Morgunblaðið - 24.10.1954, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 24. okt. 1954 ]
bíla á fundi annaB kmíú
FÉLAG ísl. bifreiðaeigenda hef-
ur ákveðið að efna á mánu-
•dagskvöldið til almenns fundar
bílaeigenda hér í bænum, til að
xæða skattamál bíla. — Telur fé-
lagið mjög alvarlega gengið á
hlut eigenda þeirra, einkum fólks
bíla. — Að almenningur geri sér
«kki ljóst að bílakaup og rekstur
etandi orðið allverulega undir að-
alatvinnugreinum þjóðarinnar. —
Telur félagið því hugmyndina um
frekari skattaálögur á bílaeigend-
ur með öllu óverjandi.
Fundur þessi verður haldinn í
Breiðfirðingabúð og hefst kl. 8.30.
Munu framsögu hafa í málinu
l>eir Aron Guðbrandsson og Sig-
xirður Helgason.
NÝR SKATTUR ÓVERJANDI
Stjórn Fl. ísl. bifreiðaeigenda
átti í gær fund með blaðamönn-
m, þar sem hún gerði stuttlega
grein fyrir skattaálögunum. —
lin fram er komið á Alþingi
írumvarp um 5 aura álag á ben-
zínlítrann er renna skal til brú-
arsjóðs. — Jafnvel þó benzín sé
lægra hér á landi, þá eru slíkar
tölur ekki sambærilegar, vegna
aðstæðna hér á landi. — Bílar
eru miklu dýrari í innkaupum,
benzíneyðslan margfalt meiri og
viðhald allt á okkar vegum, en
hinum steyptu vegum erlendis.
SKATTARNIR
Lagður hefur verið á fólksbíla
100% 'skattur vegna rekstrar tog-
aranna, á sama tíma sem jeppar
og vörubílar eru skattlausir. —1
Telur stjórn FÍB sjónarmiðið um
skattfrjálsa jeppa út í hött, því
þeir séu ekki vinnuvélar. Telur
félagið að skattleggja beri alla
bíla jafnt. k
Varahlutir í alla bíla eru með
60% bátagjaldeyrisálagi vegna
aðstoðar við bátaflotann. — Þá
|greiða bílaeigendur 35% dýrtíð-
argjald til niðurgreiðslu á land-
búnaðarvörum. — Þeir greiða ár-
lega hálfa milljón kr. til Ríkis-
útvarpsihs í afhotagjald fyrir bíl-
tækin og loks 35 aura vegáskatt
af hverjum benzínlítra, en það
er eini skatturinn sem bílaeig-
endur fá notið.
Þannig er skattamálum bíla-,
eigenda háttað, sagði stjórn Fél.
ísl. bifreiðaeigenda, og stjórnin
telur eðlilegt að félagsmönnum,'
sem eru um 1000 og utanfélags-
menn, sé kynnt þessi mál og því
boðað til fundar um þau.
Frú Guðrún Branborg og ís-
lenzka stndentoheimilið í 0slo
SÍÐAN stríðinu lauk, hafa marg-
ir íslenzkir námsmenn lagt
leið sína til Noregs, einkum til
Osló og sótt þangað margvíslega
kunnáttu bæði stúdentar og aðr-
ir. Er þangað gott að sækja fyrir
íslendinga, en þó hefur hin síðari
6r reynzt nokkuð dýrt að dvelj-
ast þar, enda örðugt um húsnæði
í Osló, eins og víðar á Norður-
löndum.
Um allmörg undanfarin ár hef-
ur frú Guðrún Brunborg frá Osló
Framh. af bls. 1
hafnar að Tindum. Sagði Helgi
svo frá að veruleg lyftistöng við
tilraunirnar væri, að samizt hefði
við Reykjavíkurbæ um kaup á
3000 tonnum af kolum til topp-
stöðvarinnar við Elliðaár, en
komið hefur í ljós af sýnishorn-
um er send hafa verið til Amer-
íku, að kolunum er auðveldlega
hægt að brenna í toppstöðinni.
