Morgunblaðið - 16.11.1954, Side 7
Þriðjudagur 16. nóv. 1954
MORGUNBLAÐIÐ
7
Ræða liunnars GMnnarssonar
Framh. af bls. 2
inberun andans helga í göfug-
asta holdi heims, sem varð
reikulu mannkyni náðargjöfin
mesta, enda nýtur þess heið-
urs, að vera svívirt alveg sér-
staklega af manndýrkendum
myrkviðarins villigjarna, þar
sem haldin er til sálubóta sí-
sýning á holdgoðum: vesölum
líkamsleifum andvana afvega-
leiðenda. Kenningar smurð-
linganna við Kremlarmúra
hafa sem sé skákað guðspjöll-
unum um set, ekki einu sinni
almættið þolir samanburð við
þá Stalín og Lenín.
Hvernig mundi yður lítast á
góðir hálsar, að eiga fúavarið j
hold Jóns forseta í grafhýsi á
Austurvelli, í staðinn fyrir eir-
líkneskið? Ætli það væri ekki'
einhver munur. Víst væri það
munur: munur sá, er skil-
Ur á milli menningar og villi-
mennsku. Ef svo ólíklega skyldi
fara, að maður af íslenzku kyni
yrði með tíð og tíma álíka um-
bunar aðnjótandi, má sá hinn
eami hrósa happi, að Snorri j
Sturluson er genginn. Lýsingin á j
því, er Haraldur konungur lét
smyrja og hafði sér áfram til |
augnagamans Snæfríði ástvinu i
sína andvana, þangað til Þorleifi
Bpaka tókst að koma fyrir hann I
Vitinu, hermir svo glögglega frá'
Um hug söguritarans, að enginn1
fær um villzt. Þar koma fram eðli I
leg viðbrögð norræns anda gegn!
athæfi, er mundi vekia undrun í i
Bvæluskógum suðurhvelsins,!
hvað þá svalara loftslagi.
En það er fleira en smurð-1
Jingafarganið, er vekja hlýtur ugg 1
um, að vel mætti svo fara, að
ekki aðeins mannsandinn, heldur
og sá andi heilagur, er mannkyn.
inu hefur verið fyrir trúað, kynni
ófyrirsynju að lúta í lægra haldi.
Tækni og menning eru gerólík
hugtök, og enda oft hvort öðru
fjandsamleg, sem þegar var lítil-
lega að vikið. Eitt af bókmennta-
afrekum allra tíma, Fást, eftir
Goethe, fjallar um vandann, er af i
því rís, að leysa úr læðingi öfl, '
Bem siðmenningin er ekki kominn ,
á nógu hátt stig til að ráða fylli-
lega við. Tæknitilbeiðslan mætti i
Vel verða mannkyninu annar við- j
Bjálasti óvinurinn; hættan er ekki
afmáð með því að loka augunum
fyrir henni, því síður með því að
leggja hendur í-skaut.
SIÐFRÆDI KOMMÚNISTA:
SÖKKTU ÞÉR í FENEÐ OG
FAÐMAÐU BÖDULINN
Það þarf ekki annað en bera
Vestræna menningu, með öllum
hennar annmörkum, lauslega
Eaman við siðfræði kommúnista
til að átta sig á því, að sæluríkið
eystra þar er sjónhverfingar ein-
ar, svo að hógværlega sé að orði
kveðið.
Flóttamannastraumurinn úr
öllum Ráðstjórnarríkjunum,
fyrirbæri, er varla gefur eftir
þjóðfiutningum myrkustu mið
alda, nema síður sé, sýnir
ómótmælanlega að vankunn-
andi fólk afþakkar sovétham-
ingjuna unnvörpum, nema því
sé varnað þess með vopnavaldi
og enda þótt.
