Morgunblaðið - 06.03.1955, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbók
42. árgangur
54. tbl. — Sunnudagur 6. marz 1955
Prentsmiðji Morgunblaðsiiu
VOPNAGNÝR VIÐ ÍSRAEL
Egypfar cstla að
fá fláffamönnum vopn
Beðið eisir órós
I.ONDON, 5. marz.
X U G I R þúsunda ara-
biskra flóttamanna láta
ófriðlega á Gaza svæð-
inu á lanðamærum
ísraels og Egyptalands,
eftir átökin, sem urðu
þarna á Iandamærunum
síðastl. mánudag.
Egypzka herstjórnin
á landamærasvæðinu
gaf í skyn í dag að hún
myndi verða við þeirri
kröfu. flóttamannanna,
að afhenda þeim voyn
og veiía þeim herþjálf-
un. —
Ákveðið var í dag að
flytja konur og börn
starfsmanna vopnahlés-
nefndar Sameinuðu
þjóðanna frá Gaza til
Jerúsalem. Er þetta gert í varúð-
arskyni.
Um tuttugu manns af skyldu-
liði starfsmannanna eru þó enn
í Gaza. Fyrirmæli hafa veiið
gefin um, að fólk þetta sé sem
minnst á ferli úti.
Formaður vopnahlésnefndar-
innar, Burns hershöfðingi, er nú
að safna skýrslum um atburðinn
á mánudaginn en leggur senni-
lega af stað á morgun flugleiðis
til New York, til þess að gefa ör-
yggisráðinu skýrslu, samkvæmt
sérstakri ósk þess.
Ný landamæraþræta hefur
komið upp milli ísraelsmanna og
Jórdana. Jórdanar segja að her-
flokkur frá ísrael hafi ráðist yfir
landamærin til Jórdaníu, her-
numið sex menn, drepið fimm
þeirra og sent þann sjötta heim
til þess að skýra frá því að menn-
irnir hafi verið drepnir í hefndar
skyni fyrir þrjá ísraelsmenn, sem
drepnir voru á sömu slóðum fyrir
skömmu.
Herstjórn ísraelsmanna segist
hafa rannsakað þetta mál og
heldur því fram, að engir ísraels-
menn hafi komið hér við sögu.
Vetnissprengjan: „Venjulegt
reglnbnndið líf ómögulegt
NAFNFRÆGUR brezkur eðlis-
fræðingur hefur látið svo um
mælt, að Sovétríkin og Banda-
ríkin eigi hvor um sig, eða
myndu bráðlega eignast, nægi-
legt magn af vetnissprengjum til
þess að tortíma öiium helztu
stöðvum fólks og iðnaðar i hvoru
landinu fyrir sig.
Bandaríkin eiga í birgða-
skemmum um það bil 4000
kjarnorkusprengjur og Sovét-
ríkin um það bil 1000, að því er
Cecil F. Powell, prófessor, gat sér
til, „samkvæmt sæmilega góðum
heimildum“. Sprengjur þessar
verða notaðar til þess að „kveikja
í“ vetnissprengjum, ef styrjöld
hefst, sagði prófessorinn.
Tíu eða tuttugu sprengjur. sem
miðað er vel, munu „gera venju-
legt skipulagsbundið líf ómögu-
legt í Bretlandi", bætti dr. Po-
well við.
Dr. Powell er prófessor í eðlis-
fræði við háskólann í Bristol og
hlaut Nobelsverðlaunin í eðlis-
fræði árið 1950.
• Dr. Powell gaf þessar upp-
lýsingar um vetnissprengjuna í
erindi, sem hann flutti tveim dög-
um áður en umræðan um land-
varnamálin hófst í brezka þing-
inu.
Hann sagði að í rauninni væru
engin takmörk fyrir sprengju-
magni vetnissprengjunnar. — Til
þess að „sprengja" þetta nýja
vopn þyrfti atomsprengju, en
aðra hluta þess væri hægt að
gera „að talsverðu magni tiltölu-
lega ódýrt“, sagði Powell próf.
