Morgunblaðið - 22.09.1954, Síða 1
16 síður
41. árgangur.
216. tbl. — Miðvikudagur 22. september 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins
SIÐUSTU FRETTIR
New York 21. sept. — Einkaskeyti frá Reuter.
AFUNDI allsherjarþings S. Þ. í dag kvaddi Andrei Vishinsky
fulltrúi Rússa sér hljóðs. Hélt hann langa ræðu þar sem hann
krafðist þess að kommúnistastjórnin í Kina fengi sæti í S. Þ. i
stað Formosa-stjórnarinnar. Bar hann fram tillögu þess efnis.
♦♦♦♦♦♦♦
STRAX á eftir stóð upp Henry Cabot Lodge fulltrúi Bandaríkj-
anna. Hann bar fram tillögu um að á þessu níunda þingi S. Þ.
yrði ekki tekin nein afstaða til deilunnar um sæti Kínverja hjá
stofnuninni.
♦♦♦♦♦♦♦
VAR tillaga bandaríska fulltrúans samþykkt með 43 atkvæðum
gegn 11 en, 6 sátu hjá, og virðist þar með útkljáð að þetta mál
verður ekki tekið upp aftur á þessu þingi S. Þ.
♦♦♦♦♦♦♦
MÓTI tillögu Bandaríkjamanna greiddu atkvæði Norðurlöndin,
Austur-Evrópu ríkin, þar á meðal Júgóslavía og einnig Ind-
land og Burma. Arabaríkin sátu hjá.
Að þessu loknu var Hollendingurinn van Kleffens kjörinn for-
seti allsherjarþingsins með 45 atkv., en 12 sátu hjá.
Verðor Moo-Kina veitt upp-
taka í Sameinuðu þjóðirnar ?
Skipfar skoðanir á Allsherjarþinginu
New York 21. sept.
ALLSHERJARÞING Sameinuðu þjóðanna kemur saman í níunda
sinn í dag. Á dagskrá þess eru að vanda fjölmörg vandamál,
sum þeirra gömul og önnur ný. Það mái, sem talið er að valdið
geti mestum hita og deilum, er mál, sem legið hefur fyrir undan-
farin ár og talið er víst að muni vera tekið fýrir einu sinni ennþá,
en það er hvort veita skuli hinu kommúniska Kína upptöku í S. Þ.
í stað þess að viðurkenna fulltrúa Chiang Kai-Sheks stjórnarinnar,
sem fulltrúa kínversku þjóðarinnar.
BANDARÍKIN ANDVÍG
Eins og menn muna hafa Bret-
ar og ýmsar aðrar þjóðir við-
urkennt stjórn Maos, en Banda-
ríkin hafa reynst æ örðugari við-
fangs, sem kínverskir kommún-
istar hafa sýnt af sér meiri yfir-
gang í viðskiptum sínum við1
aðrar þjóðir. Einkum voru það
þó afskipti Kína af Kóreustríð-
inu og styrjöldinni í Indó-Kína,
sem valdið hafa því að Banda-
ríkin hafa nú lýst yfir að þau
muni aldrei viðurkenna fulltrúa
kommúnistastjórnarinnar, sem
fulltrúa Kína hjá S. Þ.
BRETAR í VAFA
Bretar munu ,eiga erfiðan kost,
annars vegar að ganga í berhögg
við vini sína og bandamenn,
Bandaríkin, hins vegar mundi
viðurkenning á stjórn Maos inn-
an S. Þ. og hins vestræna heims
í heild, tryggja það að þeir gætu
stóraukið viðskipti sín við Kín-
verja, og slík viðskipti eru það,
sem Bretar eru mjög þurfandi
fyrir.
NORÐURLÖND STYÐJA KÍNA
Um afstöðu Norðurlandanna
er þegar vitað, hún kom fram á
fundi' utanríkisráðherranna sem
haldin var í Reykjavík í sumar
í samþykkt, þar sem ákveðið var
að Norðurlöndin skyldu stuðla
að upptöku Kína í S. Þ.
MOSKVA HEFUR í HÓTUNUM
í Moskvu var því lýst yfir I
fyrrakvöld að ef Kína væri synj-
að um upptöku í S. Þ. þýddi það
einfaldlega að ekki væri hægt að
leysa eitt einasta meiriháttar al-
þjóðlegt vandamál! í yfirlýsing-
unni var sagt að Bandaríkin
væru eini þröskuldurinn í vegi
fyrir samkomulagi um þetta
atriði og var ráðist að Banda-
ríkjamönnum fyrir að beita
þvingunum við bandamenn sína
til þess að fá þá til að taka sömu
afstöðu. Segir Pravda að öllum
þjóðum sem sæki um upptöku og
ekki hafa brotið gegn sáttmála
þeirra beri að veita inngöngu og
aðild að þjóðasamtökunum.
Páfinn laus við hikstann
RÓM, 21. sept. — Páfanum er að
batna. Hann hefur þjáðst svo
mánuðum skiptir * af óstöðvandi
hiksta. En nú er sjúkdómurinn
að lagast og í dag gat hann tekið
sér langa gönguferð í görðum
sumarseturs síns Castel Gand-
olfo. — Reuter.
Heljan grét eins og bam
sem sendlherra
SAMKOMULAG UM
SMÁATRIDI
Nefndin, sem skipuð var til að
rannsaka gjaldeyrisvandræði
Dana kom aftur saman í dag
eftir 4 daga hlé. Jafnaðarmenn
og Róttækir hafa komizt að sam-
komulagi um aðeins þrjú minni-
háttar atriði.
