Morgunblaðið - 06.03.1955, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.03.1955, Blaðsíða 9
Sunnudagur 6. marz 1955 MORGVNBLAÐIB 9 Reykjavíkurbréf: Laugardagur 5. marz ■ Hin nýja Heilsuverndarstöð Reykjavíkurbæjar við Barónsstíg. í þessari myndarlegu byggingu verður í fram-tíðinni unnið þýðingarmikið og merkilegt starf í þágu heilsuverndar bæjarbúa, og raunar þjóðarinnar allrar. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Hagstæð vetrarvertíð en beituskortur yfirvofandi — Vinnudeilurnar komnar til sátta- semjara — Heilsuverndarstöð Bteykjavíkur að taka til starfa — Glæsilegasta heil- brigðisstofnun Bandsins — iteynt að koma í veg fyrir sjúkdómana — l\ý fiskiðjuver — Hagstæð vetrarvertíð Forysta Sjálfstæðismanna um bætt láfskjör þjóðarinnar VETRARVERTÍÐIN hefur, það sem af henni er, verið almennt hagstæð. Hér við Faxaflóa hefur afli að vísu verið fremur rýr. Er fiskur varla genginn ennþá á hin venjulegu línumið. Meira fiskmagn er þó komið á land í verstöðvunum við flóann en á s.l. vetrarvertíð. Valda því hinar góðu gæftir og mikill róðra- fjöldi. Við Breiðafjörð hefur afli ver- ið afbragðsgóður og töluvert betri en á síðustu vertíð. Á Vestfjörðum hefur afli einn- ig verið með langbezta móti, enda þótt gífurlegur ágangur inn- lendra og erlendra togara hafi skapað vélbátaútgerðinni þar mikið óhagræði og tjón. Má segja að veiðarfæri Vestfjarða- báta hafi verið i hers höndum meginhluta vertíðarinnar. Vestmannaeyingar urðu fyrir því mikla áfalli á þessari vertíð að verkfall hindraði róðra þar í einn og hálfan mánuð. Mun það hafa kostað hvem hlutar- sjómann þar frá 7—12 þús. kr. Gjaldeyristap þjóðarinnar vegna róðrarstöðvunarinnar mun nema um 20 millj. kr. Hæla kommún- istar sér mjög fyrir forystu sína um þessi skemmdarverk gagn- vart atvinnulífinu í Eyjum og þjóðarinnar í heild. Afli var sæmilegur í Vest- mannaeyjum fyrst eftir að róðr- ar hófust. En undanfarið hafa gæftir verið þar mjög slæmar. Lítur því út fyrir að heildaraf- koma vélbátaflotans þar verði í lakara lagi ef ekki rætist fljót- lega úr. Annars er beituskorturinn aðalvandamál vélbátaútgerS- arinnar í bili. Vegna þess, hve reknetjaveiðin var endaslepp i haust var óvenjulega lítið af síld fryst til beitu. Hefur þeg- ar orðið að flytja inn nokkuð af síld frá Noregi. Loðna er nú að byrja að veiðast, og get- ur hún að sjálfsögðu bætt verulega úr beituskortinum. Hjá togurunum var afli góður fram í miðjan febrúar. Hafa nú margir þeirra flutt sig suður á bóginn, af Halamiðum og suður til Snæ- fellsness og á miðin hér út af Faxaflóa. Fiska flest skipin í ís og er aflinn hertur og frystur. Nokkur skip munu þó vera farin að veíða í salt. Sáttasemjari tekur til starfa í VINNUDEILUNUM hefir það helzt gerzt í vikunni, að sátta- semjari ríkisins hefir nú verið falið að annast þar milligöngu. Eru það fyrst og fremst þrjú atriði samninganna, sem hann fjallar um: Grunnkaupshækkan- ir, afnám skerðingar á vísitölu- uppbótum og lengingu orlofs. í dag, laugardag, hafa fulltrúar aðilja sjálfra ræðst við um ýms- ar sérkröfur hinna einstöku fé- laga. Sáttasemjari, Torfi