Morgunblaðið - 22.09.1954, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.09.1954, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIB Miðvikudagur 22. sept. 1951 ka Framh’aldssagan 47 verjar höfði} einu sinni verið sigraðir — þeir mundu ekki reyna öðru sinni. En þó — stríðið hafði endað með vopnahléi, eng- inn lokasigur hafði verið unninn. Var það mögulegt, að hann mælti sannleika? Var þetta í undirbún- ingi á meðan Evrópa svaf? Og hafði hann þá líka rétt fyrir sér, þegar hann sagði að ást væri ekki til? Talaði hann af reynslu — vissi hann hve lengi hún entist? Hann hafði talað um ánægjutil- íinningu. Hvað hafði hann í raun- inni átt við með því? Hann hafði lifað nær helmingi lengur en hún, hann hafði gert allt, reynt allt, séð allt, rannsakað mannseðlið og þekkti lífið. Var það mögulegt að þegar öllu væri á botninn hvolft þá hefði hann rétt fyrir sér, en hún hefði á röngu að standa? 11. kafli. Charles fór ofurhljóðlega í slopp sinn og leitaði í myrkrinu að inniskónum sínum. Hann kveikti á litla lampanum og gekk hægt út úr herberginu. Um leið og hann gekk niður stigann, velti hann því fyrir sér, hvað Nicole væri að gera þarna niðri ein all- an þennan tíma. Fenton hafði fylgt henni heim um tvöleytið. Hann hafði heyrt bíl hans aka frá húsinu skömmu síðar En klukkan hafði slegið hjálf fjögur áður en hann fór út úr herberg- inu. Hann var hugsi er hann gekk niður. Nicole var óútreiknanleg kona. Hann efaðist um það, að nokkur maður mundi skilja hana rétt. Var það nokkurn tima einhver önnur en Iris frænka?“ Charles sneri við og gekk að stól andspænis hægindastólnum, sem hún sat í. „Hvers vegna spyrðu, Nicole?“ „Mig langar að vita það.“ „Er það þýðingarmikið að ég svari?“ „Já, mjög.“ „Þá skal ég segja þér það. Ég var ástfanginn áður en ég gekk að eiga Iris. Eh það varð ekkert úr þeirri ást.“ „Hvers vegna ekki? Elskaði hún þig ekki?“ „Jú, hún elskaði mig, að minnsta kosti sagðist hún gera það. Hún hefði gifzt mér, ef ég hefði beðið hennar. En það fór nú svona; ég bað hennar ekki.“ „En ef þú hefur elskað hana..“ „Já. Ég hugsaði mikið um það, Nicole. Hún var það sem fólk mitt kallaði „ópassandi". Mér var það vel Ijóst að ég elskaði hana. En ég vissi líka, að þegar hvers- dagsleiki lífsins byrjar, þá hugs- ar maður um það sem maður eitt sinn átti. Ef þú hættir við eitt- hvað, sem þú ætlaðir þér, aðeins til þess að giftast ákveðnum manni eða konu, þá held ég að þú eyðir hálfri æfi þinni í bolla- leggingar um það, hvað orðið hefði um þig, ef þú hefðir ekki gifzt. Það er venjulega það, sem ræður úrslitum. Ég hefði til dæmis orð.ið að hætta í utanrík- isráðuneytinu, ef ég hefði kvænzt I henni. Og því starfi vildi ég alls ekki sleppa svo að ég ákvað að kvænast henni ekki. Ég hef verið mjög hamingjusamur með Iris. 1 Ég iðrast einskis. Ég fékk það út úr lífi mínu, sem ég vildi og ég er ánægður. Það getur verið að öðrum finnist þetta viðhorf mitt asnalegt — en það reyndist mér ágætlega." „Og þú telur það mjög mikil- vægt að vera ánægður í lífinu?“ „Já“. „Þakka þér fyrir, Charles. Ég mun minnast þess, sem þú hefur sagt mér.“ Charles stóð upp, leit á hana og velti því fyrir sér, hvað væri að brjótast um á bak við þessi svörtu augu. Hann sá að hún var áhyggjufull, en hann vissi líka, að það myndi ekkert gott hafa í för með sér, þó hann reyndi að fara að hughreysta hana. „Þú ferð upp bráðum?