Morgunblaðið - 23.05.1954, Qupperneq 4
■t. i J mtwrnmrímffifíriiníiir.
MORGVKBLAÐIÐ
Sunnudagur 23. maí 1954
' 4
I
Vinsælasta „Showa-atriði
Norðurlanda —
Söngkvintettisin
-MOIMIM KEYS
Þriðja miðnætur.
skemmtunin er í kvöld
í Austurbæjarbíói,
Næstu skemmtanir verða
mánudag og þriðjudag kl.
11,15 síðdegis alla dagana
THE MONN KEYS
vinsælasti söngkvintett
álfunnar.
Sungin lög úr kvik-
myndum sem
MONN KEYS
hafa leikið í, enn frem-
ur nokkur af þeim lög-
um, sem MONN KEYS
hafa sungið inn á plötur.
Einnig verða sungin
tvö lö g á íslenzku —
N Ó T T
eftir Arna Islcifsson
og
T I L 1* í N
eftir Steingrím Sigfússon.
One Man Show
Cowboy special
FREDERIK og KONRADI
— CRAZY DUETT —
KYNNIR: SIGFÚS HAIXDÓRSSON
Aðgöngumiðar að föstudagssýningu gilda
að sýningu sem verður kl, 5 í dag.
Sala aðgöngumiða er í
AUSTURBÆJ ARBÍÓ
eftir klukkan 1.
Notið þetta einstæða tækifæri
og hlustið á beztu skemmtikrafta, sem völ er t'.
Frá íþróttavellinum
Reykjavíkurmót meist-
araflokks í knattspyrnu.
í dag kl. 2 keppa Vík-
ingur og Þróttur.
Dómari: Ingi Eyvinds.
Kl. 8.30 annað kvöld
keppa Fram og Valur.
Dómari: Guðjón Eiiiarss.
Fjölmennið á völlinu.
Mótanefnd.
i m m a a • a • a ■ m mmmmm s m m m ■■•>••• ■ a ■ ■■■«• » m m m mmm m m ••••.'••••••••*
AUlÖílfVlhAKPLÍjTÍjn
í 6, 7 og 8 feta
lengdum, fyrirliggjandi.
Einnig tilheyrandi saumur.
Laugaveg 16f>
í dag er 143. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 9,50.
Siðdegisflæði kl. 22,08.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 50,30.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni, sími 7911.
Helgidagslæknir er Alfreð Gísla-
son, Barmahlíð 2, sími 3894.
I.O.O.F. 3 == 1365248 = 0.
• Brúðkaup «
1 gær voru gefin saman í hjóna-
band af séra Árelíusi Níelssyni
ungfrú Erna Bergsvein«dóttir,
Kambsveg 6, og Guðjón Jónsson,
Nönnustíg 6, Hafnarfirði.
1 dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Steinunn Á.
Jónsdóttir, Skúlagötu 58, og Hjalti
Ólafsson sjómaður. Heimili brúð-
hjónanna verður að Skúlagötu 58.
• Hjónaefni •
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Fjóla Kristinsdóttir,
Ytri Knarrartungu, Breiðuvíkur-
hreppi, og Gcir Guðmundsson,
Borgarholti, Grindavík.
• Skipafréttir •
Eimskipafélag íslands h.f.:
Brúarfoss fór frá líotterdam í
fyrradag til Hamborgar og þaðan
til Rotterdam, Hull og Reykjavík-
ur. Dettifoss fór frá Kotka í fyrra-
dag til Eaumo og Húsavíkur.
Fjallfoss fer frá Hull í dag til
Reykjavíkur. Goðafoss fer á morg-
un frá Portland til New York.
Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn
í gær til Leith og Reykjavíkur.
Lagarfoss er í Reykjavík. Reykja-
foss fór í fyrradag til vestur- og
norðurlandsins. Selfoss kom til
Gautaborgar í fyrradag; fer það-
an til austurlandsins. Tröllafoss
fór 20. þ. m, til New York. Tungu-
foss er í Kaupmannahöfn. Arne
Prestus lestar um 29. þ. m. í
Antwerpen og Hull til Reykja-
víkur.
Skipaúlgerð rikisins:
Hekla er á Austfjörðum á norð-
urleið. Esja er á Austfjörðum á
suðurleið. Herðubreið var á Bakka-
firði í gærkvöldi. Skjaldbreið fer
frá Reykjavík á morgun til Breiða-
fjarðar. Þyrill er í Reykjavík.
M
Skipadcild S.Í.S.:
Hvassafell fór frá Hamina 18.
þ. m. áleiðis til Islands með timb-
ur. Arnarfell er í aðalviðgerð í
Álaborg. Jökulfell er í New York.
