Morgunblaðið - 09.02.1955, Síða 16
Veðurúili) í dag:
Hæg breytileg átt.
Víðast léttskýjað.
Hafa afom-
og vetnissprengjar áhrif á
veðurfar?
32. tbl. — Miðvikudagur 9. febrúar 1955
Athyglisverð jdtning
kommúnistn-
þingmonns
★ f NOKKRUM orðaskipt-
um sem urðu á Alþingi,
sakaði þingmaður Vestmanna
eyinga, Jóhann Þ. Jósefsson,
kommúnistaþingmanninn Karl
Guðjónsson, um að hafa sagt
hlutdrægt og rangt frá sjó-
mannadeilunni og halla máli
á útgerðarmenn.
A Taldi Karl að það væri
víðsfjarri að hann hefði
hallað máli á útgerðarmenn-
ina, enda væri verkfallinu
ekki stefnt gegn útgerðarmönn
unum heldur gegn ríkisstjórn
inni. Tók hann það fram skýr-
um orðum að sjómannadeilan
í Vestmannaeyjum væri til að
klekkja á ríkisstjórninni.
A Þvkir þetta furðuleg og
merkileg játning kommún
istaþingmannsins, um að hann
og kommúnistaklíkan í Vest-
mannaeyjum eru að berjast
gegn rikisstjórninni með verk-
falli á bátum Vestmannaey-
inga. í þessu hrein-pólitíska
striði eru það fólkið sem verð-
ur fórnarlömb kommúnista og
atvinnulíf Vestmannaeyja,
sem á að bera þann þunga og
tilgangslausa herkostnað.
Það er greiniiegt hvað
kommúnistar vilja. í stað
þess að heyja stjórnmálabar-
áttu sína á þingræðislegum
grundvelli og láta vilja alþjóð
ar ráða í frjálsum kosningum,
ætla þeir að láta ofbeldisverk
tala og fórnarlambið í þeirri
rimmu vilja þeir að íslenzk
alþýða sé.
ílateyrarbátar tapa veiðarfærum
og hætt komnir yíir lóðum sínum
Flateyri, 8. febr.
SJÓMENN á bátunum héðan, hafa þá sögu að segja, úr róðrum
sínum, að ágengni erlendra togara og stórhættulegt tillitsleysi
þeirra, hafi aldrei verið meira en upp á síðkastið.
Sjómenn segja það einkum
vera brezka togara, sem hér eiga
lilut að máli. Héðan stunda nú
róðra þrír bátar og voru allir á
sjó í gærdag.
RÁÐIR MISSTU
VEIÐARFÆRI
Tveir bátanna urðu fyrir veið-
arfæratjóni af völdum togaranna.
Annar báturinn missti 20—30 lóð-
ir er togari fór með vörpuna yfir
línu bátsins.
N7ERRI ORÐIÐ SLYS
Hinn bátinn var brezkur tog-
ari nærri því búinn að sigla nið-
ur og töldu bátverjar það snar-
ræði sínu að þakka, að ekki
skyldi verða enn eitt sjóslysið.
Rrezki togarinn sveigði ekki af
stefnu sinni. þó fyrirsjáanlegt j
væri, að ef hann héldi óbreyttri1
stefnu myndi hann sigla á bátinn.
— Togarinn sópaði með sér lóð-
«m bátsins. — BS.
-A>
Komnirheim affundi
Norðurlandaráðs
ÞRÍR af fulltrúum íslands á
fundi Norðurlandaráðsins í Stokk
hólmi, komu heim með Sólfaxa
í gær frá Prestvík, en þangað
flugu þeir á mánudagskvöld frá
Kaupmannahöfn. Voru það þeir
Sigurður Bjarnason, Gísli Jóns-
son og Emil Jónsson. — Á sunnu-
dag komu þeir Ásgeir Bjarnason,
Páll Zóphóníasson, ásamt Jóni
Sigurðssyni skrifstofustjóra Al-
þingis, heim frá Höfn, en þeir
sátu einnig fund Norðurlandaráðs
ins í Stokkhólmi.
Flugmeimirnir
á Sólíaxa fnndu
einsetumanninn
ER SÓLFAXI var í Grænlands-
flugi sínu á sunnudaginn, báðu
staðarmenn í Meistaravík, flug-
stjórann um að fljúga inn yfir
Óskarsfjörð, og gá hvort nokkuð
sæist þar til veiðimanns í svo-
nefndri Antartichavn. Hann hef-
\»r haft þar vetursetu. Maður
þessi er franskur og höfðu Meist-
acavíkurmenn ekki haft af hon-
um neinar fregnir j fimm mánuði
frá því í haust er leið, er hann
tók sér bólfestu, en hann er einn
síns liðs.. — Er Sólfaxi flaug
yfir stað þann, sem maðurinn
hefur bækistöð sína á, kom
áhöfnin auga á þann franska, því
öðrum er ekki til að dreifa. Var
hann þar á ferð á hundasleða
sínum!