Frá hernaðarlegu sjónarmiði
væri það eyðslusemi tóm að nota
venjulegar atomsprengjur, þar
sem hægt væri að nota þær til
þess að „sprengja“ vetnissprengj-
ur, sem framleiddu margfalt
meiri sprengingu. Viðbótarkostn-
aðurinn er tiltölulega lítill miðað
við árangurinn".
Iferkostnaður
ÞjóÖves'ja
ULM, Vestur-f>ýzkalandi 5.
marz. — Þjóðverjar verða að
greiða um það bil 30 þús. mitlj.
marka fyrir hergögn á næstu
þremur árum, að því er Ludwig
Erhardt viðskiptamálaráðherra
upplýsti í ,-æðu hér í dag.
í þessari tölu eru ekki innifalin
þunga hergögn, sem Bandaríkin
hafa lofað að láta Vestur-Þjóð-
verjum í té. —Reuter.
Stalin
MOSKVA, 5. marz. — Blöðin
minntust ekki á Stalín í dag, að
undanskildu Pravda, málgagni
kommúnistaflokksins. En í dag
eru liðin rétt tvö ár frá því að
Stalín lézt.
í fyrra voru birtar þennan dag
stórar myndir á forsíðu af Stalín
og hans minnst rækilega í forustu
greinum blaða víðsvegar um sov-
étríkin. Talið er, að kommún-
istar hafi komið sér saman um
að minnast Stalíns aðeins á fæð-
ingardegi hans. —Reuter.
Myndin er úr skotgröfum þjóðernissinna á Quemoy.
ÐuIIes lízt ekki
ú blikun €3
80 km langur
halísjaki
Um borð í „Atka“, ísbrjótn-
um, sem fór til Suður-heims-
skautslandsins. — 27. febr.
HAFÍSJAKI, svo geysilegur, að
það tók fjórar klukkustundir. að
sigla fram hjá honum, hrakti
skip okkar í dag af réttri stefnu,
sem sett hafði verið á Buenos
Ayres og heim.
Þetta var stærsti hafísjakinn,
j sem leiðangur þessi hefur séð.
Ummál hans verður aðeins ráðið
af getgátum, þar sem aðeins sást
ein hliðin, um 80 km löng. Þetta
var væn sneið af skriðjökli. Jak-
inn var flatur að ofan, 100 fet
lóðréttur úr sjó ðg um það bil
800 fet í sjó niður.
Þessi tröllaukni hafísjaki var
furðanlega norðarlega, eða um
150 km í norður frá Suður-
Georgíu-ey og um 2800 km í
norður frá ísrönd Suðurheim-
skautsins. Menn áttu fullt í fangi
með að trúa því, að ísinn væri
ekki á landi. Meðfram honum
endilöngum lá mistur um hann
ofanverðan og sjórinn hafði etið
í hann stóra bláa hella neðan-
verðan.
Þessi stóri hafísjaki hafði „get-
ið af sér“ aðra minni jaka, sem
voru þarna á sveimi, sumir allt
að því tveggja kílómetra langir.
LONDON, 5. marz: — Samningar
„eftir venjulegum diplomatisk-
um leiðuni“, til þess að koma í
veg fyrir að blossi upp úr í For-
mósusundi, virðast vera byrjað-
ir að nýju milli Breta og Rússa.
Samningar hafa legið niðri í
nokkrar vikur.
Er talið að Molotov hafi nú
svarað orðsendingu Breta, þar
sem þeir lögðu til að stjórm
Chiang Kai Sheks yrði leyft að
senda fulltrúa á tíuvelda ráð-1
stefnu, sem Rússar höfðu lagt
til að haldin yrði um Formósu-
málið.
moy og Matsú, verði látnar af
hendi við Chiang Kai Shek.
• JOHN Foster Dulles, utan-
ríkismálaráðherra Bandaríkj-
anna kom í dag til Honolulu á
heimleið frá Bangkok ráðstefn-
unni. Hann sagði við blaðamenn
að hann hefði þungar áhyggjur
út af meintum fyrirætlunum kín-
verskra kommúnista að því er
varðar Formósu. |
Dulles lý.sti yfir ánægju sinni
yfir árangiinum, sem hinar
frjálsu þjóðir náðu á Bangkok-
ráðstefnunni. —Reuter.
