Morgunblaðið - 05.03.1955, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 5. marz 1955
Út*.: H.1. Arvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigíús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason Irá Vigur.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanl&ndj.
í lausasölu 1 krónu eintakið.
í
áil
Danir búast við auknum neyzlusköffum
H1
Hverjir vilja ræna burn?
BLAÐ kommúnista lýsir yfir
í gær, að það telji lækkun á
gengi íslenzkrar krónu fela í sér
„þjófnað frá sparifjáreigendum"
og „hótun um að ræna börn“.
Við þessa yfirlýsingu kommún-
istablaðsins rís sú spurning, hvort
kommúnistar treysti sér til þess
að benda á leiðir til að hækka
kaupgjald umfram það, sem fram
leiðslan þolir án þess að það þýði
gengisfellingu.
★
Um það þarf ekki að fara
í neinar grafgötur, að enginn
þjóðhollur fslendingur viil vit-
andi vits stuðla að því að gengi
íslenzkrar krónu verði fellt.
Það er hinsvegar eitt af lög-
málum efnahagslífsins, að ef
framleiðslukostnaður bjarg-
ræðisvega þjóðarinnar verður
hærri en arður þeirra hlýtur
afleiðing þess að verða verð-
felling gjaldmiðils hennar.
Framhjá þeirri staðreynd verð
ur ekki gengið, hversu gjarnan
sem við vildum.
Stjórnmálaflokkur, sem viður-
kennir og veit, að atvinnuvegir
landsmanna bera ekki hærra
kaupgjald hlýtur þessvegna að
gera sér það ljóst, að hann verð-
ur að benda á nýjar leiðir til þess
að hindra verðfellingu krónunn-
ar, ef hann krefst aukins tilkostn-
aðar þeirra.
Hafa kommúnistar bent á slík
úrræði? Hafa þeir sýnt fram á
það, hvernig haldið verði uppi
nægri atvinnu fyrir almenning í
landinu ef kaupgjald verður
hækkað svo, að öll útflutnings-
framleiðsla verður rekin með
stórfelldu tapi? Nei, engar slíkar
ábendingar hafa komið frá komm
únistum. Þeir hafa þvert á móti
viðurkennt, að útflutningsfram-
leiðslan sé nú þegar rekin með
tapi, bæði togarar og vélbátaút-
ger. Blað þeirra hefur auk þess
lýst yfir því, að afleiðingar kaup-
hækkana feli í sér „þjófnað frá
sparifjáreigendum" og „hótun um
að ræna börn“.
Nú er spurningin sú, hvort
kommúnistar vilji „ræna börn“?
Allt bendir til þess að þeir hafi
það ákveðið í hvggju. Framtíð
íslenzks atvinnulífs byggist á því,
að tæki þeirra verði rekin á heil-
brigðum grundvelli. Varanleg at-
vinna fólksins er því fyrst og
fremst háð, að framleiðslutækin
séu í gangi sem lengstan tíma
hvers árs. Ef þau eru rekin aðeins
stuttan tíma hefur það í för með
sér árstíðabundið atvinnuleysi,
sem er versti óvinur verkalýðs-
ins.
★
Kommúnistar hæla sér stöð-
ugt af því að verkföllunum
hafi verið slegið á frest um
nokkurn tíma. En þeir hafa
sjálfir viðurkennt, að megin-
ástæða þess var sú, hversu
seint kröfur verkalýðsfélag-
anna komu fram. í raun og
veru var óhugsandi að hægt
væri að skella á verkfalli
nokkrum dögum eftir að kröf-
urnar komu fram.
Aðalatriðið er með hvaða
hug verkföllunum var frestað.
Var þeim frestað til þess að
rannsaka möguleika þess, að
fullnægja þeim kröfum, sem
fram voru settar? Eða var til-
gangur kommúnista aðeins sá
að afla sér bættrar vígstöðu til
þess að hefja verkföll og stór-
átök í þjóðfélaginu?
Allt bendir til þess að síð-
ara sjónarmiðið hafi vakað
fyrir kommúnistum.
★
Sjónarmið alls almennings í
þessum málum hlýtur hinsvegar
að vera það, að tryggja þá niður-
stöðu kaupdeilnanna, sem leiðir
til áframhaldandi atvinnulífsupp-
byggingar í þjóðfélaginu, varan-
legrar og nægrar atvinnu. Ef ítar- j
leg og yfirveguð rannsókn leiðir
í Ijós, að framleiðslan beri hækk-
að kaupgjald þá á að hækka
kaupið. Ef niðurstaðan sýnir hið
gagnstæða væri kauphækkun
fjarstæða. Þá yrði afleiðing henn
ar rýrnun sparifjár og „hótun um
að ræna börn“ eins og kommún-
istablaðið orðar það.
