Morgunblaðið - 14.05.1954, Blaðsíða 12
12
MORGU1SBLAÐ1B
Föstudagur 14. maí 1954
Aðalfundur SUS
í Ámessýslu
AÐALFUNDUR Héraðssam-
bands ungra Sjálístaeðismanna
í Árnessýslu, verður haldinn í
Iðnaðarmannahúsinu á Selíossi n.
k. laugardag 15. þ. m. kl. 3,30.
Á fundinum fara fram venjuleg
aðalfundarstörf, en auk þess
verða Iagabreytingar.
Á fundinum mæta þingmaður
kjördæmisins, Sig. Ól.Ólafsson og
Gunnar Helgason varaform. SUS.
— Kveðjusamsætið
Framh. af bls. 9
og hefur verið hjá mér á undan-
förnum árum.
Sem sagt, mér virðist að við
ein eigum ekki fyllilega skilið
þau viðurkenningarorð, sem þó
hafa hlýjað okkur svo um hjarta-
ræturnar, og okkur þótti svo
vænt um að heyra.
Af þessu sem ég hef sagt er
augljóst, að við yfirgefum ísland
með eftirsjá og trega. Við getum
minnzt margra glaðra og ánægju
legra stunda héðan og munum
við sakna margs, sem ánægja
var að.
Við munum t. d. sakna náttúru-
fegurðarinnar sem Island á í svo
ríkum mæli, fossanna, vatnanna,
hins mikilfenglega sólarlags, með
marglitum himni og hafi, hins
litfagra mosa í hraununum.
Úr hinu daglega lífi munum
við sakna t. d. bezta drykkjar-
vatns í heimi, sem Reykjavik
býður íbúum sínum, þæginda af
hitaveitunni og hins dásamlega
úrvals, sem þið sífellt hafið af
nýju fiskmeti.
En þó söknum við mest fólks-
ins í landinu og vinanna, sem við
skiljum við. Saknaðartilfinningin
verður e. t. v. mest þegar við
verðum að skilja við fallegustu
og dýrmætustu eign þjóðarinnar,
hin heilbrigðu, brosandi börn
með rjóða vanga. Við getum ekki
farið svo um götur Reykjavíkur,
að við ekki nemum staðar, til að
virða fyrir okkur leik þeirra og
dást að hamingju þeirra og heil-
brigði. Þau hafa átt sinn þátt í
að gera okkur dvölina á íslandi
ánægjulega.
Og ég get ekki látið hjá líða,
að minnast á það, að við munum
sakna hinna fegurstu og hjart-
næmustu tóna í þjóðsöng ykkar
og hinna fögru söngradda hinna
ágætu söngvara ykkar.
Þegar við kveðjum tökum við
með okkur þessar indælu minn-
ingar frá ykkur og landi ykkar.
Og það verður okkur tregabót að
yið vitum að þið munuð stundum
hugsa til okkar, þar sem við, tveir
tryggir vinir íslands, dveljumst
í nálægari Austurlöndum — og
við berum þá von í brjósti að
þið gleymið okkur ekki.
Var ræðu sendiherrans tekið
með lófaklappi. Áður en staðið
var upp frá borðum mælti for-
maður fslenzk-ameríska félagsins
nokkur orð og flutti kveðju frá
Íslenzk-ameríska félaginu á Ak-
ureyri og þakkir formanns þess
til sendiherrahjónanna. Að loknu
borðhaldi var loks stiginn dans
með miklu fjöri og var þetta
kveðjuhóf allt hið ánægjulegasta.
INNRÖMMUN
i Tilbúnir rammar.
SKILTAGERÐIN
Skólavörðustíg 8.
Gönguför á Heklu
Á LAUGARDAGINN ætla Orlof
og Guðmundur Jónasson að efna
til öku- og gönguferðar að Heklu
og verður lagt af stað klukkan 2.
— Þá verður ekið allt austur að
rótum Heklu. Þar verður tjaldað,
eða sofið í bílunum og mun ferða
.fólkinu verða lögð til tjöld og
ieinnig eldunaráhöld — Ferða-
fóikið leggur sjálft til matinn og
að sjáifsögðu svefnpokana.
Á sunnudaginn á að ganga á
Heklu ,en þeir sem ekki vilja
leggja á sig svo erfiða ferð, geta
farið í gönguferðir um Heklu-
hraun.
Tvö slys á sama
í GÆRDAG urðu tvö umferðar
slys, bæði minni háttar, á sama
götuhorninu með 20 mín. fresti.
Var þetta á Snorrabraut, á horni
Mánagötu Það voru litlir dreng-
ir í bæði skiptin, sem urðu fyrir
bílum. Báðir sluppu þeir með
lítilsháttar meiðsl.
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 1875.
Geir Hollgrímsson
héraðsdómsIögmaSur,
Hafnarhvoli — Reykjavík.
Símar 1228 og 1164.
Ný hverfi \ilja
fá lyfjabúð*
Á SÍÐASTA fundi bæjarráðs var
lagt fram bréf frá félaginu Garð-
ur, sem er félag húseigenda í Bú-
staðahverfi, um nauðsyn þess, að
sett verði á stofn lyfjabúð í Bú-
staðahverfi og Smáíbúðahverfi.