HITAGILDI
Þessi íslenzkn kol er grafin
eru upp a3 Tindum, eru brún-
kol. Hitagildi þeirra er 4—5000
hitaeiningar per kíló. Til sam-
anburðar má geta þess, að
hitagildi hinna brezku
kola, er hingað hafa verið
flutt er 7000 hitaeiningar per
kíló. fsienzku brúnkolin eru
svört ásýndum og mjög lík
hinum brezku kolum. Boranir
hafa sýnt að þar vestra liggja
þau í tveimur lögum og þykir
mjög sermilegt, að lögin séu
það breið að vinnsla borgi sig,
Milli þessarar tveggja laga er
leirlag. Það er nú grafið út
með kolalögunum og hreinsað
frá er upp á yfirborð jarðar
kemur.
ÁRANGUR KEMIJR í VOR
Þessar tiiraunir, sem gera út
um það, hvort stórvinnsla verður
hafin eða ekki, munu standa í
vetur, að líkindum með smáhléi
yfir háveturinn vegna þess að
erfitt er að leggjast þar að og
flytja kolin á brott. Að sjálfsögðu
hefði ekki verið út í þessar til-
raunir lágt, ef líkur þættu ekki
benda til að möguleikar yrðu á
stórvinnslu — en bað verður þó
eklý fullreynt fyrr en í vor.
unnið að því að koma upp styrkt-
arsjóði fyrir íslenzka stúdenta í
Noregí og norska stúdenta hér og
orðið vel ágengt. Síðasta afrek
hennar í þessum málum er að
festa kaup á 10 íbúðarherbergj-
um í stúdentagarði í Osló handa
íslenzkum stúdentum. Er hér í
mikið ráðizt, enda er þetta mikið
hagræði fyrir íslenzka náms-
menn. Frú Guðfún er nú stödd í
Reykjavík og sýnir kvikmyndir,
en allur ágóðinn af sýningum
þessum gengur til greiðslu á and-
virði þessara herbergja. Enn-
fremur hefur hún í sama skyni
látið prenta bókina Frumskógur
og íshaf eftir Per Höst, í þýðingu
Hjartar Halldórssonar, ágætt rit
að allra dómi og fagurlega prent-
að. .
Þessar línur eru ritaðar í því
skyni að vekja athygli á starfi
frú Guðrúnar og hvetja menn til
að gefa því gaurn. Bezt verður
henni launað með því að kaupa
bók hennar og sækja myndasýn-
ingarnar, en um leið og menn
gera það, veita þeir sjálfum sér
góða skemmtun og styðja mál-
efni, sem varðar hag íslenzkra
námsmanna í Noregi um alla
framtíð.
Þorkell Jóhannesson.
Dagur Sameinuðu
þjóðanna
Ávarp Dag Hammar-
skjöld aðalritara
S. Þ.
EGAR vér höldum þjóðhátíð
þá gerum vér það venjulega 1
til þess að hugfesta minningu um
atburð, er markar tímamót í sögu
fósturjarðarinnar. Slíkir atburð- j
ir eru valdir með ýmsu móti, en
jafnan verður það fyrr eða síðar
sjálfur dagurinn, sem verður ein-
ingartákn þjóðarinnar, dagur
helgaður umhugsun um það, sem
fyrr hefur við borið, og bolla-
leggingum um framtíðina. I
í dag er haldinn annars konar
hátíðardagur — dagur Samein-
uðu þjóðanna. Sá dagur hefur
enn eigi f engið í meðvitund
manna sama hátíðablæ og þjóð-
hátíðardagurinn. Stofnskrá Sam- 1
einuðu þjóðanna er aðeins níu
ára gömul. En að sínu leyti er
þessi dagur einnig þjóðhátiðar-1
dagur — sameiginlegur öllum |
þjóðum. Hann er tákn um sam-
stöðu lands vors með öðrum
löndum, um það hversu þjóðir
heims eru hver annari tengdar.
