Morgunblaðið - 24.02.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.02.1955, Blaðsíða 16
Veðurúfli! f dag: N-kaldi eða stinningskaldi. Léttir til síðdegis. 45. tbl. — Fimmtudagur 24. febrúar 1955 VUlA notuð við húsbyggingar. — Sjá blaðsíðu 9. Er slysið á Ásvalla- götu að upplýsast? Bílstjóri segist haf a f undið að bíll hans færi yfir ójöfnu — Sá eugin börn RANNSÓKNARLÖGREGLAN hélt áfram í gærdag að rannsaka hið hörmulega slys er varð á Ásvalla- og Blómvallagötu- gatnamótunum í fyrradag. — Hafa margir bílstjórar verið yfir- heyrðir. Einn þeirra, sem ók um fyrrnefnd gatnamót um sama leyti og slysið varð, telur sig hafa orðið þess var að bíll hans fór yfir ójöfnu. En hann hafi ekki athugað það nánar, því hann hafi talið að hjól bílsins hafi farið upp á gangstéttina. Um rannsókn málsins, sem enn heldur áfiam, segir svo í frétta- tilkynningu, sem rannsóknarlög- reglan lét blöðunum í té í gær- kvöldi: EKKI FLEIRI VITNI „Ekki hafa komið fram neinir fleiri sjónarvottar að slysinu. — Meðal margra, sem þegar hafa verið yfirheyrðir, eru nokkrir bifreiðarstjórar, sem kómið hef- ur fram, að óku um gatnamót Ásvallagötu og Blómvallagötu og nágrenni slysstaðarins á svipuð- um tíma og slysið skeði. Eini sjónarvotturinn að slys- inu, sem enn hefur fundizt, er 9 ára gömul telpa. Hún fullyrðir, að það hafi verið vörubifreið, sem ekið var yfir drengina og hafi þeirri bifreið verið ekið suð- ur Blómvallagötu og beygt vest- ur Ásvallagötu. FRÁSÖGN BÍLSTJÓRANS Bifreiðarstjóri, sem upplýst er að ók vörubifreiðinni R- 1318 einmitt þessa leið mjög um svipað leyti og slysið skeði, skýrði svo frá við yfir- heyrzlu í fyrrakvöld, að er hann í þetta skipti tók beygj- una af Blómvallagötunni inn á Ásvallagötu, hafi bíllinn orð ið nokkuð utanlega á beygj- unni og hafi hann (bálstjór- inn) þá fundið að hjól bifreið- arinnar fór yfir einhverja ó- jöfnu. Kveðst hann þá hafa ályktað, að hjólið myndi hafa farið aðeins upp á gangstétt- arbrúnina og því ekki hafa at- hugað það nánar. Hann full- yrðir og, að ekki hafi hann séð nein börn þarna við gatnamótin. FÓR Á SLE SSTAÐINN ' í bifreið þessari er hægri- handarstýri. Beygjan var tekin til hægri og slysstaðurinn var vinstra megin á Ásvallagötunni. Bifreiðarstjórinn, sem á heima nokkru vestar á Ásvallagötunni ók nú rakleitt heim til sín. Kveðst hafa verið kominn heim fyrir lítilli stundu, er hann heyrði hljóðmerki frá sjúkrabifreiðinni. ksama mund frétti hann, að slys hefði orðið við áðurnefnd gatna- mót og fór hann þá á slysstaðinn, og fékk vitneskju um hvað gerzt hafði. Rannsókn heldur áfram og er enn skorað á alla þá, sem ein- hverjar upplýsingar kunna að geta gefið, að gefa sig hið fyrsta fram við rannsóknarlögregluna“. ♦ t Ríkisábyrgð iryggð iyrir fcgara til Neskaupsfaðar Blaðinu barst í gær eftirfar- andi fréttatilkynning frá tog- arakaupanefnd Neskaupstað- ar: „í DAG hefur ríkisstjórnin til- kynnt togarakaupanefnd Nes- kaupstaðar, að veitt verði ríkis- ábyrgð til kaupa á nýjum diesel- togara í stað Egils rauða, sem fórst fyrir skömmu. Nefndin mun leita eftir tilboð- um í smíði á nýtízku dieseltogara og leggja áherzlu á' að skipið verði tilbúið sem fyrst. Nefndin er þakklát fyrir góðar undirtektir ríkisstjórnarinnar í þessu mikla hagsmunamáli Nes- kaupstaðar". í togarakaupanefndinni eru: Axel Tulinius, Lúðvík Jósepsson, Ármann Magnússon og Oddur Sigurjónsson. t . 