Morgunblaðið - 24.02.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.02.1955, Blaðsíða 1
16 síður Til lítils er að gera tillögur um framkvæmdir ef fjárhagslegiir grundvöllur þeirra er ekki tryggður Þféðlsia skortir frekar fjármagn en nýjar nefndir RæSa Kagttúsar Jónssonar á þingi í gær í OKKAR þjóðfélagi skortir ekki tillögur um ýmiss konar opinberar framkvæmdir, sem allir viður- kenna að eru líklegar til að bæta afkomu þjóðarinnar og því skynsamlegt að hrinda í framkvæmd. Það er þvert á móti aðalvandamálið að fá nægilegt fjármagn, bæði innlent og erlent til að framkvæma allar hinar skynsaralegu og góðu framfaratillögur. ■jV Þannig mælti Magnús Jónsson, þingmaður Ey- firðinga á Alþingi í gær. Og hann bætti við: Það sem okkur skortir fyrst og fremst til að koma upp stóriðjuverum, sem kosta hundruð milljóna króna og koma af stað ýmsum stórframkvæmdum, það er erlent fjármagn. En um það er deilt, hve langt eigi að ganga í því efni. Magnús flutti ýtariega ræðu j Sameinuðu þingi í gær, þfigar á dagskrá var þingsilykfunartil-. laga frá nokkrum ftamsóknar- mönnum um það „að kjósa nefnd“ til að gera tillögur um nýjar atvinnugreinar og hagnýt- ingu náttúruauðæfa. HVAÐA VERKEFNI EIGA AÐ SITJA FYRIR í ræðu sinni sagði Magnús Jónsson, að það væri að sjálf- sögðu viðfangsefni þings og ríkis- stjórnar að reyna á hverjum tíma að efla svo atvinnulífið, að þjóðin gæti framfleytt sér og tekið við fólksfjölgun. Er það að jafnaði viðfangsefni Alþingis að ræða þetta. Kemur þá í ljós að oft er mikill ágreiningur um hvernig eigi helzt að gera þetta og hvaða verkefni að sitja fyrir. Því að þó margt sé framkvæmt í okkar þjóðfélagi, er reyndin þó alltaf sú, að það er meira sem menn óaka að íramkvæmt sé, heldur en hægt er að gera, því að okkur skortir fjármagn til að hrinda öllu í framkvæmd sem við viljum. HEFUr. TILT.AGAN NOKKRA ÞÝÐINGU? Síðan vék Magnús að tillögu Framsóknarmannanna. — Hann sagði að í sjálfu sér væri mál það sem hún fjallaði um, ekki deiluatriði. Allir væru sammála um að efla atvinnuvegina, hafa á þeim sem bezt skipulag til þess að öll landsins börn gætu lifað sómasamlega. En þá kemur að hinu, sagði Magnús, hvort þessi tillaga hefur nokkur áhrif í þá átt að hraða meir en verið hefur ýmsum fram- förum í landinu. Eða hvort til- laga Framsóknarmannanna legði nokkurn grundvöll að því að hægt væri fyrr en ella að hefjast sem nú bíða. Magnús kvað að vísu ekki að sinni hægt að kveða upp neinn endanlegan dóm yfir tillög- unni. Hana þyrfti að rannsaka betur, en samt sagði hann að sér virtist flest sólarmerki benda til þess, að þessi tillaga Framsóknarmanna myndi eng um verulegum umbreytingum geta valdið í framkvæmdum. Magnús gerði nú nokkurn samanburð á þessari tillögu og þeirri stórkostlegu tilraun til Framh. á bls. 2 Magnús Jónsson. 37 hrókranar- konur veikor DURBAN, 23. febr. — Sérfræð- ingar voru í skyndi kvaddir á vettvang til Addington-sjúkra- hússins í Durban í S-Afríku í dag, er 37 hjúkrunarkonur á sjúkrahúsinu höfðu veikst — að því er talið var af mænuveiki. Hj úkrunarkonumar hafa smám saman verið að leggjast i rúmið og þykir sjúkleiki þeirra benda til þess, að um lömunarveiki sé að ræða. Um það er þó ekki víst og hlut- verk sérfræðinganna er fyrst og fremst það, að ganga úr skugga um hvort hér sé um lömunar- veiki að ræða eða ekki. — Vetrarríki í Evrópu: — Snjósktiður faila Lundúnum 23. febrúar. — Frá Reuter-NTB. VETRARVEÐUR með snjó og kulda ganga enn einu sinni yfir Evrópu. í Alpafjöllum hafa snjóskriður fallið, sópað burt bændabýlum og orðið mönnum að fjörtjóni og grafið aðra í djúpum snjósköflum. flóð valda fióni Oruggur meirihluti WASHINGTON — Demókratar hafa nú formlega fengið örugg- an meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings. Fram til þessa hefur sætaskipan flokkanna ver- ið þannig, að demókratar höfðu 48 þingsæti, repúblikanar 47 og 1 var óháður. Nú hefur þessi óháði maður — þingmaður frá Oregon — gengið í flokk demó- krata og þar með hafa þeir 49 þingsæti. Á öðrum stöðum í Evrópu — Suð-Austurhlutanum — eru stórflóð í