Morgunblaðið - 10.03.1955, Side 2

Morgunblaðið - 10.03.1955, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 10. marz 1955 Ræða Bjarna Benediktssonar Framh. af bls. 1 ingsmenn og ríkisstj. gera svo jnikið úr? ‘ EKFITT ÍITVINNUÁRFEEÐI | Hv. 2. þm. Reykv. spyr um þetta, ekki af því að hann viti ekki. Þessari spurningu hans var í raun og veru svarað af mér ftrax í þeirri fyrstu ræðu, sem ég hélt um þetta mál.. Þjóðin veit vel, af hverju ekki er hægt að bæta kjörin meira en orðið Jiefur, þrátt fyrir látlausar ný - j jSköpunarframkvæmdir allt frá; árinu ’45 fram á þennan dag. j Ástæðan til þess er sem sagt sú, að þrátt fyrir allar þessar fram- ( farir höfum við átt við mjög erf- , itt atvinnuárferði að búa að sumu Jeyti. Það er kunnara en frá }->urfi að segj,a að miðað við þá feikna fjármuni, sem lagðir hafa irc|ið fram til að hagnýta sér $íl larafla, hefur síldarleysið Sipað fáheyrð vandræði í ís- líkum þjóðarbúskap. Til við- iár síldarleysinu hafa komið irpestir og aðrar plágur, sem gengið hafa yfir landbúnaðinn. jÞegar á þetta er litið, þá er sann- ást sagt undravert, að svo skuli hafa tekizt að halda í horfinu sem faun ber vitni um. Það er undra- vert, en hitt ekki, þó að við höf- um mætt mörgum örðugleikum og ýmsir hafi ekki átt þess kost ( að bæta svo sinn hag, sem ætta hefði mátt, að honum tækist, ef ölt atvinnutækin, sem komið hafa fyrir nýsköpunarfram- kvæmdirnar á þessum árum, hefðu orðið að því gagni, sem inen vonuðust til, að þau yrði. JAFNVÆGI í ÞJÓÐARBÚSKAPNUM OG ATVINNUÖRYGGI Án þess að ég ætli nú að fara að rökræða frekar við hv. 2. þm. Iíeykv., þá kemst ég ekki hjá því að benda á þá veilu í málflutn- ingi hans til viðbótar þessari liöfuðveilu, að hann heldur því fram enn þann dag í dag, að það sé höfuðsynd af stjórnarvöldun- um að hafa ekki lagt ríkari áherziu á eflingu sjávarútvegsins en gert hefur verið síðustu ár. Við hinir höfum einmitt sannfærzt um, að ef við ætl- um að halda sæmilegu jafn- vægi í þjóðfélagsbúskap okk- 1 ar og sæmilegu atvinnuör- yggi fyrir allan almenning, þá ' dugi ekki að eiga svo mikið Hndir sjávarútveginum einum, > sem við enn gerum og einkan- 1 lega gerðum, áður en hin mikla síðasta viðbótarvirkjun við Sogið var framkvæmd og þær iðnaðarframkvæmdir hal'a 1 getað átt sér stað sem á henni 1 hvíla. Ég játa það, að við verðum að halda sjávarútvegi okkar við, og eðlileg aukning er þar sjálfsögð, en höfuð- verkefni næstu ára hlýtur að í vera það að byggja fleiri und- irstöður undir atvinnulíf okk- ar heldur en það enn stend- ur á. UtJARABÆTUR FAST EKKI JWEÐ PAPPÍRSSAMÞYKKTUM ; En hvað sem deilunni um það líður, hefur þó það áunnizt í þessum umr, að allir hafa við- urkennt, að raunverulegar kjara- bætur fáist ekki með pappírs- ramningum eða pappírssamþykkt um, heldur eingöngu með aukn- íifgu framleiðslunnar. Það eru þess vegna þær aðgerðir, sem iiiestu máli skipta. Og það er Vegna þess, að ríkisstj. efast um, að kjarabreytingar, gerðar með samningum nú, verði að raun- verulegum kjarabótum, sem hún hefur talið, að rannsaka þyrfti það mál betur heldur en enn hefur verið gert. En þá kem ég aftur að því, sem ég gat um, að bæði hv. 2. þm, Reykv. og hv. síðasti ræðu- maður, forseti