Morgunblaðið - 05.02.1955, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.02.1955, Blaðsíða 9
Laugardagur 5.febrúar 1955 MORGUNBLAÐIÐ 8 Tíu daga einangrun þjarmaðil mjög að skozkum hændum STÓRHRÍÐIN, sem geisaði um Skotland fyrir nokkru, hef- ur dregið athygli manna að bú- skaparháttum og ævikjörum þeirra bænda, er nyrztir búa í landinu. Mikill hluti Norður- Skotlands var einangraður um tíu daga bil vegna fannkomu, og urðu afleiðingar þess með þeim ódæmum, að víða hélt við hungri, svo illa höfðu bændur búizt við vetrarkomu. íslenzkir bændur eru margir hverjir svo fornbýlir AD HALFIJ BORGARMENN enn, að þeir afla sér mikils vetr- J Bændur eru ekki lengur sveita- arforða og þurfa ekki að leita sér menn í gömlum skilningi þess til fanga í hverri viku, og eiga I orðs, þegar þeir geta ekki kom- því örðugt með að skilja, hvers izt af neina viku án þess að fá vegna skozkir bændur eru svo mat að, enda getum' við með óforsjálir að treysta á aðkeypta sanni sagt, að skozkir bændur matvöru næstum daglega. | séu að hálfu ieyti borgarmenn. Þeir freysta á aðkeypfa snatvöru uæstum daglega 'réfkorn frá SMandi effir Mapús Magnússon Sogsrafmagn komið á alla bæi í Hraungerðishreppi enda urðu fiestir uppiskroppa fáum dögum, skepnum var skammtað heidur knappt unz bætt var úr eklunni I Sú var þó tíðin, að bændur hérna bjuggu sig undir langan vetur og harðan. Þeir áttu sér skemmufylli af mat, kistur En enginn skyldi þó kenna þeim einum um þessa hætti. Svo margt ungt fólk hefur flutzt þaðan á undanförnum árum, að mikill á | hundruð manna áhöfn. Voru bök- ' uð brauð þar handa almenningi og þangað flugu þyrilvængjur, er dreifðu mat yfir byggðir. Auk matar varð að taka mikið magn af heyi og korni handa skepnum, Og kostaði öll sú útgerð milljónir króna. Þó var mikill áhugi bænda, að forðast fjárfelli, enda varð hann næsta lítill. Tvo daga áður en hríðin skall á var logndrífa, og þá tókst bændum að smala fé sínu heim úr fjöllum. Frá skozkum bóndabæ. — Til hægri sem hefir setzt á túniff. Ekki er nú dæma. á myndinni sést þyrilvængja, fönnin mikil af myndinni að haframjöls, tunnur með saltsíld og saltkjöti. Nú er enginn þeirra matbirgur lengur en svo, að end- ast megi til fárra dægra, hungur- vofa fylgir harðviðri eins og nótt degi, nema aðfengin hjálp geti borgið þeim. BANNAÐ AÐ HAMSTRA Á STRÍÐSÁRUNUM Hver ósköp valda þessari breytingu? — Ein orsökin er skömmtun, sem hófst á stríðsár- unum. Þá varðaði við lög að fyrna mat, bændur urðu undir sömu sök seldir og aðrir, þeir urðu að kaupa sér vikuskammt í einu, en sláturfé þeirra varð að senda til löggiltra sláturhúsa, þung viðurlög lágu við að slátra því heima. Á sama tíma komust í tízku nýir verzlunarhættir með sveitamönnum, farandsala á hvers konar nauðsynjavörum. — Þá fór slátrarinn að heimsækja hvert kot með vikuskammtinn af kjöti, bakarinn kom með nýtt brauð tvisvar í viku. Nú er sveita fólki yfirleitt svo undarlega far- ið, að því þykir aðfengin brauð betri en heimabökuð, og þess vegna varð það mikil freisting að hætta