Morgunblaðið - 24.02.1955, Blaðsíða 8
8
MORGVISBLAÐiÐ
Fimmtudagur 24. febr. 1955
JnttMafrife
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðaxm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur,
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu 1 krónu eintakið.
Það þættu lítil
drátturvélakuup á fslandi
BLAÐ kommúnista birti s.l.
s.l. þriðjudag mikla skýrslu
um tækniframfarir í Sovétríkj-
unum. Þar var þess getið sem
dæmis um hina gífurlegu og
hröðu uppbyggingu rússnesks
landbúnaðar, að sovéskir bændur
hefðu s.l. ár fengið 137 þús. nýja
traktora.
Það getur varla verið að þessi
tala sé lægri en raunveruleikinn
sjálfur segir til um. „Þjóðviljinn“
er ekki vanur að draga skóinn
niður af Rússum og hinni komm-
únísku forystu þeirra.
En það er rétt að kryfja þessa
tölu til mergjar. Hvað þýðir hún
t. d. ef borin eru saman við hana
dráttarvélakaup íslenzkra
bænda?
í Rússlandi fengu 20 millj.
bænda, en það er hin opinbera
tala bænda þar í landi, 137
þús. dráttarvélar árið 1954,
samkvæmt upplýsingum ,,Þjóð
viljans“. Það svarar til þess að
íslenzkir bændur hefðu þetta
sama ár átt að fá 40 nýjar
dráttarvélar. Staðreyndin er
hinsvegar sú, að árið 1954
fengu bændur á íslandi kring-
um 500 nýjar dráttarvélar.
í Rússlandi hefur þannig
um það bil einn af hverjum
150 bændum fengið dráttarvél
á árinu 1954. Á íslandi hefur
hinsvegar 12. hver bóndi feng-
ið þetta tæki á sama tima.
Þetta er þá geysihraðinn í
tækniþróun rússneska landbún-
aðarins. Á sama tíma sem 12. hver
bóndi á íslandi fær nýja drátt-
arvél til ræktunar og annara
landbúnaðarstarfa fær 150. hver
bóndi í Sovétríkjunum slík tæki.
Þetta eru ákaflega merkilegar
upplýsingar, ekki sízt vegna þess
að það er sjálft blað kommúnista
hér á landi, sem flytur þær. Það
getur varla verið að það sé að
boða neitt ,,Rússaníð“.
Hér heima hafa kommúnistar
líka oftlega haldið uppi árásum
á stjórnarvöld landsins fyrir það,
hve uppbygging landbúnaðarins
gengi seint. Jafnframt hafa þeir
skammað bændur fyrir frum-
stæða búnaðarhætti. Svo verður
,,Þjóðviljinn“, að vísu óvart, að
lýsa yfir því, að rússneskir bænd
ur fái margfallt færri dráttarvél-
ar á ári en íslenzkir bændur.
Engu að síður telur hann það
tákn þess, að sovétskipulagið
tryggi miklu örari þróun land-
búnaðarins en „auðvaldsskipu-
lagið“ á íslandi.
Þetta er aðeins eitt dæmi um
það, hvaða mnrk er takandi á
raupi kommúnista hér af at-
vinnulífsumbótum „félaganna" í
Sovétríkjunum.
Fyrir fáum vikum var því
einnig lýst yfir í „Þjóðvilj-
anum“ að reynzt hefði ókleift
að auka kornframleiðslu og
kvikfjárrækt á samyrkjubú-
unum í Rússlandi. Hvers-
vegna? Vegna þess að hið
kommúníska skipulag hefur
lagst eins og mara á allt ein-
staklingsframtak í Sovétríkj-
unum. Kommúnistar hafa gert
alla bændur þar að ríkisþræl-
um.
Afleiðingarnar láta ekki á sér
standa. Kyrrstaða og hrörnun set-
ur svip sinn á rússneskan land-
búnað. Á sama tíma sem land-
búnaðarframleiðsla eykst stór-
kostlega meðal allra hinna vest-
rænu lýðræðisþjóða stendur
rússneskur landbúnaður á svip-
uðu stigi og fyrir nokkrum ára-
tugum. Þannig hefur hið komm-
úníska skipulag leikið eina mestu
landbúnaðarþjóð Evrópu, sem
þar að auki byggir frjósamt og
auðugt land.
