Morgunblaðið - 22.09.1954, Blaðsíða 2
2
MORGUHBLABIB
Miðvikudagur 22. sept. 195Í
lnnritun hafin í Námsffokka
Reykjavíkur ^•. .
Nýjum námsgreinum bætt við: norsku,
latínu, leikfangagerð og erlendum bók-
menntum. — Kvikmyndir og segulbands-
tæki verða notuð við kennsluna
NÁMSFLOKKAR Reykjavíkur bæta nýjum námsgreinum við í
haust. Einnig taka þeir í notkun kvikmyndatæki og segulband
sem hjálpargögn við tungumálakennslu.
Námsflokkar Reykjavíkur eru
íyrir löngu orðnir þekkt mennta-
stofnun hér í bænum og þátttak-
«ndafjöldi þeirra hefur aukizt ár
írá ári. Síðastliðinn vetur stund-
uðu um 850 manns nám þar í
rúmlega 40 námsflokkum. Náms-
greinar voru þá 15.
NÝJAR
NÁMSGREINAR
í haust verður bætt við nokkr-
um nýjum námsgreinum: norsku,
latínu, leikfangagerð (úr pappír
o. fl.) og erlendum bókmenntum.
Náminu í erlendum bókmenntum
verður hagað þannig, að lesnir
verða nokkrir valdir kaflar á
ensku, þýzku og einhverju norð-
urlandamálanna. Kaflarnir verða
skýrðir og stutt erindi verða flutt
um höfundana og þá bókmennta-
stefnu, sem þeir tilheyra.
Flokkar þessir eru ætlaðir
menntuðu fólki, sem kynni að
hafa gaman af að njóta leiðsagn-
ar bókmenntafróðra manna við
lestur örfárra úrvalsrita. Nánari
tilhögun verður ákveðin í sam-
ráði við væntanlega þátttakend-
ur.
SEGULBANDSTÆKI
OG KVIKMYNDIR
Segulbandstækið er notað
þannig við tungumálakennslu, að
nemendur tala sjálfir inn á segul-
band og geta strax á eítir hlustað
á sinn eigin framburð og heyra
þá betur en annars hvað betur
mætti fara. Áformað er að sýna
stuttar kvikmyndir í kennslu-
stundunum. Kennarinn sl
myndirnar á því máli, sem verið
1 er að kenna á svo einfaldan hátt,
að þátttakendur í námsflokknum
eigi auðvelt með að tengja sam-
an myndir og orð.
X-FLOKKARNIR
Námsflokkurinn í latínu og X-
flokkarnir í ensku, þýzku og
frönsku eru ætlaðir þeim, sem
háfa nokkra þjálfun í tungumála
námi (a. m. k. landspróf eða hlið
stæða menntun) og vilja leggja
áherzlu á að læra málfræði þess
ara tungumála og skrifa stíla. —
Auk þess er einn flokkur í ensku
(5. fl.) þar sem kennslan fer ein-
göngu fram á ensku.
Aðrar námsgreinar eru:
íslenzkar bókmenntir, íslenzka,
danska, spænska, vélritun, (hægt
er að fá vélar leigðar til afnota
í skólanum) bókfærsla, reikning-
ur, sálarfræði, kjólasaumur,
barnafatasaumur, útsaumur og
upplestur.
INNRITUN HEFST I DAG
í flestum þessum námsgrein-
um (ásamt ensku, sem áður er
getið) eru flokkar bæði fyrir
byrjendur og þá, sem lengra eru
komnir.
Innritun fer fram í dag og
næstu daga í Miðbæjarskólanum
kl. 5,20—7 og kl. 8—9 síðdegis
(gengið inn um norðurdyr).
Kennsla hefst 4. okt. Kennt verð-
ur í Miðbæjarskólanum á kvöld-
in á tímanum 7.45—10.20.
GETRAIASPÁ
TÆPLEGA fjórðungi ensku
deildakeppninnar er nú lokið og
taka nú við eingöngu laugardags-
leikir, er skammdegið færist yfir
og ekki er hægt að leika í miðri
viku. Drengjaliðið í Manch. Utd,
eða Baby-United eins og það er
kallað í Englandi nú, er nú orðið
efst og talið hafa mestar líkur
til þess að vinna keppnina í ár.
WBA er nú aftur komið í form
og á laugardag skoraði miðfrh
Allen bæði mörkin í Burnley. Á
eftir þessum koma síðan 4 félög
með 12 stig, og er Sunderland nú
að skera upp árangur af öllum
kaupum sínum á landsliðsleik-
mönnum.