Dagur Sameinuðu þjóðanna1
markar söguieg tímamót. Sam- !
tök Sameinuðu þjóðanna urðu til,
í • lok hræðilegustu styrjaldar,
sem í heiminum hafði geisað. Á
meðan stofnskráin hlaut fullgild-
ingu hvers ríkisins á fætur öðru,
kom fyrsta kjarnorkusprengjan
fram og með henni möguleikji á
útrýmingu allraf siðmenningar.
Á degi Sameinuðu þjóðanna sam-
einast allar þjóðir um þá ósk,
að ávöxtur mannlegrar snilli og
sköpunargáfu verði hagnýttur í
þágu lífsins en ekki eyðilegging-
arinnar.
Sameinuðu þjóðirnar — ég á
við samtökin sjálf — eru ekki
fullkomnar. Þær standa til bóta.
Stofnskráin hefur einnig sína
galla. Hún stendur einnig til
bóta. En sjálf hugsjónin um sam-
starf allra þjóða heims — sú
hugsjón, er um aldir hefur vak-
að sem lokamark á leið mann-
kynsins frá villimennsku til
menningar — hún er nú loks að
.verða að veruleika. Vér skulum
því efla samtökin til þeirra átaka,
er vér helzt kjósum — að efla
samstarf allra þjóða fyrir friði
og hagsæld.
Það er skylda vor á því tíunda
starfsári Sameinuðu þjóðanna,
sem nú er að hefjast, að stefna
að innilegri og vinsamlegri sam-
skiptum allra þjóða. Vér skulum
því halda þennan dag Samein-
uðu þjóðanna hátíðlegan með
sama hætti og þióðhátíðardaginn
— sem tákn sameiginlegrar menn
ingar mannkynsins, landvinninga
hennar á liðnum öldum og vona
þeirra, er vér bindum við ókom-
in ár.
Dag Hammarskjöld.
— Háskólahátíðin
Framh. af bls. 1
voru m.a. þrjár nýjar deildir
stofnaðar við skólann, viðskipta-
fræðideild, verkfræðideild og
BA-deild.
„Góðvild, bjartsýni, dugn-
aður og óbilandi áræði hafa
einkennt öll hans störf fyrir
Háskólann“, sagði dr. Þorkell.
KENNARALIÐ
Nokkrar breytingar hafa orðið
á kennaraliði skólans á liðnu há-
skólaári. Að undangengnu bisk-
upskjöri var próf. Ásmundur Guð
mundsson skipaður biskup ís-
lands frá 1. febr. 1954, Þórir Kr.
Þórðarson, cand. theol, var skip-
aður dósent við guðfræðideild-
ina 1. okt. — Þakkaði rektör dr.
Ásmundi Guðmundssyni fyrir
langt og vel unnið starf, en hann
hefur gegnt störfum við skólann
í fjórðung aldar. Theodór Lín-
dal, hdl., var skipaður prófessor
í lögfræði 1. júní 1954, en hann
hefur kennt við deildina frá því
árið 1942.
Tveir háskólakennarar dvelj-
ast erlendis, þeir próf. Ármann
Snævarr og próf. Leifur Ásgeirs-
son. Fyrir Leif er ráðinn próf.
Bjarni Jónsson frá Brown Uni-
versity, Rhode Island, Bandaríkj-
unum. í lögfræðideild kenna í
vetur vegna Ármanns Snævarrs
þeir dr. Þórður Eyjólfsson, for-
seti Hæstaréttar og cand. jur.
Vilhjálmur Jónsson.
Dr. med. Sigurður Samúelsson
hefur verið settur til kennslu í
læknadeild fýrst um sinn vegna
veikindaforfalla próf. Jóhanns
Sæmundssonar.
Þá rakti rektor hverjir sendi-
kennarar erlendir störfUðu við
skólann, þeir sömu og í fyrra og
minntist þeirra gesta, sem við
Háskólann hefðu flutt fyrirlestra
Þrjár Seiteýiiiiipr
um helgar
NÝUNG Leikfélagsins um laug-
ardagssýningar mæltist vel fyrir;
! var troðfullt hús áhorfenda á
! fyrstu sýningunni í gær, en þá
var Frænka Charleys sýnd í 41.