• Fregnir frá Bangkok herma, að
Sir Anthony Eden hafi orðið lítið
ágengt í einkasamtölum við
Dulles í þá átt að fá Bandaríkja-
stjórn til að fallast á að smá-
eyjarnar við Kínastrendur, Que-
Boiorka
Sovétnkjanna
MOSKVA
SÍÐASTLIÐIÐ ár var framleidd
í Sovétríkjunum raforka, sem
nam samtals 142.500.000.000 kilo-
watt stundum. (Til samanburðar
má geta þess að framleiðsla raf-
magns í Bandaríkjunum nam um
það bil 520.000.000.000 kilowatt-
stundum árið 1954).
Nú hefir verið birt áætlun um
að þrefalda eða fjórfalda raforku-
framleiðslu Sovétríkjanna á
næstu tíu árum. Árið 1965 ætti
raforkuframleiðslan að nema ein-
hversstaðar á milli 427.500.000.000
kílówattstundum og 570.000.000.
000 kílówattstundum. Til þess að
hafa yfirstjórn þessara fram-
kvæmda var settur nýr raforku-
málaráðherra nú fyrir skömmu:
Georgi M. Malenkov, fyrrum for-
sætisráðherra.
í Rómaborq
RÓMABORG, 5. marz. — Sir
Anthony Eden kom hingað flug-
leiðis í dag. — í samráði við
Churehill hefur Eden ákveðið að
hafa tveggja daga viðdvöl í
Rómaborg og vinna þar að samn-
ingu ræðu, sem gert er ráð fyrir
að hann Pytji í neðri málstofu
brezka þingsins í næstu viku. í
ræðu þessari ætlar hann að gera
grein fyrir samningum sínum
í Bangkok og annars staðar í
Austurlöndum, bæði nær og
fjær. —Reuter.
Sjómenn þnrfa
ekki óritun
WASHINGTON, 5. marz. — Inn-
flytjenda yfirvöldin gera ráð
fyrir að hæit verði með öllu við
ráðgerð lagafyrirmæli, sem hafa
myndu í för með sér að hver ein-
stakur sjómaður þyrfti að hafa
sérstaka vegabréfsáritun til þess
að fá að fara í land í Bandaríkj-
unum.
BREZKIR ÞIHGMENN
LESA „HASARBLÖÐ"
LONDON — Þingmenn og ráð-
herrar í neðri málstofu brezka
þingsins sáust í vikunni sem leið
vera að lesa „hasarblöð” og mátti
heita að þetta gilti jafnt um alla
viðstadda þingmenn í þingsaln-
um.
Herbert Morrison, fyrrum ut-
anríkisráðherra, sást grúfa yfir
einu þessara blaða í fullan stund-
arfjórðung og rétta það síðan
með augljósri fyrirlitningu að
öðrum þingmanni.
Innanríkisráðh. Breta, Lloyd
Gerge, hafði heilt safn af þess-
um blöðum fyrir framan sig og
kvaðst hafa verið að kynna sér
efni þeirra undanfarnar vikur.
Tilefnið til þessa áhuga þing-
mannanna á hasarblöðum er nýtt
lagafrumvarp um bann gegn
dreifingu á „hryllings" hasarblöð
um, sem Bretar kalla H-(orror)
blöð.
Frumvarpið fjallar um blöð
eða bækur, sem flytja eingöngu
eða aðallega myndasögur, sem
haft geta spillandi áhrif á börn
og unglinga. Brot gegn lögunum
eru refsiverð með allt að fjög-
urra mánaða fangelsi, eða allt að
5000 króna sektum eða hvort
tveggja.
Þingmenn virtust taka hug-
myndinni um bann við dreifingu
á hasarblöðum yfirleitt vel, en
hræðsla kom fram hjá mörgum
um það, að túlkun laganna gæti
gengið of langt og að prentfrels-
inu yrði með því stofnað í hættu.
Einnig vildu þingmenn gera
strangan greinarmun á „saklaus-
um“ hasarblöðum og hinum svo-
kölluðu „hryllings“ hasarblöðum.
Nokkur hætta var talin á því,
að dráttur yrði á því að laga-'
frumvarp stjórnarinnar yrði
samþykkt.