Morgunblaðið - 01.04.1955, Page 1

Morgunblaðið - 01.04.1955, Page 1
16 síður í dag minnast íslendingar aldarafmœlis frjálsrar verzlunar Kaupskip á Reykjavíkurhöfn á fyrsta áratug verzlunarfrelsisins. Teikningin er gerö af erlendum ferðamanni og er hún geymd í skjala- og munasafni Reykjavíkur. Ávarp frd Úlafi Thors forsætisrdðherra íormaititi Sj úlistæðisilobkslns AN EFA hættir oss íslendingum til að miklast af fleiru en efni standa til. En ekki er oss þó tíðrætt um það þolgæði og þraut- seigju, sem einkennt hefur lífsbaráttu íslendinga allt frá land- námstíð. Myndi þó þjóðin ekki vera sjálfstæð menningarþjóð í dag og raunar ekki þjóð, ef hún hefði eigi verið búin einmitt þessum kostum í óvenju ríkum mæii. Ekki er vitað að nokkur önnur þjóð hafi búið í nær 11 aldir svo fámenn og við jafn torsótt gæði í svo stóru landi sem vér höfum gert. Barizt þar við elda og ísa, drepsóttir, sundurlyndi, ófrelsi og erlenda ánauð, en risið síðan upp voldug og sterk, miðað við aðstöðu og mannfjölda, átt scr auð stórra og fagurra hugsjóna og athafnaþrá og þrek til að bera þær fram til sigurs. íslendingar mega vel miklast af þessu meðan þeir gæta þess að sjálfsaðdáunin yfir unnum af- rekum genginna kynslóða skyggi ekki á skyldu þeirra í nútíð og framtíð gagnvart þeim, er þreng- ingarnar þoldu. — ★ — Ef til vill greinir menn á um, hver af þeim íjendum, er að oss hafa sótt, hafi verið hættulegast- ur íslenzku þjóðfrelsi og þjóðlífi. En á því leikur enginn efi að fáit eða ekkert er á daga vora hefur drifið hefur komizt nær því að skapa hér iandauðn en verzlunarfjötrarnir, sem íslenzka þjóðin var lögð í á öndverðri seytjándu öld og ekki voru afhöggnir að fullu fyrr en rúmlega hálfri þriðju öld síðar, er lög um siglingar og verzlun á íslandi tóku gildi liinn 1. apríl 1855 og var þó enn fátæktin þjóðinni fjötur um fót. Um þetta vitnar öll saga íslendinga. Hér skal þess ekki freistað að færa rök að þessu, enda vart að vænta að nokkur reyni til að véfengja það. En nokkrar bendingar um sannleiksgildi þessarar staðhæfingar gefur það, að á þessari einu öld, sem liðin er frá því íslendingar öðluðust verzlunarfrelsið hafa framfarirnar hér á landi ef til vill orðið tíu sinnum tífaldar Við framfarir tíu alda, eða allt frá landnámstíð og fram til þess tíma er síðasti hlekkur verzlunaránauðarinnar var brotinn af þjóð- inni. Ekkert skal um það fullyrt hversu gildur er þáttur verzlunar- frelsisins í framförunum, heldur aðeins staðhæft að án hans hefðu framfarirnar litlar eða engar orðið. Er þetta sagt án ádeilu á aðra og þeim fyrirgefið, sem vildu vel en gerðu illt. — ★ — í dag fagna íslendingar aldarafmæli verzlunarfrelsis. Margs er að minnast. Mörgum þakkir að gjalda. En hæst gnæfa þeir Skuli Magnússon og Jón Sigurðsson. Hafa þeir hlotið að launum ást og virðingu allra íslendinga fyrr og síðar. En auk brautryðjendanna ber í dag alveg sérstaklega að beina þakklætinu til íslenzkra kaupsýslumanna, jafnt þeirra er séð haía og sjá landsmönnum fyrir aðfluttum nauðsynjum sem hinna, er annast sölu og útflutning íslenzkrar framleiðsluvöru. Hafa þessir menn unnið mikið afrek, er þeir hrifu verzlun landsmanna úr höndum útlendinga og færðu hana i íslenzkar hendur. Eiga margir Frh. á bls. 2. ÓLAFUR THORS Víðtæk hátíðahöld i mirmingu Fréttir j verzlunarfrelsisins í stuttu máii i AímenBar frídagur verzlonor- , UTANRÍKISMÁLANEFNÐ öldungadeildar Bandaríkja- þings hefur samþykkt að mæla með samþykkt Parísarsáttmál- anna er kveða á um hervæðingu Þýzkalands og aðildar þess að Atlantshafsbandalaginu. , KRUCHSHEV, aðalritari ~ kommúnistaflokks Rúss- lands, hefur í ræðu boðað strang- ara eftirlit með stjórn samyrkju- búskapar í Rússlandi. Hann sagði að það yrði að takast að tvöfalda kornuppskeruna þar í landi á stuttum tíma. Lýsti aðalritarinn vandræðaástandi á sumum sam- yrkjubúunum, þar vantaði verk- færi og yfirleitt allt. Verkfæri ryðguöu á ökrum úti og ónýttust o. s. frv. Rjíkurbær hefur aldrei lekið itum m alm, baupgj. ðæjarsljórn samþyfckir að gera ekfci sér- samniega