Alþýðusambands Jslands, vitnuðu í kjörin 1947 seni þau beztu kjör, er verka- inenn hefði átt við að búa og Vilji nú ná aftur. En voru þá’ þessi kjör 1947 með þeim hætti, að þau gætu staðið til frambúð- ar? Því miður var svo ekki. Eint- mitt í desember 1947 voru sett lög, sem leiddu til kjaraskerð- ingar verkamanna, og það var alveg með opnum augum, að þau lög voru sett. UMMÆLI HANNIBALS Menn vissu, að kaupgjaldið mundi eitthvað lækka vegna lagasetningarinnar, og einn af þeim þm., sem studdi lögin þrátt fyrir þetta og tók fram, að hann styddi lögin þrátt fyrir þetta, var hv. síðasti ræðumaður, Hannibal Valdemarsson, núver- andi forseti Alþýðusambands ís- lands. Hann segir í Þingtíðindum 1947, b. bls. 304, m. a. á þessa leið: „Með því að ég lít svo á, að í þessu frv. felist ákvæði, sem skapi aukið atvinnuör- yggi, sem ég tel að veiti verka- lýð landsins betri hagsbætur heldur en sem nemur þeirri kjaraskerðingu, sem binding vísitölunnar leiðir af sér-“ o. s. frv. Þarna viðurkennir hv. núver- andi forseti Alþýðusambands Is- lands, að kaupuppfæring ein dugi ekki; það sé atvinnuöryggið, sem meira máli skiptir. og hann greið- ir atkvæði með beinni kjaraskerð ingU gerðri með löggjöf, vegna þess að hann er sannfærður um, að það sé verkalýðnum til bóta að fara þannig að. Því miður kom það strax á daginn 1947, að boginn var of hátt spenntur. ATVINNUVEGIRNIR STÓÐU EKKI UNDIR KAUPHÆKKUNUM Það hefur verið sagt réttilega í þessum umræðum, að það sé svo oft búið að segja, að allt fari um koll, ef kaupið verður hækk- að, að menn séu hættir að taka mark á slíkum spádómum. Þetta er að vissu leyti svo, og þetta truflar eðlilegar, sanngjarnar umræður um þessi mál. En er það svo, að þessir spádómar hafi reynzt algerlega rangir? Þeir hafa reynzt rangir að því leyti, að atvinnuvegirnir hafa haldið áfram. En þeir hafa ekki reynzt rangir að því leyti, að það, sem menn voru að berjast fyrir, oft með löngum verkföllum og mikl- um fórnum, það varð að engu i höndunum á þeim, vegna þess að þegar til kom, þá stóðu atvinnu- vegirnir ekki undir því, sem af þeim var krafizt og þeir höfðu skuldbundið sig til að greiða, og þess vegna varð að grípa til ann- arra ráða til að halda þeim við. Það varð að jafna niður einhvers konar álögum, sköttum eða gera gengisfall eða aðrar hliðstæðar ráðstafanir til þess að allsherj- arstöðvun yrði ekki. Það hefur sem sagt komið á daginn, að það er rétt, sem hv. þm„ Hannibal Valdemarsson, núverandi forseti Alþýðusam- bands íslands, sagði 1947, að kaupgjaldið eitt dugar ekki; það er atvinnuöryggið, sem verkamaðurinn þarf meira á að halda. Og ef kaupgjald er sprengt hærra upp en atvinnu- vegirnir standa undir, þá fell- ur atvinnulífið með meiri og minni erfiðleikum, með meiri og minni hörmungum, að lok- um í sinn gamla farveg, því að þaðan er ekki hægt að taka meira heldur en þar er skapað. VILJI VERKAMANNA Þetta eru sannindi, sem menn hver og einn játa og viðurkenna. Hv. þm., Hannibal Valdemarsson, gerði mikið úr því, að þær kröf- ur, sem nú væru bornar fram, væru kröfur allra verkamanna án tillits til þess í hvaða flokki þeir eru. Auðvitað vitum við, að verkamenn í öllum flokkum ef- ast mjög um réttmæti þeirra