Það er sannarlega engin tilvilj-
un að ýmsum æðstu ráðamönn-
um Sovétstjórnarinnar hefur ver-
ið kastað út í ystu myrkur vegna
þess, að þeir hafa verið taldir
bera ábyrgð á mistökum í stjórn
landbúnaðarmála.
Kommúnistar verða alltaf að
hafa einhverja syndahafra til
þess að slátra. Þegar kyrrstaðan
í landbúnaði þeirra hefur í för
með sér tilfinnanlégan skort á
landbúnaðarafurðum dettur þeim
ekki í hug að viðurkenna, að það
sé hinu kommúníska skipulagi
að kenna. Þess í stað er fólkinu
sagt að ólesturinn og upplausnin
spretti af því að yfirmenn land-
búnaðarmálanna hafi gerst sekir
um alls kyns glæpi, jafnvel geng-
ið af trúnni og gerst „leiguþý"
auðvaldsins.
En það er mikils virði að
blað kommúnista hér á landi
hefur nú ekki aðeins lýst yfir
þvi. að aukning kornyrkju og
kvikfjárræktar sé óhugsandi á
hinum sovésku samyrkjubú-
um, heldur og viðurkennt það,
að meðan 12. hver bóndi á ís-
landi fær dráttarvél þá fái að-
eins 150. hver bóndi í Rúss-
landi slík tæki.
Mjög fróðlegt væri að fá
upplýsingar um það hjá komm
únistablaðinu, í hverju það
telji yfirburði hins sovéska
landbúnaðar fram yfir íslenzk
an landbúnað vera fólgna?
Enn etn !órn
UMFERÐIN í höfuðborginni
hefur krafizt enn einnar fórnar
af íbúum hennar. Að þessu sinni
voru það tveir litlir drengir,
þriggja og fimm ára gamlir, sem
fyrir barði ógæfunnar urðu.
Þetta hörmulega slys er enn
ein aðvörun til bæjarbúa, í senn
þeirra, sem stjórna ökutækjum
og allra þeirra, sem eiga börn
sín á götunni. Hættan er alls stað-
ar nálæg, þegar óvitum er sleppt
gæzlulausum út í umferð hennar.
Því má enginn gleyma. Þeir, sem
ökutækjunum stjórna, eru líka
misjafnlega gætnir og ábyrgðar-
tilfinning þeirra misjafnlega rík.
Aðstaðan til þess að hindra slys
er ennfremur mjög misjöfn, ef
vegfarandinn hagar sér gálaus-
lega gagnvart umferðinni.
Hér verða því allir að leggj-
ast á eitt til þess að koma í
veg fyrir umferðaslysin, bif-
reiðastjórarnir og allur al-
menningur, börn og fullorðnir.
Þegar ógæfan hefur skeð er
allt um seinan. Borgarbúinn
verður sífellt að vera á verði
gagnvart hraða umferðarinn-
ar, hvar sem hann er staddur
og hvenær sem er. -— Þeirri
meginreglu verða allir að
fyigja.
Sendiherrar
í boð! vamarliðsins
SENDIHERRUM þeirra sex
þjóða hér á landi, sem meðlimir
eru í Norður-Atlantshafsbanda-
laginu, var boðið s. 1. miðviku-
dag að skoða framkvæmdir á
Keflavíkurflugvelli.
i Þetta var ein af fleiri kynnis-
förum, sem varnarliðið hér hef-
ur undanfarið gengizt fyrir.
' Brigadier General Donald R.
Hutchirison, yfirmaður varnar-
liðsins á íslandi, hafði hádegis-
verðarboð inni fyrir sendiherr-
ana. Að því loknu var sendiherr-
unum boðið að skoða varnar-
framkvæmdir á Keflavíkurflug-
velli, þ. á m. byggingar, sem
reistar hafa verið undanfarin
þrjú ár, og radartæki, sem not-
uð eru við flugumferðarstjórn
til aðstoðar og leiðbeiningar flug-
vélum, sem nálgast landið.
Þátttakendur í förinni voru:
Sendiherra Noregs, hr. Torgeir
Anderssen-Rysst; sendiherra
Frakklands, hr. Henri Voillery;
sendiherra Danmerkur, frú Bodil
Begtrup; sendiherra Vestur-
Þýzkalands, dr. Kurt Oppler;
sendiherra Bretlands, hr. James
Thyne Henderson og sendiherra
Bandaríkjanna, hr. Jchn J.
