Morgunblaðið - 16.11.1954, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 16. nóv. 1954
- Úr dagiega lífinu
Framhj af bls. 8
skránni, „Benvenuto Cellini",
forleik eftir Berlioz og Pianó-
konsert nr. 3 eftir Beethoven,
útvarpað beint frá leikhúsinu, en
síðasta verkinu, Sinfóníu nr. 3
eftir Brahms, var útvarpað af
segulbandi á fimmtudaginn var.
Forleikurinn „Benvenuto Cel-
lini“ eftir Berlioz er stórglæsi-
legt verk eftir einn af fremstu
snillingum hljóðfæranna fyrr og
síðar og naut verkið sín ágætlega
í meðferð hljómsveitarinnar.
Beethoven samdi fimm píanó-
konserta og þykir sá fimmti
(Emperor) þeirra tilkomumestur,
en konsert nr. 3 mun þó mörgum
hugstæðastur vegna innileik.a
hans og skáldlegrar fegurðar. —
Frú Jórunhi lætur vel að túlka
tónverk sem þetta, enda var með-
ferð hennar á því í senn gáfuleg
og andrík. Þessi ágæta listakona
hefur á undanförnum árum oft
komið fram á tónleikum og jafn-
an sér til mikils sóma. — Er
skemmst að minnast prýðilegrar
frammistöðu hennar á norrænu
tónlistarhátíðinni hér í sumar.
Sinfónía nr. 3 eftir Brahms er
erfið í flutningi, enda efnið sam-
anþjappað. En þetta er stórkost-
leg tónsmíð og sérstaklega er síð-
asti kaflinn áhrifamikill. Var
þetta mikla verk ágætlega flutt.
Þetta voru siðustu tónleikar
Kiellands á þessu ári. Hefur þessi
snjalli hljómsveitarstjóri unnið
hér mikið verk og gott og verður
það seint fullþakkað.
ÖNNUR DAGSKRÁRATRIÐI
AF ÖÐRUM athyglisverðum dag-
skráratriðum má néfna ágætt er-
indi frú Sigríðar Björnsdóttur:
Séð og heyrt í Bandaríkjunum,
erindi séra Erlends Sigmunds-
sonar um íslenzkar skemmtanir,
lestur Vilhjálms S. Vilhjálmsson-
ar á minningaþætti Páls bónda
á Hjálmsstöðum og önnur atriði
kvöldvökunnar, sem öll voru
fróðleg og skemmtileg og þá ekki
sízt söguna „Gamli maðurinn og
hafið“ eftir Hemmingway er séra
Björn Ó. Björnsson las eins og
útfarinn leikari.
Þá var og gott að heyra til
hinna vísu manna, Ólafs Björns-
sonar próf., Helga Tómassonar
yfirlæknís og Theodors B. Lin-
dals próf, er ræddu efni hver úr
sinni vísindagrein og fluttu mál
sitt vel og skörulega.
Og síðast en ekki sízt vih ég
þakka Ara Arnalds fyrrv. bæjar-
fógeta lesturinn á fyrsta kaflan-
um úr hinni nýju bók hans „Sól-
arsýn“, er kemur á markaðinn
innan skamms. Var sagan sem
hann las hugnæm, rituð á fögru
máli og ágætlega flutt, — enda
þótt höfunduiýnn hafi nú tvo um
áttrætt.
Óskastund Gröndals og „Glatt
á Hjalla“ Sigfúsar Halldórssonar
Standa vonandi til bóta.
Að lokum þetta: Fjöldi hlust-
enda, sem ég hef talað við harma
það hversu langt er orðið á milli
hinna ágætu þátta Ævars Kvar-
ans. Er það mjög misráðið, því
að þættir þessir hafa verið með
því bezta, sem flutt hefur verið
í útvarpinu um langt skeið.
— Haguib
— Pólfiiig
Frh. af bls 1
Svía fluttu stuttar ræður. Poul
Reumert las kvæði eftir Seedorf
Petersen.
FLUGVÉLAR MÆTAST
AÐ NÓTTU
Að lokum lýsti Isdahl fram-
kvæmdastjóri SAS Norðurheims-
skautsleiðina opnaða og flugvél-
in, sem er fjögurra hreyfla, hóf
sig til lofts stundvíslega kl. 20,10.
Með henni eru 40 farþegar,
þeirra á meðal Knútur Dana-
prins og þrír forsætisráðherrar
Norðurlandanna. Ferðinni er
heitið til Los Angeles. í dag hóf
önnur flugvél sig til lofts frá
Los Angeles og flýgur spmu leið
til Danmerkur. Flugvélarnar
munu mætast skammt norður af
Islandi skömmu eftir miðnætti.