Enginn hefur orðað slíkt
rán, allra sízt Ólafur Thors
forsætisráðherra, sem flutti
viturleg aðvörunarorð um
þessi mál í áramótaávarpi
sinu. Það er á kommúnistum,
sem hótað hafa „verkfalls-1
vopni“, sem það veltur. hvort
hér kemur til „þjófnaðar frá
Kaupmannahöfn í febr. 1955.
INN nýi forsætisráðherra
Dana. H. C. Hansen, hefur
boðað formenn allra lýðræðis-
flokkanna á fund 2. marz, til að
ræða efnahagsmálin. Það er eins
og fyrri daginn fyrst og fremst
gjaldeyrismálin, sem valda vand-
ræðum. Forsætisráðherrann tei-
ur ráðstafanir af hálfu löggjafa-
valdsins nauðsynlegar vegna
greiðsluhallans. Nú vill hann
tala við flokksformennina, að
undantekr.um formanni komm-
únistaflokksins, til að komast að
raun um, hvort flokkarnir geti
orðið ását*ir um nauðsynlegar
úrbótaráðstafanir.
Eins og kunnugt er, skall gjald-
eyriskreppa á í Danmörku í :"yrra
sumar. Gjaldeyrisskuld Þjóð-
bankans jókst stórkostlega svo
að segja dag frá degi. Með tak-
mörkun á lánveitingum, niður-
skurði á ýtnsum gjöldum ríkis-
ins og hækkun á nokkrum óbein-
um sköttum var reyr.t að bæta
úr vandræðunum. En allir við-
urkenna nú, að þessar ráðstaf-
anir voru ónógar.
GREIÐSLTJ JÖFNUÐURINN
Greiðslujöfnuður Dana var í
fyrra óhagstæður um því nær
500 milijónir kr. Margir halda,
að afkoman verði ekki betri á
þessu ári, ef ekki verði dregið
úr gjaldeyriseyðslunni. Að vísu
minnkaði gjaldeyrisskuld Þjóð-
bankans um 100 milljónir niður
í 150 milljónir á mánuðunum
nóvember, desember og janúar.
En fyrri belming febrúar jókst
Óvinsælar ráðstafanir eru óhjákvæmi-
legar, segir forsætisráðherra Dana
hún aftur upp í 177 milljónir.
Seinni hluta mánaðarins hefur
gjaldeyrisskuldin vafalaust auk-
ist að miklum mun sérstaklega
vegna 62 milljóna kr. greiðslu til
Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.
Við þetta bætist,-að horfurnar
eru alvarlegar. „Við megum bú-
ast við vaxandi gjaldeyrisvand-
ræðum, ef ekki verða gerðar
nægilegar ráðstafanir til úrbóta“
skrifar stjórnarblaðið „Social-
demokraten“.
Menn sjá fram á, að innflutn-
ingur verði meiri á þessu ári en
í fyrra. Það getur líka farið svo,
að útflutningur, sérstaklega á
en í október í fyrra. Danir fengu
þá 81 einingu innfluttra vara
fyrir 100 einingar útfluttra vara,
en fá nú ekki nema 73 einingar
innfluttra vara fyrir sama út-
flutt vörumagn.
Af þessum ástæðum búast all-
ir við vaxandi gjaldeyrisvand-
ræðum í náinni framtíð.
LANSFJARSKORTURINN
STUDLI AÐ ATVINNULEYSI
Við þetta bætist, að þrengslin
á peningamarkaðnum, sem stafa
af takmörkun á lánveitingum
vegna gjaideyriserfiðleikanna,
landbúnaðarafurðum, fari minnk valda vaxftnd| ÓþfSÍndnm- fíkis
andi.
Verðmæti uppskerunnar á s. 1.
sumri var 400 milljónum kr.
minni en árið áður. Bændur
verða því að auka innflutning á
erlendum fóðurefnum að miklum
mun, þegar líður á veturinn, ef
framleiðslan og um leið útflutn-
ingurinn á ekki að rninnka.
Við þetta bætist hækkandi
verð á innfluttum vörum og
lækkandi verð á sumum útflutn-
ingsvörum. Vísitala innflutnings-
verðsins hækkaði í janúar um
6 stig upp í 424, og vísitala út-
flutningsverðsins lækkaði um 11
stig niður í 310. Vísitalan, sem
sýnir hlutfallið milli útflutnings-
verðsins og innflutningsverðsins,
er nú 73 stig eða 8 stigum lægri
Veiuah andi áhripar:
sparifjáreigendum“
unni.