; sinn. í sambandi við laugardags-
! sýningar félagsins kl. 5 er rétt
! að vekja athygli á því, að með
þeim skapast möguleikar fyrir
utanbæjarmenn, sem hafa við-
dvöl í bænum um helgar, að sjá
þrjár leiksýningar, því að sýn-
ingar Leikfélagsins eru úti fyrir
kl. 8, en þá hefjast sýningar í
Þjóðleikhúsinu, síðan er um tvær
sýningar að velja hjá leikhúsun- !
um á sunnudagskvöldum.
Blaðamannafétegið
Munið fundinn á Hótel Borg
kþ 1.30 í dag.
Kvikmyndasýningar
fyrir börn
í DAG SÝNIR frú Guðrún
Brunborg, hinar vinsælu barna-
kvikmyndir sínar í Nýja Bíói, kl.
3. Myndirnar eru Marianne á
sjúkrahúsinu, og Friðrik fiðlung-
ur. Hin síðarnefnda er mjög
skemmtileg barna og unglinga-
mynd, og raunar einnig fyrir
fullorðna, Leikendurnir í kvik-
myndinni eru eintómar brúður.
Ættu foreldrar ekki að láta hjá
líða að leyfa börnum sínum að
sjá hið skemmtilega og um leið
fræðandi „program“ frú Brun-
borg, en óvíst er hve sýningarnar
verða margar. Aukamynd með
Marianne á sjúkrahúsinu, er
dýralíf á botni Óslófjarðar, íit-
kvikmynd mjög falleg dg- Vel
tej^n.
ORÐABÓKINA SKORTIR FE
Drap hann og á útgáfustarfsemi
Háskólans, og þó einkum á orða-
bókina, sem Háskólinn hefur kost
að til hálfs á undanförnum árum
á móti ríkissjóði. Eru nú 10 ár
síðan skólinn veitti fyrstu fjár-
veitingu til verksins og hafa þrír
menn unnið við það að staðaldri.
Hafa alls verið veittar 75.000 kr.
til verksins. Hinsvegar er nú sýnt,
að fjárveitingin til verksins er
allt of lítil og brýn nauðsyn að
úr verði bætt. Kvað rektor orða-
bókarsamninguna merkasta verk,
sem nú er unnið varðandi íslenzk
fræði og þjóðmenningu, verk,
sem ekki er unnið til dundurs fá-
einum lær§um mönnum, grúsk-
urum eða sérvitringum, heldur
verk, sem verða mun öllum al-
menningi þessa lands sístreym-
andi fróðleiks- og menntunarlind
um alla framtíð.
NÝ HÁSKÓLABYGGING
Húsakostur Háskólans er þeg-
ar orðinn of lítill og sérstaklega
vantar stofur fyrir verklegar æf-
ingar og ýmis kennslutæki.
Er því ljóst, að hef jast verð-
ur brátt handa um stækkun
Háskólans og kæmi þá helzt
til greina að byggja nýtt hús
fyrir læknadeildina. Yrði því
að líkindum valinn staður í
nánd við Landspítalann.
Næst liggur þó fyrir að byggja
náttúrugripasafn á háskólalóð-
inni, en að þeirri framkvæmd
lokinni verður hafizt handa um
stækkun sjálfs Háskólans.
Þá minntist rektor á endur-
skoðun á reglugerð og lögum um
Háskóla íslands, sem nú stendur
yfir og verður væntanlega lokið
á næsta ári. Frumvarp liggur nú
fyrir þingi um fjölgun prófessora
í læknadeild, en skólinn hefur
verið mjög illa settur á undan-
förnum árum með prófessora-
jkost.
DOKTORSKJÖR
Þá lýsti dr. Einar Ólafur Sveins
sOn, forseti heirhSpekideildar,
4oktorskjöri. Hefur deildin sæmt
Árna Friðriksson ma. scient. nafn
bótinni dr. phil. h.c. Er sagt frá
doktorsútnefningunni nánar á
öðrum stað hér í blaðinu í dag.