í yfirstandandi deilu. AUKAFUNDUR var haldinn í bæjarstjórn Reykjavíkur í gær og hófst hann kl. 5 e. h. Var fundurinn haldinn skv. kröfu 1 bæjarfulltrúa minnihlutaflokkanna til að ræða afstöðu Reykja- víkurbæjar til yfirstandandi verkfalla. og skrifstcfnfdlks ID A G eru 100 ár liðin frá því að verzlun íslendinga varð alfrjáls. Af því tilefni fara fram víðtæk hátíðahöld um land allt. Öll verzlunarstéttin stendur einhuga að þeim. Hér í Reykja- vík eru það Verzlunarráð íslands, Samband íslenzkra samvinnu- félaga, Samband smásöluverzlana og Verzlunarmannafélag Reykja- víkur sem gangast fyrir hátíðahöldunum. Öllum verzlunum og skrifstofum í bænum er lokað. Hátíðasam- komur verða haldnar og dagskrá Ríkisútvarpsins í kvöld mun verða helguð verzlunarfrelsinu. Gert er ráð fyrir, að fánar verði dregnir að hún hvarvetna um bæinn í minningu þess. SAMKOMA í ÞJÓÐLEIK- HÚSINU Aðal hátíðasamkoman hefst í Þjóðleikhúsinu kl. 2. Verða þar fluttar ræður, ávörp og skemmti- atriði. Ræðumenn verða Ingólfur Jónsson viðskiptamalaráðherra, formaður Verzlunarráðs íslands, forstjóri Sambands íslenzkra samvinnufélaga, formaður Smá- söluverzlana, formaður Verzlun- armannafélags Reykjavíkur og Vilhjálmu" Þ. Gíslason útvarps- stjóri. Karlakór Reykjavíkur syngur og Guðrún Á. Símonar og Guðmundur Jónsson syngja tvísöng. Um kvöldið verður svo hóf að Hótel Borg Eæðumenn þar verða Steingrimur Steinþórsson félags- málaráðherra, dr. Sigurður Sig- urðsson varaforseti bæjarstjórn- ar og Björn Ólafsson fyrrverandi viðskiptamálaráðherra. Sérstakt hátíðaiit „íslenzk verzlun“ eftir Vilhjálm Þ. Gísla- son kemur út BRETAR og Argentínumenn undirrituðu í dag tveggja ára viðskiptasamning. Kveður hann á um 170 milljón sterlings- pund vöruskipti hvert árið um sig. Aðalvörurnar eru kjöt til Englands, en olía til Argentínu. EFNI MORGUNBLAÐSINS Guðmundur Vigfússon bftr. (komm.) bar fram tillögu f. h. kommúnista, Þjóðvarnarmanna og Alþýðuflokksins, þess efnis, að bærinn geri sérsamninga við þá, sem Iagt hafa niður vinnu og gangi að ölum kröfum, sem sett- ar hafa verið fram í yfirstand- andi vinnudeilu. Var tillagan að efni til alveg eins og sú, sem sömu flokkar fluttu á s'ðasta bæjarstjórnarfundi en var þá vís- að frá með rökstuddri dagskrá. Flutti G. V. alllanga framsögu- ræðu en á eftir honum töluðu allir fulltrúar minnihlutaflokk- anna nema Bárður Daníelsson (Þjóðv.), hann þagði. Efni allra ræðanna var nákvæmlega hið sama. Ræðumenn settu „verka- menn“ andspænis „harðsvíraðri atvinnurekendaklíku“ og var aldrei á það minnst að stórir hópar faglærðra iðnaðarmanna eiga einnig í verkfalli. Ræðu- menn vildu, að bæjarfélagið tæki skilyrðislausa afstöðu með öll- um kröfum allra verkfallsmanna og gengi þegar í stað að þeim. Vitnuðu þeir í þessu sambandi til Hafnarfjarðar þar sem kommún- istar og Alþýðuflokkurinn hafa meirihluta í bæjarstjórn og töldu að á síðasta bæjarstjórnarfundi hefði tillögu þeirra, sama efnis, verið vísað frá á þeim grund- velli að Hafnarfjaroarbær hefði þá ekki samið. Allmargir áheyrendur voru á fundinum og cspuðust fulltrúar minnihlutaflokkanna og þá eink- um kommúnistar mjög við það og voru bæði langorðir og gífur- yrtir en ekki fékk það neinn hljómgrunn hjá áheyrendum, Framh. á bls. 5 Morgunblaðið minnist í dag verzlunarfrclsisins með 5 grein- um. Ólafu’- Thors, forsætisráð- herra ritar ávarp. Ólafur Björnss son prófessor ritar grein um ald- arafmæli verzlunarfrelsis á ís- landi, þar «em rakinn er aðdrag- andi þess og þróun verzlunarinn- ar til þessi dags. Jón Pálmason fyrrverandi landbúnaðarráðherra ritar um samvinnufélögin og verzlunarfrelsið, og rekur þar upphaf félagsverzlunar í land- inu' og þróun hcnnar. Sveinn Benediktsson framkvæmdastjóri skrifar um hinn merka íslands- vin, Christian Ulrich Detlev Egg- ers, sem einn studdi þá hugmynd í landsnefndinni siðari. sem skipuð vai árið 1785, að íslend- ingar fengþi fullt verzlunarfrelsi. Loks er forystugrein blaðsins helguð verzlunarfrelsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.