öllum bakstri og kaupa ný brauð, eftir því sem þörf krafði. Menn hættu að fylla mjöl- kistur sínar að hausti. Nú eru vegir í Norður-Skot- landi næsta slæmir, svo að ekki þarf mikla snjókomu til að um- ferð stöðvist. Þó hefur þetta fyr- irkomulag verið látið dankast, enda hefur aldrei kreppt svo illilega að sem nú. Auk matar- skorts bættist fóðurekla við. Síð- astliðið sumar var óþurrkasamt og fóðurfengur með allra minnsta móti. Bændur hafa vanizt því að kaupa fóðurbæti smám saman, hluti íbúanna er njótandi elli- styrks, og verður að lifa af viku- legum greiðslum. Þeir hafa vit- anlega ekki efni á að eiga kýr, svo að þeir verða að treysta á daglegar mjólkursendingar eins og bæjarmenn. En þegar í harðbakkann slær, verða þessir bæjarlegu sveita- menn illa úti. Þeir eru hættir að laga sig eftir náttúrulegum að- stæðum og verða því ofurseldir hvers konar miskunnarleysi höf- uðskepnanna. Eftir þriggja daga fannfergi um daginn, urðu sjötíu þúsundir manna að leita á náðir ríkisvaldsins til að bægja hung- urvofinni frá fannbörðum dyr- um. Þá voru sendar þangað flug- vélar úr flugher og flota, auk þyrilvængja, og vörpuðu matar- pökkum niður til að slökkva mesta hungrið í bændum. Stórt móðurskip flugvéla var sent norður fyrir land, er hafði átján BÆNDUM SJALFUM AÐ KENNA Ríkisstjórninni var lítt um það gefið að þurfa að ausa út fé til að hjálpa forsjárlausum bændum. Því sendi hún einn ráðherra norður til nyrztu héraðanna að rannsaka orsakir vandræðanna, þegar öll þessi ósköp í náttúrunni voru um garð gengin. Ráðherr- ann komst að þeirri niðurstöðu, að ófarimar væru bændum sjálf- um að kenna, þeir hefðu svikizt um að birgja sig upp af mat. — Þetta þótti mörgum ósvinnur úr- skurður, þar sem margir Hálend- ingar eiga erfitt með að fyrna, heldur verða þeir að kaupa sér nauðþurftir sínar tíl eins dags eða tveggja. Auk þess má segja, að kotbændur eigi kröfu á sömu þægindum og félagar þeirra í bæjum. Hvers vegna ætti að saka þá um það, að þeir notfæra sér heimsendingar verzlana og ann- að því um líkt? Ráðherrann lét þó svo um mælt, að hafa þvrfti á takteinum þyrilvængjur til að bjarga sjúklingum til spítala og nýtízku snjóplóga til að ryðja vegina, ef slíkar fannir leggjast aftur yfir Hálöndin. SKÍDIN KOMU AG GÓÐUM NOTUM Norður á Katanesi, í einu litlu þorpi, urðu menn snemma mat- arlausir, en tæpum tíu kílómetr- um þaðan var annað þorp, sem bjó við nægtir. En svo aumir voru þorpsbúar, að þeir gátu ekki komizt spönn í burtu, og enginn treysti sér til að vaða snjóinn til næsta þorps eftir mat. Það varð þeim til bjargar, að þar var norskur vinnumaður á næstu grösum, og átti skíði, sem hann hafði tekið með sér frá Noregi til minja. Nú fer hann eftir mat og bjargar „Kötum“ frá hungri. En þetta dæmi hefur orðið til þess, að yfirvöldunum hefur skilizt gagnsemi skíða og hvetur Norð- lendinga til að eignast þau, nema fátækt hamli. Þyrilvængjur voru notaffar til þess aff flytja . staddra bænda frá flugvélamóðurskipi, sem var Skotlands. matvæli til nauff- viff norffurströnd LAUGARDAGINN 29. jan. s.l. var haldin innsveitar- skemmtun í Þingborg í Hraun- gerðishreppi, í tilefni þess að komið er Sogsrafmagn á alla bæi sveitarinnar. — Samkoman hófst með sameiginlegri kaffidrykkju, þar sem mættir voru næstum all- ir hreppsbúar, sem að heiman gátu komizt. Oddviti hreppsins, Ágúst Þor- valdsson, Brúnastöðum, setti samkomuna með ræðu og skýrði frá framkvæmdum í sambandi við rafmagnið. Taldi hann að bændur hreppsins væru búnir að leggja fram um eina milljón króna til þeirra framkvæmda, sem skiptist nokkuð að jöfnu milli heimtaugargjalds, raflagna í hús og ýmis konar rafmagns- tæki. Þetta gerir að meðaltali j um 30 þúsund krónur á hvert býli. Því næst tók til máls Gísli Jónsson, hreppstjóri, Stóru- Reykjum, en hann var oddviti hreppsins á þeim tíma, er aðal- undirbúningur málsins og fyrstu framkvæmdir fóru fram. Rakti hann sögu rafmagnsmálsins inn- an sveitarinnar frá byrjun. Hófst það með því, að hreppsnefndinni barst bréf frá raforkumálastjórn- inni í byrjun maí 1947. Hinn 16. maí 1947 var svo haldinn almenn- ur hreppsfundur um málið, þar sem allir umráðendur jarða í sveitinni voru mættir. Hrepps- nefndin hafði undirbúið málið og lagði fyrir fundinn tillögu þess efnis, að allir hreppsbúar óskuðu eindregið eftir að fá rafmagnið sem fyrst. — Umræður urðu miklar og voru allir fundarmenn á einu máli um, að styðja tillögu hreppsnefndar og var hún sam- þykkt með undirskrift allra fundarmanna. Jafnframt tók hreppsnefndin ábyrgð á öllum skuldbindingum hreppsbúa gagn- vart rafveitunni — um heim- taugargjald — en á þeirri ábyrgð hefur aldrei þurft að halda. Síð- an hefur þetta þokast áfram stig af stigi. Byrjað var á fram- kvæmdum við háspennulínuna 1949 og kveikt á fyrstu ljósunum 19. des. 1950 og þeim síðustu fyrir s.l. jól. — Þetta var frásögn Gísla á Reykjum. Að lokinni kaffidrykkju skemmti fólk sér við leiksýningu, kvikmyndasýningu og dans fram undir morgun. FRAMFARIR f HREPPNUM í 10—15 ÁR Fyrst farið er að segja fréttir úr Hraungerðishreppi langar mig að bæta hér dálitlu fleiru við af framkvæmdum síðustu 10—15 ára. Má þá fyrst nefna, að töðu- fengur hefur rúmlega þrefaldast I síðan um 1940, þrátt fyrir frekar erfið ræktunarskilyrði. Naut- gripir eru nú um 18 á býli og hefur fjölgað um hálft þriðja hundrað síðan um 1940. Sauðfé er um 50 á býli, enda nýbúin að fara fram fjárskipti, en fjölgar ört. Á sama tíma hafa verið endur- byggð íbúðarhús úr varanlegu efni á helmingi býla, auk fjölda annara bygginga, svo sem all- margra nýtízku fjósa, með til- heyrandi hey- og áburðargevmsl- um. Þá hafa margir reist vandað- ar verkfærageimslur o. fl. — Súgþurrkun er á nálega þriðja hverjum bæ og mjaltarvélar á hverjum fjórum. Þá má geta þess, aff upphleypt- ur bílvegur er heim á hvern bæ og hefur mikið af því veriff unn- iff í félagsvinnu, meff skyldudags- verkum hreppsbúa. Þá má að síðustu geta þess, að þrír af hverjum fjórum búerid- um eigi dráttarvél með miklu af tilheyrandi verkfærum, bæði til heyskapar og jarðræktar, auk þess allmargir bílar til heimilis- nota. Má vera að einhvern fýsi að heyra um rekstrarútgjöld heim- ilanna vegna rafmagnsins. Því ev erfitt að svara. Fer það vitanlega eftir stærð heimila og fjölda raf- knúinna heimilistækja. Þó hygg ég ekki fjarri lagi, að ætla þurfi brúttó-arð af einni kú til þeirra hluta. Er þá reiknað með raf- magnupphitun og súgþurrkun. Fullyrða má, að allir eru ánægðir með að hafa fengið raf- magnið og mundu ekki vilja missa það fyrir nokkurn pening. Það er aðeins einn liður, §em bændur eru mjög óánægðir með, en það er fastagjaldið af súg- þurrkunarmótorunum. Vonandi fæst leiðrétting á því áður en langt líður og skal ekki farið frekar út í það. Þetta er orðið lengra mál en ég hafði ætlað í upphafi og þvkir kannske ekki merkilegt til frá- sagnar, en þess ber þó að gæta, að bak við þessar framkvæmdir, stendur fólk í litlu sveitafélagi, sem telur um 230 íbúa, þar af um 130 á aldrinum 16 til 67 ára. Hygg ég þá að öllum megi Ijóst vera, að hér er ekki setið auðum hönd- um og hér hevrist aldrei minnzt á 40 stunda vinnuviku. Ölvesholti, 30. 1. 1955. Runólfur Guffmundsson. Hagslætf og mi!t Fréttaritari hlaffsins í Breiff- dal skrifar 6. jan.: TÍÐARFAR hefur verið hag- stætt og milt, það sem af er vetri. Haglaust mátti kalla frá því á jóladag og fram á nýjársdag, en nú auð jörð og blíðveður dag hvern. Bændur í útsveitinni tóku ekki fénað fyrr en um jól, og sumir munu sleppa aftur ef veð- urblíðan heUt um sinn. Rjúpnaveiðar stunduðu all- marrir fvrir hát’ðar. Gnægð var af riúpum. svo duglegustu skvtt- ur fengu 70 til 80 á dag þegar bezt gekk. Talsvert var um bvpgingafram- kvæmdir á s.l. ári, t.d. allvíða bvggð fjárhús i baust. því bú- stofn vex nú með hverju ári. Bp OTTFT TTTNINGUR Tvær fjölskvldur tóku sig upp í haust og fluttu til Reykiavíkur. og standa bæirnir mannlausir í vetur. en ungir bændur hafa ákveðið búskap á báðum jörðun- um með vorinu. Það eru jafnan alvarleg t;ðindi, frá sjónarhóli sveitamanns, er fólk hópast frá mold til malar. — Á s.l. ári fluttu burt bæði héraðslæknirinn, Þor- steinn Sigurðsson, og kaupfélags- stjórinn. Biörn St.efánsson. Þeir voru að vísu ekki búsettir i Breiðdal. en störfuðu samt báðir fyrir bessa sveit, og nutu, að verðleikum almennra vinsælda og trausts. RAFOFKUMÁL í árslokin fengum við boð- skapinn um raforkuframkvsemd- ir hér, og marga sett.i hlióða. — Bónda einum varð að orði: Þetta músarholusjónarmið hefði ekki orðið skjal.fest, ef við hefðum átt Árna Eylands fyrir fulltrúa á Albingi. Hér er ekki staður til að rök- ræða þetta mikla mál. en hugsið ■''kkur bara hvað 2400 kw. eru fvrir allt Austurland? Hér er far- ið af stað með svo smásmuglega virkjun, að vantrú ráðandi manna í rafmagnsmálum á fram- tíð Austurlands, verkar lamandi á alla hugsandi Austfirðinga. Ef nokkur alvara er í snakkinu um jafnvægi í byggð landsins, dugir ekkert annað hér eystra en gnægð rafmagns og stofnsetning iðjuvera. Það verða ráðandi menn í Reykjavík að láta sér skiljast. — P.G. j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.