur í hinum ýmsu
löndum sáu um keppnina. Af-
henti Axel Magnússon íslending-
unum verðlaun Sjómannastof-
unnar í gær, um borð í Gullfossi,
en frjálsíþróttakeppnin er jafn-
fram innbyrðis keppni — milli
íijómanna frá hverri þjóð um sig.
Rögnvaldur Gunnlaugsson, Gull-
íossi, varð sigursælastur íslend-
inganna. I innbyrðis keppninni
(milli ísl. farmanna varð hann
fiigurvegari í langstökki, 100 m.
hlaupi, varð 2. í kúluvarpi og 1
i fjórþraut. Auk þess hljóp hann
í boðhlaupssveitinni íslenzku. Að
verðlaunum hlaut Rögnvaldur
fiilfurbikar er Magnús Baldvins-
son úrsmiður hefur gefið „Bezta
alhliða íþróttamanninum meðal
íslenzkra farmanna“.
NORRÆNA KEPPNIN
I hinni norrænu keppni
urðu íslenzku sjómennirnir
meðai verðlaunamanna í 4
greinum af fimm. Rögnvaldur
1 Gunnlaugsson var 2. í lang-
stókki, Þór Elíasson, Gullfossi
varð annar í kúluvarpi, varp-
- aði 12,09 m. og í boðhlaupinu
varð sveit Gullfoss önnur á
í september s. 1. hóf knattspyrnufélagið Víkingur byggingarfram-
kvæmdir á félags- og íþróttahúsi sínu í Bústaðahverfi. Er nú
verið að slá upp fyrir hæðinni. Verður húsið væntanlega tekið
í notkun næsta haust. Félagsheimilið teiknaði Gísli Ilalldórsson,
i en Jón Bergsteinsson múrarameistari, annast byggingu þess.
50,0 sek. Loks varð Rögnvald-
ur þriðji í fjórþraut.
Af íslendingunum 36 er þátt
tóku í keppninni voru 23 af Gull-
fossi, 6 af Reykjafossi, 4 af Goða-
fossi, 2 af Tröllafossi og 1 af
Dettifossi.
íslenzkir farmenn hafa með
þessum sigrum sínum aukið hróð
ur stéttar sinnar og þjóðarinnar í
heild. Væntanlega munu þeir
fleiri taka þátt í keppninni næsta
sumar. Nánar verður skýrt
frá úrslitum keppninnar á íþrótta
síðu.
IViestu iBmferðardagar ársiits
eru framundan og slys eru tíð
Flokkagjíma
er i
FLOKKAGLIMA Reykjavíkur
fer fram í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar í dag og hefst kl. 2
e. h. Knattspyrnufélag Reykja-
víkur sér um glímukeppnina.
Keppt verður að venju í fjór-
um flokkum — 1., 2. og 3. fl. karla
og auk þess í drengjaflokki. —
Meðal keppendanna eru flestir
kunnustu glímumenn höfuðborg-
arinnar.
í 1. flokki verður úrslitakeppn-
in vafalaust milli Rúnars Guð-
mundssonar, Á. og Ármanns J.
Lárussonar UMFR. Þeir hafa háð
marga harða glímu og aldrei hef-
ur verið hægt að spá um úrslitin
fyrirfram.
í öðrum flokki eru meðal kepp-
enda þeir Gísli Guðmundsson Á.
(bróðir Rúnars) og Gunnar Ó1
afssson UMFR.
7
í
iuarnis og 7ð bílar
MESTI annatími ársins hér í Reykjavík fer nú í hönd og jafnframt
þeir dagar, sem umferð gangandi og bíla nær hámarki sínu. Þessa
aaga eru jafnan fleiri lögreglumenn við stjórn umferðarinnar en
ella. Undanfarna daga hefur umferðin aukizt mjög, enda eru bíla-
árekstrar og slys orðin ískyggilega tíð á götum bæjarins.
