Morgunblaðið - 11.01.1955, Side 8

Morgunblaðið - 11.01.1955, Side 8
8 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 11. jan. 1955 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Vaíd yfir framburði og daglegri notkun málsins er meginatriði segir Einor Pólsson forstöðn- moðnr Mólnskólnns Mímis Reynt nð i'innn gegn dýrtíð og tryggjn grundvöll gjnldeyrisins EINS og kunnugt er gaf ríkis- stjónin út tilkynningu fyrir síð- ustu helgi um framkvæmd báta- gjaldeyrisskipulagsins á þessu ári. í henni bendir ríkisstjórnin á, að siðan bátaaðstoðarkerfið var sett, hafi vertíðarafli aukizt og verðlag sjávarafurða hækkað nokkuð. Af þessum ástæðum telur stjórin kleift, þrátt fyrir nokkra hækkun á útgerðarkostnaði að draga úr innflutningsréttindum bátaútvegsins. Eigendur þeirra afurða, sem hlunnindin hafa náð til, hafi framvegis rétt til þess að selja með álagi innflutnings- skírteini fyrir 45% af andvirði bátaafurðanna í stað þess, að undanfarið hefur verið heimilt að selja með álagi skírteinin fyrir 50% af útflutningsverðmætinu. Þessi lækkun hlunnindanna mun gilda fyrir afurðir, sem á land koma á tímabilinu 1. janúar til 15. maí 1955 þ. e. á þeim tíma, sem aflavon er mest. Á hinn bóg- inn verður, eins og verið hefur, heimilt að selja með álagi skír- teini fyrir 50% af andvirði af- urðanna, sem framleiddar verða á tímabilinu 15. maí til ársloka. í lok tilkynningrinnar er svo frá því skýrt, að á þessum grundvelli standi yfir samningar milli ríkis- stjórnarinnar og aðilja um ein- stök framkvæmdaatriði, svo sem venja hefur verið undanfarin ár. Útvegsmenn hér á Suðvestur- landi höfðu ekki talið sér kleift að hefja vetrarvertíð fyrr en upplýsingar lægju fyrir um fram kvæmd bátagjaldeyrisskipulags- ins á árinu. En þegar ríkisstjórn- in lagði fram tilboð, sem felst í fyrrgreindri tilkynningu hennar, töldu þeir rétt að hefja róðra, enda þótt þeir féllust ekki end- anlega á það. En líklegt verður að telja að fulltrúar útvegsmanna og ríkisstjórnin komizt að sam- komulagi, sem byggist í aðalat- riðum á því tilboði, sem ríkis- stjórnin lét frá sér fara. Tillaga ríkisstjórnarinnar þýðir 10% lækkun bátagjald- eyrisfríðindanna á aðalvertíð ársins, vetrarvertíðinni. En á því tímabili mun 80—90% bátafisksins veiðast. Það, sem fyrir stjórninni vakir, er að draga smám saman úr því vörumagni, sem þarf að kaupa fyrir hinn dýrari gjaldeyri og vinna þannig að því að tryggja hinn íslenzka gjaldmiðil og spyrna gegn dýrtíð í landinu. í þessu sambandi er rétt að bera þá fluguh-egn, sem stjórn- arandstæðingar hafa breitt út, að togaraútgerðin eigi að fá þessi 10%, sem irmílutningsfríðindi bátaútvegsins eru skert um, til baka. Það hefur aldrei komið til mála að hafa þann hátt á. Af hálfn útvegsmanna hefur verið á það bent, að ástæðulaust sé að skerða. þau gjaldeyrisfríð- indi, sem bátaútvegurinn hafi notið, enda þótt afli hafi aukizt nokkuð við Suðvesturland á einni vertíð. Vélbátaútgerðin sé ekki svo vel stæð að henni veiti af þeim fríðindum óskertum, sem hún hefur notið undanfarið. Enn- fremur megi á það benda, að í éinstökum landshlutum hafi afli álls ekki aukizt. Hann hafi þvert á móti minnkað. Til móts við þá röksemd hefur ríkisstjórnin einnig talið rétt að koma að nokkru leyti. Þess vegna hefur hún látið gjaldeyrisfríðindin vera ó- breytt á tímabilinu 15. maí til ársloka. En á því timabili eru róðrar töluvert stundaðir á