Morgunblaðið - 21.10.1954, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.10.1954, Blaðsíða 16
Veðurútlif í dag: Brcytileg átt og hægviðri. Skýjað. 241. tbl. — Fimmtudagur 21. október 1954. 300 úthaídsdagar togaranna. Sjá grein á bls. 9. Bezta atvinnubótin er kaup mýrra togara MAGNÚS JÓNSSON, þingmaður Eyfirðinga, kvaðst ekki sjá aðra leið líklegri til að bæta úr atvinnuörðugleikum ýmissa byggð- arlaga út um land en að styðja þau til að hefja eða auka útgerð logara. Kom þetta fram í ræðu hans í Sameinuðu þingi í gær, er rædd var þingsályktunartillaga frá þm. Sjálfstæðismanna á Vest- fjörðum. BEZTA ATVINNUBOTIN Hann gat þess að það væri að vísu erfitt að reka togarana, væri reksturshalli af þeim, eins og komið hefði greinilega í ljós nú 1 sumar. En samt er það stað- reynd að togaraútgerðin er víða hin mikilvægasta atvinnubót. ÓLAFSFJÖRÐUR OG DALVÍK VILDU SAMEIGINLEGA TOGARA .%. Magnús Jónsson miníitist þess að þegar nýsköpunartogurunum 10 var úthlutað hefðu Ölafsfjörð- ur og Dalvík sótt eftir að fá einn þeirra og boðið fram fulla byrj- unargreiðslu. Þetta hefði ekki verið talið fært. Aðrír hefðu feng ið togarana. ÞÝÐINGARMESTA RÁÐSTÖFUN En hann kvað þörfina fyrir togaraútgerð enn hina sömu í þessum bæjum. Þýðingar- mesta ráðstöfunin væri að rík- issjóður ábyrgðist kaup á tog- ara. Sú ráðstöfun kæmi og til greina víðar, ef ekki ætti að verða landauðn í sumum landshlutum. Gekk með fvö Eömb 140 m í Láfrabfargi Víð sfáírun komu h.u.b, 1 mörk mörs á móti hverju kíSéi kjöts fjárins Látrum, 20. október. SLÁTRUN á Látrum er nú lokið og var fé yfirleitt mjög vænt, er það kom af fjalli, og heimtur góðar. Var meðalþyngd dilka með bezta móti eða nokkuð yfir venjulega haustþyngd. TVÍLEMBINGAR SAMTALS 38 KG Það má í frásögur færa, að í fyrradag var slátrað hér tvílemb- ingum, gimbrarlömbum, sem vógu að skrokkvigt 17 og 20 kg. Mörinn úr annarri gimbrinni vóg 17 merkur, en úr hinni 15 merk- ur. Móðurinni var einnig slátrað og vóg hún að skrokkvigt 27 kg og mörinn úr henni 26 merkur. GENGU 140 M NIÐRI í LÁTRABJARGI Ær þessi var eign Þórðar Jóns- sonar bónda að Hvallátrum. Bar hún heima í vor, en var rekin á bjargið með öðru fé á sínum tíma með bæði lömbin. Er smalað var til réttar í haust sást kindin með bæði lömbin í Látrabjargi 140 metra fyrir neðan brún. Var hún látin' eiga sig þá í bili, því að augljóst var að síga þyrfti eftir henni og lömbunum. I HVANNGJÁ Þar, sem kindin gekk í bjarg- inu, heitir Hvanngjá og hafði hún aðsetur sitt í gjánni á svonefnd- um Hælavöllum. Komst hún ekki af þessum slóðum, en þar er beit góð. Er talið að hún hafi smám saman verið að bíta sig niður í bjargið, en aldrei getað snúið til baka. Eru þarna gróðurmiklar syllur og kjarnmikill gróður. SIGIÐ EFTIR KINDUNUM í fyrradag var gerður út leið- angur til þess að ná fénu úr bjarginu, og var sigið eftir því. Er aðstaða þarna öll fremur erf- ið sem gefur að skilja, en giftu- samlega tókst að ná ánni og lömbunum. ÞVÍ NÆR MÖRK MÖRS Á MÓTI 1 KG KJÖTS Látrabændur hafa gert það einstöku sinnum að flytja kindur á þennan stað á vorin, og hafa æfinlega komið þaðan afbragðs- dilkar. Þess eru þó varla dæmi að dilkar hafi dafnað svo vel þarna, að hver mörk mörs hafi komið á móti hverju kílói skrokkþyngd- ar, og þar að auki er hér um að ræða tvílembinga, sem sjaldan dafna eins vel og einlembingar. -r* Fréttaritari. Atkvæðin frá Akureyri talin í <lag? í GÆRKVÖLDI skýrði Kristján Sigurðsson, sóknarnefndarform. á Akureyri, blaðinu svo frá, að kjörseðlar fráprestskosningunum þar á sunnudaginn var, myndu verða sendir til biskupsskrifstof- unnar í Reykjavík, með flugvél í