1 Efri polli myndin sýnir, þegar verið er að sprengja ísinn á Akureyrar- , en á þeirri neðri sést „Hekla í ísnum. — Vignir. ís á Akureyrarpolli AKUREYRI, 23. febr. — Undan- mjög miður farið. Það er fyrst farna daga hefur verið unnið að og fremst þjónusta við þá að opna því að sprengja og brjóta ísinn i leið hér að bryggju. Finnst Ak- á Akureyrarpolli, svo að skip ureyringum að þeir njóti ekki mættu leggjast að Torfunefs- svo mikillar þjónustu frá hendi bryggju. Nú um alllangt skeið Skipaútgerðarinnar að hún hefði Sanmingavið- | ræður liafnar í GÆRDAG klukkan 2 komu samninganefndir atvinnurek- enda og verkalýðsfélaganna saman á fyrsta fund sinn. Var rætt um þær vinnuaðferðir er viðhafðar skyldu. Komu nefndirnar sér saman um að taka fyrst fyrir hinar einstöku sérkröfur félaganna og munu slíkir fundir verða haldnir í dag. Slys á Keflavíkur- flugvelli KEFL AVÍKURFLU G VELLI, 23. febrúar — I dag var slys hér á flugvellinum, er menn úr slökkvi liði flugvallarins voru á æfingu úti á flugbraut. Tveir Banda- ríkjamenn slösuðust og munu meiðsl þeirra hafa orðið all al- varleg. Mennimir tveir voru á slökkvi- liðsbíl, sem rann til á hálku og hvolfdi. Voru mennirnir utan á bílnum og mun a. m. k. annar þeirra hafa orðið undir bílnum með annan fótinn og stórskadd- aðist fóturjnn. Slökkviliðsbíllinn gjöreyðilagð ist í veltunni. ■—B. ekki getað unnið þetta verk fyrir þá. Við munum áreiðanlega bera hallarekstur hennar til jafns við Vignir. hefur afgreiðsla skipanna orðið að fara fram við Tangann. í gær var strandferðaskipið Hekla statt hér. — Renndi hún aðra þjóðfélagsþegna. tvisvar sinnum í ísinn og braut talsvert af honum, en Hekla er ísvarin, en það eru mörg skip- anna okkar ekki. Mikill mann- fjöldi safnaðist niður á bryggju til þess að sjá aðfarir Heklu í ísnum, en hún risti hann rétt eins og væri hann smjör. Mér er tjáð að skipstjórinn á Heklu hafi tek- ið því dræmt að brjóta ísinn, er hafnarvörðurinn hér fór þess á leit við hann, enda mun hann ekki hafa eytt nema um fjórð- unga stundar í verkið. Þá var snúið frá. Þótti bæjarbúum það Gjöf iil SVFI NÝLEGA bars Dvalarheimili aldraðra sjómanna að gjöf bóka- safn ásamt tilheyrandi skáp, frá Oddfríði Þorsteinsdóttur og Jóhannesi Óskari Jóhannssyni, til minningar um son þeirra Jóhann Hauk Jóhannesson, er lézt 6. júll 1954. MEIRI ÍS Á ÖLFUSÁ EN MENN MUNA TIL ÁÐUR 0' Bildudalsbátar sækja suður fyrir Látrabjarg Bíldudal, 23. febrúar. UNDANFARINN hálfan mánuð hafa bátarnir verið á sjó hvern dag, þar til í gær. Hefur afli verið sæmilegur, allt upp í 7 Jestir í róðri. Bátamir hafa sótt suður fyrir Látrabjarg yfir á Breiðafjörð, en þar hafa þeir meira næði fyrir erlendum togurum en á norðurmiðunum, þar sem alltaf hriktir í ágengni togaranna. Einnig telja þeir afla betri á þessum miðum. Einn bátur Hinrik, er nú að útbúa sig á rækjuveiðar, en óvíst er hvenær veiðarnar hefjast. HÁLKA Á VEGUM Sæmilegt veðu* hefur verið undanfarið, dálítið frost og snjór. í gær var hér rigning, og kom þá talsverður bloti á snjóinn. Vegir í firðinum eru sæmilega færir, þótt talsvert svell sé og hálka. Er nú bílfært inn í Suðurfirði og út í dali. Hefur verið farið alla leið út að Hvestu á bíl. VIÐGERD Á