fiskimiðunum fyrir Vestfjörð- um og Norðurlandi. Óhætt er að fulyrða, að vél- bátaútgerðinni víðast hvar á land inu hafi ekki veitt af óbreyttum gjaldeyrishlunnindum á þessu ári. Síldarhallærið og rányrkja á miðum einstakra landshluta hef- ur leikið vélbátaútgerðina grátt. En sjónarmið ríkisstjórnarinnar á einnig mikinn rétt á sér. Henn- ar takmark er að reyna að treysta grundvöll íslenzkrar krónu og vinna gegn dýrtið og verðbólgu í landinu. Með 10% lækkun bátagjaldeyrisins er gerð raunhæf ráðstöfun í þá átt. Stj órnarandstaðan hefur leikið skoplegt hlutverk í sambandi við umræðurnar um framtíðarskipu- lag bátagj aldeyrisins. Eins og kunnugt er, hefur hún hamast gegn þessari aðstoð við vélbáta- útveginn og bjargræðisvegi fólks ins við sjávarsíðuna. Sjálfir hafa þeir ekki bent á neinar aðrar leiðir. En nú hafa kommúnistar og Alþýðuflokksmenn allt í einu tekið að skamma ríkisstjórnina ákaflega fyrir að framlengja ekki bátagj aldeyrisskipulagið óbreytt! Þannig snýst stjórnarandstaðan eins og vindhani á bæjarburst. Hún segir þjóðinni í upphafi, þeg ar bátagjaldeyrisskipulagið er upptekið, að það sé „svívirðileg árás á hagsmuni almennings". Þegar ríkisstjórnin leitast svo við að draga úr bátagjaldeyrirnum ætla kommúnistar og kratar að springa af vandlætingu. Þá er sú viðleitni einnig orðin að „árás á hagsmuni almennings". Ríkisstjórnin og fulltrúar vélbátaútvegsins munu reyna að haga framkvæmd gjaldeyr- isfríðinda útvegsins þannig á hverjum tíma, að þau verði atvinnulífinu að sem mestu gagni og bitni um leið sem minnst á nauðsynjum almenn- ings í landinu. TÍMINN er ákaflega sár yfir því s.l. sunnudag, að Mbl. skuli hafa vakið athygli á því, að allar á- deilur flokksmanna hans á nú- verandi dómsmálaráðherra séu af því sprottnar,- að þeir telji að önnur lög eigi að ganga yfir frammámenn Framsóknarflokks- ins en annað fólk í þessu landi. En þetta er staðreynd, sem ekki verður sniðgengin. Vegna þess að málsókn var hafin gegn mjög at- orkusömum lögbrjót, sem var einn af aðalleiðtogum Framsókn- arflokksins í stóru kjördæmi, samþykkti flokksþing Framsókn- ar vantraust á dómsmálaráðherra. Síðan hefur það haldið áfram að skamma ráðherrann fyrir það eitt að hann hefur gert skyldu sína, látið lögin ganga jafnt yfir alla. Svona er þá réttlætistil- finning Tímaliðsins. Svona er hún þroskuð og næm fyrir því, hvernig framkvæma eigi lög og rétt í landinu!! NÚ um þéssar mundir eru nám- skeið að íefjast á ný hjá mála- skólanum „Mími“, en kennslan fer þar fram með nokkuð öðrum hætti, en tízkast almennt í skól- um. Blaðið hefir snúið sér til Einars Pálssonar, forráðamanns skólans, og spurt hann um í hverju þessi munur sé aðallega fólginn. — Málaskólinn Mímir er stofn- aður til þess að bæta úr brýnni þörf hérlendis, þar sem hann leggur megináherzlu á talað mál tog að kenna fólki, sem ekki hefir notið langrar skólamennt- uhar að bjarga sér í erlendum tungumálum á sem skemmstum tíma. LEGGJA ÞARF RÆKT VIÐ IIINA LIFANDI TUNGU Það er skoðun mín, sagði Einar, að tungumálakennslu í skólum almennt sé áfátt meðan ekki er lögð meiri rækt við hina lifandi tungu en raun ber vitni. Ég álít að oft sé miklum verðmætum kastað á glæ, þegar tíma nemenda er sóað við málfræðistagl meðan hinn þýðingarmeiri þáttur tungu málanámsins, vald yfir framburði og gagnlegri notkun málsins, er vanræktur. Þess vegna hefir Málaskólinn Mímir fellt niður með