“ sagði hann. I „Já, alveg strax. Góða nótt, Charles frændi." „Góða nótt, vina mín“ sagði hann og hún var aftur ein. | Nicole leit um herbergið í skímu morgunsins. Aprílmorgun-J inn var kaldur. Hún vissi að bezt væri að fara upp að hátta en rökkrið og hugsanir hennar gáfu henni engan frið. Hún gæti ekki frekar varizt þeim þar uppi. ! Henni varð hugsað aftur og aft- ur um það, sem skeð hafði fyrr þetta kvöld. Það hafði allt byrjað svo vel. Vörubílaleyf i Kæliskápar Næsta sending af Kelvinator kæliskápum verður vænt- anlega til afgreiðslu um miðjan næsta naánuð. I»eir sem voru búnir að panta og ekki var hægt að af- greiða úr síðustu sendingu, verða látnir ganga fyrir. Getum einnig bætt við nýjum pöntunum. Verð kr.: 6490.00. — Hagstæðir greiðsluskilmálar. JUL kf AUSTURSTRÆTI 14 — SÍMI 1687. Hann sá daufa birtu í gegnum gætt bókaherbergisins. Teppin á stiganum hafði komið í veg fyrir að nokkur yrði var við komu hans niður og hann stóð í dyra- gættinni, án þess að Nncole veitti honum eftirtekt. Hann sá þegar í stað, að honum gafst ekki tæki- færi til spurninga. Það var eitt- hvað undarlegt við hana þessa stundina. Hún sat svo hugsi í stóra hægindastólnum. Skinið frá leslampanum féll á hana. Varir hennar voru samanbitnar og augnaráð hennar starandi. Char- les hafði aldrei áður séð hana þannig. „Nicole!“ ' Hún hrökk við. „Charles frændi! Ég heyrði ekkert til þín. Þú komst mér á óvart.“ „Fyrirgefðu, góða mín; ég ætl- aði ekki að láta þér bregða. Er nokkuð að? Get ég náð í eitthvað fyrir þig?“ „Nei .. nei, mig vantar ekkert. Ég sit bara hérna. Ég hef víst gleymt hvað tímanum leið.“ Charles hristi sig. „Það er kalt liérna. Aumingja þú, þér hlýtur að vera helkalt. Á ég að kveikja eld?“ Það lá við að Nicole segði já. Hún vissi sem var, að henni yrði ekki svefnsamt þó hún háttaði. En þegar hún fór að hugsa um það, að Charles yrði að leita að eldivið um allt húsið, þá fannst henni að það yrði jafnvel betra að hún lægi andvaka í rúminu, heldur en að Iris færi að spyrja hana nærgöngulum spurningum daginn eftir. Hún hafnaði því boði hans. „Þú ættir að fara að hvíla þig. Þú ert þreytuleg á svip.. Þetta hlýtur að hafa verið erfitt kvöld“. Þegar Charles gekk til dyra stöðvaði hún hann. „Charles!“ „Já, elskan.“ „Hefur þú nokkum tíma verið ástfanginn? Ég á við, hefur nokk- óskast. — Framboð ásamt verði, sendist í pósthólf 457. — Fullri þagmælsku heitið. 2—4 herbergi og eldhús óskast sem fyrst. — Þrennt fullorðið í heimili. Fyrirframgreiðsla. — Standsetning gæti komið til greina. — Upplýsingar í síma 80533, kl. 5—8 í dag og á morgun. Hús í Sandgerði Tilboð óskast í 84 ferm. fokhelt steinhús í Sandgerði. Húsið er hæð og portbyggð rishæð og kjallari undir % þess. í húsinu verða tvær íbúðir sérhitaðar, hvor þrjú herbergi, bað og þvottahús. — Tilboð í hvora íbúð fyrir sig óskast send til Aðalsteins Teitssonar. Skólastræti 1, Sandgerði. Sími 36. Hann veitir og nánari upplýsingar. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Tilboð óskast í Hverfisgötu 32, Hafnarfirði. Semja ber við Siggeir Vilhjálmsson, Sólvallagötu 34, Reykjavík. Sími 6260. Hefi kaupanda eð 3ja—5 herbergjo íbúð Mikil útborgun, ef samið er strax. Ingi R. Helgason, lögfr. Skólavörðustíg 45 — Sími 82207. Þýzkar LJÓSAKRÓNUR og L A M P A R fjölbreytt úrval. HEKLA H.F. Austurstræti 14 Vinnustundaklukkur nýkomnar S. Árnason & Co. Sími 5206. i ■ ■ • MiiaijaiJJJ ■_»> ■■■■■■ ■ nnnr if ■r ; i' ;; ) i 11 £ItUUIUIIIIIIIIIIIUIi .. | g.................

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.