dag kl. 12,30 e.h., svo fremi flugveður verði. Kristján gat þess að kjörsókn hefði verið mjög góð, þegar þess er gætt að mikill fjöldi Akureyr- inga var fjarverandi úr bænum daginn sem kosningarnar fóru fram. T.d. voru allir togararnir úti á sjó og flest minni fiskiskip- in, áuk allmargra, sem farið hafa í atvinnuleit suður á Keflavíkur- flugvöll. Við prestkosningarnar greiddu alls 3088 manns atkvæði, en á kjörskrá voru 4555. Ef atkvæðakassinn kemst hing að til Reykjavíkur upp úr há- deginu, er sennilegt að úrslitin verði kunn í kvöld. „NHouche" í síðasta skipti í kvöld í KVÖLD hefyr Þjóðleikhúsið síðustu sýningu sína á óperett- unni Nitouche. Þessi skemmtilegi söngleikur hefur átt óskiptum vinsældum að fagna meðal Reyk- víkinga, eins og bezt má sjá af því, að ekki færri en 9 þúsund manns hafa séð hann síðan byrj- að var að sýna hann s.l. vor. Sýningin í kvöld hefst kl. 20 samkvæmt venju. Má búast við, að margir verði til að nota þetta síðasta tækifæri til að skemmta sér við að horfa á Nitouche. starfa hér í bæ HÉR í bænum er tekið til starfa, að Njálsgötu 40, sérstakt bílamat. Vill það verða mönnum til ráðu- neytis, er þeir ætla að gera kaup á notuðum bílum. Til þessa hef- ur slíkt verið undir kaupanda og seljanda komið og hafa oft orðið mála ferli út af slíkum bílakaup- um, er gallar hafa komið fram á bílnum í höndum hins nýja eig- anda. Með því að fá hlutlaust mat kunnáttumanna telja ráðá- menn fyTÍrtækisins síður hættu á að slíkir árekstrar eigi sér stað, milli kaupanda og seljanda. Hin nýja olíustöð að KIöpp. Innkeyrsla er fyrir 4 bifreiðar í smur- stöðina, og 4 tankar eru Skúlagötu megin. Stærsta smurstöð á landinu opnuð í gær Afgreiðir 6 bíia í senn — reynir nýju&fu tœkni KLUKKAN 6 í gærdag var stærsta smur- og benzínstöð landsins opnuð. Er það ný smurstöð BP við Skúlagötu. Opnaði benzín- ( stöðin með því að fylla tank bifreiðar ekkju Héðins Valdimarssonar, eins af aðalstofnendum Olíuverzlunar íslands. f dag tekur smur- 1 stöðin til starfa, en þar komast 4 bílar að í einu, auk tveggja við þvott (inni), bónun og ræstingu. Úti fyrir er rúm fyrir 20—30 bíla á þvottastæði, auk fjögurra við benzíntanka. Eru á þessari stöð teknar í notkun allar þær aðferðir, er beztar þekkjast við þjónustu við bifreiðaeigendur og stöð þessi á, hvað sumt snertir, enga sína líka hérlendis. OLÍUSTOÐIN A KLOPP Á svonefndri „Klöpp“ við Skúlagötu — þeirri er Klappar- stígur heitir eftir, hefur frá 1928 staðið þetta hús, sem nú glæsi- legasta smurstöð landsins. Það hefur löngum verið heldur óásjá- legt, kámað í olíu og girt hárri girðingu. Þar hafa nú miklar umbætur farið fram — girðingin tekin, húsið snyrt verulega að utan eftir teikningu Þórs Sand- holts arkitekts, og múrhúðað að innan og málað og breytt í hólf og gólf til bess að fullnægja kröfum nútímar.s um smur- og benzínstöð. SJALFVIRKAR VELAR Gólfflötur stöðvarinnar er tæpir 300 fermetrar, þar er því rúmgott og þó þar séu smurðir fjórir bílar í senn, er hávaðalaust þar inni, því vélar allar eru í kjallara — aðeins leiðslur upp, og því enginn hávaði og skot- hvellir í þrýstiloftspumpum og öðrum smurningstækjum eins og menn eiga að venjast. Niðri í kjallaranum eru tunnurnar og þrýstiloftsdæiurnar og leiðslurn- ar liggja upp og er hægt að fara með þær um allan salinn, en falla þar síðan sjálfkrafa niður um sitt op niður í kjallara eftir notkun, hverju sinni. ALLT ÞAÐ BEZTA Öllu er mjög haganlega fyrir komið. Þarna er snyrtiklefi fyrir viðskiptavini og þægileg biðstofa meðan þeir bíða eftir að bílar þeirra eru smurðir, fylltir, bón- aðir, þvegnir, eða hreinsaðir að innan. Hreinn Pálsson