Hjartarson, hefir haft einn fund með full- trúum deiluaðila og mun halda annan n. k. mánudag. Ekkert verður enn þá um það fullyrt hvenær til úrslita dragi í þessum víðtæku samn- ingaumleitunum. En á miklu veltur, að allir aðilar leggist á eitt um að Ieysa ágreinings- efni sín á grundvelli gagn- kvæms skilnings á sameigin- legum hagsmunum verkalýðs og vinnuveitenda. Glæsilegasta heilbrigðisstofnun landsins VTÐ Barónsstíg í Reykjavík er nú risin mikil bygging, þar sem glæsilegasta heilbrigðisstofnun landsins mun verða rekin á næst- unni. Er það Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, sem bæjarstjórn Reykjavíkur lét hefja byggingu á árið 1950. í þesari byggingu, sem er um 30 bús, rúmmet.rar að stærð, mun verða rekin hverskonar heilsu- verndarstarfsemi í þágu almenn- ings í Reykjavíkurbæ. — Hafa nokkrar greinar hennar þegar tekið til s tarfa. Meðal þeirrar heilsuverndarstarfsemi, sem þarna verður rækt, er ungbarna- vernd og mæðravernd, eftirlit með barnshafandi konum, slysa- varðstofa, goðvernd, áfengisvarn arstöð og berklavarnir. Bvggingunni má nú heita full- lokið. og munu allir þættir heilsu verndarstarfseminnar, sem hér að ofan voru greindar, verða komnir til framkvæmda á komandi vori. Á tveimur hæðum þessarar glæsilegu byggingar, verður fyrst í stað rekið sjúkrahús fyrir Ianglegu sjúklinga. — Verða þar um 60 sjúkrarúm. Munu þau verða notuð þar til Bæjarsjúkrahúsið i Fossvogi kemst upp. En eins og kunnugt er, er bygging þess fyrir nokkru hafin. Loks má geta þess, að í bygg- ingunni verður rekin leiðbem- ingarstarfsemi um stöðuval fyrir fatlað fólk og vangefið. Þá verða þar og skrifstofur dr. Jóns Sig- Dr. Sigurður Sigurðsson, form. stjórnar Heilsuverndarstöðv- arinnar. urðssonar borgarlæknis. — í stjórn Heilsuverndarstöðvarinn- ar eiga sæti dr. Sigurður Sig- urðsson, sem er formaður stjórn- arinnar, borgarlæknir og Gunn- ar Möller, formaður Tryggingar- ráðs. Merkilegum áfanga náð MEÐ BYGGINGU og starfsemi hinnar nýju Heilsuverndarstöðv- ar er merkilegum og þýðingar- miklum áfanga náð í heilbrigðis- málum höfuðborgarinnar, og raunar þjóðarinnar allrar. Oll heilsuverndarstarfsemi í bænum verður þar sameinuð undir einu þaki, en áður hefir hún verið dreifð á mörgum stöðum og við erfiðar og ófulkomnar aðstæður. Mun þetta verða til ómetanlegs hagræðis og aukinna hollustu- hátta fyrir almenning í bænum. Hlutverk Heilsuverndarstöðvar- innar og hinna ýmsu greina starfsemi hennar, er fyrst og fremst að vernda heilsu fólksins og koma í veg fyrir sjúkdóma. Við hana munu verða starfandi færustu sérfræðingar, sem völ er á á sviði heilbrigðismála. Þessi nýja Heilsuverndar- stöð Reykjavíkurbæjar er í raun og veru einstæð stofnun. Allur undirbúningur starfsemi hennar hefir verið frábærlega vandaður. Er óhætt að full- yrða, að stofnunin sé sam- bærileg við það bezta, sem þekkist í heiminum í dag á þessu sviði. Er það forráða- mönnum höfuðborgarinnar til hins mesta sóma með hvílík- um stórhug og fyrirhyggju þeir hafa byggt upp hina nýju heilsuverndarstöð. Því fé, sem til hennar hefir verið varið, er vissulega vel