FRYSTIHÚSINU Unnið hefur verið að því síðan um áramót að koma fyrir nýrri rennibraut í frystihúsinu, og er þeirri viðgerð að verða lokið. — Hafa allmiklar breytingar og við- gerðir farið fram á frystihúsinu síðastliðið ár. BÆTT UR VORUSKORTINUM Mikið hefur verið um skipa- komur hingað til Bíldudals síð- ast liðna viku. Var allmikill skortur orðinn hér á ýmsum vör- um, þar á meðal beitu og olíu. — Friðrik. Manngengvr ís ÞINGEYRI, 23. febrúar. — Góð tíð hefur verið í Dýrafirði und- j anfarið, en talsverð frost hafa verið. Er fjörðurinn allur ísi1 lagður út að Þingeyri og er hann vel manngengur á móts við Kjartansstaði þvert yfir. Er langt síðan svo mikill ís hefur komið á Dýrafjörð, eða nokkrir tugir ára. Ekki er mikill snjór í byggð, og vegir sæmilega greiðfæir. Má heita að hægt sé að komast á allflesta bæi beggja megin fjarð- arins á bifreiðum. j Atvinnuleysi er orðið tilfinn- anlegt á Þingeyri. Fóru 10 manns um síðustu helgi til Flateyrar héðan til þess að fá sér atvinnu 1 þar. Ber þar einkum til, að illa hefur gengið með þann eina bát, sem gerður er héðan út á vetrar- vertíð, en hún er það eina um þetta leyti árs, sem skapar at- vinnu hét. — Magnús. Selfossi, 23. febrúar. VENJUMIKILL ís er nú á Ölfusá, og mun menn í Árnessýslui ekki eftir slíkum ís á ánni um tugi ára. Aðallega hefur ána lagt í Flóanum fyrir neðan Selfoss, þar sem hún rennur á eyrum, og allt niður í sjó. Má heita að allar grynningar séu undir þykkum ísi, en opinn áll er í ánni fyrir ofan og neðan Ölfusárbrú og um tveggja metra þykkar ísskarir beggja megin. 20 TOMMU ÞYKKUR ÍS ^ Ég talaði við Hjörleif bónda j Pálsson í Arnarbæli í Ölfusi í j dag, og kvað hann ána niður I undir ósi, beint á móti Kaldaðar nesi, alla undir 20 tommu þykk- j , . um ísi. Þar mætti heita að ekki oldoíliil. sæist í vök. Verkamaðiir Miklir sjúkrafiufningar í FYRRADAG var einn með allra mestu annadögum sem komið hafa við sjúkraflutninga hér í bænum. — Rauða kross bílarnir fóru tæplega 30 sjúkra- flutninga írá því kl. 1 eftir há- degi til kl. 1 aðfaranótt miðviku- dagsins. HÆTT VIÐ FLÓÐI Ekki kvaðst Hjörleifur hrædd- ur um að áin stíflaðist við ósinn og flæddi yfír bakka að svo stöddu. En aftur á móti ef brigði til mikillar hláku og rigninga, gæti svo farið. Sagði hann ísinn óvenjulega sléttan á þessu svæði, og færan öllum farartækjum. —Kik. ABCDEFGH AUSTURBÆK mm»mm iBil ABCDEFGH VESTUKBÆR 13. leikur Vesturbæinga: Rf3—e5. í GÆRDAG sóttu sjúkraliðs- menn slasaðan verkamann £ bæjarvinnuflokki inn við Rétt- arholtsveg, þar sem verið er að leggja hohæsi í skurði. Maðurinn. sem heitir Óskar Jónsson, Laugavegi 17, hafði slasast á höfði og læri, er „bóma“ slóst í höfuð honum og hann féll við. Meiðslin munu ekki vera al- varleg, en hann var fluttur I Landsspítalann. Lítil flugumferð um Keflavík ! KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 23. febrúar — Mjög lítil umferð hef* ur verið hér um flugvöllinn um nokkurt skeið og veldur því hva flugskilyrðin eru miklu erfiðari hér norðurfrá en syðra. Hafa komið ein og tvær flugvélar á dag. Hingað hafa komið þrjár flugvélar í dag, meðal þeirra millilandaflugvél Loftleiða, sem var á leið til Evrópulanda. Hafði hún skamma viðdvöl hér vegna truflana í hreyfli. .—B.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.