á næst-
Parísareamningar
í gildi í marzloh!
EFRI deild franska þingsins hef-
ur nú ákveðið að taka samþykkt
í
Svar til „borgara“.
TILEFNI af bréfi „borgara"
sem birtist hér í dálkunum í
gærdag, hefir fulltrúi lögreglu-
stjóra gert nokkrar athugasemdir
aðallega við ummæli „borgara“
um hreyfanleika lögreglunnar,
sem hann kveður á nokkrum mis-
skilningi eða þekkingarskorti
byggð: „í Reykjavík eru stöðugt
Parisarsamninganna á dagskrá' á ferðinni tveir lögreglubílar,
22. marz. Munu umræður standa
yfir í fjóra daga, 22.—25. marz.
Hefur forseti deildarinnar ákveð
ið þetta í samráði við núverandi
forsætisráðherra Edgar Faure.
emn í Austurbænum og annar
| í Vesturbænum og auk þess tveir
ibílar til viðbótar á dagvaktinni,
þegar umferðin er mest. Öllum
þessum bílum er einmitt ætlað
Er nú lögð áherzla á það að Par- j það hlutverk að hafa eftirlit með
ísarsamningarnir verði fullgiltir
í öllum þátttökuríkiunum fyrir
lok þessa mánaðar og mun þá
fljótlega verða hafizt handa um
framkvæmd á þeim, þ. á m. her-
væðing Þjóðverja.
★
Svo virðist sem endanlegt sam-
þykki Efri deildar franska þings-
ins sé nú tryggt. Kemur þar eink-
um til þátttaka kaþólska flokks-
ins í núverandi stjórn Edgar
Faure. En sem kunnugt er hefur
Robert Schuman annar aðalleið-
togi kaþólska flokksins tekið
sæti í stjórninni sem dómsmála-
ráðherra.
Það var hín persónulega mót-
spyrna kaþólska flokksins við
Mendés-France sem varð skeinu- |
hættust samningunum í Neðri
deildinni. Georges Bidault greiddi
atkvæði gegn þessum samningum
þrátt fyrir það að nokkrum mán- i
uðum áður hafði hann verið
helzti málsvari evrópskra varn-
arsamtaka.
Nú mun Bidault ekki geta beitt
sér gegn þeirri ríkisstjórn sem
flokkur hans á aðild að, svo að
samningunum ætti að vera tryggt
meirihlutafylgi.
umferðinni og halda uppi aga og
reglu eftir því sem föng eru á.
í tveimur þessara bíla eru tal-
stöðvar sem geta hvenær sem er
sett sig í samband við lögreglu-
stöðina og t.ekið við köllum frá
talstöð hennar, ef þörf er á lög-
reglubílnum á vettvang einhvers
staðar í bænum. Koma þessar tal
stöðvar oft að gagni til mikils
hagræðis í lögreglustarfinu.
Vakandi auga með akstri
hvar sem er.
FULLTRÚINN kvað það því
ekki rétt vera, að ekkert eftir
lit væri með umferðinni í út-
hverfum bæjarins, enda bærust
I ekki síður kærur um brot á um-
ferðarreglum úr úthverfunum
heldur en úr miðbænum einmitt
I vegna þess, að reynt er að hafa
tíma^s heimt.a hverju sinni. Það
er ekki hvað sízt undir borgur-
unum sjálfum komið, að það megi
takast. Endurskoðun sú á um-
ferðarlögunum sem nú stendur
íyrir ayrum lofar og góðu.“
Góður barnatími.
Tf/"ÆRI Velvakandi!
„ Mig langar til að biðja þig
að koma fyrir mig á framfæri
nokkrum þakklætisorðum fyrir
barnat’'ma útvarpsins hinn 20.
febr. s.l., sem sveitir úr yngstu
deild og vinadeild K.F.U.M. sáu
um.
Barnatími þessi var einn með
þeim beztu, sem útvarpið hefir
flutt og veitti ég því athygli, hve
börnin hlustuðu og fylgdust með
hverju atriði af sérstakri eftir-
sem er í bænum. Þá væri og mik-
, ið gert af því — og, í vaxandi
mæli — að stöðva bifreiðar í um-
ferðinni til að ganga úr skugga
um, að bifreið og bifreiðarstjóri
séu í réttu ásigkomulagi og til að
bifreiðastjórar viti, að þeir geti
átt von á slíkri stöðvun hvar og
hvenær sem er.
Um sama leyti mun efri deild
þýzka þingsins einnig fjalla um
málið. Þar virðist nokkur vafi
leika á um hvort fylgi við samn-
ingana hefur nægilegt meirihluta
fylgi. Svo virðist sem frjálslyndi
flokkurinn hafi þar oddaaðstöðu,
en ekki Ijóst hvaða stefnu hann
tekur í málinu þar.