Rðfmapsverð fi!
súgþurrkunar
ALLSHERJARNEFND ræddi
þessi mál við raforkumálastjóra
og Sæmund Friðriksson, sem eru
í nefnd ásamt búnaðarmálastjóra,
er nú starfar að endurskoðun raf-
magnsgjaldskrár til súgþurrkun-
ar. Þar sem þessi nefnd er nú
að störfum og skipuð fulltrúum
frá Búnaðarfélagi íslands og
Stéttasambandi bænda, telur
nefndin ekki tímabært, að Bún-
aðarþing afgreiði ákveðnar til-
lögur í málinu.
Nefndin leggur til, að afgreiðsla
þessa máls verði þessi:
Búnaðarþing ályktar að fela
nefnd þeirri, er starfar að endur
skoðun rrfmagnsgjaldskrár til
súgþurrkunar, að taka til sér-
stakrar athugunar erindi þau,
er Búnaðarþingi hafa borizt um
raforkumál. Enn fremur vill
Búnaðarþing leggja sérstaka
áherzlu á, að afnotagjald af raf-
magni verði hið sama alls staðar
á landinu.
ÚR GLEYMSKU
Timoschenko marskálkur hefir
verið sæmdur Leninorðunni, að
því er Moskvu-útvarpið skýrir
frá.
br«0«-
ISLENZKA brúðuleikhúsið hef-
ur frá því um miðian desember
s.l. sýnt hér í Iðnó barnaleikina
Hans og Grétu og Rauðhettu við
ágæta aðsókn. Mun nú sýningum
á þessum vinsælu og skemmti-
legu leikjum bráðum lokið og því
síðustu forvöð að sjá þá. Er nú
XJeíuahanck ólznfar:
I „Sveitakona" svarar
sr. Jakobi Jónssyni.
VELVAKANDI góður!
Gætir þú ljáð „sveitakonu"
lítið rúm í dálkum þínum, þó að
ég með hálfum huga leggi í það
að svara á prenti slíkum mælsku-
manni, sem sr. Jakob Jónsson er
viðurkenndur að vera með þjóð
vorri:
j Kæri sr. Jakob Jónsson,
j þér segið í bréfi yðar frá 14.
j febrúar, að „auðvitað megi um
' það deila, hvort ekki væri per-
sónulegra, að bænir væru ekki
teknar upp á plötur.“ Ég fyrir
mitt leyti treysti mér ekki til að
deila um jafn augljsóan hlut,
sem það er, að óumdeilanlega
persónulegra er það, að bænir
j séu ekki teknar upp á plötur eða
j réttara sagt fluttar af plötum á
þann hátt, sem gert hefir verið,
j enda hafa „misfelli“ þessa fyrir-
! komulags þegar komið í ljcs. —
i Þökk sé yður, sr. Jakob Jónsson,
i að þér komið fram með þetta,
j sem átti að vera mergurinn máls-
ins hjá mér, en ekki ávítur á
| „kæruleysi og hirðuleysi“ ein-
stakra útvarps starfsmanna.
Væntir sér nýrrar upp-
örfunar frá sívakandi
sáluhjálpara.
ER ekki betra að fara í kirkju
en hlusta á messu í útvarpi,
og er ekki betra að hlusta á prest
inn í gegnum útvarpstækið á
þeirri stundu, sem hann, snort-
inn af hátíðleik stundarinnar fær
innblástur til að tala, heldur en
að heyra ræðu hans eða gamla
ræðu einhvers annars prests,
flutta seinna af stálþræði? En ef
sjálfir kennimennirnir eru ánægð
Iir, þá ættu leikmenn sjálfsagt að
vera það líka.
„Orðin tóm“ er bænaflutaing-
urinn í útvarpinu, fráleitt á þvi
j augnabliki, sem þau eru töluð,
1 þó að þau geti virzt það stund-
um, þegar þau eru leikin aftur
j (og aftur) af stálþræðinum. Ekki
fæ ég neitað þvi, að sama bæn,
eins og t. d. Faðir vor, endur-
tekið í það óendanlega alla æfi
geti komið við bænarþel biðj-
anda. En hér er um aðrar for-
sendur að ræða: Útvarpshlust-
andi opnar tæki sitt, væntir sér
nýrrar uppörfunar frá sívakandi
sáluhjálpara, er rís árla úr rekkju
og gerir sína morgunbæn, ein-
mitt með það fyrir augum á þeirri
stundu, að hlustandi hrífist af og,
eins og þér, sr. Jakob, segið,
biðji sjálfur með.
