Morgunblaðið - 29.09.1954, Side 7
Miðvikudagur 29. sept. 1954
MORGUNBLAÐIB
7
Frú Jóhanna K. Ólafson
FRÚ JÓHANNA KRISTXN
ÓLAFSSON andaðist af hjarta-
slagi fimmtudaginn 23. þ. m., 58
ára að aldri. Hún var fædd í
Stykkishólmi 22. maí 1896, dótt-
ir hjónanna Lárusar K. I. H.
Bjarnasonar, þá sýslumanns
þar, síðar hæstaréttardómara, og
konu hans, Elínar Pétursdóttur
Havstein, systur Hannesar Haf-
Stein ráðherra.
Jóhanna ólst upp hjá foreldrum
sínum í Stykkishólmi þar til
móðir hennar dó, árið 1899, og
síðan hjá föður sínum og flutt-
ist með honum til Reykjavíkur
érið 1908, þegar hann tók við
forstöðu lagaskólans. Um ferm-
ingU var hún látin fara í Mennta-
skólann og lauk hún gagnfræða-
prófi þaðan vorið 1913, en það
vor lauk ég stúdentsprófi frá
Menntaskólanum, og sömuleiðis
Páll Ólafsson, sonur Jóns Ólafs-
sonar skálds og ritstjóra, er síð-
ar kvæntist Jóhönnu (22. maí
1918), eftir að hafa lokið prófi
í tannlækningum í Ameríku.
Ég minnist þess að okkur skóla-
félögum Jóhönnu þótti hún táp-
mikil og glæsileg ung stúlka.
Veturinn 1916—17 stundaði
Jóhanna nám í Statens Telegraf-
skole í Kaupmannahöfn og lauk
þar prófi um vorið. Vann síðan
eitt ár í Landssímastöðinni í
Reykjavík þar til hún giftist, eins
og áður er sagt vorið 1918, Páli
Ólafssyni tannlækni. Eignuðust
þau 5 börn og eru 3 þeirra á
lífi: Gísli, forstjóri í Vátrygg
ingafélaginu h.f., Elín Helga, gift
Gísla Þorkelssyni, efnafræðingi
og Lára Kristiana, gift Jóhanni
Jakobssyni, efnafræðingi.
Sumarið 1933 missti Jóhanna
mann sinn og voru þá öll börn-
in í ómegð. Stóð hún þá uppi
með þungt heimili fyrirvinnu-
laust og sjálf óvön vinnu. Reyndi
nú á táp hennar og manndóm.
En lífsskoðun hennar var alla
tíð sú, að hverjum og einum bæri
skylda til að reyna að bjarga
sér og sínum, eftir því sem hann
hafði vit og krafta til, og þeirri
lífsskoðun var hún trú þegar
mest á reyndi. Hún rak tann
lækningastofu manns síns áfram
næsta vetur, og mun það hafa
hjálpað henni í þeim efnum, að
hún hafði stundum aðstoðað
mann sinn á stofunni, og var því
ekki ókunnug störfum þar. Eftir
það seldi hún stofuna og hafði
það fé, sem fyrir hana fékkst
til uppeldis og undirbúnings
undir síðari starfsemi. En þótt
erfitt væri á marga lund, leitaði
hún ekki styrks og sá heimili
sínu farborða á eigin spýtur.
Haustið 1937 sigldi hún til
Kaupmannahafnar með börnin
og gekk í kennaradeild Háskól
ans. Lauk hún vorið eft.ir prófi
í uppeldisfræði (sálarfræði) og
skrift og hélt síðan heim aftur.
Gerðist hún síðan skriftarkenn-
ari í Iðnskólanum og Gagnfræða-
'skóla Reykvíkinga, og hefur
kennt við þá skóla siðan, og
einnig lengst af við Samvinnu
skólann og einn vetur við Verzl-
unarskólann. Var hún í surriar
ráðin fastur kennari við Iðn-
skólann, en andaðist áður en hún
tæki við því embætti.