Undir borgurunum
sjálfum komið.
VÍST er, sagði fulltrúinn að lok-
um, að margt mætti betur
fara í þessum efnum og kapp-
kostað verður að endurbæta og
fullkomna lögreglugæzluna á
þessu sviði eftir því sem kröfur
tekt. Ávarp próf. Sigurbjörns
Einarsspnar var indælt og væri
vel, ef börnunum gæfist oftar
kostur á að hlýða á- þessháttar
málefni til að glæða það góða og
fagra sem í barnssálinni býr, sem
yrði þeim um leið styrkur til að
varast hin illu öfl, sem oft vilja
knýja dyra fyrr eða síðar á lífs-
leiðinni.
Að endingu við ég færa öllum
þeim, sem að barnatíma þessum
stóðu, hugheilar þakkir. Með
þökk fyrir birtinguna. — Móðir“
<1* f»>
Þvi áttu svo
fátt, að þú
nýtir ei smátt.
stjórnin ó+tast, að lánsfjárskort-
urinn muni draga úr framleiðslu
og valda atvinnuleysi.
Ekki hvað sízt kvarta bændur
yfir skorti á lánsfé. Gerir þessi
skortur m. a. að verkum, að
kornkaupmenn heimta borgun
út í hönd. þegar bændur vilja
kaupa fóðurkorn. Marga bændur
skortir fé til þess að fcorga strax
og velja þeir því þá leið að
minnka bústofninn. Fulltrúar írá
félögum bænda fóru nýlega á
fund forsætisráðherra, og bentu
honum á, að lánsfjárskorturinn
hljóti að hafa í för með sér, að
bústofninn og þá um leið út-
flutningsmöguleikar landbúnað-
arins minnki. En ríkisstjórnin sér
ekki möguleika fyrir verulegri
1 rýmkun á peningamarkaðnum,
nema aðrar ráðstafanir verði
gerðar vegna gjaldeyriserfiðleik-
anna.
ÓVINSÆLAR RÁÐSTAFANIR
ÓHJÁKVÆMILEGAR
Forsætisráðherrann sagði ný-
lega í ræðu, að nauðsynlegt sé að
auka tekjuafgang ríkisins með
auknum álagningum, til þess að
draga úr neyzlunni. Hann hvatti
um leið stjórnmálaflokkana til
samvinnu í gjaldeyrismálunum.
Þegar þetta er ritað vita menn
ekki, hvaða tillögur ríkisstjórn-
in ætlar að bera fram. En al-
mennt er bóist við tillögum um
neyzluskatta og ef til vill aðrar
álagningar, sem minnka kaup-
getu borgaranna um allt að 500
milljónum kr. Óvinsæiar ráðstaf-
anir eru óhjákvæmilegar, sagði
forsætisráðherrann nýlega.
Stjórnarandstaðan virðist geta
fallist á nýja neyzluskatta, en þó
með því skilyrði, að þeir verði
ekki meðlaldir, þegar vísitala
framfærslukostnaðar, sem dýr-
tíðaruppbót launþega byggist á,
er reiknuð út. Ekki aðeins
íhaldsmenr. og vinstrimenn held-
ur líka róttæki flokkurinn held-
ur fast við þetta skilyrði. Verka-
lýðsfélögin eru þessu andvíg. En
getur ríkisstjórnin snúist þarna
á móti verkamönnum? „Berl-
ingske Tidende“ telur líklegt, að
þetta verði aðalágreiningsatriðið,
þegar ríkisstjórnin fer að semja
við stjórnarandstöðuna um úr-
bótaráðstafanir í gjaideyrismál-
unum.
SAMKOMULAGSHORFUR
Um samkomulagshorfur er
erfitt að spá. „Politiken“ lítur
svo á, að samvinnuviljinn sé nú
meiri en áður bæði hjá ríkís-
stjórninni og stjórnarandstöð-
unni. En margir eru þó blaðinu
ósammála um þetta. Vinstriblað-
ið „Vestkysten", sem talið er
málgagn Eriks Eriksens fyrrv.
forsætisráðherra, trúir ekki á
samkomulag. Blaðið heldur meira
að segja, að H. C. Hansen vilji
í rauninni ekki samkomulag.
Sumir halda, að hann telji heppi-
iegast fyrir jafnaðarmannaflokk-
inn, að hann komist sem fyrst í
stjórnarandstöðu og að íhalds-
menn og vinstrimenn verði látn-
ir taka við völdum og glíma við
gj aldeyrisvandræðin.
Framh, á bls. 11