Bæjarráð samþykkti að mæla
með því við heilbrigðismálaráðu-
neytið að mál þetta nái fram
að ganga.
- Þýzkur leföanpr
Framh. af bls. 9
KOMA FYRST
TIL HÚSAVÍKUR
Seglskipið Meteor kemur að
landi í Húsavík 27. maí. Ferð-
ast myndtökumennirnir þá um
Norðurland. 20. júní sigla þeir
aftur frá Húsavík og koma til
Reykjavíkur 28. sama mánaðar.
Ferðast þeir þá í mánaðartíma
um Suðurland. Verða ágústmán-
uð aftur í Færeyjum, en koma til
íslands í september og dveljast
á Vesturlandi og Vestfjörðum
fram í miðjan október. Þeir
munu tvímælalaust taka marga
kílómetra af kvikmyndum í ferð-
inni.
Kvikmyndirnar verða á lit-
filmu, svo að hinir skæru litir í
hreinu loftslagi Islands munu
njóta sín til fulls í myndunum.
ÞEIR SEM STJÓRNA
FERÐINNI
Það er þýzka kvikmyndafélag-
ið Roto-film, sem stendur fynr
ferðinni í samstarfi við ítalslca
kvikmyndatökufélagið Phönix-
film. Njóta þeir styrks frá mennta
málaráðuneyti Nordreein-West-
falen héraðs og Vísindastofnunar-
innar í Munchen.
Ráðunautar kvikmyndatöku-
manna hér á landi eru þeir pró-
fessor Trausti Einarsson og dr.
Finnur Guðmundsson. — Kvik-
myndatökustjóri verður Wilhelm
Siem, en Bodo Ulrich liefur
skipulagt ferðina og gert uppkast
að kvikmyndunum, en hann
dvaldist hér á landi s.l. ár.
GömEu dsnsarnir
RRFIflFIRÐINGt'M
í kvöld kl. 9.
HLJÓMSVEIT Svavars Gests.
Dansstjóri: Baldur Gunnarsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8.
I
BEZT AÐ AVGLYSA
1 MORGVlSBLAÐim
INGOLFSCAFE
INGOLFSCAFE
Gömlu^ og nýju dansarnir
í Ingólfscafé í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 2826.
SENDISVEIN
ábyggilegan og röskan vantar nú þegar í
mltf******
V II** SÍHI 4205
í dag:
hskar tweed-kápur
GULLFOSS
Aðalstræti.
Sumarbústaður
við Þingvallavatn á 3500 ferm, leigulandi er til sölu.
Tilboð sendist málflutningsskrifstofu Einars B, Guð-
mundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar
Péturssonar, Austurstræti 7, símar 3202 og 2002. sem
einnig gefa nánari upplýsingar.
Timburhús
við aðalgötu í Vesturbænum er til sölu af sérsiökum
ástæðum. Stór eignarlóð. í húsinu eru 3 íbúðir, hvar af
ein er laus nú þegar, en hinar 1. okt. næstkomandi. —
Nánari upplýsingar (ekki í síma) gefur Bógi Brynjólfs-
son, Ránargötu 1, helst milli kl. 2—4. —tSími 2217.
M.s. Sigríður
er til sölu. Skipið er með nýísettri ca. 500 ha. dieselvél,
2 dieselhjálparvélum, nýrri togvindu o. fl. — Gagngerð-
ar viðgerðir og breytingar hafa verið gerðar á skipinu
undir eftirliti umboðsmanns Veritas. — Uppl gefur
Jón N. Sigurðsson. hrl.,
Laugaveg 1, Reykjavík, sími 4934.
.......................
ÖRÆFAFERD
15. júlí næstkomandi verður ferð um byggðir og
óbyggðir Norðanlands. Farið verður í Kringilsáirana,
Hvannalindir, Öskju, Herðubreiðarlindii, Hólmatungur,
Hveravelli og víðar. — Nokkur sæti laus. — Upplýs-
ingar gefur Eiríkur Einarsson í síma 1747.
. '4
VÖRULAGER
Er kaupandi að vörulager. Ýmsar vörur koina til
greina, svo sem nýlenduvörur, vefnaðarvörur, bús-
áhöld, pappírsvörur, bækur o. fl. — Tilboð merkt:
„Vörulager —100“, sé skilað til afgreiðslu Morgunbl,
fyrir 20. þ. m.
li
:*■
: %
m ,4»'
^^Dugleg, roskin stúlka
óskast að Hótel Borg til aðstcðar við eldhússtörf.
Uppl. í skrifstofunni. — Fyrirspurnum ekki svarað
i sima.
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
1) Andi hrekkur í kút er hann
sér hina furðulegu hegðun hreysi
kettlingsins.
2) Svo stekkur hreysikötturinn
frá honum.
'iÁá’ 'i 'i'tiíSfe'/'.'i/.ií&iá’áí.'fc..
3) Allt í einu sér Andi ástæð-
una til hinnar illu hegðunar
kettlingsins.
SUDDENLY ANDY EEt-S TbS CAUS:
FOS WHISREKS' UMUSUA'- AC.T!pU'S;