Morgunblaðið - 21.01.1954, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. janóar 1954
Frakkar ná affur
undirSökum
í IndóKína
SAIGON 20. jan.: — Herlið
Frakka í Indó-Kína kom aftur
á sambandi milli suðurhluta og
norðurhluta Indó-Kína, en það
rufu hersveitir uppreisnarmanna
í jólasókn sinni. An þess að mæta
verulegri mótspyrnu tóku
frönsku sveitirnar bæinn Thakh-
er við Mekong-fljótið á landa-
mærum Thailands.
— Reuter-NTB
■ Pélur Jónsson
Framh. af bls. 10.
bæjarhús með lóð á Laugavegi
20 og byggir þar skömmu síðar.
Það hús stendur enn. Þar stofn-
setti hann matvöruverzlun og
verzlaði þar í 5 ár. Á þessum
árum og í þessu húsi eignuðust
þau sitt einkabarn, er dó á
þriðja ári. Þar dóu einnig á
þessum árum Elín tengdamóðir
Péturs og Sigríður • systir hans.
Selur Pétur þá hús sitt á
Laugaveginum og kaupir húsið
Grettisgötu 12 og gerist skrif-
Stofumaður hjá Sameinaða gufu-
skipafélaginu og vann þar sam-
fleytt í 27 ár, unz hann varð að
hætta störfum vegna sjóndepru
1932, var hann þá orðinn 70 ára
að aldri, en átti þó starfskrafta
allmikla eftir.
Árið 1915 varð Pétur fyrir
þeirri þungbæru sorg, að missa
konu sína, er verið hafði honum
hinn ágætasti förunautur. Ráðs-
konu fékk hann árið eftir, Jó-
hönnu Ásleifsdóttur, er reyndist
honum hans styrkur og stoð til
æviloka. Þar sem hann var svo
lengi nær blindur þurfti hann
mikla umhyggju, er hún annað-
ist með prýði og sóma. Pétur
var mikill vinur Zimsensbræðra,
er voru aldir upp í Hafnarfirði,
en þeir dóu allir á undan hon-
Um.
Pétur var maður höfðinglegur,
bjartur yfirlitum, hár á velli og
hreinvaxinn. Hann bar ætíð al-
skegg er orðið var fannhvítt
með aldrinum. Hann var trygg-
lyndur maður að eðlisfari, vinur
vina sinna, óreikull og sjálfstæð-
ur í skoðunum, trúmaður góður
og vandur að allri virðingu og
framkomu. Pétur var einn af
fyrstu stofnendum Verzlunarfé-
lags Reykjavíkur og sá er lengst
lifði þeirra stofnenda, sá eini á
lífi á 60 ára afmæli félagsins,
27. jan. 1951, enda heiðursfélagi
þess til dauðadags. Þessum staka
sómamanni mun vel fagnað á
landi lifenda. Blessuð veri
minning hans.
Guðm. Guðmundsson.
LILLU
kryddvörur
eru ekta og
þess vegna
líka þær
bezt. Við á-
byrgjumst
gæði. —
Biðjið um LILLU-KRYDD
þegar þér gerið innkaup.
Hadden og kona hans
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði halda sameiginlegt spilakvöld
í Góðtemplarahúsinu í kvöld kl. 20.30.
Á þessu ári eru 40 ár liðin síðan byrjað var að spila félagsvist
hér í Hafnarfirði. Stóðu fyrir henni enskur fiskkaupmaður,
Hadden og kona hans. Eins og nú er siður, voru verðlaun veitt
þeim herra og dömu, sem flesta slagi fengu, og einnig voru veitt
svonefnd busaverðlaun, en þau hlutu, er fæsta slagi fengu. —
Æ síðan hefir félagsvist verið spiluð í Hafnarfirði.
I tilefni af þessu afmælisári félagsvistarinnar hér, hafa vönduð
verðlaun verið gefin, sem veitt verða þeim, sem flesta slagi fá á
spilakvöldinu hjá Sjálfstæðisfélögunum í Hafnarfirði í kvöld.
— G.
Slökk viliðið
Framh. af bls. 9.
sem er hinn svokallaði stigabíll,
með 20 metra stálstiga. Þá koma
lausir vagnar, svo sem einn sem
ber 12 metra stiga, þrír sem hver
um sig hefur dælur er dæla 2000
lítrum á mínútu. Þar að auki eru
ýmsar smádælur, svo að þegar
allar dælur slökkviliðsins eru
komnar í gang, geta þær dælt 14
þúsund lítrum á einni mínútu.
VIÐBUNIR ALLAN
SÓLARHRINGINN
Brunaverðir eru viðbúnir á
öllum tímum sólarhringsins.
