Morgunblaðið - 18.07.1954, Blaðsíða 9
MORGtl ííBLABIB
Sunnudagur 18. júlí 1954
R ^
Laugardagur 17. júlJ
fSSfí^ílÖ'Stl
■ •.•i;.!ti!.n".»<ti.v.vui-i;tf;í./, •nit
t wfi m
mfrf fit.it t«r«r;ry;W mr+mivi
:| |föwiw».;t)}ri[ia iff* mmMgio r,
Skálholtskirkja flutt af grunni — Biskupsstóll rís úr öskustó'
— Glaðnar til fyrir norðan — Þannig sparar Framsókn — Ríkisfé
Skálholtskirkja
flutt af grunni
HIN rúmlega hundrað ára gamla
kirkja í Skálholti hefur nú verið
flutt af grunni sínum. Hefur
rannsókn verið hafin á kirkju-
grunninum, en talið er að kirkja
í Skálholti hafi lengstum staðið
á þessum stað. Er það ætlan
þeirra manna, sem forgöngu hafa
um endurreisn staðarins að
freista þess, að kynnast bygg-
ingarsögu kirkju þar eins og
frekast er kostur, þannig að ekk-
ert óleyst rannsóknarefni liggi
fyrir er ný kirkja verður reist.
En áformað er að hún verði
byggð á hinum gamla grunni.
Lítið hefur ennþá verið að-
hafzt til endurreisnar Skálholts-
stað. Nokkuð hefur þó verið gert
að kirkjugarðinum. Einnig má
segja að rannsókn sú, sem yfir
stendur sé nauðsynlegur undir-
búningur að byggingu nýrrar
kirkju. En það hefur frá upp-
hafi verið aðal áhugamál Skál-
holtsfélagsins, sem hafið hefur
baráttu fyrir endurreisn hins
forna biskupsseturs, sem ræktar-
leysi og vanhirða hefur leikið
hart á liðnum tíma, að ný og
myndarleg kirkja hafi risið þar
árið 1956 á 900 ára afmæli bisk-
upsstólsins.
Mikil áhugaalða hefur risið
um land allt fyrir framkvæmd
Hra í þessu máli. Töluvert fé
hefur safnazt og Alþingi sam-
þykkti hinn 13. april s.I. að
veita 1 millj. kr. til kirkju-
byggingarinnar.
Hér er um menningarmál að
ræða. Hinn forni biskupsstóll
verður að rísa úr öskustó
hirðuleysis og sofandaháttar.
Skálholt var um margar aldir
andlegur höfuðstaður íslands.
Þar sátu biskupar og þar var
æðsta menntastofnun þjóðar-
innar.
Hvað á að gera?
EN hvað á að gera £ Skálholti
eftir að staðurinn hefur verið
endurreistur og ný kirkja byggð
þar?
Um það hefur verið uppi
nokkur ágreiningur. Sumir hafa
talið að þar ætti biskupinn yíir
íslandi að sitja. Með bættum
samgöngum væri slíkt mjög vel
framkvæmanlegt. Umboðsstörf
þau, sem nú heyra undir bisk-
upsembættið mætti vel vinna í
ráðuneyti því, sem fer með
kirkjumál.
En meirihluti klerká mun vera
þessari tillögu mótfallinn. Hins
vegar hefur verið rætt um, að
vígslubiskup Skálholtsbiskups-
dæmis gæti setið þar. Virðist sú
tillaga njóta meira fylgis.
Hvað sem verður ofan á í
þessum efnum er það þó víst,
að endurreisn Skálholts ber
að hraða. Þetta fagra höfuð-
ból í hjarta Suðurlandsundir-
lendisins verður að rísa til
þess vegs, sem þvi ber sam-
kvæmt sögu sinni. í barátt-
unni fyrir því ber ekki ein-
ungis Sunnlendingum að taka
höndum saman, heldur og
landsmönnum öllum.
í dag er Skálholtshátíð haldin.
Mun mikill fjöldi fólks þá sækja
hið forna biskupssetur heim.
Glaðnar til fyrir norðan
SÍLDVEIÐIHORFUR hafa glaðn-
að nokkuð síðustu daga. í gær
var búið að leggja upp í bræðslu
um 56 þús. mál og saltaðar höfðu
verig um 11 þús. tunnur.