Einnig var flogið yfir veður-
athugunarstöðina á Tobinhöfða.
Var þar kastað niður jólapósti
til veðurathugunarmannanna.
Hita\ eitiisvæðis-
búar settu met
í FYRRINÓTT settu íbúarnir á
hitaveitusvæðinu, met vetrarins
í óhóflegri notkun heita vatns-
ins, er 200 sekundulítrar af vatni
við suðumark, runnu inn á vatns
kerfi húsanna næturlangt. Hafði
þetta í för með sér að í kuldan-
um í gærdag voru hitaveitugeym-
arnir á Öskjuhlíð tómir orðnir
kl. hálf þrjú.
Var því vatnslítið á öllu hita-
veitusvæðinu í gærdag og langt
fram á kvöld. í húsum þeim sem
hæst standa var vatnslaust all-
an daginn.
Þó Hitaveitan sé ekki svo öfl-
ug, að hún geti mætt með fullum
vatnsþrystingi um bæinn í slíkum
frosthörkum sem verið hafa, þá
er næturrennslið óverjandi
eyðslusemi, sem aðeins kemur
manni sjálfum í koll. í frosta-
kaflanum um daginn var fólk
beðið að spara vatnið. Bar það
vissulega mikinn árangur og er
þess að vænta, að svo verði einn
ig nú, er hitaveitusvæðisíbúar
eru hvattir til að fara sparlega
með heita vatnið.
Magnús Jénsson lal- Stúdentaráð mun afhenda
ar á Hvalarfundl
ita !
Tanum
mótmæli háskólastúdenta
IGÆRKVÖLDI efndu háskólastúdentar til fundar í hátíðasal
Háskólans, til þess að mótmæla svívirðilegum árásum, sem
Islendingar hafa orðið fyrir í brezkum blöðum að undanförnu.
Tóku margir stúdentanna til máls og var að lokum samþykkt
ályktun í málinu.
pósísam-
mántið
HVÖT, Sjálfstæðiskvennafélagið,
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu
í kvöld, og hefst hann kl. 8,30
e. h. Á fundinum mun Magnús
Jónsson alþingismaður tala um
stjórnmálaviðhorfið, en síðan
verða frjálsar umræður.
Til skemmtunar verður leik-
þáttur og einnig er kaffidrykkja
Sjálfstæðiskonur eru hvattar
til þess að fjölmenna á fundinn,
og heyra hvað Magnús Jónsson
hefur að segja um viðhorfið í
stjórnmálunum.
ligurslaus
sáttafundur
KLUKKAN 9 í gærmorgun var
sáttafundi slitið, er sáttasemjari
ríkisins ácti með deiluaðilum í
verkfalli matreiðslu- og fram-
reiðslumanna á kaupskipaflotan-
um. Ekki tókst sáttasemjara að
ná samkomulagi á :"undi þessum,
sem staðið hafði yfir í 16 klst.
Ekki hafði sáttasemjari í gær
boðað fund á ný með deiluaðil-
Prestur settur
BÆ, Höfðaströnd, 7. íebrúar —
Séra Árni Sigurðsson, sem verið
hefur aðstoðarprestur að Hvann-
eyri, hefur verið settur til að
gegna prestsembættinu hér á
Hofsósi, til vors. Þá mun verða
gengið hér til nrestskosninga.
Hvassviðrasamt hefur verið
hér og bátar því ekki róið. — í
dag fór einn bátur, en gat ekki
lagt alla línuna. Hann var með
sæmilegan afla. —B.
ftngar
göngor í
GJÖGRI, 8. febrúar — í dag lenti
hér á Gjögurflugvellinum :’lug-
vél Björns Pálssonar. Flutti hún
Arneshreppsmönnum póst, sem
var sérstaklega kærkominn, bví
við höfum ekki fengið póst síðan
6. janúar. Gjögurflugvöllurinn
var gerður á s. I. hausti, en er
eklci fullgerður enn og stendur tll
að ijúka honum í vor, þegar tíð-
arfar leyfir. Völlurinn er um 300
m. langur og 20—30 m. breiður.
Hefur Björn Pálsson lent flugvél
sinni á honum tvisvar áður.
Póstleysið eru ekki einu vand-
ræðin, sem að okkur steðja vegna
verkfallsins á strandferðaskipun-
j um, þar sem kaupfélagið er orðið
j alveg uppiskroppa með hveiti og
I kaffi og aðrar nauðsynjar alveg
á þrotum. Hefur komið til mála
að senda bát hingað með brýn-
ustu nauðsynjar.
Tíðarfar hér má teljast hafa
verið sæmilegt og er snjólítið á
láglendi en mikið svell. Sá vandi
hefur þá borið að höndum í sam-
bandi við færð, að skaflajárn
hafa ekki fengizt hér í allan vet-
ur og því illt að taka út hesta.
—Regina.
Mótmœía
í GÆR gerði Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Hafþór á Akra
nesi, eftirfarandi áiyktun, varð-
andi rógskrifin í sambandi við
brezku togaranna sem fórust út
af Horni:
„Skipstjóra- og stýrimanna-
félagið Hafþór á Akranesi, lýsir
megnustu andúð sinni á skrifum
brezkra blaða, út af því hörm-
ungarslysi, sem varð við norð-
austurströnd íslands í liðnum
mánuði. Óskar félagið eftir því
að viðkcmandi yfirvöld tjái sig
fús til að biðjast afsökunar á téð-
um skriium við viðkomandi aðiia.
Olíuskortar
FLATEYRl, 8. febrúar .— Vegna
verkfallsins á verzlunarflotanum
er nú svo komið hér á Flateyri,
að hér er orðið að mestu olíu-
laust og horfir til stórvandræða,
ef nýjar birgðir berast ekki skjót-
lega. —BS.
-Frummælandi var Sverrir Her-
-.íannsson stud. oecon. Rakti
hann málið í aðalatriðum. Drap á
ýmsar hugsanlegar mótmælaað-
gerðir, af íslendinga hálfu. Með-
al annars beindi hann þeim til-
mæium til fræðslumálastjórnar,
að í mótmælaskyni yrði öll
enskukennsla lögð niður í öllum
^ó'um l^ndsins um nokkurra
daga skeið. Ennfremur að félög
og félagasamtök sendu frá sér
mótmæli gegn hinum illkvittnu
skrifum.
Var gerður góður rómur að
máli ræðumanns. Síðan hófust al-
mennar umræður og tóku margir
stúdentar til máls.
ÁLYKTUN FUNDARINS
Sem fyrr segir var í lok fund-
arins samþykkt ályktun sú, sem
fer hér á eftir:
„Almennur fundur stúdenta
í Háskóla íslands, haldinn
þriðjudaginn 8. febrúar 1955,
lýsir yfir vanþóknun sinni og
hryggð vegna hinna fáheyrðu
aðdróttana og einstæðu ósann-
inda, sem fram hafa komið iE
garð íslendinga í brezkum
blöðum að undanförnu í sam-
bandi við sjóslysin út af Vest-
fjörðum nýlega.
Fundurinn beinir þeirri ein-
dregnu áskorun til íslenzkra
stjórnarvalda að þau láti
einskis ófreistað til að hrinda
þessari ódrengilegu árás og
krefjist þess af brezkum
stjórnvöldum að þau beiti sér
fyrir leiðréttingu og algjörrii
uppreisn íslands í þessu máli.“
Á FUND SENDIHERRAN S
Þá var einnig í fundarlok sam-
þykkt tillaga frá Magnúsi Ósk-
arssyni stud. jur., þess efnis, að
fela stúdentaráði öllu (9 menn)
að ganga á fund brezka sendi-
herrans með mótmæli í anda
ályktunar fundarins.
Um báðar tillögurnar ríkti ein-
hugur meðal fundarmanna, sem
voru margir.
SIJS mótmælir níðskriíum
Stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna samþykkti
einróma á fundi sínum í gær svohljóðandi ályktun:
INAFNI fjölmennustu stjórnmálasamtaka íslenzkrar æsku lýsir
stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna djúpri fyrirlitningu
og andúð á hinum siðlausu níðskrifum brezkra blaða að undan-
förnu, þar sem íslendingar eru taldir sekir um dauða þeirra brezku
sjómanna, er fórust fyrir skömmu með tveimur brezkum togurum
á hafinu norður af Vestfjörðum. Munu skrif hinna brezku blaða
einsdæmi njeðal siðaðra þjóða og jafnframt einsdæmi að vinveitt
þjóð, sem hvað eftir annað hefur lagt líf sona sinna í hættu til
að bjarga brezkum sjómönnum, sé rógborin á svo svívirðilegan
liátt. Telur Sambandsstjórnin einsætt, að brezka ríkisstjórnin verði
heiðurs síns vegna að biðjast opinberlega afsökunar á framferði
hinna brezku blaða og fyrirskipa blöðunum jafnframt að leiðrétta
og biðjast afsökunar á níðskrifum sínum. Hljóta íslendingar ella
að lita svo á, að Bretar óski eftir að slíta þau vináttubönd, sem
tengt hafa þessar þjóðir saman, og munu þá haga sér eftir því.
Nýkjörið bimaðar-
þing hefsí 10. \km.
HIÐ nýkjö'-na Lúnaðarþing kem-
ur saman til fyrsta fundar sína
hinn 10. íebrúar. Þingfulltrúar
eru 25, en aí þeim eru sex menn,
sem ekki hafa áður átt sæti á
búnaðarþingi.
Þingið mun verða sett árdegia
á fimmtudaginn.
AUSTURBÆR
abcdefgh !
abcdefgh
VE8TURBÆR
6. leikur Austurbæjar:
0—0