Ilim gat sjálí !
bjargað barni sínu
FYhIK nokkrum dögum vildl
það til suður í Kópavogsbyggð,
að barnavagni hvolfdi í storm-
hviðu, þar sem hann stóð við hús-
vegg. Reifabarn var í vagninuna
og mun það hafa bjargað lífí
barnsins, að móðir þess kunni tií
björgunar úr dauðadái.
Barnið í vagninum var aðeins
fjögurra mánaða og var mjög aE
því dregið, þar sem það lá undir
rúmfötunum í vagninum, sem
það grófst undir er honum
hvolfdi. Barnið var farið að blána
er móðir þcss bjargaði því. Húni
kunni hin réttu handtök vi$
öndunaræfingar. Náð var í lækni
og vél til að lífga fólk úr dauða-
dái. Vélina þurfti ekki að nota,
þegar til kom, og telja kunnugir,
að kunnátta móðurinnar í önd-
unaræfingum, sem hún hóf um
leið og barninu hafði verið bjarg
að, hafi bjargað lífi barnsins.
Til þeirrar deildar rannsókn-
arlögreglunnar sem fjallar ein-
göngu um bílaárekstra og slys á
gangandi á götum bæjarins, hef-
ur borizt mikill fjöldi skýrslna
daglega.
70 BÍLAR — 7 MANNS
| í gærkvöldi hafði deildinni,
frá því á laugardaginn var, bor-
izt skýrsla um 35 bílaárekstra.
Þar hafa um 70 bilar hlotið meiri
eða minni skemmdir, en allmarg-
ir leigubílstjórar eiga hlut að
I máli. Er það tilfinnanlegt fyrir
þá að verða fyrir miklu vinnu-
tapi, þegar nóg er að gera.
I Frá því fyrra laugardag og þar
til í gær höfðu 7 manns, þar af
eitt barn, slasast.
VARLEGA
Rannsóknarlögreglan
taldi
Sæmilegur afli
í Slykkishélmi
STYKKISHÓLMI — í haust hef-
ir fiskast mjög sæmilega í Stykk-
ishólmi. Þrír dekkaðir dagróðrar
bátar eru gerðir hér út á línu og
nokkrir trillubátar hafa einnig
róið héðan. Hafa dagróðrabátarn-
ir fiskað frá 3 og upp í 6 tonn og
trillubátarnir fengið upp í 2 tonn
í róðri. Aflinn hefir verið verk-
aður í hraðfrystihúsum Kaupfé-
lagsins og Sigurðar Ágústssonar.
Síldarverksmiðjan er enn að
bræða síldaraflann frá í haust, en
mun nú senn ljúka þeirri
bræðslu. Munu um 6—700 mál
en óbrædd. Þá mun hún byrja að
vinna úr þeim fiskúrgangi sem
safnast hefir undanfarið.
Ræðu borgarsfjóra mjög vel tekið,
Fjölmenni á spilakvcldi
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Reykjavík héldu sameiginlegt
Epilakvöld s.l. föstudagskvöld.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Gunnar Thoroddsen, hélt ræðu,
þar sem hann lýsti framförum
Jx2Ím sem orðið hafa í Reykjavík
Sun síðustu ár. Var ræðu hansj
*ijög vel tekið.'— Sýnd var kvik-!
mynd Skógræktarfélagsins og
skýrði Hákon Bjarnason, skóg-
ræktarstjóri, myndina.
Mjög fjölmennt var á spila-
kvöldinu eins og öllum hinum
fyrri spilakvöldum SjálfstæðjS-
félaganna. Þau sem verðlaúh
hlutu voru Rúna Halldórsdóttir
og Guðmundur Guðmundsson.
Spáð cr hér
mildum vetri
KEFLAVÍKURFLUGVELLI —
Veðurathugunarstöð varnarliðs-
ins hér á flugvellinum, hefur lát-
ið frá sér fara veðurspá fyrir
vetrarmánuðina sem framundan
eru. Telur veðurstofan horfur á
mildum vetri, en allstormasöm-
um, með rigningum. Snjóalögum
er ekki spáð, tæplega dýpri snjó
en 7—8 tommum. Veðurstofan
telur ekki horfur á stórviðrum
það sem eftir er vetrar.
Veðurathuganir þessar eru
byggðir á háloftsveðurathugun-
um.
brýna nauðsyn bera til að hvetja
bílstjóra til að gæta fyllstu var-
úðar og leika ekki þann hættu-
lega leik að böðlast áfram í mik-
illi umferð. Og hvetja gangandi
til að gæta sömu varúðar. Slys-
in gera ekki boð á undan sér.
Slórvöxlur í ám
í Fljótsdel
SKRIÐUKLAUSTRI, 12 des : —
í dag var hér suð-austan hvass-
viðri og mikil rigning. Mældist
úrkoman í morgun 30 millimetra.
Stórvöxtur hljóp í árnar, og var
mesta flóð, sem hefir komið í
tugi ára.
Um skemmdir hefir ekki frétzt
nema dálítið á girðingum á Víði-
völlum ytri. Mátti heita að allir
Víðivallahólmar væru undir
vatni inn á móts við bæ.
Hér á nesinu sást varla á ruðn-
inga meðfram áveituskurðunum
og var samfellt vatn frá Mela-
króknum og langt inn í haga.
Hæsta árbakkaröndin var þó víða
uppúr.
Vsfrarhjálpinni
hafa borizf
145 beiðnir
EFTIR tvo fyrstu dagana, sem
Vetrarhjálpin hefir starfað, hafa
henni borizt 145 beiðnir um að-
stoð. Má af því sjá, að þörfin uira
lijálp er mikil að þessu sinni. —*
Fólk, sem eitthvað ætlar að láta
af hendi rakna, er vinsamlegasfc
beðið að koma gjöfum sem allra
fyrst. — Verum samtaka um að
styrkja bágstadda fyrir jólin. —•
Skrifstofan er í Thorvaldsens-
stræti 6.
Miklar skipakomur
og næg alvinna
á fsafirði
ÍSAFIRÐI, 12. des. — Miklar
skipakomur hafa verið hér und-
anfarið og hefir verið hér stanz-
laus vinna í frystihúsunum við
vinnslu á togarafiski og pökkura
á saltfiski.
S.l. þriðjudag kom brezki togar
inn Northern Rover hingað með
bilað spil og hefir hann legið hér
síðan. — J.
Skákeinvígi Mbl:
Akrancs-Keflavík
KEFLAVÍK
AKRANES
25. leikur Keflvíkinga:
gGxRi'5
JólaglugginiB 1953
•’★’• •'★’• í DAG er næstsíðasti
sunnudagur fyrir jól.
Verður vafalaust gaman að
ganga um götur bæjarins í dag
og skoða í búðargluggana.
Aðeins 10 dagar eru til jól-
anna og verzlunarmenn munu
tjalda því sem þeir eiga til, en
vöruúrval í öllum verzlunum
er mikið.
Margir sýna mikla hug-
kvæmni og smekk og verður
gaman að gera samanhurð á
gluggasýningum þeirra.
;★’:• •'★’• •’★:; Morgunþlaðið hefur
sem kunnugt er efnt
til skoðanakönn unar umt
„Jólagluggann 1953“. Geta les-
endur blaðsins látið í ljós álit
sitt á því hver sé smekklegasti
sýningarglugginn þessi jól.
:’★’• :’★’• •’★': Hér fylgir atkvæða-
seðill sem lesendur
geta sent Morgunblaðinu.
Fólk er þó beðið að athuga, að
enn er vika til stefnu við skoð
anakönnunina. Allir seðlar
verða að hafa borizt fyrir kl.
6, mánudaginn 21. desember.
„JÓLAGLUGGINN 1953“
Ég greiði atkvæði sýningarglugga verzlunarinnar:
Nafn:
Heimili: