Morgunblaðið - 21.01.1954, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.1954, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. janúar 1954 SIAKSItlMB © —--------- ® ____ @ ENN UM HÆRING Kommúnistablaðið segir s. 1. Jiriðjudag að „Jóhann Hafstein feafi flogið vestur til Ameríku,“ «g samið um kaupin á Hæringi. Þarna hefur Hæringsáhuginn blaupið illa með kommúnista í gönur. Jóhann Hafstein fór aldrei 'til Ameríku í sambandi við kaup- In á síldarbræðsluskipinu. Það Toru þeir Ólafur Sigurðsson ekipaverkfræðingur og Jón Gunnarsson framkvæmdarstjóri, Bem undirbjuggu kaup skipsins. Það sýnir svo heiðarleik kommúnista í meðferð stað- reynda, að nú halda þeir því hlákalt fram að Jóhann Hafstein bafi flogið til Bandaríkjanna í l»essum erindagjörðum!! Annars er óþarfi að fjölyrða írekar um Hæring. Kommún- istar og glundroðaliðið allt hafa J»egar bakað' sér almenna fyrir- litningu í bænum fyrir hinar yf- irborðskenndu umræður sínar lim þetta skip. Því fer víðs ijarri að þær hafi sakað Jóhann Hafstein eða Sjálfstæðisflokk- inn. VIÐ SUNDIN BLÁ Aðaládeiluefni Tímans á Jó- liann Hafstein er að hann sé að hyggja sér hús á stað, þaðan sem útsýni sé út yfir „sundin blá“. Og auðvitað má Jóhann Hafstein «kki hafa slíkt útsýni. Tíminn minnist ekkert á það, að nokkur þúsund Reykvíkinga njóta nú þegar þeirra „forréttinda" að hafa slíkt útsýni. Hann lætur einnig hjá líða að segja frá því að um þessar mundir og á kom- andi vori, mun nokkur hundruð lóðum verða úthlutað í Laugar- neshverfi og Laugarási. Einnig £aðan mun verða útsýni út yfir „sundin blá“. Jóhann Hafstein «r hinsvegar slæmur maður, af l»ví að hann er byrjaður að hyg&ja sér lítið hús uppi í Öskju- hlíð, og einnig þaðan er útsýni út yfir „sundin blá“!! Þannig er nú málflutningur *Tímans, Reykvíkingar góðir. Það «r ykkar að dæma hann og meta, sunnudaginn 31. janúar n. k. ER ÞETTA MENNTA- SKÓLINN NÝI? Fyrir nokkrum dögum voru hörn að leik inni í Öskjuhlíð, rétt l»ar hjá, sem Jóhann Hafstein er að byggja sér hús. Börnin stað- næmdust við stóra byggingu, sem er að rísa í nágrenninu. •— Er þetta nýi menntaskól- Snn? sögðu börnin og horfðu á búsið, sem var verið að byggja, l»eim sýndist það vera svo stórt •og glæsilegt. Nei, þetta var ekki nýi mennta skólinn. Það var hús, sem ríkið «r að byggja fyrir fyrrverandi hæjarfulltrúa Framsóknarflokks- ins í Reykjavík, Pálma Hannes- son rektor. Tíminn hefur ekkert minnzt á þessa byggingu. Hann hefur heldur ekki orðað „snobbhill" neiít í sambandi við hana. Það «r bara húsið hans Jóhanns Haf- stein, sem verður helmingi ininna, sem er þessu fróma blaði þyrnir í augum!! Sjá nú ekki Reykvíkingar bve skrif Tímans um „snobbhiII“ «g útsýnið yfir „sundin blá“ eru þrxmgin af einlægum áhuga á velferð almennings í bænum?!!! Fjórir Hainarfjarðar- béfar rérw HAFNARFIRÐI — í fyrradag Teru fyrstu línubátarnir héðan á þessari vertíð. — Þeir komu að í gærkvöldi, og var frekar treg veiði hjá þeim. Fagriklettur fékk 15—16 skipd., Fiskaklettur 5—6 Og Hafbjörg 10—11. Bjarni riddari kom af veiðum á þriðjudagsmorgun með 113 tonn af karfa. —G. Reykvíkinpr og Hafnfirðingar ksppa í handknattleik FÖSTUDAGINN 22. og sunnudaginn 