Skilaréff fyrir 12 jiús. fjár við
Laufskálaholf í HjaHada!
Staðan er nú í efstu deildun-
; um:
Manch. Utd 9 6 2 1 20-11 14
WBA 9 6 1 2 20-15 13
Wolves 9 5 2 2 17-10 12 1
Everton 9 5 2 2 17-11 12
Sunderland 9 4 4 1 13- 8 12 .
Manch. City 9 5 2 2 15-14 12
Preston 9 5 1 3 25-12 11
’ Newcastle 9 5 1 3 23-18 11
Bolton 9 5 1 3 17-13 11
Chelsea 9 3 4 2 10-10 10
Portsmouth 9 3 3 3 13-12 9
Cardiff 9 3 3 3 14-18 9
Huddersfield 9 3 2 4 14-16 8
Charlton 8 3 1 4 14-17 r* i
Burnley 9 2 3 4 8-11 7
Leicester 9 2 3 4 12-16 7
Arsenal 9 3 0 6 14-15 6
Tottenham 9 2 2 5 13-17 6
Aston Villa 9 2 2 5 14-21 6
Sheff. Wedn 9 2 1 6 16-22 5
Sheff. Utd 9 2 1 6 10-23 5
Blackpool 8 1 1 6 10-18 3
II. DEILD
1 Luton 9 7 0 2 18-10 14
Fulham 9 6 1 2 25-14 13
Rotherham 8 6 0 2 22-13 12
Hull City 9 5 2 2 12- 6 12
j Blackburn 9 6 0 3 29-20 12
1 Birmingham 9 4 3 2 14- 8 11
Stoke City 9 5 1 3 12- 8 11
Notts Co 9 4 2 3 15-14 10
West Ham 9 4 2 3 19-20 10
Doncaster 8 4 1 3 17-17 9
Port Vale 8 3 3 2 8-10 9
Lincoln 9 4 1 4 16-16 9
Bristol Rov. 9 4 1 4 19-20 9
Bury 8 4 0 4 19-20 8
Swansea 9 3 1 5 22-19 7
Liverpool 9 3 1 5 21-22 7
Leeds 9 3 1 5 16-19 7
Ipswich 9 3 0 6 17-19 6
Plymouth 9 1 4 4 11-16 6
Nott. Forest 9 2 1 6 12-18 5
Derby Co 9 2 1 6 14-25 5
Middlesbro 9 0 1 8 7-26 1
Um næstu helgi verða nokkrir
tvísýnir og erfiðir leikir, að gizka
Bæ, Höfðaströnd, 21. sept.
ÁNUDAGINN 20. þ. m. var
vígð myndarleg sfeilarétt á
Laufskálaholti í Hjaltadal. Ber
hún vott um framsýni og stórhug
bænda er hana byggja, en að
byggingu hennar standa 50 bænd
ur í Hóla- og Viðvíkurhreppum.
KOSTAR 150 ÞÚS. KR.
Þeir Sigurmon Hartmannsson
Kolkuósi, Friðbjörn Traustason,
Hólum, og Pétur Runólfsson
Efra-Ási, höfðu á hendi forust-
una um byggingu réttarinnar. —
Hún mun rúma um 12000 fjár og
kostar um 150 þúsund krónur. Er
áætlað að kostnaðurinn verði
tekinn af fjórðungi landverði
jarðar, fjórðungi af afréttarpen-
ingi og afgangurinn tekinn að
láni.
23 DILKAR
Réttin er öll steinsteypt, byggð
á stólpum, en annars holt undir
alla veggi. Almenningur er lág-
Téttur en dilkar 23 að tölu halla
lítillega frá miðju. Flestir bænd-
ur hafa lagt hönd að bygging-
unni,. og elztu bændurnir, sem
þar hafa unnið, eru þeir: Pétur
Pálssón á Kjarvalsstöðum og Sig-
urður Sigurðsson, Efra-Ási, en
þeir eru nú um sjötugt báðir.
VÍGSLUHÁTÍÐIN
Á vígsluhátíðinni komu bænd-
ur saman og drukku full vel
lieppnaðs fyrirtækis, ásamt
fjölda annarra nær og fjær, sem
hylltu þetta myndarlega framtak.