Kommúnistar eru þeir mann-
Vinir, að þeir vilja ólíkt heldur
Vita menn undir sverði en utan
tjalds. Margir þeir, sem af ein-
hverjum ástæðum vilja eða geta
Ekki yfirgefið heimkynni sín,
draga enga dul á það í viðræðum
Við menn, er þeir treysta, að þeir
vonsviknir eða vonlausir bíði þess
eins, að dauðinn leysi þa undan
ánauð og óyndi, sem engin fær
leið er til að fjarlægjast. Enda
þótt sól skíni í heiði austan tjalds
sem annars staðar, þá er svo viðr-
ar, mun flestum farið sem Axlar-
Birni, að þeim sýnist sólarlitlir
dagar í landi, þar sem ein aðal-
dyggðin er að ljósta upp um for-
eldra og aðra ástvini, og aðal-
markmiðið iðkan tvíhyggju. Smá-
borgaraleg sjónarmið hvers kon-
ar eiga og verða að víkja fyrir
tryggðinni við flokkinn, eina sálu
hjálparatriðinu, gerviflokkinn,
er siglir undir fölsku flaggi al-
þj óðasósíalisma.
Undir ógnarvaldi Ráðstjórnar-
ríkjanna er vináttuþörf grunsam-
legt fyrirbæri. Og að mönnum
beri, þar sem annars staðar, að
skilgreina fyrir sjálfum sér og
öðrum skoðanir sínar, og segja
rétt frá staðreyndum, er fordæmt
sem hégilja.
Öfugt við staðreyndir á ekki
að skýra, heldur burtskýra eða
eyða því hjali að öðrum kosti.
Koestler segir frá því í síðustu
bók sinni, hversu örðugþræddir
honum reyndust krákustígarnir
sitt á hvað; öðru máli gegndi um
Bert Brecht, félaga hans. Eink-
unnarorð Brechts segir hann
verið hafa og vera enn í dag:
„Sökktu þér í fenið og faðmaðu
böðulinn!“ Engum skyldi blöskra
slík óheyrileg orð í umhverfi,
þar sem lýgin er til hásætis leidd
blygðunarlaust og látin þjóna
sýndarhugsjónum, en viðsjárverð
asta kennisetning fornaldar til
vegsemdar hafin, sú, að til-
gangurinn helgi meðalið.
FÖGNUÐUR ER ÁTTI SÉR
SKAMMAN ALDUR
Vér erum enn nokkur ofan
foldar, sem munum þá tíð, að
telja mátti Rússland til vest-
rænnar menningar, að vísu ekki
að stjórnarháttum, alþýða manna
var þrælkúguð og þó ekki sem
nú. En á ísbreiðu tsarveldisins
þróuðust listir, einkum áttu
Rússar ódauðleg skáld; bókmennt
ir þeirra báru um hríð ægishjálm
yfir Vesturálfu og víðar þó. Það
var meira að segja hægt að und-
irbúa byltingu, sem um munaði.
Samúðin með rússnesku þjóð-
inni var svo einiæg og almenn,
að það vakti alheimsfögnuð, þá
er loks fjötrarnir hrukku af þjóð,
er mun hafa verið mörgum list-
unnanda kærkomnari en flestar
aðrar. Sá fögnuður átti sér að
vísu skamman aldur. Skugga brá
á, er séð varð, að tsarveidinu
mundi drekkt í blóðflóði því, er
var látið fossa í skírnarfont al-
ræðis öreiganna. Sem þó aðeins
átti að verða stundarfyrirbrigði.
Skuggi sá varð síðar að ægi-
myrkri, sem eldmgar gerræðisins
eru nær einar um að rjúfa. Vest-
rænum áhrifum og menningu hef-
ur Rússlahd hið héilaga, eins og
það stundum var kallað síðan,
verið lokað land, enda listir og
bókmenntir ördeyða.
HVENÆR VERÐUR ÖLL
SAGAN SÖGD
Óvinir rússnesku þjóðarinnar
verða þó engir fundnir vestan
tjalds. Ekki vestan tjalds. Hver
heilvita maður með nokkurn
snefil af þekkingu, lífsreynzlu og
heilbrigðum tilfinningum ann
Rússum fyrir afrek þeirra .hin
fornu, en þeim lauk á flestum
sviðum m^ð byltingunni. og af
öllum dögum bíður hann þess
heilladags með einna mestri
óþreyju, er þeim lánast að hrista
af sér okið og mæta öðrum þjóð-
um alfrjálsir og sem bróðir bróð-
ur.