24. þ. m. fer fram keppni í handknattleik milli Reykvíkinga og Hafnfirðinga. Keppnin fer fram að Hálogalandi og hefst kl. 8.30 báða dagana. Keppt verður í öllum aldursflokkum karla og kvenna. — Reykjavík sendir þau lið til keppninnar, sem sigruðu á meistaramóti Reykjavíkur 1953. Það eru Valur í meistarafl. og 2. fl. karla; KR í þriðja flokki karla. í kvennaflokki keppir Valsliðið í meistaraflökki en lið Þróttar í 2. fl. — Hafnfirðingar senda úrvalslið í alla flokka. Stöðva Spásiverjar LEIKIRNIR Leiktími verður 2x25 mín. í meistarafl. karla, 2x20 mín í 2. fl. karla og 2x15 mín í öðrum flokkum. Á föstudag leika 2. fl. kvenna, 3. fl. karla og 2. fl. karla. — Á sunnudag leika meistarafl. kvenna og karla. Til keppninnar hefur verið gefinn bikar, sem vinnst til eign- | ar nú. Gefin verða tvö stig fyrir hvern leik og vínnur sá bær er fleiri stig hlýtur. Bikarinn er gefinn í tilefni af 50 ára afmæli Hallsteins Hinrikssonar kennara. Það er 2. fl. F.H. sem bikarinn 1 gefur. — Keppni sem þessi hefur | ekki farið fram áður en fullyrða ' má að hún verður hörð og ' skemmtileg'. .glanos- drottningu LUNDÚNUM 20. jan. — Brezka utanríkisráðuneytið vísaði í dag á bug ásökunum um að ráðuneyt- ið hefði látið í það skína, að Spánverjar hefðu lagst eindregið gegn því, að Elísabet Englands- drottning kæmi í heimsókn til Gíbraltar í maímánuði. Var víða sagt, að ráðuneytið hefði iátið uppi það, sem Eden og sendiherra Spánar í Lundún- um hefði farið á milli. Sagði orðrómurinn einnig, að ummæli spánska sendiherrans hefði verið á þá leið, að ráðandi menn ú Spáni teldu fráleitt að Elísabet drottning kæmi í heimsókn til Gíbraltar. —Reuter—NTB. œjarbókasafnið cpnað í gær Þessi mynd var tekin um daginn í bókaútlánadeildinni, er bóka- verðir voru að raða í hillur deildarinnar. <!'>'amh á bls 2. AF SKÓLAVÖRDUSTÍG í INGÓLFSSTRÆTI Af Skólavörðustígnum flutti safnið í stærra og betra húsnæði, í Ingólfsstræti 12. Síjórn safnsins kynnti sér á þessum árum starf- semi almennings bókasafna er- lendis og kom þá í ljós að Reyk- víkingar sóttu bókasafn sitt bet- ur en íbúar höfuðborga, sem töldu margfallt fleiri íbúa. Á ár- inu 1924 var komið á fót sérstakri barnaless^ofu og eins var þá á vegum safnsins sett smábókasöfn í fiskiskipin. BREYTING Á STJÓRN BÓKASAFNSINS Á árinu 1932 varð breyting á stjórn safnsins, er bæjarráð kom til sögunnar og tók stjórn þess í sínar hendur. Eftir nokkur ár kom í Ijós, að í Ingólfsstræti væri safninu of þröngur stakkur skorinn. Reynt var þá að fá húsið allt keypt til afnota fyrir Bæjarbókasafnið, en eigendur hússins vildu ekki selja það. Kom að því að safninu var sagt upp húsnæðinu. Meðan á þessu stóð lét bæjarstjórnin und- irbúa framtiðar byggingu Bæjar- bókasafnsins. BERG KEYPT Árið 1952 þurfti að flytja safn- ið út úr Ingólfsstræti 12. — Var auglýst eftir hentugu húsi til kaups fyrir safnið. Ekkert tilboð barst. — Nokkru síðar kom í ljós, að unnt myndi vera að fá húsið Berg við Þingholtsstræti keypt. — Forstjóri Bæjarbóka- safnsins, Snorri Hjartarson og Sigmundur Halldórsson arkitekt, töldu hús þetta mjög hentugt fyrir bókasafn og lögðu til að það yrði keypt. — Matsmenn voru fengnir til