VILL GEFA RÁÐHERRASÆTI
Málið var rætt á ráðuneytis-
fundi í gær. Er talið að Hans
Hédtoft sé fús til að ganga langt
á móts við Róttæka og bjóða
þeim ráðherrasæti, en þó aðeins
að Róttækir falli frá kröfum sín-
um Um að dregið verði verulega
úr fjárframlögum til landvarna.
FYLGI VID JAFNAÐARMENN
EKKI VINSÆLT
Miðstjórn Róttæka flokksins
mun koma saman á laugardag
og þar verður tekin ákvörðun
um hvaða stefnu flokkurinn
taki, hvort hann taki upp sam-
starf við stjórnina. Þær radd-
ir eru farnar að vera hávær-
ari sem telja að flokknum vaxi
ekki fylgi með því að styðja
stjórnina.
Framh. á bls. 2
— 2Vi milljón stolið —
Furðulega djarfur þjófn-
aður ■ hjarta London
London 21. sept. — Einkaskeyti frá Reuter.
DJARFIR og slungnir þjófar voru að verki um hábjartan dag,
er þeir stálu tveimur gullkössum á aðalgötu Holborn-hverfis
og komust síðan undan. Kassarnir innihéldu gullstykki að verðmæti
2 Ví; milljón króna.
★ VEL UNDIRBUIÐ
Scotland Yard stendur uppi
algerlega grallaralaus. Því að svo
vel var þessi þjófnaður undir-
búinn, að slíks eru fá dæmi og
má telja líklegt að þjófarnir hafi
ekki ver skipulagt undankomu
sína og felu.
★ MARGIR SJÓNARVOTTAR
Gullstykki þessi voru í eign
Rotschilds-fjölskyldunnar og
átti að flytja þau frá Lundún-
um til Amsterdam. Þjófnaður-
inn var framinn um hábjart-
an dag í aðalviðskiptahverfi
Lundúna, gangstéttirnar voru
fullar af gangandi skrifstofu-
fólki, sem var á leið heim til
sín úr vinnunni.
★ VÖRUBÍLL LOKAÐI
GÖTUNNI
Verið var að setja gullið út í
sérstakan gullflutningabíl, þegar
risastór flutingavagn kom eftir
götunni og staðnæmdist hárs-
breidd frá gullvagninum. Stukku
þá tveir menn allt í einu út úr
flutningavagningum og hremmdu
tvo gullkassa. Síðan héldu þéir
ferðinni áfram, en er þeim var
Framh. á bls. 2
Peking-stjórnin fœr ekki
setu í S.Jb. á þessu þingi
Tillögu Vishinskys vísal frá
með 43 atkvæðum gegn 11
Muccio vinnur
sinn
Franski hershöfðinginn Kristján de Castries, sem gat sér frægðar-
orð fyrir vörn frumskógaborgarinnar Dien Bien Phu, var nýiega
sleppt úr haldi kommúnista. Myndin sýnir er hann kom til flug-
stöðvarinnar í Saigon og var gefið frelsi á ný. Þá yfirbugaðist hetjun
Og grét eins og barn.
Hyllír undir nýjur
kosningur hjd Dönum
Róttækir slríða Jafnaðarmönnum
Kaupmannahöfn 21. sept. Einkaskeyti frá Páli Jónssyni.
MEÐ degi hverjum eru meiri líkur til að nýjar kosningar verði
látnar fram fara í Danmörku. Hefur illa gengið að koma á
samkomulagi milli Jafnaðarmanna og Róttæka flokksins. Er nú
svo komið að háværar raddir í Róttæka flokknum telja engan
hagnað af samstarfi við Jafnaðarmenn, en krefjast nýrra kosninga.
WASHINGTON, 17. sept. — John
J. Muccio vann í gær embættis-
eið sinn sem sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi. Hann mun
sennilega fara til Reykjavíkur
ásamt konu sinni fyrstu viku
októbermánaðar. Eins og kunn-
ugt er var Edward B. Lawson
fyrirrennari hans sem sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi.
Muccio var fyrsti sendiherra
(ambassador) Bandaríkjanna hjá
lýðveldi Suður-Kóreu. Áður en
hann tók við því embætti, hafði
hann verið sérstakur fulltrúi
Bandaríkjaforseta í Kóreu. Síðan
hann lét af sendiherraembættinu,
hefur hann gegnt ýmsum mikil-
vægum störfum í utanríkisráðu-
neytinu í Washington, m. a. tók
hann nýlega þátt í samningsum-
ræðum milli Bandaríkjanna og
Panamalýðveldisins.
Hann hóf störf í utanríkisþjón-
ustu Bandaríkjanna árið 1921 og
hefur starfað á vegum hennar
víða í Austurlöndum. Áður en
hann gerðist sérstakur fulltrúi
Bandaríkjaforseta árið 1948, var
hann einn af stjórnmálaleiðbein-
endum Bandaríkjastjórnar um
Þýzkalandsmál.
10 mánaöð barn bor-
ið úi í Svíþjóð
FYRIR nokkrum dögum fannst
10 mánaða gamalt barn í skógi
nokkrum fyrir norðan Stokk-
hólm, sem hafði verið þar í þrjá
sólarhringa. Barnið, sem var
drengur, hafði skriðið all langan
spöl, frá þeim stað sem það hafði
verið skilið eftir á, og var búið
að klæða sig úr skóm og vettling-
um þegar það fannst.