varið. And- legt og líkamlegt heilbrigði fólksins er dýrmætasta eign þess og samfélags þess. Til þess að varðveita þá eign, vaka yfir heilsu einstakling- anna og bægja böli sjúkdóm- anna frá heimilum þeirra, er þessi glæsilega stofnun reist. asta almenningsstofnun í Reykjavík. Frá henni verður stjórnað baráttunni gegn böli hvers konar sjúkdóma. Höfuðtilgangur hennar er að koma í veg fyrir sjúkdóma, hjálpa almenningi til þess að varðveita heilsu sína. Þetta er mikið hlutverk og göfugt. — Þess vegna fagna Reykvíking- ar starfsemi þessarar nýju stofnunar og árna henni og sjálfum sér blessunarríks ár- angurs af rekstri hennar. Eflim' fiskiðr>aðarins FRÁ því hefur nvleea verið s'kýrt að fjárma<?n hafi verið trypgt ti! þess að koma uop myndarlegum fiskiðjuverum á Akureyri og í Hafnarfirði. Er hér um að ræða mjög þýðingarmiklar atvinnu- bætur í þessum tveimur stórn kaupstöðum. Með aukningu fisk- iðnaðarins þar skapast stórbætt aðstaða til þess að hagnýta afla togaranna og auka þar með at- vinnu landverkafólks. Þáttur dr. Sigurðar Sigurðssonar MARGIR menn hafa lagt hug og hendi að byggingu Heilsuvernd- arstöðvarinnar og undirbúningi starfsemi hennar. Engum er þó gert rangt til þótt fullyrt sé, að hlutur dr. Sigurðar Sigurðs- sonar berklayfirlæknis, sé þar stærstur. Hann hefir átt ríkastan þátt I að móta stefnu meirihluta Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Reykjavíkur í heilbrigðismálum. - Er það ekki aðeins Sjálfstæðis- flokknum til hins mesta sóma, heldur og bæjarbúum í heild til mikillar blessunar, að víðsýni hans og farsællar forystu hefir notið við í þessum þýðingarmiklu málum. Fyrir starf sitt á sviði heilsuverndar, og þá fyrst og fremst berklavarnanna, verð- skuldar hann miklar þakkir og viðurkenningu. Og þeirrar við-. urkenningar nýtur hann, ekki aðeins meðal sinnar eigin þjóðar, heldur og á alþjóðavettvangi. Vinsælasta stofnunin TIL ÞESS þarf enga spádóms- gáfu að sjá það fyrir, að Heilsuverndarstöðin muni í sínum nýju og fullkomnu húsakynnum, verða vinsæl- | Það er miög miður farið, að I Albýðuflokksmenn í Hafnarfirði t hafa hindrað samvinnu á breið- um grundvelli um byggingu af- kastamikils fiskiðjuvers. — Hafa þeir metið meira sína eigin flokks hagsmuni heldur en þörf bæjar- félagsins. En ríkur vilji mun hafa verið fvrir hendi til þess að sam- eina mikinn hluta útgerðarinnar í bænum um stórt átak í þessum efnum. Þessi framkoma Alþýðuflokks- manna í Hafnarfirði er þó ekkert einsdæmi. FTTrir nokkrum ánim höfðu t.d. Siálfstæðismenn á Tsa- firði undirbúið stofnun og bygg- ingu mvndarlegs fiskiðiuvers í kaupstaðnum. Var það ætlun beirra. að ahir úteerðaraðiliar á staðnum sameinuðust um bessa nauðsvnleru framkvæmd í þágu isfirzks atvinnulífs. Með einstæðri þröngsýni og skilningsskorti á hagsmnnurn ísfirðinga, tókst krötunum þar að eyðileggja þessar ráðagerð- ir. Vegna þess, að Sjálfstæðis- menn höfðu þá forystu í bæj- armálum ísafjarðarkaupstað- ar, gátu leiðtogar Alþýðu- flokksins í bænum ekki hugs- að sér að slíkt framfaraspor væri stigið. Þeir settu klíku- Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.