Morgunblaðið - 18.07.1954, Page 10
10
M ORGTJft&LAÐÍ&
Sunnudagur 18. júlí 1954
Attræður á morgun:
Jón Öpundsson frá Vorsabæ
ÁTTRÆÐUR verður á morgun
(mánudaginn 19. júlí) Jón Ög-
mundsson, Lágafelli, Hveragerði,
fyrr bóndi í Vorsabæ.
Jón er fæddur að Öxnalæk í
Ölfusi. Hann var elztur sex syst-
! kina, og er nú einn þeirra á lífi.
' Faðir hans var Ögmundur Ög-
Imundsson, bónda á Bíldsfelli,
iJónssonar. Móðir Jóns var Guð-
I rún Ingimundardóttir, bónda á
j Króki í Grafningi, Gíslasonar,
j hreppstjóra á Villingavatni, Gísla
!sonar. Móðir Ingimundar var
!§jóðbjörg Guðnaaóttir, bónda í
Reykjakoti í Ölfusi, Jónssonar.
Guðni bjó í Reykjakoti á síðari
hluta átjándu aldar. Hann var
þríkvæntur, og átti fjölda barna.
Eru afkomendur hans fjölmargir.
Meðal þeirra rná nefna Jón J.
Bíldfell í Winnipeg, sr. Jóhann
Hannesson, þjóðgarðsvörð, Hall-
dór Kiljan Laxness, rithöfund,
Kristínu Ólafsdóttur, lækni og
Ólaf Björnsson, prófessor.
Jón Ögmundsson dvaldist á
Öxnalæk þar til hann kvæntist,
] aust fyrir aidamót, Sólveigu
i'íikulásdóttur, bónda í Vorsabæ,
' jislasonar.
Jón hóf þá búskap í Vorsabæ,
1 >g bjó þar nær hálfa öld, en
: luttist þá að Lágafelli í Hvera-
. ;erði og hefur dvalizt þar síðan.
Þau Jón og Sólveig eignuðust
j 2 börn, og eru 10 þeirra á lifi,
i '11 hin mannvænlegustu. Ragn-
] æiður í Reykjavík, Þórður, bóndi
i Sölvholti í Flóa, Nikulás, tré-
rnjður í, Hafnarfirði, Guðrún,
] leima á Lágafelli, Kristín, í
] lafnarfirði, Ögmundur, bóndi í
‘ forsabæ, Benedikt, rafvirki í
‘ fictoria í Kanada, Sæmundur,
' lóndi, Friðarstöðum, Hveragerði,
; iigríður, heima á Lágafelli, Ög-
3 íundur, bifreiðastjóri í Hafnar-
: irði.
Strnx á fyrstu búskaparárum
i ínum varð Jón einn mesti áhrifa
naður sveitar sinnar. Var hann
ijölda ára í hreppsnefnd (lengi
< ddviti), sýslunefnd, sóknarnefnd
£ áttanefnd, skattanefnd, deildar-
£ tjóri Sláturfélags Suðurlands,
í vo að nokkuð sé nefnt. Var
njög leitað ráða Jóns, og enn
í egnir hann trúnaðarstörfum fyr
i r sveit sína, þótt aldurinn sé orð-
ian hár. Er það auðsætt, að ekki
1 efur Jón setið auðum höndum
im dagana. Öll þessi störf hafa
1 rafizt mikillar vinnu, sem innt
\jar af höndum jafnframt bú-
skap á jörð, sem ekki getur tal-
izt stórbýli. Á búskaparárum sín-
r m var Jón og við sjóróðra í Þor-
1 kkshöfn fjölmargar vertíðir. Það
er og víst, að vinnudagur Jóns
var jafnan lengri en átta stundir.
Mundi án efa mörgum okkar, sem
nú erum ung að árum, þykja
k,röpp þau kjör, sem alþýða
anna átti við að búa um og
tir síðustu aldamót, þótt ekki
lengra leitað samanburðar.
m skeið var Jón heilsuveill, og
fur það vitanlega þyngt róður-
n. Samt mun hann ávallt hafa
kbmizt vel af, og er þá skylt að
geta þess, að við hlið hans stóð
dugmikil og góð eiginkona.
Um 1930 hófst byggð í Hvera-j
gerði, í landi Vorsabæjar, og er j
þar nú, svo sem kunnugt er risið
þorp með 570 íbúum. Er því
breytt orðið umhorfs á þessum
slóðum, frá því er Jón hóf bú- j
skap í Vorsabæ.
Jón er einn þeirra, er lifðu
beztu starfsár sín á þeim tímum,
sem mestar urðu framfarir á
landi hér. Einn þeirra, er jafnan
létu tvö strá vaxa, þar er áður
óx eitt. Einn þeirra, er hafa
„gengið til góðs, götuna fram eft-
ir veg“.
Kynni okkar Jóns eru ekki
! löng, en allt frá því, er ég fyrst
leit Jón frá Vorsabæ, hefur mér
orðið hugstæður hinn p' iði, hóg-
væri og gáfaði öldungur, sem
! unnið hefur byggðarlagi sínu vel
og dyggilega svo langan aldur.
j Veit ég, að Hvergerðingar og
j Ölfusingar taka undir ósk mína
um heill og hamingju til handa
Jóni Ögmundssyni og fjölskyldu
hans á þessum tímamótum ævi
hans.
Grímur Jósafatsson.
tþfóffir
Framh. af bis. 6
Norska fimleikasambandsins og
einróma samþykkt að veita for-
seta íslenzka íþróttasambandsins
Benedikt G. Waage, sérstök heið-
ursverðlaun vegna hins háa
þroska er íslenzki flokkurinn
hafði sýnt á sýningunni. Sams-
konar heiðursverðlaun voru veitt,
fulltrúa sænska sambandsins i
vegna hinna miklu menningar-1
áhrifa er Lingska leikfimin hafði
haft í Noregi og vegna hinnar!
háu getu er Svíar sýndu í leik- j
fimi á þessu móti. Heiðursverð- |
launum þessum er úthlutað 2—3:
sinnum á ári og aðeins við alveg'
sérstök tækifæri. Þetta er því
vafalaust mikil viðurkenning fyr-
ir íslenzka flokkinn.
ÁHRIFAMIKIL HÁTÍÐ
Norðmenn standa á gömlum
grundvelli í „Turn“ áhaldaleik-
fimi. „Turnlivid“ er með sterk-
ust* þjóðræknis- og bræðralags-
hreyfingum í Noregi. Frækinn,
frómur, frár og frjáls, eru hinir
4 hornsteinar Turn-hreyfingar-
innar. íslenzki flokkurinn er nú
kominn heim, en honum verða
lengi minnisstæð áhrif hinna
fjölmennu hópsýninga, t. d. 12
hundruð kvenna, 800 húsmæðra,
800 karla og síðast en ekki sízt
400 öldunga, þar sem yngsti mað-
urinn var 45 ára og elsti 77 ára.
Margir öldungarnir sýndu enn
réttu tökin á svifrá, tvíslá og í
hringjum. Ófrávíkjanlegt skil-
yrði fyrir inntöku í flokkinn var
að hafa æft og tekið þátt í mót-
um í 25 ár samfleitt.
Allir flokkar báru það með sér
að þeir nutu þess að vera með í
starfinu, finna afl í armi og ólg-
andi vilja. Það voru stoltir Norð-
menn hinar gráhærðu húsmæður
sem leikandi létt dönsuðu í gegn-
um hið erfiða og samsetta pró-
gram sitt undir bláum himni á
grænni grasflötinrú. Það voru
sannar dætur og mæður hraustra
sona.
Klokkakeppnin í kvenna og
karla flokkum og einmennings-
keppnin í kvenna og karla leik-
! fimi bar með sér að Noregur þarf
' ekki að bera kinnroða vegna
' getuleysis hinnar ungu kynslóð-
ar. Vafalaust teljast Norðmenn
■ nú með snjallari þjóðum í
1 „Turn“ eða keppni leikfimi. Leik-
| fimin er fegursta og f jölbreytt-
I asta keppniíþróttin.
Bráðum er röðin komin að þér
ungi íslendingur. að sýna leikni
þína, hugrekki og getu í keppni
við aðrar þjóðir í leikfimi. — Ert
þú viðbúinn.
þú viðbúinn. (Fréttatilkynning).
HÚN''lézt á Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund þann 8. þ. m.
Með henni er horfin sjónum vor-
um ein af merkari konum þeirrar
kynslóðar, sem nú er óðum að
hverfa.
Anna Guðmundsdóttir var fædd
16. okt. 1868 að Hjálmsstöðum í
Laugardal, dóttir hinna merku
hjóna Guðmundar Pálssonar og
Gróu Jónsdóttur ljósmóður. Af
systkinum hennar eru nú á lífi
hinir þjóðkunnu bræður Hjör-
mundur cg Páll skáld á Hjálms-
stöðum.
Anna giftist 28. apríl 1896 heið-
ursmanninum Sveini Eyjólfssyni
verkstjóra, af hinni góðkunnu
Engeyjarætt. Hann lózt 27. febr.
1949. Þau h jón eignuðust sex börn,
auk þess fóstruðu þau upp tvö
bamabörn sín, sem þau komu öll-
um vel til manns með árvekni og
sleitulausu starfi. Tvo syni sína
mistu þau með stuttu millibili:
Harald, sem fórst með flutninga-
skipinu Heklu í síðasta stríði, og
Pál litlu síðar; báðir voru miklir
dugnaðar og atgervismenn.
I þeim mikla harmi stóð hún
við hlið manns síns, þá sem endra
nær, styrk og örugg, gædd bjarg-
fastri trú á óskeikula og gæzku-
ríka stjórn hins allsvaldanda.
Anna var ein af þeim, er vakti
sérstaka athygli samferðamanna
sinna sakir djarfrar og hispurs-
lausrar framltomu, enda svipmikil,
þótt lág vexti væri. Þeir, sem
kynntust henni nánar, gleyma ekki
hinni leiftrandi fyndni og græsku-
lausa galsa, sem ávallt fylgdi
henni, en gat þó snert ónotalega,
ef því var að skiota. Alla tíð var
hún iðandi af lífsfjöri og hafði
eins og skáldið segir: „yndi að ýta
við öllu og sjá það kvika“.
Anna var fjölþættum gáfum
gædd, sem hún þroskaði við lestur
góðra bóka og fór enginn erindis-
leysu til hennar, sem vildi fræðast
um menn og málefni að fornu og
nýju, og hygg ég, að þar hafi hún
skarað fram úr flestum þeim, er
eigi voru lang-skólagengni'r.
Anna min! Þú ert kært kvödd
af börnum þínum, tengdabömum
og barnaböraum, svo og öðru
skyldfólki þínu og vinum, með
djúpri lotningu og þökk fyrir allt
og allt. — Vertu blessuð og æl og
guð fylgi þér og annist þig um
eilífð alla.
Á. G.
85 ára afmæli
85 ára. Anna S. Árnadóttir frá
Skógum, nú til heimilis í H;sa-
vík, verður 85 ára á morgun,
mánudag. Hún dvelst nú á æsku-
stöðvum sínum í Axarfirði.
snjomannsms.
LONDON — Leiðangur sá, sem
brezka blaðið Daily Mail gerði
út til að finna snjómanninn, hef-
ur nú geíizt upp við það verk-
efni. En nú er svissneskur leið-
angur að leggja af stað sömu er-
inda.
Sardínustofninn við Kaliforníu-
strendur er í hættu vegna ofveiði
I' NÝJASTA hefti Ægis, er fróð-
leg grein sem fjallar um
| sardínuveiðar Kaliforníumanna,
sem hófu þessar veiðar fyrst árið
1916. — Voru byggðar margar
verksmiðjur til að hagnýta afl-
ann, sem komst upp í 750 þús.
tonn á ári. — Nú er svo komið að
sardínuveiðarnar eru í algerri
hættu vegna ofveiði.
Fiskifræðingar höfðu aðvarað
fyrirsvarsmenn sardínuiðnaðar-
ins, en árangurslaust, jafnvel þó
sýnt væri að hverju stefni. — í
1 lok greinarinnar í Ægi um þetta
mál segir svo:
Árið 1953 var lagt fram frum-
varp á ríkisþingi Kaliforníu um
i friðun fyrir sardínuveiði. En það
fékkst ekki samþykkt þá, og því
j héldu veiðarnar áfram óhindrað-
ar sem fyrr. Nú er svo komið, að
eina ráðið til þess að tryggja
framtíð sardínuveiðanna er að
banna að veiða hana í nokkur ár,
og síðan takmarka mjög magnið,
sem veiða má.
Báðherror
dæmdir
í fangelsi
BERLÍN 17. júlí. — Anstur-
þýzka fréttastofan skýrir frá
því, að Karl Haman, fvrrum
birgðamálaráðíierra Austur-
Þýz.kalands, hafi verið dæmdur
í 17 ára fangelsi fyrir skemmd-
arverk í birgðamálum landsins.
Auk hans voru starfsmenn
ráðuneytis hans ýmsir dæmdir
í þriggja til sex ára fangelsi.
Þeir voru allir álitnir sekir tim
grófa vanrækslu og skemmdar-
verk árin 1951—1953, þar sent
þeir höfðu ekki fylgl eftir á-
ætlunum stjórnarinnar um
birgðamál.
Gísff Guðimimhson
bókbindaii
1874 — 29. maí — 1954
Gefi þér Guð í bæinn
góðan og bjartan daginn.
Heill sé þér hetjan Gísli,
hetja í vinnusýsli.
Uni’ eg við ýmis minni
og öll hin fornu kynni.
Ungan þig söngur seiddi
söngur þér veginn greiddi.
Ætíð léttur í lundu
lifsglaður hverja stundu.
Gleðstu nú gamli vinur.
Þú göfgi aldni hlynur.
Ellin þig aldrei beygi
yngstu með hverjum degi.
Háttprúður, hress í svörum
hafandi bros á vörum.
Ávallt hnyttin í orðum
sem íslendingar forðum.
Lyftu nú glasi, góði!
Þú geymist í sögn og Ijóði.
Vinsældir áttu viða,
vekur söngur hrós lýða.
Vorsins barn varstu lengi.
Vaktir í brjósti strengi.
★
Attræður, ungur maður,
í anda hress og glaður.
Lipur með létta fingur,
leikur á horn og syngur.
Sólin er ung, ef andinn
allt sigrar — hverfur vandinn.
Sveinbjörn Oddson
prentari.
---★-----
Áttræð hetja! Ekki veill
eða hörmum kafinn.
Söngs við metin sit nú heill
sólarörmum vafinn.
Jósep S. Húnfjörð.
í nóvembermánuði síðastliðn-
um lagði fiskveiðiráð Kaliforníu
til, að vegna algers öngþveitis í
sardínuiðnaðinum, er stafaði af
aflaleysi, sem ekki væri sjáanlegt
að mundi draga úr í náinni fram-
tíð, samþykkti þingið ályktun,
sem veitti ráðinu óskorað vald til
að takmarka sardínuveiðarnar
við það magn, sem ætla má að
núverandi stofn kynni að þola.
★★ ENSKUR hermaður, Harry
Capp að nafni, tapaði biblíu sinni
í orusíunni um Tobruk 1943. —
Sköramu síðar var hann tekinn
til fanga og sat í þýzku fangelsi
til stríðsloka. En nú nýlega, 11
ávum síðar, fékk hann pakka
sendan frá Bayern. í honum var
biblían hans. Sendandinn var
fyrrverandi flugmaður í þýzka
flughernum. í bréfi, sem fylgdi
með, segir hann: „Ég sendi yður
hér mcð biblíuna yðar. Ég fann
hana í eyðimörkuinni, og hún
heíur verið mér til mikillar hjálp
ar og styrktar“.
Capp keypti þegar nýja biblíu,
sem hann sendi Þjóðverjanum,
og skrifaði með: „Ég vona af
heilum hug, að á meffan þessi
biblía er við lýði verði ekki nýtt
stríð“.
WASHINGTON, 17. júlí. — Dull-
es, utanríkisráðherra, skýrði út-
anríkismálanefnd öldungadeildar
innar frá árangrinum af viðræð-
um sínum vig Eden og Mendés-
France. Formaður nefndarinnar
sagði á eftir að menn hefðu í
hyggju að kalla saman aukaþing
til að gera ráðstafanir í Þýzka-
landsmálinu, ef Frakkar neituðu
að samþykkja Evrópuher.
Sjötussafmæfl
á SiglySirSi
SJÖTUGUR er í dag Þorleifur
Bessason, verkamaður á Siglu-
firði. Er hann fæddur í Neðri-
Skútu við Siglufjörð 1884, sonur
hjónanna Bessa Þorleifssonar,
hákarlaformanr.s í Héðinsfirði og
Sigiufirði og konu hans, Ingi-
•bjargar Stefánsdóttur.
Þorieifur hefur alið allan ald-
ur sinn í Pléðinsfirði og Siglu-
firði. Stundaði hann lengi fram-
an af hákarlaveiðar, þar til þær
veiðar lögðust niður. — Síðan
hefur hann stundað alla aigenga
vinnu, lengst af hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins. Jafnan hefur
Þorleifur þótt góður verkmaður,
trúr og dyggur, og hollur hús-
bændum sinum. Hann var kvænt-
ur Hólmfríði Jónsdóttur, en hún
lézt 1946.
Flestir eða allir Siglfirðingar
þekkja Þorleif Bessason og að
góðu einu. Munu honum verða
sendar kveðjur allra þeirra, sem
kynnzt hafa honum, nú á þess-
um merkisdegi æfiferils hans.
Vinur.
Leitað að gömlu gulii á hafsbotnl
EDINBORG — Hertoginn af
Argyll hefur ákveðið að láta
halda áfram rannsókn á spanskri
galeiöu, sem var í flotanum
ósigrandi og fórst til forna við
Skotlandsstrendur. Telur her-
toginn að mikið gull sé geymt í
galeiðunni á hafsbotni.
★★★★★★★★★★★★★
★ ★
★ D ★
★ ÐEZT AÐ AUGLÝSA í ★
★ MORGUNBLAÐINU ★
★ ★
★★★★★★★★★★★★★