Jóhanna var ötul og sam
vizkusöm sem kennari og hafði
gott lag á nemenduifi sínum
Fannst þó sumum nemendum
annað nauðsynlegra, en að bæta
um skriftina sína. En þegar fór
að líða á námstímann og þeir
sáu hvílíkum stakkaskiptum
skriftin hafði tekið, voru þeir
henni þakklátir og þægir.
Jóhanna samdi árið 1947
kennslubók í teikniskrift, sem
Iðnskólann gaf út og hefur hún
verið notuð síðan.
Ég þakka henni ágæta við-
kynningu í 40 ár og samstarf í
16 ár, og mun æ minnast Jó-
hönnu sem heilsteyptrar konu
með heilbrigða lífsskoðun og
þróttmikla skapgerð.
Helgi H. Eiríksson.
HIÐ skyndilega andlát frú Jó-
hönnu Ólafsson kom okkur göml-
um vinum hennar á óvart, enda
Minning
hrakaði, en jafnframt var hún
sem fyrr stoð og stytta barna
sinna og barnabarna, og athvarf
vinum sínum.
Jóhanna var kona há vexti,
mjög fríð og göfugmannleg, varð
ung hvít fyrir hærum, svipmikil
og fyrirmannleg. Hún var ör í
lund, hreinlynd og ákveðin í
skoðunum og ákaflega örlát ,og
tryggð hennar þekkjum við bezt.
sem áttum vináttu hennar að
fagna um áratuga skeið. Hún
var ein af okkar göfugustu vin-
um.
Við munum því sakna hennar
sárt, en sárast þó ættfólk henn-
ar, börn, tengdabörn og barna-
börn, sem hún hugsaði um og
hlúði að hverja stund, allt til
hinnar síðustu.
Blessuð sé minning hennar.
E. M.
þótt við vissum, að hún hefði
um nokkur ár átt við vanheilsu
að stríða. Nokkrum klukku-
stundum áður höfðum við átt
tal við hana, hressa og létta í
skapi, er hún var að fara til
vinnu sinnar um kvöldið. Og
vinnu sinni lauk hún það kvöld-
ið, eins og ævinlega. En stundu
síðar var hún liðið lík. Við höfð-
um ráðgert að hittast næsta dag,
en þeir fundir urðu með öðrum
hætti en við höfðum vænzt.
En endurminningarnar lifa um
áratuga kynni og trygga vináttu.
Við minnumst hinnar ungu fögru
og tiginmannlegu stúlku, sem
ung giftist stórglæsilegum og
góðum manni, Páli Ólafssyni
tannlækni. Hvar sem þau komu
vöktu þau athygli með glæsileik
sínum, prúðmennsku og höfðings-
skap, eins og þau bæði áttu kyn
til. Þau voru samhent og vin-
sæl af öllum sem kynntust þeim
og lífið brosti við þeim.
En erfiðleikarnir komu og ung
að árum missti Jóhanna mann
sinn frá þremur ungum börnum
þeirra. En Jóhanna lét ekki bug-
ast. Hún harðnaði ævinlega við
hverja raun. Ættardugurinn sagði
til sín. Hún fór til útlanda og
á fertugsaldri settist hún á skóla-
bekk og lærði og tók próf í
skriftarkennslu og vann síðan
fyrir sér og börnum sínum með
kennslu og sýndi mikinn dugn-
að og óvenjulega skyldurækni í
starfi sínu. Börnin uxu upp og
komust til manns, giftust og
stofnuðu sín heimili, en Jóhanna
hélt áfram vinnu sinni með harð-
fylgi, enda þótt heilsu hennar
„Samlök herskála-
búa" ræöa um
raðhúsin
Allir verða ánægðir, ef
OXYDOL
er notað við þvottinn —
því þá verður tauið Ijómandi hreint.
