Morgunblaðið - 24.02.1955, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.02.1955, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 24. íebr. 1955 MORGUNBLAÐIÐ 11 Vistheimili fyrir stúlkur á glapstigum er frumskilyrði þess, að árangur náist af kvenIög regIustarfinu FYRIR um ári birti Mbl. samtal við unga stúlku, Vilhelmínu Þor-- valdsdóttur frá Akureyri, sem þá var nýkomin heim eftir alllanga dvöl í Bandaríkjunum, þar sem ]hún hafði verið á vegum íslenzku lögreglunnar til að kynna sér etarfshætti kvenlögregluþjónust- unnar þar í landi. Vilhelmína hefur ekki verið aðgerðarlaus síðan hún kom heim, nóg voru verkefnin, sem biðu hennar. Hana vantaði skrif- stofu — húsnæði undir þá skrif- stofu og ótal margt fleira þurfti að komast í kring áður en hún gæti hafið starf sitt hér. — Nú í sumar fékk hún loks skrifstofu, uppi á Klapparstíg og í haust fékk hún aðra stúlku, Sigríði Jónsdóttur, einnig frá Akureyri, aér til aðstoðar, svo að „fyrir- tækið“ er nú greinilega hlaupið af stokkunum, og má óhætt full- yrða, að starf þessara tveggja ungu stúlkna frá Akureyri hafi þegar borið þann árangur, sem epáir góðu um framtíðina. ÞÖRF OG NAUÐSYN í samtali, sem ég átti við ung- frú Vilhelmínu fyrir skömmu, Bpurði ég hana vítt og breitt um etarf hennar, í hverju það er að- allega fólgið og reynslu hennar í þessum málum hér heima. — Reynsla mín er nú ekki ýkja mikil, enn sem komið er, segir Vilhelmína, — en þó nógu mikil til þess, að ég held, að við séum í engum vafa um, að það er þörf og nauðsyn á sliku starfi og jafn- framt góðar vonir um, að það geti borið árangur, ef vilji og nauðsynlegustu skilyrði eru fvrir hendi. HJÁLPA AFVEGALEIDDUM STÚLKUM Það, sem við gerum, er fyrst 'cg fremst að hjálpa ungum stúlk- um, sem lent hafa á rangri braut, til að rétta við aftur og ef hægt væri að fyrirbyggja, að þær lentu á þessari röngu braut með því að koma til hjálpar áður en í óefni er komið — byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan í. ,Við höfum samráð og samvinnu bæði við barnaverndamefnd og lögregluna og svo síðast en ekki EÍzt sjálf heimilin, stuðningur þeirra og skilningur er okkur nauðsynlegur, eigi nokkur árang- ur að nást af starfi okkar. EFTIRLIT MEÐ ÚTIVERU BARNA OG UNGLINGA Þá höfum við líka í haust og vetur unnið að því að útbúa aldursskírteini fyrir börn og unglinga til að auðvelda eftirlit með því, að reglum um útivist Bé framfylgt, en mikill misbrest- ur hefur jafnan verið á því. Við höfum gengið í skóla bæjarins og tekið niður nöfn og heimilisföng nemendanna, ásamt aldri og ljósmynd. Einnig höfum við eftir- lit með því að börn sjái ekki kvikmyndir, sem þeim eru bann- aðar. Verður nú reynt að hafa eftirlitið öruggara, þannig að bót fáist frá því, sem verið heíur. Ég vildi um leið mega minna á, að samkvæmt lögreglusamþykkt Reykjavíkurbæjar er börnum yngri en 12 ára bannað að vera úti eftir kl. 20. Böm írá 12—14 ára mega ekki vera úti eftir kl. Samtal við imgfrú Vilhelinínu Þorvaldsdóttui Vilhelmína Þorvaldsdóttir 22 og unglingum innan 16 ára er óheimill aðgagnur að almennum dansstöðum og kaffistofum eftir kl. 20. Þetta verða allir foreldrar að hafa í huga. DRYKKJUSKAPUR HELDUR MINNKANDI — Verðurðu mikið vör við drykkjuskap meðal ungra stúlkna? — Nei, minna en ýmsir munu ætla. Þeir, sem þessum málum eru kunnugastir segja, að minna