Skiptast þeir í þrjár vaktir og
eru 9 á hverri vakt. Auk þess
eru yfirmenn, viðgerðarmað-
ur o. fl. svo að fastir starfs-
menn eru rúmlega 30. Við
þetta bætist varaslökkviliðið,
sem hægt er að kalla út, ef
meiriháttar eldsvoði brýzt út.
í varaslökkviliðinu eru um 25
manns.
LÆKKANDI KOSTNAÐUR
SÝNIR FULLKOMNARI
SLÖKKVISTÖRF
Árið 1940 var slökkviliðið
kallað út 113 sinnum. Árið 1946
voru útköll 278 og á s.l. ári 1953
var slökkviliðið kallað út einu
færra en 400 sinnum. Það er at-
hyglisvert, segir slökkviliðsstjóri,
að þrátt fyrir minnkandi verð-
gildi krónunnar. hefur kostnaður
við útköllin lítið lækkað. T. d.
10 ára stúdentar frá IH.A.I
Innilegar þakkir fyrir jólagjöfina og þann hlýhug, sem
fylgdi. — Guð blessi ykkur öll.
Rúna í Barði,
Akureyri.
F. U. S. Heimdallur
Spila- og skemmtikvöld
í Sjálfstæðishúsinu í kv’öld
Dagskrá:
Félagsvist, Sverrir Jónsson stjórnar. (Skinnfóðruð
karlmannsúlpa og vönduð brauðrist í verðlaun.)
Avarp: Geir Hallgrímsson, form. Heimdallar.
Sígaunasöngvarinn Kóras.
Ávarp: Halldór Þ. Jónsson, stud. jur
Tvísöngur: Ólafur Briem og Adda Örnólfsdóttir.
Dans.
Kynnir: Jóhannes Helgason.
Aðgöngumiðar á 5 krónur, seldir kl. 3—6 á skrifstofu
félagsins í Vonarstræti 4. Hefst kl. 8,30.
nam kostnaður árð 1946 kr. 132
þúsund en s.l., þegar útköllin
voru meir en 100 fleiri var kostn-
aður aðeins 154 þúsund krónur.
Þetta gefur nokkra hugmynd um
það, hve mikla þýðingu hin nýju
tæki hafa haft til að slökkva
bruna á byrjunarstigi og koma
þannig í veg fyrir stærri elds-
voða.
Kjörorð hins vinsæla slökkvi-
liðs okkar er jafnan „AÐ
KÆFA ELDINN I FÆÐING-
UNNI“.
— Berlínarfundurinn
Framh. af bls. 1.
fyrir 3 vikna fundi og jafnframt
að geta frestað ráðstefnunni eitt-
hvað úr því, en Bretar taka það
þó fram að þeir setji engin tíma-
takmörk fyrir ráðstefnunni.
ÁNÆGJA
Ánægja er ríkjandi út af
fréttinni um að Dulles og
Molotov muni hittast og ræða
tillögu Eisenhowers um eftir-
lit með framleiðslu atomorku.
RÚSSNESKA
SENDISVEITIN
Moskvuútvarpið tilkynnti í
kvöld að Molotov yrði foringi
sendinefndar Rússa á róðstefn-
unni. Aðrir aðalfulltrúar verða
Gromyko og sendiherrarnir 3,
Malik í Lundúnum, Zarobin í
Washington og Inogradov í París.
1.
2.
3.
4.
5.
Stúlkur! — Kjólasaum!
Stúlkur, vanar og sem hafa áhuga á kjólasaum geta
fengið atvinnu nú þegar. — Fyrirspurnum ekki svar-
að í síma.
Vesturgötu 3
Bæjarbókasafn Beykjavíkur
verður opnað í dag, fimmtudaginn
21. þ. m. kl. 2 e. h.
Bókavörður.
))B#3TMíOlsemh4(
W. C. pappír
fyrirliggjandi.
Sími 1—2—3—4
Firt$totu
HJOLBARÐAR
600—16, 6 strigalaga
F Y R I R J E P P A, Kr. 536.70 með slöngu.
650-20 8 strigalaga ,
9”-1810- ORKaIí
kAAAAAAAAAAAAAAA/^
M A R K Ú S Fftir Ed Dodd CT'—?
1) — Stanzaðu Gyða, það er
einhver á brautinni fyrir framan
okkur.
2) O, það er aulaþárðurinn hún
Hanna og otrarnir hennar. Hvað
er hún að flækjast hér. Ég skal
sýna henni í tvo heimana, hott,
hott.
| 3) — Hönnu tekst að reka alla
otrafjölskylduna sína til hliðar,
en í öllum flýtinum snúa tveir
litlir otrar aftur út á stíginn.