Revnið því
FÆST ALLSSTAÐAR
AIR VVÍCK - MCK
Lykteyðandi — Lofthreinsandi
Undraefni
Njótið fcrska loftsins innan húss allt árið
NOTIÐ AIR-WICK — AIR WICK
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
• ■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■•■■■■■■■B■B■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■m »•*
: :
| Olíugeymar
Til sölu er olíugeymir, er liggur á Grandagarði. — ;
• r »
; Menn snúi sér til T. J. Júlíussonar, skipstjóra, á :
■
Z skrifstofu vorri, er gefur allar upplýsingar. —
■
■
: Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora eigi síðar en >
næstkomandi mánudag 4. október. ;
■
: :
. ■
m j •
j i Sjóvátrjjjpgarfélag Islands h.f.
FYRSTI fundur „samtaka her-
skálabúa" á þessum vetri var
haldinn i Breiðfirðingabúð mánu-
daginn 13. sept. 1954 og gengu í
félagið 80 nýjir meðlimir.
Á fundinum voru eftirfarandi
ályktanir samþykktar einróma:
1. „Fundur „Samtaka herskála-
búa“ haldinn 13. sept. 1954 skor-
ar á háttvirta bæjarstjórn Reykja
víkur að hafa afhendingar- og
greiðslukjör á raðhúsunum svo
hagkvæm, sem kostur er. Fund-
urinn telur, að hús þessi verði að
öðrum kosti algjörlega ofviða því
fólki, sem þau eru ætluð.“
Fundurinn skorar því á hátt-
virta bæjarstjórn Reykjavíkur:
a. Að krefjast engrar trygg-
ingar við afhendingu raðhúsanna.
b. Sjái hójttvirt bæjarstjórn sér
! ekki fært að afhenda húsin án
I þess að trygging sé sett, skorar
[fundurinn fastlega á bæjarstjóm-
I ina að hafa tryggingarupphæðina
sem lægsta.
c. Fundurinn beinir því til bæj-
arstjórnarinnar að taka bragga-
innréttingar gildar sem trygg-
ingu.
d. Fundurinn telur jafnframt
óhjákvæmilegt, að húsum þessum
fylgi smáíbúðalán og skorar á
borgarstjóra og bæjarstjórn að
fryggja slík lán ó húsin.
húsmæður nota því
ávallt OXYDOL
það gerir þvottinn tandur
hreinan og hlífir höndum
og horundi.
Til sölu í Gutunesi
er eftirfarandi:
Svartar pípur frá %” til 3”
Galv. pípur %” og ’A”
Plötujárn, ýmsar þykktir
U-járn og I-járn, ýmsar stærðir.
Áburðarverksmiðjan H.F.
Eími: 82000.
Sendisveinn
Duglegur og greinargóður piltur óskast til sendi-
og innheimtustarfa.
Almenna Byggingafélagið H.F.
Borgartúni 7
HUSNÆÐI _ JARNSMIÐI
«
•
: Húsnæðislaus járnsmiður vill ráða sig í vinnu hjá þeim,
• sem útvegað getur 2—3 herbergi og eldhús. Fyrirfram-
; greiðsla eftir samkomulagi. Er vanur verkstjórn og sjálf-
•
• stæðri vinnu. — Uppl. gefur Jón Ingimarsson, hdl.,
• Vitastíg 8A, sími 6205.
ATVINNA
; Duglegar og reglusamar stúlkur vantar nú þegar til
á afgreiðslu- og eldhússtarfa á veitingastofu í Keflavík.
; Gott kaup. Frítt fæði og húsnæði. Uppl. í síma
• 4288 í dag.
■«■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■
■ ■■•■■■■•■■■■■■■■■■■■•■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■p•■■■■■■■■•■■■■•> a■■■»•]
BAHMCI
S0YR
SÓSi!UfliE
Ileild ífölubirgðir
Sími 1—2—3—4
- Morgunblaðið með morgunkaffina