BEZT AÐ AUGLÝSÁ
í MORGUNBLAÐim
— Ráðstefmrtillaga j
Framh. af bla. 1 h
Rússa einnig á öðrurn sviðum t. =
d. í því að leiða til lykta frið- h
arsamninginn við Austurríki. =
MmniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimi
FELAOSVIST
★ EISENHOWER HVETUR
TIL SKJÓTRAR SAM-
ÞYKKTAR
Eisenhover forseti sagði í ræðu
í öldungadeild Bandaríkjaþings
í dag, að nauðsyn bæri til skjótr-
ar samþykktar Parísar-samning-
anna. Kvað hann þá vera árang-
ur margra ára erfiðis, er beinzt
hefði að því að veita V.-þýzka-
landi aftur sjálfstæði sitt og
koma í veg fyrir að enn á ný rísi
upp hernaðarandi með þýzku
þjóðinni. — Parísarsaynningarnir
stofna engri þjóð í hættu, sagði
Eisenhower. Forsetinn ^erði sér
vonir um, að samningarnir yrðu
staðfestir, er nýja þingið kæmi
saman til fundar í janúar n. k.
bóli. —•' D.
= í kvöld kl. 8,30
GÓÐ VERÐLAUN
Göinlu dansarnir kl 10,30
H Aðgöngumiðar frá kl 8
iimuuiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiimiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiuiasia
Framh. af bls. 1
VOPNAÐAR LIÐSSVEITIR
Á VERÐI
í tilkynningu Byltingaráðsins
var sagt, að Naguib hefði verið
handtekinn vegna vitnisburðar
E1 Tahibs og annars leiðtoga
Bræðralagsins. Vopnaðar liðs-1
sveitir halda nú vörð á strætum
allra helztu borga Egyptlands til;
að fyrirbyggja óeirðir í sambandi1
Við handtöku Naguibs.
Geir Hallgrímsson
héraðsdómslögmaður,
Hafnarhvoli — Reykjavík
Símar 1228 of 1164.
Bílar til sölu
Ford og Chevrolet vörubílar ’42—’47. Jeppi í 1. flokks
standi. Ódýr Austin og Renault fjögra manna.
Margar gerðir af 6-manna bílum.
Hef kaupendur að sendiferðabílum.
Bifreiðasala Hreiðars Jónssonar,
Mi-ðstræti 3 A Sími 5187.
KEFLAVIK
KEFIjAVIK
OANSKEMMSLA
Nýtt námskeið í samkvæmisdansi fyrir börn, unglinga
og fullorðna, byrjendur og lengra komna, hefjast í þess-
ari viku. — Vegna mikillar éftirspurnar verður sérstak-
ur flokkur fyrir hjón í gömlum og nýjum dönsum. —
Einkatímar eftir samkomulagi. — Innritun nemenda fer
fram í Tjarnarlundi þriðjudag 16. nóvember kl. 6—8
eftir hádegi.
•m
■t
fíllt á sama stoð
Uppgerðar vélar í flestar tegundir amer-
ískra bifreiða fyrirliggjandi.
Skiptum um samtímis.. Tökum gamlar
vélar unp 1 sem greiðslu.
H.f. Egill Vilhjálmsson
Laugaveg 118 — sími 81812
GERMANIA
■
■
■
Skemmtifundur verður í Þjóðleikhúskjallaranum, þriðju- \
daginn 16. nóv. kl. 8,30 e. h. *
■
■
SKEMMTIATRIÐI: ■
Kristinn Hallsson syngur þýzk lög
Undirleik annast Ragnar Björnsson
■
■
Dans I
■
■
■
Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna á þennan ■
fyrsta fund vetrarins. ■
■
Félagsstjórnin. !
Dansiagnkeppni S.K.T. 1955 j
S.K.T. hefur ákveðið að efna til 6. danslagakeppni sinnar
á næsta ári. Frestur til að senda nótnahandrit er, að þessu
sinni, til 10. janúar næstkomandi.
S. K. T. hefur látið fjölrita nokkur af kvæðum þeim,
sem bárust Danskvæðakeppninni og gefur kost á að semja
lög við þau.
Kynnið yður reglur keppninnar, þær fást, ásamt kvæð-
unum í Bókabúð Æskunnar, Reykjavík.
Pósthólf keppninnar er 501, Reykjavík.
AÐALFUNDUR
Samslags skreiðarframleiðenda verður haldinn föstudag-
inn 3. desember næstkomandi í fundarsal L.Í.Ú. í Hafn-
arhvoli og hefst kl. 10 f. h.
Dagskrá samkvæmt Iögum samlagsins.
Samlagsstjórnin.
<(U
2 radiofónes*
St. Carlson, 14 lampa og 10 lampa G. E. C. radíófónar
til sölu. — Eru í góðu lagi. Hagkvæmt verð.
Utvarpsviðgerðastofan,
Flókagötu 1 — sími 1069.
JERSEY-kjólar
GULLFOSS
AÐALSTRÆTI
—9 MA8K08 Eföi m DmM
NEVEK miNL< rrrnr.„
WHAT'S THIS FOOUSH
RUMOC I HEAB...
THAT YOU'KE FÖ^'N*
FRAN MARSHALL TO
MARRV YOI
1) — Ég hef sagt þér, að annað
okkar skuli láta lífið fyrr en ég
giftist þér, Aktok.
2) — Þú mælir þetta aðeins
sem fávís kona, Freydís. Ég hef
þegar gefið fólki mínu fyrirskip-
un um að búa allt undir brúð-
kaupið. ______
3) — Farðu í snjóhúsið þitt og
hvíldu þig.
4) — Jæja, Hinrik, hvernig
hefur þér liðið meðan ég var í
burtu.
— Við skulum ekki tala um
það, en ætlarðu að neyða Frey-
dísi til að giftast þér? __j