krafna, sem nú eru bornar fram. Hins vegar er það eðlilegt, að verkamenn í öllum flokkum vilji fá sem bezt kjör. Þeir fylgja for- ustumönnum féláganna í þvl að reyna að knýja fram frá atvinnu- ' rekendum það, er þeir mest geta greitt. Það er eðlilegt. Við vitum ] líka, að þegar mönnurn er hóað saman á íundi og ekki sízt, ef þar er ákveðinn meirihluti einn- ar skoðunar, eins cg t.d. á fund- um Dagsbrúnar, þá telja aðrir þýðingarlaust að vera að hafa sig þar í frammi til andrnæla. En látum þetta allt vera. Aðalatriðið er það, að auð- vitað vilja aliir verkamenn, eins «g hverjir aðrir einstakl- ingar knýja fram sem mest þeir geta upp kaup sér til j handa að því áskildu, að at- ! vinnuöryggið hverfi ekki, En vitanlega eru það fyrst og j fremst forustumenn þeirra, j sem bera ábyrgð á kröfunum, 1 sem fram eru settar, og verka- j menn hafa sannast sagt eng- in tök á því að gera sér grein fyrir eðli allra þessara krafna. 57% KRÖFUR Það er t.d. eftirtektarvert, að hv. síðasti ræðurmaður tal- ar um það, að kauphækkunar- kröfurnar nú séu þó ekki nema eitthvað um 30%. Það er að vísu býsna röskleg hækk un í einu og meiri hækkun hygg ég heldur en nokkurt þjóðfélag nokkru sinni hafi getað staðið undir í einu stökki. En það er fullyrt í mín eyru, og það er eitt af því, sem væri gott að hafa örugga skýrslu hlutlausra manna um, að kröfurnar séu ekki þetta, heldur þegar tekið er til ým- iss konar hlunnindi og nýrra ákvæða að öðru leyti, þá séu þær kringum 57%. Ég skal ekki dæma um það, hvort af þessu er réttara. (Gripið fram í: Eru það stóru vélarnar á Hagstofunni?) Eg hef ekki kunnugleik á hinum stóru vélum á Hagstofunni. Hitt efast ég ekki um, að hagstofustjóri, þó að hann standi sjáifsagt hv. fyrir- spyrjanda, Hannibal Valdemars- syni, nær í stjórnmáium heldur en mér, þá efast ég ekki um það, ' að hann reikni eins rétt á hinar stóru vélar og hann bezt getur, og dettur ekki í hug að bregða honum um rangindi eða vísvit- andi fölsun í embættisfærslu sinni. Og ég staðfesti það, að hv. þm. gerir slíkar höfuðhreyfingar, að mér skilst að hann sé mér sam mála í því, sem ég nú sagði. Það er áreiðanlega umdeilan- legt hversu háar kröfurnar eru að þessu sinni, eins og svo oft áður, og það er líka meira en um- deilanleg sú frásögn, sem hv. ræðumaður hafði um þann tíma, sem hefði verið til stefnu í þessu máli. MARGÞÆTTAR OG FLÓKNAR KRÖFUR KOMU Á SÍÐUSTU STUNDU Hv. þm. sagði, að kröfurnar hefðu komið fram nú fyrir þremur vikum. Mér er sagt og fékk það staðfest af áreiðan- legum manni nú áðan, að hin- ar almennu Dagsbrúnarkröíur hefðu ekki borizt Vinnuveit- endasambandinu fyrr en 17. febr. Það eru þó ekki alveg þrjár vikur síðan. Og mér er einnig sagt, að kröfur annarra hafi ekki komið fyrr en síðar og hafi jafnvel sumar verið að berast allt fram til mánaða- móta. Og ég hygg, að það sé alveg óvéfengjanleg stað- reynd, að verulegur hluti af kröfunum hafi enn ekki Iegið fyrir, þegar fyrst þurfti að taka ákvörðun um það af hálfu verkalýðsfélaganna, hvort þau ættu að tilkynna verkfall eða ekki, eða a. m. k. hafi sumar þeirra ekki komið fram fyrr heldur en alveg sama daginn eða daginn áður. Nú eru þessar kröfur ákaflega margþættar og flóknar, og