Þá fyrst verður hægt að
segja sanna sögu af ofbeldis-
seggjunum, er létu sér svo
annt um Öreigana og annað
vérkafólk, að þeir óðfúsir
léítu af þeim öllu ómaki, nema
erfiðisvinnunni. Haná þyngclu
þeir aftur á móti svo um mun-
ar. Og verkfallsréttinn, sem
þeir áfergastir allra heimta og
skaðnota ''estan tjalds, gerðu
þeir sér lítið fyrir og innbvrtu.
Eystra þar er hyskni hvers
konar talin skemmdarstarf-
semi eg jjeir menn þrælkaðir,
er skila ekki fyllstu afköstum
og heízt ofurlítið framyfir það.
Stundum er þeim styttur ald-
ur.
Að til skuli vera frjálsir ís-
lenzkir verkamenn, er láti blind-
ast af fagurgala, sem á sér eng-
an stað í neinum raunhæfum
veruleika, láta teymast á eyrun-
um af tyllivon, ber óneitanlega
vitni um gáfnakröm, sem þó von-
andi er ekki ólæknandi.
ÓGURI EGT FALL AF ÆÐRA
STIGI Á LÆGRA
Kommúnisminn, eins og
hann er starfræktur austan
tjalds, hefur reynzt þjóðum
þeim, sem honum hefur tekizt
að sölsa undir sig og enn sem
óðast er önnum kafinn við að
sölsa undir sig, ógurlegt fall
af æðra stigi á lægra, enda
ásamt með öðru gerræði svart-
asta afturhaldið. sem skotið
hefur upp kolli síðan sögur
fara af og eitt hið illvígasta,
undirförulasta og viðsjárverð-
asta. Sem betur fer mun hann
aldrei geta sigrað allan hnött-
inn af eigin rammleik.
Hingað til hefur hann aðeins
unnið á og mun framv^gis því
aðeins ná undirtökunum, að veilt
sé fyrir eða rotið, með öðrum
orðum: aðeins þar, sem hann
fyrir andvaraleysi andstæðing-
anna, heigulskap eða hörmung-
arástand kemur við valdbeitingu
ofstopans.
Sé hugsjónum frelsis, mann-
helgi og mannúðar þjónað af al-
uð og þær í heiðri haldnar, þarf
enginn að óttast né örvænta, þó
því aðeins, að fyrir hendi sé ör-
ugg fylking að mæta með árás-
arliðinu og enginn bilbugur á
viljanum til verndar einföldustu
mannréttindum, en þau eru oss
Vestmönnum jafn ómissandi og
andrúmsloftið, er vér fyllum með
lungu vor.
„FRÍSARSÓKN“
KOMMÚNISTA
Hættulegastur er björninn, þá
er hann bregður á sig skrýfðri
sauðargæru sakleysis og friðar.
Hins vegar geta kommúnistar
stundum verið fyndnir, svo gam-
an sé að, svo sem þá er Vishinsky
nýverið reyndi að telja heimin-
um trú um, að Ráðstjórnin ætti
alls enga hlutdeild að kalda stríð-
inu né öðrum alþjóðaskráveifum,
þeir væru þar fórnarlambið.
Ilættulegir eru kommúnistar
þó sérstaklega. er þeir taka oss
undurbl-tt við hönd sér á förn-
um vegi og bjóða oss friðsamlega
sambúð skógargöturnar fram.
Friðsamlega sambúð er sjálfsagt
að rækja, enda stendur ekki á
Iýðræðisríkjunum í þvi efni. Hér
að vestan mun aldrei árásar að
vænta, meðal annars vegna þess,
að árás fengi aldrei fylgi frið-
elskandi þjóða vesíursins. Þessu
treysta Rússar, þótt þeir telji sér
henta, að láta annað í veðri vaka.
Um hug Ráðstjórnarinnar er
hins vegar öruggastrar fræðslu
að leita og hún ekki vandfundin
í guðspjallum smurðlinganna.