Heildarafköst síldarverksmiðj -
anna á öllu landinu munu nú
vera um 105 þús. mál síldar. Þar
af munu verksmiðjurnar á Norð-
urlandi geta brætt um 77 þús.
mál á sólarhring.
Afborganir Malenkovs
misnotað í flokksþágu — Dagdraumar
um „lýðræðisjafnaðarmannaflokk“
Þannig spara þá leiðtogar Fram
sóknarflokksins!!!
En þetta atferli er ekki aðeins
vítavert vegna þess, að með þvl
er beinlínis verið að misnota rík-
isfé í flokksþágu.^ Með því er
sýnd slík rangsleitni og ósvífni
að til fádæma verður að telja,
Dugandi embættismaður er bein-
línis rekinn úr starfi undir fölsk-
um forsendum til þess eins aS
koma pólitískum gæðingi á jöt-
una.
Meðan slíkt ranglæti og yfir*
gangur er framinn af æðstu ráða-
mör.num þjóðarinnar verður erf-
itt að sannfæra almenning um
að heiðarleiki og réttlæti eigi upp
á pallborðið hjá þeim flokki, sem
lætur leiðtoga sína haga sér
þannig-.
Þessi framkoma er Framsókn-
arflokknum til hinnar mestu
minkunar. Hann mun áreiðan
lega ekki vinna sér traust og álit
fyrir hana, hvorki hjá Siglfirð-
ingum né öðrum landsmönnum.
Á þessari mynd, sem ljósm. Mbl. tók í Skálholti í fyrradag sést kirkjan á hinum nýja grunni. Menn-
irnir sjást að verki á gamla grunninum, þar sem í ráði mun vera að reisa hina nýju Skálholtskirkju.
Skurðurinn, sem sést á myndinni er grafinn eftir endilöngum kór miðaldakirkjunnar, sem verið er
að rannsaka.
Þegar þessa er gætt sézt, hversu
sorglega lítill aflinn hefur verið
það, sem af er þessari síldar-
vertíð.
Framsókn sparar
EINS OG áður hefur verið skýrt
frá lögðu Sjálfstæðismenn til
fyrir skömmu, að embætti húsa-
meistara ríkisins og skipulags-
stjóra yrðu sameinuð. Var sér-
staklega auðvelt að koma sam-
einingunni við og spara rikis-
sjóði þar með töluvert fé, þar
sem embættismanni þeim, sem
farið hafði með skipulagsstjóra-
embættið hafði verið veitt em-
bætti húsameistara.
Hér sést legsteinn Þórðar biskups Þorlákssonar og konu hans,
Guðríðar Gísladóttur. Þórður biskup dó árið 1697. — Undir gólfi
kirkjunnar voru einnig geymdir legsteinar biskupanna Jóns Vída-
líns, Jóns Árnasonar, Finns Jónssonar og Hannesar Finnssonar.
Þessir steinar hafa nú komið fram í dagsljósið við kirkjuflutning-
inn. Ilafa ekki birzt myndix af þeim fyrr. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Framsókn vildi þetta ekki.
Hún þurfti að koma góðum
og gegnum flokksmanni sín
um í stöðu skipulagsstjóra. Þá
var úti um allan sparnaðar-
áhuga!! Þá þurfti ekki að
draga ríkisbáknið saman.
En nú hefur nýlega gerzt ann-
ar atburður, sem sýnir-sparnað-
arvilja Framsóknarflokksins e»n-
þá betur. Hann gerðist norður á
Siglufirði. Þar hefur skattstjór-
inn á Akureyri haft fulltrúa und-
anfarin ár. í því starfi hefur ver-
ið mjög dugandi -og samvizku-
samur maður. En s.l. vor var
honum tilkynnt, að honum væri
sagt upp starfi sínu, þar eð fjár-
málaráðuneytið hefði ákveðið að
leggja það niður. Nú var Fram-
sókn byrjuð að spara fyrir al-
vöru. Var ekkert við því að segja.