Dísarfell átti að koma til Ham-
borgar í gærkvöldi frá Antwerpen.
Bláfell losar timbur á Austfjörð-
um. Litlafell er í olíuflutningum
milli Skerjaf jarðar og Hvalfjarðar
• Flugferðir •
Millilandaflug.
Loflleiðir h.f.:
Heklu, millilandaflugvél Loft-
leiða, seinkaði s. 1. föstudag frá
meginlandi Evrópu vegna dimm-
viðris í Reykjavík. Flugvélin kom
til Reykjavíkur kl. 11,00 í gær-
morgun og fór kl. 12,30 áleiðis til
New York. Mun flugvélin vera
væntanleg aftur hingað aðfara-
nótt mánudags.
Flugfélag íslands h.f.:
Gullfaxi er væntanlegur til
Reykjavikur frá Osló og Kaup-
mannahöfn kl. 18,00 í dag. Flugr
vélin fer til Prestvíkur og London
kl. 8,30 í fyrramálið.
Starfsstúlknafélagið Sókn
heldur aðalfund mánudags-
kvöldið kl. 9 í Aðastræti 12, uppi.
Sjúkling'ar á Vífilsstöðum
hafa beðið blaðið að færa þeim
Svavari Gests, Don Areden, Gunn-
ari Ormslev og kvartett þakkir
fyrir ánægjulega semrqtun.
Skoðun bifreiða.
Á morgun eiga að koma til skoð-
unar bifreiðar nr. 2251—2400.
Hafnfirðingar!
Söngfélag verkalýðssamtakanna
í Reykjavík heldur samsöng í Bæj-
arbíói í dag kl. 1,30 e. h. Stjórn-
andi er Sigursveinn D. Iíristins-
son. Aðgöngumiðar á staðnum frá
kl. 11 f. h.
Barnaheimilið Vorboðinn.
Tekið verður á móti umsóknum
-fyrir börn á barnaheimilið í Rauð-
hólum þriðjudaginn 25. og mið-
vikudaginn 26. þ. m. milli kl 6—9
í skrifstofu verkakvennafélagsins
Framsóknar.
Sýning á handavinnu
Miðbæjarskólabarna.
Sýning á. handavinnu og teikn-
ingum Miðbæjarskólabarnanna er
opin í dag frá kl. 10—22.
Handavinnu- og teikninga-
sýning í Kvennaskólanum.
Sýning á hannyrðum og teikn-
ingum námsmeyja Kvennaskólans
cr opin í skólanum frá kl. 2—10
e. h. í dag.
Aheit á Strandarkirkju.
Afh. Mbl.: N.N. 10,00; Gotti
100,00; S.S. 25,00; Anna Pétursd.
50,00; E—254 20,00; í bréfi
100,00; K.E. 15,00; N. 25,00; D.
10,00; A.J. 100,00; Þ.V.S. 100,00;
S.O. 20,00; F.H. 2,00; Grindvík-
ingur 50,00; g. áh. K.G. 25,00;
E. H. 50,00; N.N. 25,00; N.N.
230,00; G.K. 100,00; G.S. 30,00;
Heiga 50,00; Ina 100,0; gömul áh.
70,00; frá gamalli konu 50,00;
S.M. 100,00; N.N. 150,00; N.N.
330,00; Svana 50,00; Þ.K. 25,00;
gömu kona 15,00; B.S. 100,00;
Þakklát 46,85; ónefnd 25,00; H.G.
10,00; kona 10,00; systir 10,00;
S.N. 30,00; þakklát stúlka 55,00;
H.Þ. 5,00; Márgr. Gíslad. 100,00;
Margr. Gíslad. 50,00; S.J. 20,00;
S.R.E. 25,00; Guðbjörg 10,00;
G.Ó. 20,00; þakklát móðir 25,00;
G.E. 100,00; G.P. 10,00; A.G.
100,00; g. áh. 10,00; N.N. 25,00;
þríhyrningur 100,00; Labba 50,00;
áheit 100,00; N.N. 10,00; Petty
200,00; áheit 100,00; I.G.R. 50,00;
F. J. 30,00; Munda 100,00; B.T.
20,00; R. 10,00; J.A. 200,00; E.A.
100,00; A.í. 50,00; A.H. 150,0;
SY. 20,00; X.L. 25,00; ónefndur
50,00; F.B. 25,00; H. 30,00; N.N.
25,00; H.H. 20,00; N.N. 5,00; M.