ám, og hafa þúsundir fólks hrökkiazt frá heimilum sinum. ★ BÖRN LÉTU LÍFIÐ Það var skammt frá Bern í Sviss, sem snjóskriða tók bónda- bæ með sér og lét 7 ára gamall drengur þar lífið. Á öðrum stað er grafið eftir tveim öðrum börnum, sem snjóskriða hefur grafið. Snjókoma er víða á þess- um slóðum og fer ástandið versnandi. ★ HEILU ÞORPIN YFIRGEFIN Austar og sunnar, t.d. skammt frá Belgrad, hafa fljót vaxið mjög. Eru dæmi þess að vatnsborð hafi hækkað um sjö metra og eru stór svæði hluin vatnselg. Mörg þorp skammt frá Belgrad hafa verið yfirgefin með öllu. ★ REYNT AÐ IIJÁLPA í Skotlandi er hjálparstarfi haldið áfram, en þar hafa mörg þorp einangrast og birgðir matar víða orðnar litlar og sums staðar engar. Sunnar — eða í Englandi — er einnig snjókoma og margir vegir hafa lokazt. Franska stjórnar kreppan er leyst Edgor Faure forsætisróðherra nr. 21 fró styrjaldarlokum París 23. febr. — Frá Reuter-NTB. IJRANSKA sosialradikalanum Edgar Faure tókst í dag að leysa stjórnarkreppuna í Frakklandi. Fékk hann traust franska þingsins sem forsætisráðherra, en Faure er 21. for- sætisráðherrann í Frakklandi síðan stríðinu lauk. Er at- kvæðagreiðslan fór fram greiddu 369 honum atkvæði en 210 voru andvígir honum. * LOFORÐ FAURES Stjórn Faures er samsteypu- stjórn á nokkuð breiðum grund- velli. í henni sitja ráðherrar úr flokki sosialradikala, lýðveldis- flokksins, óháðir hægrimenn, bændaflokksmenn og Gaulleistar. Pinay (óháður hægrimaður) er 20. febrúar 1952 birtist þessi mynd af Edgar Faure. Þá fékk hann traust franska þingsins sem forsætisráðherra. Síðar var hann felldur af sama þingi. Nú — 3 árum síðar fær hann enn traust þess eftir að hafa lýst yfir að hann muni starfa í anda Mendes- France, sem þingið felldi fyrir 3 vikum!!! utanríkisráðherra og Gaulleistinn König er landvarnaráðherra. Fundur franska þingsins í dag hófst með því, að Faure gerði grein fyrir stjórnarmynduninni og rakti afstöðu sína til ýmissa mála. Höfuðáherzlu kvaðst hann leggja á eftirfarandi: i Að Parísarsáttmálarnir yrðu staðfestir eins fljótt og unnt væri. ^ Að Frakkland taki þátt í efnahagssamvinnu Evrópu- þjóða. 5 Að leysa vandamál Afríku ** með því, þó að réttur Frakk- lands yrði tryggður. Á MENDESFRANCE SAT HJÁ Er atkvæðagreiðslan fór fram sátu um 50 þingmenn hjá. Meðal þeirra var Mendes-France — en Faure var utanríkisráðherra í stjórn hans, sem felld var fyrir þremur vikum. Bretar ekki með LUNDÚNUM, 23. febr. — Churc- hill, forsætisráðherra, lagði áherzlu á það í fyrirspurnartíma í brezka þinginu í dag, að ekki kæmi til mála, að Bretland tæki þátt í hernaðarlegum vörnum eyjanna úti fyrir meginlands- strönd Kína. — Reuter-NTB. f---—----------------------------------—N „Ég hafði peninga, frœgð og al!t — nema frelsi" TÉKKNESK stúlka vakíu hafi ég haft Þessi tékkneska fræg í heimalandi allt, sem hægt var stúlka, Natsjudska sínu fyrir afrek í að krefjast. — Ég að nafni, tók þátt í listhlaupi á skaut- hafði fjárráð góð, heimsmeistara- um, hefur leitað hæl með því bezta er þar keppni í listhlaupi is sem flóttamaður gerist, ég var nafn- er fram fór í Vín. í Vesturlöndum. — toguð þar fyrir list- Tók hún ákvörðun- Kvaðst hún hafa tek hlaup og ég gat ferð ina um að flýja, sól ið ákvörðun um flott ast að vild og gat arhring áður en ann til þess að öðl- einstaka silujum tékknesku keppend- ast það eina, sem fengið að panta vör urnir á mótinu áttu hún ekki fékk að ur erlendis frá. Ég að halda. heim til búa við í Tékkósló- hafði allt ;— nema Tékkóslóvakíu. — vakíu — þ. e. frelsi. frelsi og öryggi. — Strauk hún frá hin Hún er 29 ára Mér fannst ég vera Um Tékkunum er gömul. I viðtali er e;ns 0g fugl í búri hópurinn var í verzl fréttamenn áttu við — ég fékk að gera unarferð í borginni. hana í dag i borg- aiit sem mig lang- Flúði hún til yfir- inni Linz í Austur- að; innan „rimla ráðasvæðis Banda- ríki, sagði hún: — búrsins“ en ekki ríkjanna í Austur- „Það má segja að fyr;r utan það“. ríki. — heima í Tékkósló- v.-----------------------------i-m------

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.