að meta það. — Þrír þeirra skiluðu samhljóða áliti, en sá f jórði taldi mat þeirra of lágt. — Var Berg síðan keypt fyrir 1.5 milljón krónur og var það kaupverð nokkru lægra en mats- mennirnir þrír höfðu metið húsið á. — Hér gat borgarstjóri þess, að 1200 ferm. lóð fylgdi húsinu og því miklir stækkunarmögu- leikar með viðbyggingu við húsið sjálft þegar að því rekur að þess gerist þörf. Húsinu sjálfu, þar sem safninu hefur nú verið komið fyrir, hefur ekki verið breytt, en innrétting er ný. Allt fyrirkomulag safnsins var ákveðið eftir tillögum Einars Sveinssonar húsameistara bæj- arins, forstjóra safnsins, Björns Sigfússonar háskólabókavarðar og Sigmundar Halldórssonar arkitekts. — Innréttingarnar eru smíðaðar í Áhaldahúsi bæjarins, en húsgögn hjá Friðrik Þorsteins- syni. Aðalsteinn Richter húsa- meistari hafði umsjón með fram- kvæmdum. Borgarstjóri gat þess, að á s.l. ári hefði verið veitt til Bæjar- bókasafnsins 750 þús. krónur og hefði framlaig bæjarsjóðs til þess fimmtugfaldast á þeim 30 árum, sem Iiðin eru frá því það tók til starfa. Að lokum mælti borgar- stjóri eitthvað á þessa leið: Bæjarbókasafnið hefur miklu og merkilegu hlutverki að gegna. — Við íslendingar er- um taldir mikil bóka-þjóð. Sterkasti þáttur íslenzkrar menningar er alþýðumenning- in. Bæjarbókasafnið mun stuðla að aukinni menningu alþýðumanna með því að gefa henni greiðan aðgang að góð- um bókakosti. — Hér í safn- inu mun og æskan fá góð skil- yrði til náms og starfa. Megi Bæjarbókasafnið blómgast og dafna í þessum nýju húsa- kynnum, sagði Gunnar Thor- oddsen borgarstjóri að lokum. í BÓKASAFNINU Þessu næst bauð Snorri Hjart- arson gestunum að skoða safnið. — í kjallara hússins er bóka- geymsla og þar er íbúð húsvarð- ar, Kristínar Guðmundsdóttur. Þaðan og upp á efri hæðir er bókalyfta, sem spara mun mikla vinnu bókavarðanna við safnið. Eins er innanhússími til mikilla þæginda og tímasparnaðar. — Á fyrstu hæð er bókaútlánsdeildin. Yfir hverri hyllu, sem er merkt sínum bókaflokki, er lampi, og er útlánsdeiidin mjög aðgengi- leg fyrir viðskiptavini safnsins. — Bjart er þar, allir veggir í ljósum litum og öilu mjög smekk lega fyrirkomið. Höfðu gestirnir orð á því, hve öllu væri vel og haganlega komið fyrir, til þæg- inda fyrir þá sem safnið sækja. Lamparnir • yfir bókaskápunum og leslamparnir vöktu athygli en þeir eru smíðaðir í Rafha. — Á efri hæðinni er lesstofan. Þar geta samtímis setið að lestri við góða birtu, 21 maður. Þar uppi er líka bókageymsla og skrif- stofa Snorra Hjartarsonar for- stjóra. GOTT SAFN Á BEZTA STAÐ f stuttu samtali við Snorra lýsti hann ánægju sinni yfir að þessu langþráða marki sem nú hefði verið náð, með því að Bæj- arbókasafnið er komið í eigin byggingu. Betri stað var ekki hægt að fá hér í bænum fyrir safnið, sagði forstjórinn. — Þá eru miklir stækkunarmöguleikar er fram líða stundir, sagði Snorri. — Hann gat þess og að alls störfuðu nú níu manns við safnið. — Bæjarbókasafnið á nú 50.000 bækur, upplýsti forstjór- inn. Bæjarbúar fagna því að bóka- safn þeirra tekur nú til starfa í hentugu og vistlegu húsnæði sem er samboðið slíkri menningar- og fræðslumiðstöð. Reynt hefur ver- ið að