10,00; Hlífar Höskuldsson 100,00;
G. G.L. 50,00.
• Biöð og tímarit •
Sjómannahlaðið Víkingur, maí-
blað, er komið út. Efni: Björgun-
arskip Norðurlands, Auðæfi hafs-
ins og hagnýting þeirra, eftir
Matthías Þórðarson, Fá orð um
stórt mál eftir Ármann Sigurðs-
son, Sultardagar í Austf jarðaþoka
eftir Stefán J. Loðmfjörð, Hálf-
pottur af tjöru, Við viljum skiln-
að (saga), Nýlendustaða Græn-i
lands eftir Jón Dúason.
Ekið á bíl
Fimmtudagskvödið um miðnættí
var bílnum R-306 lagt á bílastæð-i
inu á móts við Snorrabraut 22. —■
Næsta morgun er eigandinn komi
að bílnum, hafði verið ekið á aft-
uraurbretti bílsins og það dældað
nijög. — Rauður vöruflutninga-
bíll stóð hjá R-306 og er bílstjór-
inn beðinn að gefa sig fram hjá
rannsóknarlögreglunni, svo og aðr-
ir þeir er uppl. geta gefiðum
áreksturinn.
• Úívarp •
11,00 Almennur bænadagur.
Guðsþjónusta í Frikirkjunni (Séra
Óskar J. Þorlákson predikar; séra
Jón Auðuns dómprófastur þjónar
fyrir altari. Organleikari: Páll
Isólfsson). 15,15 Miðdegistónleik-
ar: a) Tilbrigði í E-dúr fyrir
píanó (Eroica-tilbi'igðin) eftir
Beethoven (Lili Kraus leikur;
plötur). b) Lúðrasveit Hafnar-
fjarðar leikur; Albert Klahn
stjórnar. 18,30 Barnatími (Þorst.
Ö. Stephensen). 1930 Tónleikar:
Pablo Casals leikur á celló (plöt-
ur). 20,20 Sinfóníuhljómsveitin
leikur: Olav Kielland stjórnar:
a) Forleikur eftir Karl 0. Runólfs
son að sjónleiknum „Fjalla-Ey-
vindi“. b) Svíta nr. 1 eftir Grieg
úr sjónleiknum „Pétri Gaut“.
20,45 Viðtöl við íslendinga í Ka-
nada: Finnbogi Guðmundsson pró-
fessor ræðir við séra Braga Frið-
rikson, Kára Byron, séra Róbert
Jack og Björn Bjarnason. (Flutt
af segulbandi). 21,30 Einsöngur:
Frú Lisa-Britta Einarsdóttir Öhr-
vall syngur lög eftir Haydn og
frönsk tónskáld; Páll Isólfsson
aðstoðar. 22,05 Gamlar minningar.
Hljómsveit undir stjórn Bjarna
Böðvarssonar leikur. 22,35 Dans-
lög (plötur). 23,30 Dagskrárlok.
Mánudagur 24. maí:
19,00 Skákþáttur (Guðm. Arn-
laugsson). 19,30 Tónleikar: Lög
úr kvikmyndum (plötur). 20,20
Útvarpshljómsveitin; Þórarinn
Guðmundsson stjórnar; Laga-
flokkur eftir Mendelssohn. 20,40
Um daginn og veginn (Jóhannes
Nordal hagfr.). 21,00 Einsöngur:
Antti Koskinen óperusöngvari frá
Helsinki syngur; Fritz Weiss-
happel leikur undir á píanó. a>]
Þrjú lög eftir Selim Palmgren.
b) Tvö finnsk þjóðlög, útsett af
Jusi Jalas. c) Þrjú lög eftir Jean
Sibelius. 21,20 Erindi: Úr heimi
flugsins; III: Sjúkraflug (Björn
Pálsson flugmaður). 21,45 Búnað-i
arþáttur: Gísli Kristjánson ritstjj
talar við Braga Steingrímsson
dýralækni á Egiisstöðum. 22,10 Út-
varpssagan: „Nazareinn" eftir
Sholem Ssch; XIV. (Magnús Joch-
umsson póstmeistari). 22,35 Dans-
og dægurlög frá Norðurlöndum
(plötur). 23,00 Dagskrárlok.
Erlendar stöðvar.
(Allir tímar — íslenzk klukka.)|
Danmörk:
Á 49,50 metrum dagiega á tím-
anum kl. 17,40—21,15. Fastir iiði
ir: 17,45 Fréttir. 18,00 Aktuelf
kvarter. 20,00 Fréttir.
Svíþjóð:
Útvarpar t. d. á 25 og 31 m.
Fastir liðir: 11,00 Klukknahring-
ing og kvæði dagsins. 11,30, 18,00
og 21,15 Fréttir. Á þriðjudögura
og föstudögum kl. 14,00 Fram-i
haldssagan.