öllu þá yfirheyrslu á heimalærðu náms- efni, sem svo mjög tíðkast í skól- um þessa lands, en tekið upp kennslu á námsefninu í tímunum. En við gerum heimanámið að auðveldri yfirferð á efni, sem nemandinn hefir þegar lært rétt undir umsjón kennarans. NOTKUN ERLENDA MALSINS SITUR Á HAKANUM — Hvað álíturðu aðallega at- hugavert við tungumálakennslu, eins og hún tíðkast í skólum? — Kennsla lifandi tungumála- náms er að sínu leyti eins og kennsla í hljóðfæraleik. Hún er lítils virði nema nemandinn sé þjálfaður i sjálfri notkun þess, sem nema skal. Sú kennsluað- ferð, sem byggir að mestu á þýð- ingu hins erlenda tungumáls á það innlenda, er ófullkomin að því leyti, að mestur timi nem- enda fer í útskýrin'gar á móður- málinu, en notkun erlenda máls- ins situr á hakanum. KENNSLUAÐFERÐIRNAR — Sá, sem lærir aðeins tungu- mál í þýðingu, heldur Einar áfram, glatar að jafnaði miklu af því, sem emkennir hið erlenda tungumál. Hann venst ekki hugs- un á hinu erlenda tungumáli og temur sér ekki notkun þess. Kennsluaðferðirnar, sem við höf- um snúið okkur að eru aðallega þessar: Nemandinn er látinn tala hið erlenda tungumál alla í kennslustundina og er stöðugt j leiðréttur og látinn endurtaka | setningar þar til rétt eru sagðar. Þannig er hann þjálfaður í notk- un málsins. Málfræðikennsla er ‘ nær einvörðungu með dæmum úr hinu lifandi máli, þannig að nem- , andinn lærir byggingu málsins ’ ósjálfrátt og án þess að eyða mikl j um hluta tíma síns í að læra þurrar málfræðireglur. Kennaei les textann réttan áður en nem- andi fær að bera hann fram. Setningum er velt þannig fram j og aftur að setningaskipun og sérstök einkenni málfræðinnar festast í minni nemandans og það sem mestu varðar •— verði hon- um tiltækari í notkun, þegar á þarf að halda. SKUGGAMYNDIR OG KVIKMYNDIR t— Ég hefi heyrt að þið notið mikið skuggamyndir við kennslu. Hvernig er því komið við? — Það gerum við til að þjálfa nemendur í að hugsa og tala á erlenda málinu og að slíta sig frá bókinni. Kennslunni er þannig hagað við skuggamynd- irnar að við kennslu hverrar ein- stakrar er tekið sérstakt mál- fræðiatriði. — En hvernig með kvikmynd- ir. Er ekki farið að nota þær við málakennslu? — Kvikmyndir eru ékki heppi- legar til tungumálakennslu, en þær eru ómetanlegar til kennslu í ýmsum öðrum gréinum. Væri sannarlega ekki vanþörf á því að athuga þau mál í sambandi við æðri skóla hérlendis. — En eru engar stílæíingar? — Jú, fyrir þá sem það vilja. Við gefum nemandanum upp verkefnið. en hann vinnur síðan að því heima. — Eru nemendur ekki mest ungir menn? — Þeir eru á öilum aldri, frá tvítugu til sextugs. Málaskólinn Mímir er nú full- setinn nemendum. KAUPMANNAHÖFN, 5. jan. — Minnismerki, sem gefið hefur ver ið út til minningar um Kristján konung X hefur verið afhent „kunstneriske Udsmykningen" í hinu nýja ráðhúsi Óðinseyjar. VeU andi ólripar: Um félög og fundi. HVAÐ skyldu margir fundir vera haldnir á íslandi árlega í öllum þeim aragrúa af alls kon- ar félögum, nefndum, gömlum og nýjum, sem starfandi eru í land- inu allt til hinna innstu fjarða og yztu útnesja? Óhætt mun að full- yrða, að fjöldi ýmiskonar félags- samtaka — og nefnda fámennra og fjölmennra, nauðsynlegra og ónauðsynlegra er meiri tiltölu- lega hjá okkur en með flestum öðrum þjóðum — einmitt vegna þess, hve fámennir við erum. Nú- tíma þjóðfélag, hvort sem það er fámennt eða fjölmennt -verður