Það gleður mig að heyra á yð-
ar góðu morgunandakt, undan-
farið, sr. Jakob, að þér virðist nú
aftur við betri heilsu. Með beztu
óskum yður til handa,
Þ. J. H.“
Vöntun í veðurfregnum.
BÆJARBUI hefir orðið:
„Kæri Velvakandi!
í veðurfregnum, sem Veður-
stofan býr út fyrir útvarpið, er
sjaldnast að finna neinn spádóm
um væntanlegt hitastig. Að vísu
hafa veðurfregnir fyrst og fremst
gildi fyrir sjómenn, og kann að
vera, að veðurhiti verði þá minna
en vindátt, veðurhæð og skýja-
far. Hitt er þó vel ljóst, að fyrir
bæjarbúa og marga aðra eru það
enganveginn fullnægjandi veð-
urspár, sem ekki geta um hitastig.
Þó að Veðurstofan spái suðvestan
stinningskalda, gefur það flestum
enga hugmynd um, hverskonar
veður það sé, enda þótt þeim sé
ljóst, að norðlægir vindar séu
yfirleitt kaldari en suðlægir.
Eindregin tilmæli.
NÚ mun svo vera, að til þess
að geta útbúið veðurspárnar,
verður Veðurstofan að hafa hug-
mynd um væntanlegt hitastig.
Þessar upplýsingar liggja því fyr-
ir yfirleitt. Þess má geta, að veð-
urspár, sem birtar eru í útvarpi
varnarliðsins í Keflavík, leggja
mikla áherzlu á væntanlegt há-
marks- og lágmarks hitastig.
Þessvegna er eindregið til þess
mælzt, að Veðurstofan gefi þess-
ar auknu upplýsingar í almenn-
um veðurfregnum, og er enginn
vafi á því, að með því myndi
veðurþjónustan verða mun nyt-
samari en nú er. — Bæjarbúi.“
Á skammri
stund skipast
veður í lofti.
tekið að æfa nýjan barnaleik,
„Grámann í Garðshorni" og
hvggst Brúðuleikhúsið geta byrj-
að sýningar á þvi um miðjan
næsta mánuð. — Leikstjóri hefur
verið og verður á næsta leikriti
Ævar Kvaran, en Jón E. Guð-
mundsson, listmálari, eigandi
leikhússins, hefur gert allar brúð-
ur og tjöld og stjórnar brúðun-
um ásamt Baldri Georgs og
Evvönu Hólmgeirsdóttur.
Brúðuleikhús eru hvarvetna
vinsæl, enda getur þar oft verið
um góða list að ræða.
Hans og Gréta og Rauðhetta
verða að forfallalausu sýnd í
Iðnó næstkomandi sunnudag kl.
3 eftir hádegi.
Churchill ræðir um
kjarnorkuhernað
í næstu viku
LONDON, 22. febr. — Umræður
um stefnu Breta í varnarmálum
standa nú fyrir dyrum í neðri
deild brezka þingsins. Tjáði Sir
Winston Churchill, forsætisráð-
herra Breta, þingmönnum i dag,
að hann myndi er umræðurnar
hæfust í næstu viku, flytja ræðu
um hin knýjandi vandamál
k j arnorkuhernaðar.
Fyrirspurnum var beint til
forsætisráðherrans um afstöðu
brezku stjórnarinnar til tillögu
Indlands, er lögð var fyrir SÞ,
varðandi bann við öllum vetnis-
og kjarnorkusprengjutilraunum.
Churchill kvað stjórnina
ekki hafa tjáð sig fylgjandi til-
lögunni, en sagðist myndu drepa
nokkuð á tillögu indversku
stjórnarinnar í ræðu sinni í
næstu viku.
★ Einn þingmaður stjórnar-
andstöðunnar hvatti stjórnina til
að styðja þá tillögu, að öllum
slíkum tilraunum yrði frestað,
meðan afvopnunarmálin verða
rædd á fimmveldaráðstefnunni,
er hefst í Lundúnum n.k. föstu-
dag. Eins og sakir stæðu, kvaðst
forsætisráðherrann ekki vilja
styðja slika tillögu.
GÚMMÍSKÓR f STAÐ
WHISKYS
TORONTO — Skozkir whisky-
kassar hafa verið að berast með
múrsteinum, sandi, gúmmískóm
og brotajárni í stað hinnar réttu
vöru. Leynilögreglumenn vá-
tryggingarfélaganna hafa málið
til rannsóknar.