þó að ég kunni mjög vel að meta þann hug. setn komi fram í því að verk fallsákvörðun hefur verið frest- að, þá verður að segja það eins og er, að það er ekki ákaflega mikil linkind, þó að frestað sá að tilkynna verkfall meðan kröfurn- ar eru enn ekki fram komnar og meðan alveg er ljóst, að ekki er enn nokkur möguleiki til þess að vera búinn að rannsaka til hlítar þær kröfur, sem höfðu kornið að- eins örfáum dögum áður. STÖÐVUN KAUPSKIPA- FLOTANS I ANNAÐ SINN Það er lika rétt að segja það alveg eins og er, að ýmsir hafa sagt, að sú frestun á verkfallinu, sem átt hefur sér stað, hafi ekki verið gerð til þess að greiða fyrir samkomulagi, heldur vegna þess að verið væri að biða eftir því, að kaupskipaflotinn kæmi aftur í höfn. Það var vitað, að vegna þess verkfalls, sem lauk fyrir fá- um vikum, þá mundi hann koma hér allur aftur um nokkuð svip- að leyti, upp úr miðjum mánuði, og því hefur verið haldið fram af sumum, að með verkíallið yrði beðið, þangað til kaupskipin yrðu komin í höfn á ný, en siðan yrði því miskunnarlaust skellt á. Þær upplýsingar, sem hv. þm., Hannibal Valdemarsson, gaf hér áðan, kynnu að gefa þessum orð- róm byr undir báða vængi. Ég vona, að þetta reynist ekki rétt ásökun. Ég vona, a‘ð það verði gef- inn raunveruíegur tími til þess að vinna að þessum mál- um, og að menn flani ekki að því að stefna þjóðfélaginu öllu og vetmegun þúsunda heimila í stórhættu fyrr heldur en betra færi hefur gefizt á að kanna þær mjög róttæku kröfur, sem hér eru fram born ar, og kanna hvort einhver millivegur er finnanlegur, er viðunandi sé fyrir alia. VINNUBRÖGÐ, SEM HAFA TÍBKAST OF LENGI Ég' skal ekki tala hér mikið almennt um þann hátt, sem hafð- ur er á vinnudeilum hér á landi, en ég verð að segja, að bæði virð- ist vinnulöggjöfin gera ráð fyrir / því og eins, ef svo mætti segja, væri það a. m. k. ekki andstætt heilbrigðri skynsemi, að áður en sagt er upp samningum, þá liggi fyrir þær kröfur, sem eigi að reyna að knýja fram. Það sýnist engan veginn óeðlilegt, að það sé kannað áður heldur en til átaka kemur og uppsagna, hvort mögu- legt sé að fá breytingar með góðu, og það verður að segja, að það er mjög komið aftan að hlut- unum, þegar stórkostlegar kröf- ur eru ekki bornar fram fyrr en liðinn er meira en hálfur upp- sagnartíminn og jafnvel sumar ekki fyrr heldur en komið er á þann tíma, sem heimilt var að skella á vinnustöðvun. Slík vinr.ubrögð hafa eflaust of lengi tíðkazt, og ég vil ekki segja að þau komi af neinum illvilja. En það er alveg greini- legt, að ef mönnum cr umhugað um að forða vandræðum, þá er þetta ekki rétta aðferðin, þá er rétta aðferðin hin að reyna að kanna fyrirfram, hvort hægt sé að koma á samkomulagi, og segja ekki upp samningum fyrr heldur en verulega hefur reynt á, og a. m. k. að fara ekki í alls- herjarverkffcll eins og nú er yfir- vofandi fyrr heldur en öll úrræði hafa verið reynd til friðsamlegr- ar lausnar Sérstaklega þegar á það er litið, sem hér hefur kom- ið fram í umræðunum, bæði hjá hv. 2. þm. Reykv. og forseta Alþýðusambands íslands, að nú er verið að reyna að bæta upp það, sem tapazt hefur á öllu árabilinu- frá 1847. Ef í alvöru er við þetta miðað og sú rök- þá því að ekki