nauðsynlega að mynda innan þess viss samtök og félagsheildir sem myndi nokkurs konar uppi- stöðugrind þjóðfélagsbyggingar- innar. — Og þar við bætist svo félagsþörf hinna ýmsu einstaki- inga, sem hafa sömu áhugamál og hugðarefni að keppa að — efnaleg eða menningarleg. Nú- tímamanninum er það Ijóst, að til þess að þessi áhugamál hans og hugsjónir nái fram að ganga þarf sameiningu og samtök hinna einstöku. Hvaða gagn? EN því minnist ég nú á þetta, að hér á dögunum heyrði ég af tilviljun á tal manns eins, sem var að velta því fyrir sér fram og aftur hvaða gagn — eða rétt- ara sagt, hve lítið gagn væri að öllum þessum fundum. — Já, fundum yfirleitt, þó með einn ákveðinn í huga. „Menn bolla- leggja og kappræða sín á milli — sagði hann — koma fram með snjallar tillögur — eru barma- fullir af ýmsum þjóðþrifa hug- dettum, sem öllu eiga að bjarga, allt að reisa við, ef næðu þær fram að ganga. Nú á bað að gilda! OG svo er skotið á fundi til að ræða vandamálin. Menn koma uppbólgnir með stórkost- legar ræður í kollinum og mikil- mannlegan svip á andlitinu. — Nú á það að gilda! Fundarstjóri tekur sér sæti hinn stjóralegasti í hvívetna, ritarar, tilbúnir að láta pennan geisa honum við hlið. Fundarmálin eru tekin fyr- ir — orðið er laust. Hver skyldi grípa það fyrstur? — Guðmund- ur, Jón, Sigurður — eða Rúnki? Það er aðeins, að þeir ætla að hugsa sig vel um. — Orðið er laust. Strákur aftur í sal stendur upp og hreytir skætingi — aug- sýnilega aðeins til að reyna að hleypa einhverju fútti í fundinn. — Orðið er laust. — Miðlungs- maðurinn, ómissandi og sjálf- sagður á hverjum fundi, stendur upp til að segja eitthvað og held- ur 50 mínútna ræðu um ekki neitt — allra sízt það, sem fund- inum var ætlað að fjalla um. — Orðið er laust! — Orðið er laust!! — Orðið er laust!!! — Fundi er slitið. Bíðum næsta fundar. OG fundarmennirnir halda hver heim til sín. Hvað varð af öllu snjöllu hugmyndunum, öll- um umbótatillögunum, — öllu andríkinu — allri mælskunni? Það kemur allt fram í kappræð- unum um kvöldið yfir glasi heima hjá J.J. eða G.G. — Svo bíðum við næsta fundar!“ Um útvarp á tónleikum. VELVAKANDI sæll! Mér datt í hug núna í sam- bandi við heimsókn hins mikla fiðlusnillings, Isacs Stern, hing- að, hvort ekki mætti beina þeirri ósk til Ríkisútvarpsins, að það útvarpaði yfirleitt ekki synfóníu- tónleikunum beint — um leið og þeir eru haldnir, heldur væru þeir teknir upp á segulband og útvarpað á einhverjum öðrum heppilegum tíma síðar meir. — Þetta á sérstaklega við, þegar miklir erlendir tónsnillingar eru annars vegar, sem margir okkar eiga ekki kost á að sækja tón- leika hjá oftar en í þetta eina skipti á ævinni — eins og t. d. núna, er Isac Stern var hér gest- ur. — Þeir sem virkilega unna tónlist og hafa mestan áhuga á að kynnast því bezta á því sviði eins vel og kostur er á, mvndu taka því ákaflega feginsamlega, að geta hlustað á í útvarpinu heima hjá sér, sömu tónleikana, sem þeir höfðu hlustað á áður í Þjóðleikhúsinu, Austurbæjar- bíói eða hvar sem er annars stað- ar — jafnvel tvisvar sinnum eða meira. Þetta ætti ekki að þurfa að bitna neitt á öðrum vitvarps- hlustendum, væri tónleikunum valinn heppilegur tími í dag- skránni, þegar sem flestir hafa tækifæri til að hlusta — en mörg- um væri þessi nýbreytni mjög kærkomin. — Tónlistarunnandi“. Söngurinn göfgar sálina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.