framkvæmda- sttjóri Olíuverziunar íslands sýndi blaðamönnum hina nýju stöð í gær. Við það tækifæri sagði hann, m. a. „í náinni framtíð tel ég hiklaust, að við bjóðum það bezta, er við vitum að í notkun er á Norðurlöndum og í New York. Ég veit ekki um neina þá nýjung, er máli skiptir, sem við ekki höfum tekið hér með í reikninginn við byggingu þessar- ar nýju stöðvar. í dag, er við opnum, bjóðum við upp á hið nýja og sterka benzín — 87 oct- ane í stað 79 áður — og full- nægir það öllum þeim kröfum, er til benzíns er sanngjarnt að gera“. ----o----- Og ekki verður því í móti mælt að stöð BB við Skúlagötu, er þægileg fyrir bifreiðaeigendur. Þar er veitt utanhúss auk ben- zíns að aðstöðu til þvotta og loft- töku góð aðstaða til að fá frostlög og hemlavökva. Innanhúss er öll þjónusta. veitt og öll tækni notuð j í því sambandi. Frá sjónarmiði þeirra, sem ekki eru bifreiða- eigendur, getur opnun þessarar stöðvar talizt nokkur viðburður líka, því að hér er um sanna bæj- arprýði að ræða, á götu þeirri, er við „föður Revkjavíkur1', Skúla Magnússon er kennd og verður sú gatá, ef áfram er á sömu braut haldið, og farin hefur verið, ein fegursta gata höfuðborgar ís- lands. Vissu ekki um eld- inn fyrr eu slökkvi starfið var hafið í FYRRINÓTT kviknaði í litlum timburkofa, serp stendur við Bók- hlöðustíginn neðanverðan. Litlar skemmdir urðu af völdum elds- ins. Kofi þessi hefur verið einn helzti samkomustaður ýmiskonar lausingjalýðs, er tíðum situr þar að drykkju. Ýmsum hefur þótt ástæða til að setja þessar hóp- drykkjur umrenninganna í sam- band við eiturlyfjasölu og nautn slíkra lyf ja. En ekki munu neinar sannanir fyrir því vera fyrirliggj- andi, enda mun drykkjulýðurinn tæpast hafa auraráð til slíks. Er slökkviliðsmenn og lögreglu menn komu að kofanum í fyrri- nótt var farið að loga í þgki hans. Þar inni sátu sex menn, og var enginn þeirra ölvaður. — Ekki höfðu þeir hugmynd um að kviknað væri í kofanum fyrr en slökkviliðsmenn og lögreglu- menn birtust í stærsta herberg- inu. Það er kynnt upp með ofni, sem stendur í því miðju. Frá röri hans hafði kviknað í. Enginn mannanna sex átti heima í skúrn um. Einn þeirra kvaðst hafa sofið þar nokkra undanfarna daga og hefðu hinir mennirnir fimm ver- ið sínir gestir. Nokkuð mun vera á reiki hver sé húsráðandi í kof- anum, en síðast hafði hann á leigu frá eigandanum, Sigurði Berndsen, atomskáldið Stefán Hörður Grímsson. Fékk tæpl. 120 þíís. mörk fyrir 175 tonn af nísa TOGARINN Röðull frá Hafnar- firði seldi í gærdag í Cux- haven 175 tonn af ísvörðum fiski, nær eingöngu upsa, fyrir 119,940 þýzk mörk. — Er þetta bezta salan, sem náðzt hefur í ár á Þýzkalandsmarkaðnum, að vísu er Akureyrartogarinn Harðbak- ur með hærri sölu, 123,000 mörk, en hann var með miklu meiri fisk. FISK VANTAR Markaðurinn í Þýzkalandi er hagstæður um þessar mundir, enda fiskþurrð, sem stafar m. a. af mjög tregum afla hér við land. — Aftur á móti er betra á Græn- landsmiðum og einstaka skip hafa fengið mikinn afla á skömm- um tíma. fjórir togarar, Surprise, Þorsteinn Ingólfsson, Jón forseti og Skúli Magnússon. Ódýrari leið yfir norðurpólinn FENEYJUM. — Alþ j óðasamband flugfélaga hefur fallizt á, að verð á farmiðum verði ódýrara á flug- leiðinni yfir norðurpólinn heldur en yfir Atlantshafið. Var þetta ákveðið á fundi í Feneyjum. AKUREYRI 23 SOLUFERÐIR Nú hafa ísl. togarar farið 23 söluferðir til Þýzkalands, á móti 10 um þetta leyti í fyrra. — Næst mun Austfirðingur selja þar, væntanlega á laugardaginn. — I næstu viku eiga að selja þar 8. REYKJAVÍK leikur Akureyringa: a7—a6. . i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.