sé um slíkt nú en var fyrir nokkrum árum, þar með er ekki sagt, að ástandið sé gott í þessu efni. Það er ömurleg sjón að sjá unga stúlku dauðadrukkna i lög- regluhöndum — ef til vill á leið , lögreglukonu í fangelsi — sjón, sem ekki ætti að þekkjast. ERFIÐ AÐSTAÐA — Hver eru svo ykkar úrræði til bóta? — Ég vil taka það fram strax, að aðstaða okkar til að gegna því hlutverki, sem okkur er ætlað, er vægast sagt mjög erfið á með- an ekki er til á iandinu, hvað þá hér í Reykjavík, neitt vistheimili fyrir stúlkur, sem lent hafa á glapstigum og þurfa aðhalds og umsjónar með. Margar af þeim stúlkum, sem við höfum undir handarjaðrinum, eru ágætar stúlkur í sér, en reikandi og á- hrifagjarnar, — hvort heldur er til hins betra eða verra -— og draga því algerlega dám af þeim félagsskap, sem þær lenda í. Væri hægt að fjarlægja þær úr hinu spillandi umhverfi og beina áhuga þeirra ótrufluðum inn á hollari brautir, væri þeim borgið. GÓÐ HEIMILI GÆTU ORDIÐ AÐ MIKLU LIÐI En til þessa vantar okkur ein- hvern stað, sem tekið gæti við þessum stúlkum. Það hefur verið reynt að leita til góðra heimiía ýmist hér í Reykjavík eða úti í sveitum, en flestum er á sama veg farið. Hús- mæður vilja ekki hætta á að taka á heimilið stúlku, sem hefur „lent í einhverju“ eins og sagt er. Slíkt er þó oft algerlega ó- Framh. á bls. 1? Um skálar og geymsluílá) SÉRHVERT heimili þarf að eiga eitthvað af skálum, bæði til þess að nota við matartilbúninginn og til þess að geyma í aRs konar mat og matarleyfar. Endingarbeztar eru stálskálar, en þær eru dýrar. Alúmínskálar eru töluvert ódýr- ari en hvorki má geyma í þeim saltaðan eða súran mat um lengri tíma. Kaupið ekki þunnar alúmín skálar, því að þeim er hætt við að beyglast. Gleraðar skálar eru ágætar til að geyma í mat, en þær eru mjög viðkvæmar fyrir högg- um og hnjaski og eru því ekki heppilegar til notkunar við mat- artilbúninginn. Plast- og postu- línsskálar eru hentugar í búri og eldhúsi og hafa einnig þann kost, að í þeim má bera mat á borð. Plastskálar litast af listarsterk- um mat, saft o. fl. Ekki má þeyta í þeim með málmþeytara, því að við það rispast þær. Þegar við geymum mat, er nauðsynlegt að hafa lok á ílátinu. Yfirleitt fylgja ekki lok með glerskálunum, en í stað loks er ágætt að nota plast- hettur. — Sjá mynd. ★ Töluvert er nú flutt inn af geymsluílátum, sem aðallega eru ætluð til þess að geyma mat í ísskápum en þau eru einnig ágæt til að geyma í mat í búri og geymslum. Mörg af þessum ílát- um eru ferköntuð og rúmast því betur í geymslu heldur en kringl- ótt eðá sporöskjulaga ílát. Þau eru með sléttu loki, svo að hægt er að stafla þeim hvoru ofan á annað. Lokið þarf að falla vel á. ★ Það er áríðandi að geyma aldrei mat, hvorki í ísskápum né annars staðar, nema í luktu íláti eða innpakkaðan í pappír t. d. sellofan-, alúmín- eða vaxborinn pappír, annars þornar maturinn og matarlyktin færist frá einni matartegundinni yfir á aðra, svo að maturinn skemmist. Geymið ekki lyktarsterkan mat í plastílátum. Þau t.aka þá til sín matarlyktina og erfitt getur ver- ið að ná henni úr. Munið, að þessi plastílát þola ekki nema um 80 gráðu C. hita. Bolero-jakkarnir eru alltaf nýir Tveir einkar laglegir kjólar með bolero-jakka, hver með sínu sniði. Annar með víðu útskornu pilsi, hinn með aðskornu og hliðarvös- um. í báðum kjólunum má