Að því loknu tók rektor aftur
til máls og ávarpaði nýstúdenta.
Kvaðst hann vonast til þess aS
þeir hefðu valið rétta leið til þess
að feta í framtíðinni, eða a.m.k.
færa leið. Takmarkið, sem fram-
undan væri, væri það að ná svo
föstum tökum á höfuð námsefn-
inu, sérfræðinni, að hver og einn
geti að námi loknu orðið liðtæk-
ir, góðir og gildir starfsmenn í
þjóðfélaginu, hver í sinni grein.
Þá ræddi rektor nokkuð um
akademiskt frelsi, sem hann
kvað í meira lagi óskýrt hugtak.
Sumir héldu, að í því væri það
eitt fólgið að fylgjast illa með
kennslunni og slá slöku við nám-
ið, eftir eigin vild og geðþótta.
Vart mætti við þá skýringu una.
Hann kvaðst ætla að hugtakið
akademiskt frelsi væri fram kom-
ið til að tákna breytinguna á
námstilhöguninni í menntaskól-
unum, skyldunámsgreinunum, og
frelsið til að velja sér námsefni
og skipta um það I Háskóla. 1
Háskólanámið krefst vinnu,
sem ekki verður af höndum leyst
nema með ítrustu reglusemi og
ástundun. En þjóðin þarf á að
halda mönnum með fjölþætta
menntun, auk sérfræðinnar.
Skefjalaus efnishyggja og ströng
sérhæfing er e.t.v. eitt mesta
mein nútímans. Iðkið því bók-
menntir, listir og þjóðleg fræði í
frístundum ykkar, sagði rektor.
í litlu þjóðfélagi, sem okkar,
þarf hver maður í rauninni að
vera margir menn. Engin þjóð á
að gera ríkari kröfur um mann-
dóm í öllum greinum til sona
sinna og dætra en íslenzka þjóð-
in.
Minnist þess, að þið eruð hing-
að komin til þess, ef svo mætti
verða, að geta því betur innt af
höndum skyldur ykkar við ætt-
jörðina. Verið viðbúin.
Það er mín síðasta ósk til ykk-
ar hér í dag, sagði rektor að lok-
um.
Þá fékk hann nýstúdentum há-
skólaborgarabréf sín, og fór sú
athöfn nú í langan tíma í fyrsta
sinn fram í hátíðasal.
í haust hafa 170 nýir stúdentar
innritast í Háskólann og skiptast
þeir þannig milli deilda. Guð-
fræðideild 9, Læknadeild 37, lög-
fræðideild 11, Viðskiptafræði-
deild 26, Heimspekideild 77 og
V erkf ræðideild 10.
Alls stunda um 750 stúdentaf
nám við Háskólann í vetur.
Kveð jiilióf fyrir
Jón Arnason,
bankastjóra
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ hél«
bankaráð Landsbanka íslandS
kveðjuhóf fyrir Jón Árnasoií
bankastjóra, sem nú er á förum;
vestur um haf, til að taka uppi
störf sem bankastjóri við Alþjóðíl
bankann.
Hóf þetta, sem fram fór í Þjóð-*
leikhúskjallaranum, sóttu um 200!
manns, ráðherra, samstarfsmenrí
hans í bankanum og viðskiptalíf-
inu og vinir.
Magnús Jónsson formaðull
bankaráðs hélt stutta ræðu fyrif
minni Jóns Árnasonar og þakkaðf
honum 27 ára starf í þágu bank-
ans, en hann hefur verið for-
maður bankaráðs og bankastjórL
Einnig hélt Ingólfur Jónssorí
bankamálaráðherra ræðu, og gat
um þann mikla heiður, sem ís-
landi væri sýndur með því, að
Islendingur tæki nú við störfurn
bankastjóra Alþjóðabankans f
Washington. — Forsætisráðherra
mælti fyrir minni frú Sigríðaf
Björnsdóttur.
Að lokum þakkaði Jón Árna-
son með nokkrum orðum. J
uitiULitiiíiJtsíimii