Kvenfélag Hólahrepps sá um all-
ar veitingar við vígslu réttarinn-
ar af mikilli rausn. — Hún er
sem fyrr greinir, hið myndarleg-
asta mannvirki og öllum er að
henni standa til mikils sóma.
— Björn.
Aihogasemd frá
hljéðfæraleikurym
VEGNA fréttagreinar í dagblað-
inu Tímanum laugardaginn 18.
sept., undir fyrirsögninni:
Frumsýningarverð í Þjóðleikhús-
inu hækkar“, vill stjórn félags
okkar taka eftirfarandi fram:
Kauptaxtar hljóðfæraleikara fyr-
ir vinnu í leikhúsum hafa alls
ekkert hækkað, eins og skilja má
af áðurnefndri grein. Núgildandi
kauptaxtar eru nákvæmlega
sömu og á síðastl. leikári, 1953—
1954.
Reykjavík 21. sept. 1954.
F. h. stjórnar
Félags ísl. hljóðfæraleikara
Þorvaldur Steingrímsson.
Hvað kostar undir bréfin?
Einföld flugpÓ3tbréf (20 gr.),
Danmörk, Noregur, Svíþjóð kr
2,05; Finnland kr. 2,50; Englano
og N.-lrland kr. 2,45; Austurríki,
Þýzkaland, Frakkland og Svisa kr
8,00; Rússland, Ítalía, Spánn og
Júgóslavía kr. 3,25. — Bandaríkir
(10 gr.) kr.í 3,15; Canada (10 gr.)
kr. 3,35. — Sjópóstur til Norður
landa (20 gr.) k-r. 1,25 og til ann
arra landa kr. 1,75.
á. ,,Derby“-leikurinn, eins og
Englendingar kalla leiki milli fé-
laga úr einni og sömu borg, milli
City og United í Manchester er
einn sá erfiðasti á seðlinum. —
Manch. City hefur komið á óvart
með getu sinni í haust, en það
hefur þó áður staðið grönnum
sínum á sporði, þótt um 20 sæti
hafi skilið þau að í töflunni.
Charlton — Sunderland og
Hudds — Wolves eru ekki auð-
veldir, því síður Nott Forest og
Nott Co. Leikirnir eru:
Arsenal — Burnley 1
Blackpool — Tottenham 1 2
Bolton — Aston Villa 1
Charlton — Sunderland x
Everton — Cardiff 1
Huddersfield — Wolves 1x2
Manch. City — Manch. Utd 1 2
Newcastle — Chelsea lx
Portsmouth — Sheff. Wedn 1
Sheff. Utd — Preston 2
WBA —• Leicester 1
Nottm F — Notts Co 12
Hvaheiðivertð
lýkur bráðlega
SENN líður að lokum hvalveiði-
vertíðarinnar hér við land og
hefur afli verið mjög sæmilegur
þegar gefið hefur. í gær var gott
veiðiveður á djúpmiðunum, þar
sem hvalfangararnir voru og
veiddu þeir þá fjóra hvali. Nú er
búið að veiða 331 hval á móti 332
um sama leyti í fyrra.
Vestur-fslenzkar sysfur í heim-
sókn fi! að fulfgera æffarfa!
Frá vinstri: Esther Magðalena Olsen og Louise Frederica Stephenseni
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag komu hingað til landsins tvæiS
vestur-íslenzkar systur, Louise Frederica Stephensen og Esthet!
Magðalena Olsen, frá Chicago í Illinois í Bandaríkjunum, en þafl
hafði faðir þeirra, sem var íslendingur, sezt að árið 1888.
IíOFÐU ÆTTARTAL
MEDFERÐIS
Þær systur áttu hingað merki-
legt erindi auk þess að kynnast
af eigin reynd landi og þjóð ætt-
feðra sinna. Höfðu þær með-
ferðis ættartal mikið, þar sem
rakin er ætt þeirra, en þær eiga
ættingja bæði í Danmörku, Sví-
þjóð, Noregi og á íslandi. Var
elzta syni Louise mjög umhugað
um að bæta inn í ættartalið þeim
íslenzkum nöfnum, sem þar
vantaði.
Mun það vera talsvert verk,
þar sem ætt þeirra systra hér á
landi er mjög mannmörg. Ættar-
talinu lýkur á börnum Louise,
tveim dætrum og tveim soum,
og fimm barnabörnum hennar.