vera án jakka, sem er alltaf mikill kostur. Sá til vinstri er með hringhálsmáli, allflegnu niður og út á axlirnar. Sá til hægri er einnig nokkuð fleginn með breiðu V-hálsmáli. Ný hrogn HROGN Nú er einmitt sá tími, sem við getum daglega fengið ný hrogn og góðan fisk hjá fiskikaup- manninum okkar. Hrognin má framreiða ýmist soðin eða steikt og eru þau ljúf- feng á hvorn veginn sem er. Ef þau eiga að steikjast, eru þau fyrst soðin í saltvatni (í 1 1. vatn — 20 gr. salt) innvafin í léreftsklút í 20—30 mín., eftir stærð hrognanna. Þau eru síðan kæld, skorin í ca 1 cm þykkar sneiðar, sem velt er upp úr eggj- um og raspi og síðan steiktar Ijósbrúnar í olíu eða feiti. Með steiktum hrognum er gott að framreiða t. d. sítrónusósu eða hollenzka sósu. SÍTRÓNUSÓSA 3% dl. fisksoð 2025 gr. smjörlíki 25 gr. hveiti 1 eggjarauða Safi úr einni sítrónu. Smjörið er brætt og bakað upp með hveitinu og þynnt út með soðinu. Eggjarauðan er þeytt vel, og dálitlu af sósunni hellt saman við, þegar hún hefur soðið í 10 mín., þá er eggjarauðunni og sítrónusafanum hellt í pottinn, hrært vel í, þangað til sósan er alveg komin að suðumarki. HOLLENZK SÓSA (ekta) 10 gr. hveiti IVí dl. vatn 100 gr. smjör 1 heilt egg og 2 eggjarauður Safi úr einni sítrónu Salt 1—2 matsk. gott fisksoð 2 matsk. hvítvín. Hveitið er hrært í potti með vatninu þangað til engir kekkir, finnast, látið sjóða ofurlitla stund við mjög vægan hita (það er ákaflega áríðandi) og gætið þess að hræra stöðugt í. Nú er potturinn tekinn af eldinum og vel hrærð eggin hrærð saman við. Það þeytt í nokkrar mínút- ur. Þá er sjóðandi smjörinu hóllt út í smátt og smátt. Síðast. er svo sítrónusafinn, saltið, sjóð- andi soðið ásamt víninu látið út í. Sósan á að vera vel heit, þegar á borBsB hún er framreidd og ef þarf að hita hana, verður að gæta þess vel að hræra stöðugt í á meðan potturinn er yfir vægum hita. Sósan má ekki sjóða. Ef eggin hafa verið sérlega ljós er gott að lita sósuna með 1 dropa af gulum ávaxtalit. Um máS og vog í uppskriftum KVENNASÍÐUNNI hafa borizt tilmæli frá húsmóður um að í öllum uppskriftum sem birtast á síðunni verði notað grammamál — en ekki ýmist tilgreint mál í gr., dl., eða bollum. Hélt hús- móðirin fram að t. d. bollar væru mismunandi að stærð og þar af leiðandi ekki einhlítt að tilgreina bollamál. Þetta er öldungis rétt hjá hús- móðurinni, en Kvennasíðan hef- ur gert 'ráð fyrir að allar hús- mæður ættu „bolla“ sem til þess eins er'u ætlaðir að mæla með þeim það sem í uppskriftir á að fara. Hafa slíkir bollar fengizt hér í verzlunum — 4 bollar sam- an og mælir einn 1 bolla, annar Vz bolla, % bolla og Vt bolla. Einnig hafa fengizt „teskeiðar“ — 4 á einum hring og mæla þær 1 matsk., 1 tesk., Vz tesk., % tesk. Þessar „teskeiðar“ og þessir „bollar“ verða að teljast nauð- synlegar á hverju heimili þar sem bakað er. í enskum og bandarískum upp- skriftum er t. d. oftast mælt í bollum og matskeiðum (eins og þeim er hér fást) en í Norður- landa uppskriftum í grömmum eða dl. Yrði það mikið umstang að umreikna t. d. allt dl.-mál í grömm. Bökunarefnin hafa mis- munandi eðiisþyngd t. d. er 1 dl 1 af hveiti 50 gröiftm og 1 dl af kartöflumjöli er 70 gr og 1 dl af raspi 40—50 gr. Af þessu sézt að handhægast er að komast yfir hin áðurnefndu mál — „teskeið- Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.