Manuilsky gat vitnað bæði í
Lenín og Stalín, er hann árið
1930 talaði yfir lærisveinum Len-
ínskólans í stjórnmálaværingum
sem hér segir:
,.í áiökunum milli kommún-
isma og auðvalds" — þannig
skýrgreina þeir alla stjórnar-
hætti utan sovétskipulagsins
— „er óhjákvæmilegt að fvrr
eða síðar sverfi til stáls. Það
getur varla gerzí fyrr en eftir
ein 20—30 ár. Sicuirven cigum
vér því aðeins, að oss takist að
koma óvininum á óvart. Vér
verðum að svæfa borgara-
stéttina. Það munum vér gera
þann veg, að hleypa af stokk-
unum mestu friðarsókn. er um
getur. Mun þá rísa hrifningar-
alda, og í hinu og þessu hljót-
um vér áð hliðra til. Auðvalds-
ríkin, rotin og sauðheimsk,
munu hlakkandi samstarfa
oss við eýðiieggingu sjálfra
sín. Þeim er tamt að fagna
hverju vinarhóti. En um leið
og slakað er á vörnunum,
munum vér láta reiddan hnefa
mala þau mjölinu smærra.“
FJALLRÆÐAN EÐA
FEIGÐARGALDRAR GERRÆÐ-
IS OG GRIMMDARÆBIS
Þetta, góðir íslendingar, er
trúarsetningin æðsta og ófrávíkj-
anlegasta. Það mun hver sá sár-
lega reyna og þó um seinan, er
skortir vit eða afl til varnar.
Leiðin til mannsæmandi sam-
starfs og samstjórnar á hnetti
vorum liggur áreiðanlega ekki
um myrkvið kommúnismans. I
ævintýri þeirra Grimmsbræðra
gleypti úifurinn Rauðhettu litlu,
en það undur skeði, að bæði hún
og amman björguðust óskemmd-
ar, er ger var kviðrista á óarga-
dýrinu. Meltingarstarfsemi bjarn
ar kynni að reynast drýgri en
úlfs, og óráðlegt að treysta end-
urlífgun, sé í vömbina komið.
Eins og raunar dæmni sanna. Trú
arsetningin, sem höfð var vfir
áðan, ætti að vera ekki síður
lesbókarefni yrigstu skólabörnum
þjóðarinnar, ríkisfræddum, en
níðkvæðið um Leif Ingólfsbróður
með viðlaginu: drepum! — drep-
um!
Af hvoru tveggja og mörgu,
sem hér verður að láta ótalfS,
ætti það að vera öllum meðal-
gáfuðum mönnum ljóst, að'
kommúnisminn engan veginn.
er sú alheimssól, er þeir sjálf-
ir vilja vera Iáta, heldur ditmn
ur hnöttur, næturvaði, en
gerviljósið afskaplega óábyggi
legt: tunglfylling og tungl-
hvörf fara algerlega eftir
hentugleikum.
Enginn, sem eitt sinn hefur
áttað sig á því, mun tilleiðan-
legur að láta Fjallræðuna í
skiptum fyrir feigðargaldra
þeirra manna, sem á vorum
dögum öllum öðrum fremur
eru haldnir ergi gerræðis og
grimmdaræðis.
Gunnar Gunnarsson.
Háskálafyrirlestur um
skáldið Charles Peguy
NÆSTK. fimmtudag kl. 6.15 MIKIL ÁHRIF í FRAKKLANDI
mun sendikennarinn í írönsku
við Háskólann, ungfrú Margue-
rite Delahaye halda fyrirlestur í
fyrstu kennslustofu háskóians um
franska rithöfundinn Charles
Péguy, (1873—1914).
Péguy og verk hans hafa, sér-
staklega á síðari árum notið
óskipts og vaxandi álits og virð-
ingar í Frakklandi, ekki sízt
innan kaþólsku kirkjunnar, eem
tekið hefir hann í helgra manna
tölu, enda markaðist líf Péguys
og verk þau, sem eftir hann
liggja af hinni djúpkristnu trú-
arskoðun hans.