ófrægja bæjarstjórnina og borgarstjóra, fyrir það að hafa ráðizt í þessar framkvæmdir. Vera má að því verði haldið áfram. — Aftur á móti skilur al- menningur, hve mikils virði það er fyrir Reykvíkinga að eiga að- gang að góðu bókasafni. Það er prófsteinn á menningarlíf höfuð- borgarinnar hvernig hún býr að bókasafni sínu. — Þeim dómi er bæjarstjórnin vafalaust viðbúin að hlýta er þeir kveða hann upp sem í safnið koma með opin augu, en ckki full af pólitískum stírum. ★ Morgunblaðið samfagnar bæj- arbúum með að Bæjarbókasafnið er aftur tekið til starfa. — Það verður framvegis opið sem hér segir: alla virka daga frá kl. 10 árd. og kl. 6—10 á kvöldin. Á laugardögum kl. 1—7 og sunnu- dögum kl. 2—7. Úf um víða veröld HÉR birtist yfirlit yfir Iönd og viðkomustaði skipa Eim- skipafélagsins á undanförn- um árum. ENGLAND: London, Hull, Grimsby, Immingham, Liv- erpool, Newcastle-on-Tyne, Middlesborough, Chatham, Cardiff, Swancoumbe. SKOTLAND: Leith, Aber- decn. ÍRLAND: Dublin, Belfast, Londonderry, Cork. FÆREYJAR: Tórshavn, Klaks vig, Skálafjörður, Sörvaag, Kollafjörður, Waag. DANMÖRK: Kaupmannahöfn, Aalborg, Nakskov, Köge, Nyborg, Frederikshavn. NOREGUR: Oslo, Bergen, Kristiansand, Halden, Flekkefjord, Haugesund, Sarpsborg, Odda, Husberg- öya, Álesund, Larvik, Frederiksstad, Dimmelsvik, Egersund, Heröya, Pors- grunn. SVÍÞJÓÐ: Göteborg, Stock- holm, Malmö, Áhus, Lyse- kil, Gravarne, Karíshamn, Halmstad, Uddevalla, Smögen. FINNLAND: Helsingfors, Ábo, Kotka, Borgá, Patenienne, Hamina, Rauma, Jakobs- stad, Kemi, Kosko. ÞÝZKALAND: — Hamborg, Bremen, Bremerhaven, Rostock, Grauerort, Brake, Warnemúnde, Wismar. HOLLAND: Rotterdam, Am- sterdam, Dordrecht, Delf- zilj, Yjmuiden. BELGÍA: Antwerpen. FRAKKLAND: — Boulogne, Bordeaux, La Rochelle-La Pallice, Sété, Nice. PÓLLAND: Gdynia, Gdansk, Stettin. EISTLAND: Ventspiels. RÚSSLAND: Leningrad. SPÁNN: Barcelona, Cartagena Ceuta, Palamos. PORTÚGAL: Lissabon. ÍTALÍA: Napoli, Palermo, Genova, Savona. GRIKKLAND: Patres, Piræ- us, Minamo. ALGIER: Alger. MAROKKO: Casablanca. EGYPTALAND: Alexandria. ISRAEL: Haifa. CANADA: Halifax, Stephens- villa, Botwood. U.S.A.: New York, Baltimore, Norfolk, St. George Harbor. SUÐUR-AMERÍK A: Rio de Janeiro, Santos (verður í þessum mánuði). Síðan stríðinu lauk hafa skip Eimskipafélagsins komið á 113 hafnir í 26 löndum í Evrópu, Asíu, Afríku, Norður- og Suður-Ameríku. Velkomnir PANMUNJOM 20. jan. — í dag afhentu indversku fangaverðirrw ir í Kóreu herstjórn S. Þ. aftujj þá 22 þús. N-Kóreumenn og Kín^ verjar, sem teknir voru höndurnj af S.Þ. en vilja ekki hverfa heirr^ 350 Bandaríkjamenn og S-Kór^ eumenn meðal fanganna verðaj áfram hjá Indverjunum. Þei^ vilja ekki hverfa heim Og kom« múnistar sem tóku þá fasta, neitg að taka við þeim. i Þegar dyr fangabúðanna vortj opnaðar, gengu fangaarnir úí syngjandi. Þeir gengu í áttinsj til yfirráðasvæðis S. Þ. ög elj þeir komu þangað, gengu þeifl undir skilti, sem á var letra?S á ensku, kínversku og norðu^ kórönsku: VELKOMNIR. Kínverjaarnir, um 14 þús. talg^ ins, eru nú á leiðinni til Formós^ Norður-Kóreumennirnir vorg fluttir til Seoul.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.