sé hægt að gefa sér nokkrar vikur, jafnvel mán- uði til rannsókna og úrslita- | glöggvunar á því, hverjar stað- I reyndir málsins eru, hver sann- ! ast hefur að mæla um þau atriði, I sem hér er ágreiningur um? KANNAÐ TIL HLÍTAR HVORT SAMKOMULAGSMÖGU- LEIKAR ERU Aðrar þjóðir gefa sér betri tíma í þessum efnum. Hjá þeirrl þjóð, þar sem verkamenn njóta beztra lífskjara, og viðurkennt er af öllum. að þeir njóta lang- beztra lífskjara, sem sagt I Bandaríkjunum, þar er heimilt fyrir forseta landsins, ef hann telur þjóðarvoða stafa af verk- falli, að fresta því um 80 daga til þess að aðilar geti jafnað sig og hægt sé að kanna til hlítar á þeim fresti, hvort samkomu- lagsmöguleikar séu fyrir hendi. Og þess eru mörg dæmi, jafnvel í hinum alvarlegustu og ískyggi- legustu deilum, að á þessum 80 dögum hefur tekizt að leysa þanrj vanda, sem í fyrstu virtist ólej>s- anlegur. Einmitt í sambandi við slíkan frest eru fyrirmæli um það, að skipa verður rannsókn- arnefndir til að kanna allar stað- reyndir málsins, og skilst mér, að forsetinn megi ekki gefa út slíka frestunarfyrirskipun, nema hún hvíli á þeim grundvelli, sem lagð ur er með starfi rannsóknar- nef/idar. Auðvitað eiga slík fyrirmæls ekki að clhi Icyti við hér, og hér hef'íir enginn farið fram á það, að ríkisstj. væri veitt heimild íil þess að fresta verkföllum með þessum hætti. En mannlegt eðli er alls atað- ar híð sama og mannlegi eðli úreiðanlega þannig, að í-aU líkr.r cru til þesa, að hægt s-i að komast að skyn- samlegri niðurstöðu, sem öll- um verði til gagns, þannig að verkalýðurinn fái raunveru- legar kjarabætur, en ekkíi pappírsgagn, sem honu n sé einskis virði, — það eru neiri líkur til þess, að slíkt náist, ef hóflega er að öllu farið, ef menn æfla sér ííma til þess að kanna þær kröfur, sem fram hafa komið, hvaða af- leiðingar þær hafa og hvaðæ möguleikar eru fyrir höndum til þess að verða við þeim. RANNSÓKN HEFUR KOMIÐ í VEG FYRIR MIKIÐ TJÓN í Bretlandi, þar sem verka- mannaflokksstjórn hefur lengi verið alls ráðandi, þó að ekki sé svo nú um sinn, þá hefur það áratugum saman verið í iögum, að heimilt er fyrir ríkisstj., ýmist að skipa rannsóknarnefnd eða rannsóknardómara, til þess að kanna allar staðreyndir vinnu- deilu og gefa um þær staðreyndir hlutlausa skýrslu, og það er lær- dómsríkt fyrir okkur, að slíkar rannsóknir hafa oft orðið að grundvelli frambúðarlausnar. Síðast nú í vetur, í þeirri mjög alvarlegu vinnudeilu, sem þá var uppi, var þessu ráði beitt, og lausnin fannst einmitt, eftir að slík rannsókn hafði fram far- ið. En þar er sá háttur hafður á, að rannsóknardómarann má ekki skipa, fyrr heldur en búið er að reyna öll önnur úrræði til sátta á milli aðila. Það er ekki fyrr heldur en komið er á daginn, að deilan er ekki leysanleg eftir venjulegum leiðum, sem talið er að slík rannsókn sé líkleg til árangurs, og hana eigi að láta fram fara. ER HÆGT AÐ RANNSAKA KRÖFUR SEM EKKI LIGGJA FYRIR? Það er þess vegna einmitt eftir þeim fordæmum, þar sem slíkar rannsóknir eru ráðgerðar í lög- semd á að halda, að eftir þessu j um, það er einmitt eftir þeira sé verið að sækjast, hver trúir! Framh. á bls. 9

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.