AF FÁTÆKU ALÞÝÐUFÓLKI
Charles Péguy fæddist árið
1873 í borginni Orléans af fátækri
alþýðufjölskyldu og var alþýðu-
maður alla ævi, enda þótt hann
sem ungur maður hlyti meiri
menntun en 'gerist um alþýðu-
fólk, fyrst í menntaskóla og síð-
ar kennaraháskóla.
Um skeið var hann ákafur
sósíalisti — og trúlaus en snéri
síðan aftur til hinnar kristnu
lífsskoðunar, sem hann hafði ali/.t
upp við. — Hann barðist kröftug-
lega fyrir málstað Dreyfusar í
Dreyfusarmálinu fræga og stofn-
aði á þeim árum (1900) tímarit-
sitt „Cahiers de la Quinzaine“
þar sem hann og vinir hans og
sámherjar settu fram :frjálst og-
óliikað skoðanir sínar um ýmis
vandamál og viðhorf samtíðar j
sinnar. Þessi útgáfustarfsemi |
Péguys hafði hækistöð sina í |
Rue des Ecoles, beint á móti
Sor'oonne-háskólanum, en Péguy
fór ekki dult með andúð sína á
kerinisetningum þeim og heim-
spekistefnum sem þessi forna
menntastofnun var forsvari fyrir.
I þessu riti Péguys birti hann
sín helztu verk í bundnu og ó-
bundnu máli, auk þess sem
raddir margra hinna merkustu
samtiðarmanna meðal rithöfunda
komu þar iðulega fram. Hafði rit
þetta allveruleg áhrif í Frakk-
landi allt fram að fyrstu heims-
styrjöldinni.
Péguy kemur alls staðar fram
sem einlægur ættjarðarvinur,
sannur Frakki, stundum upp-
reisnarsinni og ávalt sem hinn
djúpskyggni kristni maður, oft á
öndverðum meiði við kirkju og
guðfræðinga samtíðar sinnar,
sem hann ásakaði um yfirborðs-
hátt og grunnhyggju. Hann er
hinn óháði maður, sjájfum sér
samkvæmur í öllum. hlutum.
Einmitt þess vegna á hann fylgi
og samúð innan allra flokka.
PÉGUY SEM RITHÖFUNDUR
Hann var gæddur í' senn mikl-
um og óvenjulegum hæfileikum,
sem rithöfundur og skáld: óþrot-
legri hugkvæmni í stíl og fram-
setningu, sköpunargáfu i lýsing-
um sínum og líkingum, hárfínni
viðkvæmni, brennandi og ólgandi
lífskrafti.
Charles Péguy dó hinn 5. sept.
1914 af skotsári í orustunni við
Marne.
Vafalaust mun marga fýsa að
hlusta á erindi franska sendi-
kennarans um þennan stórmerka
og dáða andans manp, sem kall-
aður hefir verið postuli og spá-
maður samtíðar sinnar.
Vinningar í getraununum.
1. vinningur: 917 kr. fyrir 10
rétta (1). 2. vinmngur: 152 kr.
fyrir 9 rétta (6). 3. vinningur:
110 kr. fyrir 8 rétta (85). 1. vipn-
'ingur: 502 (1/10, 1/8). 2. vipn-
lingur: 613 (1/9, 1/8)', 3661, 3933
1(1/9, G/8), 3973 (1/9, 6/8)’ 5000
'(1/9, 6/8), 14074 (1/9, 4/8). —
908, 912, 996. 999, 1053, 1118,
3. vinningur: 21 (4/8) 66. 373
: (4/8), 516, 732, 774, 801, 803, SÖ7,
1119, 1293, 1297, 1347, 1710, 1835,
2154, 2155 2494, 2496 (2/8), 3268,
3279, 3280, 3363, 3428, 3468, 3494,
3625, 3635 (2/8), 3880. 3921, 3926,
13927, 3935, 3951, 10617 (2/8),
12353, 13513, 13515 (2/8). 13814
(2/8), 14184 (2/8), 14266 (2/8),
14285.
Orðsending frá Landsmála-
félaginu Verði.
Þeir þátttakendur í Rangár-
vallaferð Varðarfélagsins, sem
pantað hafa myndir úr ferðinhi,
geta vitjað þeirra í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins.