Morgunblaðið - 31.03.1955, Page 7

Morgunblaðið - 31.03.1955, Page 7
Fimmtudagur 31. marz 1955 MORGVNBLAÐIÐ 7 Sundmófið í fyrrakvöld: Ari var maður dagsins — en sveit KR og Sigurðar ÍA settu metin SUNDMÓX KR fór fram í gær og ná'ðist í einstöku greinum m jög góður árangur. Sigurður Sigurðs- son, Akranesi, setti drengjamet í 100 m bringusundi og sveit KR bætti íslandsmetið í 4x50 m bringuboðsundi um 1/10 úr sek. Maöur dagsins var Ari Guð- mundsson, þessi gamalkunni sundmaður, sem árum saman var fremsti skriðsundsmaður lands- ins, varð þjálfari félags síns og kemur nú fram á ný og sigrar bæði Pétur, Helga og Gylfa. — Kannske er þetta ánægjulegasti sigur, sem Ari hefur unnið á sín- um langa sundmannsferli. Árangur var nú heldur dauf ari, en t. d. á mótinu er Sví- arnir kepptu í. Er það skilj- anlegt. Þó náði Þorsteinn Löwe 1:15,4 í 100 m bringu- sundi (1/10 frá meti hans) og staðfesti að tími hans frá síð- asta móti er engin tilviljun og hann er líklegur til að bæta metið enn að mun. AÐVÖRUN' Þátttaka í mótinu var allmikil og þessi atriði, sem nefnd hafa verið gáfu mótinu lit. En þó vant- aði einhvern neista, eitthvert líf. Fylking sundmannanna er of þunn. Það er t. d. eftirtektarvert að utanbæjarmenn sigra í 4 grein um af 10. Það er gleðilegt að mörgu leyti. En svo virðist sem næsta fáir reykvískir unglingar leggi suhdiðkun fyrir sig. í bringusundi keppti t. d. enginn Reykvíkingur nema einn úr Ár- manni. í skriðsundi drengja voru allir þátttakendurnir utanbæjar- menn nema 3 úr ÍR. Með þessu er ekki verið að kvarta yfir að utanbæjarmenn sigri, heldur að benda á að hjá Reykjavíkurfélög unum er nú, að því er virðist, næsta fátt fólk til að taka við af þeim er eldri eru, er þeir hætta. • Boðsundskeppni kvenna var að þessu leyti undantekning. Þar komu fram og sigruðu fjórar ungar og næsta óþekkt- ar stúlkur frá ÍR, Sigruðu þær m.a. Keflavíkurstúlkurnar, sem til þessa hafa verið jafn- astar og beztar. Þessar ÍR- stúlkur og fleiri, t. d. Sigríður Sigurbjörnsdóttir, Æ, er sigr- aði í bringusundi telpna, end- ast vonandi til þess að í bringu sundi kvenna verði í framtíð- inn fleiri en tvær er keppa — eins og nú var. Einna iiflegast virðist bringu sundið vera nú. Hin nýja „kaf- aðferð“ hefur hleypt nýjum lífs- neista í þá grein og margir eru þar líklegir til afreka eins og t.d. Sig. Sigurðsson frá Akranesi (sem á þessu móti vann 2 sund og varð annar í hinni þriðju grein) og Þorgeir Ólafsson Á, sem er sterk- legur og bráðefnilegur. — Aldrei hefur skriðsundskeppnin verið jafnari en 200 metrarnir nú. Ari, Pétur og Helgi á sömu sekund- unni og Gylfi rétt á eftir, sá ungi maður, sem enn kann ekki að synda 200 m. En hvað skeður þeg ar hann hefur lært það? Helztu úrslit mótsins urðu sem hér segir: 100 m bringusund karla 1. Þorsteinn Löw KR 1:15,4 2i Sigurður Sigurðsson ÍA 1:18,3 3. Þorgeir Ólafsson Á 1:18,9 4. Ólafur Guðmundsson Á 1:22,7 Hinn sterki og snöggi Sigurður Sigurðsson frá Akranesi, sem sett hefur hvert drengjametið af öðru í vetur, hann hcfur fært drengja- metið í bringusundi niður í þann tíma, seni var gildandi Islands- met fyrir fáum árum — og spá margra er, að hann eigi sérstak- lega glæsilega braut framundan á sviði sundsins. Ilann sigraði í tveim greinum í fyrrakvöld og varð annar í hinni þriðju. 100 m skriðsund kvenna 1. Helga Haraldsd. KR 2. Inga Árnadóttir KFK 1:14,8 1:17,1 100 m baksund karla 1. Jón Helgason ÍA 1:18,6 2. Sig. Friðriksson UMFK 1:23,9 3. Birgir Friðrikss. UMFK 1:24,9 200 m skriðsund karla 1. Ari Guðmundsson Æ 2:21,1 2. Pétúr Kristjánsson Á 2:21,5 3. Helgi Sigurðsson Æ 2:21,8 j 4. Gylfi Guðmundsson ÍR 2:22,8 , 50 m bringusund telpna 1. Sigríður Sigurbjörnsd. Æ 44,0 2. Ásl. Bergsteinsd. UMFK 44,6 43,9 í umkeppni) 3. Sigr. Ingvarsd. SH 44,6 4. Vilborg Guðleifsd. KFK 44,6 100 m bringusund kvenna 1. Inga Árnadóttir KFK 1:36,3 2. Vilborg Guðleifsd KFK 1:36,9 50 m skriðsund drengja 1. Sigurður Sigurðsson ÍA 30,5 2. Ragnar Eðvaldsson KFK 30,8 3. Guðm. Gíslason ÍR 34,0 4. Jón Benediktsson SH 34,8 4x50 m bringusund kvenna 1. SveitÍR 3:01,2 2. Sveit KFK 3:01,3 3. Sveit KR 3:05,3 100 m skriðsund drengja 1. Sigurður Sigurðsson ÍA 1:19.0 2. Birgir Dagbjartsson SH 1:26,4 3. Ágúst Þorsteinsson Á 1:27,0 4. Ragnar Eðvaldsson KFK 1:27,7 4x50 m bringusund 1. Sveit KR 2. Sveit Á 3. Sveit Æ 4. Sveit ÍR karla 2:21,9 (Met) 2:26,0 2:27,1 2:31,6 Gefraunaspá Á LAUGARDÁG voru háðir und- anúrslitaleikir bikarkeppninnar. Fengust hrein úrslit í öðrum, er Manch. City sigraði Sunderland með 1:0, og er það þar með komið í úrslit, sem fara fram hinn 7. maí á leikvellinum í Wembley við London. Svo langt hefur það ekki komizt í keppninni siðan 1934, en þá bar félagið sigur úr býtum. Hinum leiknum lyktaði með jafnteíli, og var hann milli York og Newcastle, 1:1, og verða þau að reyna með sér að nýju á mið- vikudag og verður leikið í Sund- erland. Skipt hefur um forystu í 1. deild og er Chelsea komið í efsta sætið. Chelsea hefur aldrei unnið neina keppni og „mun aldrei vinna neina keppni“ hef- ur lengi verið fastur brandari í grínleikjum og sýningum í London, enda hefur árangur fé- lagsins iengi verið hafður að háði og spotti, því að það hefur komið á óvart með að sigra sterkustu félögin glæsilega, en tapa síðan ekki minna fyrir hinum lakari. Félagið hefur nú leikið í 1. deild síðan 1930 og hefur alltaf verið meðal hinna lægri. Manch. City hefur nú eitt allra félaganna tækifæri og möguleika til að sigra -í báðum keppnunum, en nú taka leikmennirnir að hugsa um að komast heilir í úr- slitaleikinn, og þá er ekki að sökum að spyrja í þeim leikjum deildakeppninnar, sem enn eru eftir. Næsta laugardag verða þessir leikir: England — Skotland 1 Aston Villa — Burnley 1 Bolíon — WTBA 1 Blackpool — Everton 1 2 Charlton — Newcastle 1 Huddersfield — Arsenal 1x2 Manch. Utd — Sheff. Utd 1 Portsmo.uth — Manch. C. 12 Sheff. Wedn — Cardiff x2 Sunderland — Leicester 1 Tottenham — Chelsea x2 Wolves — Preston 1 Frh. á bls. 11. Leikmannsþankar wm list FYRR á öldum dýrkuðu menn herkónga og ofurmenni. Nú á dögum tilheyrir dýrðin hinni , vinnandi stétt, eins og vera ber. I Ofdýrkun ofurmennisins leiddi smá msaman til þess að þeir of- ( metnuðust í hjörtum sínum, eins I og ritningamar greina, og þau úr j kynjuðust svo fólkið varð leitt á þeim, hætti að líta upp til þeirra og hengdi þá að lokum. Svo bjó það til sína eigin for- ingja, sem buðust til þess að veita því þjónustu af lítillátu hjarta sínu. En allt fer á eina leið í þessum heimi og ekkert stendur í stað. Jafnvel ein aukapersóna í skáldsögu gerir kröfur til að fá að fara sínar eigin götur gegn öllum hugsanlegum varúðarráð- stöfunum höfundar síns, hvað þá þeir einræðisherrar, sem gæddir eru raunverulegu holdi''og blóði. — Og nú fer ég að velta því fyrir mér hvort þetta kynni ekki að vera ein orsök þess hve brúðu- leikhús tíðkast nú mjög austan tjaldsins. Hinar mjúklimuðu tuskubrúður virðast vera eina fólkið, sem enn ekki hefir gert tilraunir í þá átt að beita hús- bændur sína verulegu ofriki. j Alræði fjöldans hafa verið víg- orðin undanfarin ár, og má i ýmsu sjá þess heillandi merki. Þó virðist vera farið að bóla á því að fólkið sé að missa trúna á þá fullyrðingu, að öllu megi í skyndi bjarga í heiminum með sameiginlegu átaki, ef þeir sem beita því, fá nógu óskorað vald yfir fjöldanum sem lætur að stjórn eins auðveldlega og tveir handleggir á einum bol. Áður fyrr varð hver og einn að bjarga sér eins og bezt gekk, þola súrt í dag og njóta sætleika lífsins á morgun, deyja drottni sínum ef skort eða sjúkdóm ber að gerði. Smám saman fæddi lífið af sér menn, sem sáu lengra fjöldanum og „með eins manns anda ávannst oft stórvirki þús- und handa“. Nú er menningin i ýmislegri mynd í algleymingi og allsráðandi í víðri veröld, með sínum kostum og göllum og sínu frelsi og lýðræði, og í kjölfar þess að sjálfsögðu snobbið fyrir fjöldanum, sem á í stæltum vöðv- unum hið ósigrandi afl er næst að beisla þann kraft. Allt snýst nú um það að auðvelda mann- eskjunum lífsbaráttuna — og er það sannarlega góðra gjalda vert — tryggja þær gegn öllum hugs- anlegum vandamálum og slysum. Ekki aðeins gegn sjúkdómum. eldsvoða og atvinnuleysi, heldur jafnvel gegn hugsanlegum ein- földum óvitaskap. Það er jafn- vel hægt t. d. að tryggja sig gegn þjófnaði, sem orsakast kann af því að maður gleymir að loka búðinni sinni eða peningaskápn- um og býður þannig þjófunum í heimsókn. Allt er þetta sannar- lega gott og blessað, enda eigum við án efa framundan miklu víð- tækari tryggingarplön. Hvert fót- mál okkar verður tryggt og end- urtryggt, öll víxlspor í stjórn- ' málum, fjármálum og ástum. Þetta eirðarlausa kapp allra við að létta byrðunum hver af öðr- I um og koma þeim yfir á alla , sameiginlega, er jafnvel komið á það stig að borgarastyrjöld gæti hlotizt af, vegna óþolinmæði þeirra, sem hafa að hugsjón að tryggja fólk hvert gegn öðru. En svo skýtur skyndilega smámál upp kollinum, sem allir standa róðþrota gagnvart. Þó allar vinnuhendur heimsins væru kall- aðar, og að baki þeirra stæðu all- ir bankar heimsins og fjármála- sjení, gætu þeir ekki sameigin- lega lyft því Grettistaki. Þetta átak, sem enginn veit ráðið að dreifa, skifta á fleiri herðar, er kannske ekki ákaflega stórvægi- legt í augum þeirra, sem hafa ráð heimsins í hendi sér. Það er ef til vill fólgið í því að spila eitt lítið lag á píanó eða fiðlu, segja fram eina setningu, sem verður að hitta í mark, leggja hönd í lófa barns svo frómu hjarta að það finni Drottins raust tala til sín. Með öðrum orðum: Hinn skapandi andi stend- ur ennþá, á öld trygg- inganna, algerlega berskjaldaðnr, einn og óstuddur og verður að vaða eld berfættur eins og áð- ur. Væri það því nokkuð undar- legt þó ýmsir þeirra heltust úr lestinni, þegar alræði hugsjón- anna hefir gert allt fyrir alla nema þá. Menn sem áður lyftu með hnýttum vöðvum kössum upp á bílpalla með eigin afli, þurfa nú að gæta sín að verða ekki fyrir krananum, sem verk- ið vinnur undir stjórn þeirra, skrifstofumaðurinn, sem áður sat sveittur við að pæla í óskiljan- legum tölum, stingur nú öllum vandamálum sínum inn í eina alvitra vélasamstæðu, sem skil- ar honum réttum niðurstóðum, og peningamaðurinn, sem áður varð að sætta sig við að labba sig ofan í bankann sinn með aur- ana og skila um hver áramót vöxtunum í ríkiskassann, fær nú „okraranum“ sínum seðlabunk- ana og sækir jafnvirði höfuð- stólsins annað hvert ár eða svo, og þarf engum að standa reikn- ingsskil nema Drottni sínum. Þessar og aðrar iskyggilegar hugleiðingar náðu tökum á mér í gærkvöldi er ég hugfanginn. stóð andspænis ungri listakonu, húsfreyju og móður, sem stóð ein og óstudd af hinum samvirku máttarvöldum gagnvart því ör- lagaspori að flytja þroskuðum listunnendahópi sjálft „ORÐIГ í stærstu salarkynnum landsins. — Hún stóð hér bókstaflega í sömu sporum og kinsystir hennar fyrir þúsund árum. — Enginn mannlegur máttur gat komið henni til hjálpar. Ef henni tækist ekki að knýja guðs fing- ur til þess að gefa hverjum ein- stökum tón þá lifandi spennu, sem bræðir ísinn af hjörtum á- heyrendanna, þá hafði hún beðið þann ósigur, sem engin tryggi^ig- arstofnun er nógu rik til að endur borga, og hún er dæmd til sömu örlaga og sá, sem verður hung- urmorða á eyðimörk lífsins. Þeg- ar þetta er haft í huga — og það hlýtur hver sá ævinlega að hafa efst í huga, er fylgist með lista- mq.nnunum á þeirra þyrnum stráðu braut, sem stórvirkustu heilar heimsins kunna ekki ráð til að ryðja eða stytta — verða tónleikarnir i Austurbæjarbíói í gærkvöldi öllum minnisstæður at burður. Og svo sannarlega beið listakonan ekki ósigur, heldur voru tónleikar hennar viðburður, andlegt átak, sem gerir s r >- tryggingar þúsundanna næslu .i því broslegar og skammariey ir, eitt af þessum ótrúlegu afrekiun mannlegs anda, sem kunna þrátt fyrir allt að bjarga manneskjun- um aftur úr klóm múgsefjunar- innar. Meðferð frúarinnar á einu af allra erfiðustu viðfangsefnum tónlistarmannanna, Brahms- Handel-tilbrigðunum, var með miklum glæsibrag, persónlegur og djarfur leikur þar sem hug- myndaflug tónskáldsins naut sín ótrúlega vel. Sameinaði píanó- leikarinn fallega og smekklegá kraft og innilega póesí, sem verk- ið er svo ríkt af. Hið háróman- tíska Schumannverk spilaði frú- in þó ekki síður, og náði afburða vel hinum margbreytilegu og ríku geðbrigðum, sem tónskáldið hefir gætt þetta meginverk sitt. Efnisskránni laum með tveim verkum eftir Chopin, sem hún túlkaði með skáldlegri andagift og næmleika. Að lokum lék frúin mörg auka- lög og var henni fagnað af mik- illi hrií'ningu og þakklátum hug. 22/3. ’55. R. J. Krictián Guíllaugssou hæstaréttarlögmaður 4,usturRtrH>ti 1 Slmi 3400 Vrifstofutími kl. 10—12 og i 6 Horður Ólafsson Málf lumingsskrifslofa L&ugavegi 10. - Símar 80332,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.