FÓR UNGUR AF LANDI BURT
Faðir þeirra, Einar Guðbjarts-
son, var sonur Magðalenu Hall-
dórsdóttur og Guðbjarts Ólafs-
sonar, sem bjuggu í Kollsvík í
Rauðasandshreppi, og var þriðja
barn þeirra hjóna, en alls voru
systkinin 18 talsins. Fjögur eru
enn á lífi, þrjár systur og einn
bróðir.
Einar var 24 ára, er hann fór
af landi burt í siglingar og kom
hér aðeins einu sinni eftir það.
Áður en Einar fór eignaðist
hann son, Davíð Einarsson, er
lengi var verzlunarmaður í Flat-
ey á Breiðafirði, en er nú bú-
settur í Reykjavík.
HAFA LENGI LANGAÐ
TIL ÍSLANDS
Einar, sem tók upp ættarnafn-
ið Olsen, eftir að hann fluttist til
Bandaríkjanna, kvæntist þar
danskri konu, Harriet Nilson og
bjó þar síðan. Esther, sem er end-
urskoðandi, hefur búið lengstum
í Chicago, en Louise fluttist til
Cinncinnati í Ohio með manni
sínum árið 1932.
Þær systur kváðu sig lengi
hafa langað til að heimsækja ís-
land, en Esther hefur ekki getað
horfið frá störfum sínum fyrr
en nú. Hafði faðir þeirra oft rætt
við þær um fegurð gamla lands-
ins. Á þessari ferð sinni hafa
systurnar einnig heimsótt Norð-
urlöndin, þar sem þær eiga
einnig ættingja.
ÞEKKTU ÍSLAND AF
KVIKMYNDUM OG
FYRIRLESTRUM
Louise og Esther hafa ferðast
nokkuð u.m hér, t.d. til Þingvalla
og að Gullfossi. Sögðust þær
hafa þekkt landið nokkuð af
sögnum föður síns og einnig af
kvikmyndum og fyrirlestrum um
ísland á íslendingamótum í
’Bandaríkjunum, og rómuðu þæí
einkum íslandskvikmynd Hal
Linkers.
,,En ísland kom okkur samt á
óvart með öllum sínum fjallgörð-
um“, segir Louise. „Og ekki sízt
með traustleik bygginga sinna“.
„Ég vona, að mér takist að
telja mann minn á að koma hing-
að í sumarleyfi“, bætir hún við.
„Og þá ætla ég að koma aftup
á þeim tíma, sem miðnætursólin
sézt“.
ÆTTSTOFNINN ER
ORÐINN STÓR 1
Systurnar halda heim aftuí
næstkomandi þriðjudag.
„Það var mjög skemmtilegt að
koma hingað og sjá alla ættingja
okkar, þó að ættstofninn sé nú
orðinn svo stór, að varla verði
hægt að hitta þau öll“, segir
Louise. „En við munum sannar-
lega eiga ánægjulegar minning-
ar um heimsókn okkar til ís-
lands“.
Systurnar dvelja hér hjá
frænda sínum, Guðbjarti Ólafs-
syni, hafnsögumanni.
G. St.
— Danir
Framh. af bls. 1
ERIKSEN STJÓRN?
Kvöld-Berlingur segir í dag
að bráðlega verði .Tafnaðar-
mannastjórnin sigld í strand
og kosningar séu nær því ó-
hjákvæmilegar. Og Extrablað-
ið segir að menn séu þegaf
farnir að stinga saman nefjuna
um nýja ríkisstjórn andstöðu-
flokkanna, sem Erik Erikseni
veiti forsæti, Thorkil Christea
sen sé utanríkisráðherra og
Axel Möller fjármálaráðherra,
— Þjéföaðnr
Framh. af bls. 1
veitt eftirför kom einn maðun
enn til sögunnar. Hann ók vöru-
flutningabifreið þvert yfir stræt-
ið, skildi hana þar eftir svo að
hún lokaði allri umferð og hvarl
á brott með ránsmönnunum.
LlTILL ÁRANGUR
Frú Maude Mitchell í Englandi
sótti nýlega um skilnað frá manni
sínum og lagði fram í réttinuni
myndir af sjálfri sér, sem sönn-
uðu, að á tveimur árum hafði húrt
horazt um 13 kg. vegna slæmrat
meðferðar af hálfu eiginmannsinst
Dómarinn veitti konunni ekki
skilnað vegna þess, að hann sagðia
að henni færi miklu betur að vera,
13 kg léttari, heldur en hún var,
fyrir tveimur áruml j