En skömmu síðar gerast ein-
kennilegir hlutir. Fjármálaráðu-
neytið ákveður að setja á stofn
sérstakt skattstjóraembætti á
Siglufirði. í það embætti er síðan
settur maður, sem verið hafði
kjötbúðarforstjóri við lítinn orð-
stí, svo litinn að honum hafði
verið tilkynnt af yfirmönnum
sínum að hann yrði að láta af
því. En þessi maður var Fram-
sóknarmaður, meira að segja í
bæjarstjórn fyrir Framsóknar-
flokkinn.
Einstæðar aðfarir
HÉR ER vissulega um ein-
stæðar aðfarir að ræða. I)iig-
andi embættismanni, sem
þekktur er að dugnaði og
áhuga er sagt upp fulltrúa-
starfi undir þvi yfirskyni að
leggja eigi það niður til þess
að spara fyrir ríkissjóð. Síðan
stofna Framsóknarmenn nýtt
embætti og leggja undir það
sömu störf og undir fulltrúa-
embættið heyrðu. Loks er svo
einum flokksmanni þeirra
veitt embættið. Óþarfi er að
taka fram, að hið nýja skatt-
stjóraembætti er töluvert bet-
ur launað en hitt, sem lagt
var niður.
KOMMÚNISTAR hafa nú skýrt
frá því í blaði sínu, að „söfnun“
þeirra um daginn hafi endanlegá
numið rúmlega 1,3 millj. kr. E!n
þar af hafi aðeins einn þriðji
hluti safnazt í peningum, „en af -
gangurinn í undirrituðum skuld-
bindingum, sem greiðast fyrir
áramót og stöðugt er verið að
greiða.“
Þannig kemst kommúnista-
blaðið að orði um „söfnun“ sína
í gær.
Nú velta menn því fyrir sér,
hvers vegna Malenkov hafi þurft
að grípa til afborgunarfyrirkomu
lagsins í stuðningi sínum við
„félagana" hér heima. Telja
sumir ekki óhugsandi að einu
þriðji hluti „söfnunarfjárins"
hafi raunverulega safnast. Hitt,
sem greiða á með afborgunum
sé hið beina framlag frá Moskvu.
Um þetta er hinn mesti
óþarfi að bollaleggja. Meet
allt féð, sem kommúnistablað-
ið segist hafa „safnað“ er
borgun frá Malenkov til
kommúnistadeildarinnar hér
á landi. Hún þarf á styrk að
halda, því hærri sem hún nýt-
ur stuðnings færri íslendinga.
Það er kjarni málsins. Formið,
staðgreiðsla eða afborgun,
skiptir engu máli.
„Lýðræðisjafnaðar-
mannaflokkur“
FORMAÐUR Alþýðuflokksins
ræðir nú mjög um nauðsyn þess
í blaði sínu, að íslenzkur verka-
lýður „sameinist í einum lýðræð-
isjafnaðarmannaflokki". — Era
þetta fögur orð og frc mar óskir.
En þeir, sem fylgjast með mál-
unum vita, hvað á bak við ligg-
ur. Um langt skeið litfur einn.
þingmaður kommúnista, sern
einnig er oddviti í Kópavogi og
bróðir formanns Alþýðuflokks-
ins, verið látinn spila sameining-
arplötu og leggja net fvrir „sam-
einingarsinnaða“ menn í Alþýðu-
flokknum. Hefur hann dregið
upp glæsimyndir af nýjum flokki
sem myndaður yrði af „Samein*
ingarflokki alþýðu, sósíalista-
flokknum", „Þjóðvarnarflokkn-
um“ og „vinstri" mönnunum i
Alþýðuflokknum.
Slíkur flokkur mundi verða
sterkur „lýðræðisjafnaðarmanna-
flokkur“ segir oddvitinn í Kópa-
vogi. í hann ber öllum sönnurn
jafnaðarmönnum að ganga.
Þessa flugu hefur bróðir RúcS
gleypt í heilu lagi. Þess vegna
notar hann Alþýðublaðið eftir
megni til þess að fegra tilboð
oddvitans fyrir Alþýðuflokks-
fólk. Fyrir það er „Þjóðviljinn1*
Framh. á bls. 12 ,