Morgunblaðið - 15.04.1955, Page 1
16 síður
42. árgangur
84. tbl. — Föstudagur 15. apríl 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Life kaupir birtingar-
rétt af Sir Winston
Hann er óheppin með veður á Sikiley
SYRAKUSA, 14. apríl — frá Reuter.
UR WINSTON CHURCHILL féllst í dag á það að leyfa birtingu
kafla úr nýrri bók sinni „Saga enskumælandi þjóða“ í banda-
riska tímaritinu Life. Sat hann í dag hádegisverð með Henry Luce,
aðalútgefanda „Life“, „Time“ og „Fortune“.
S‘
ENDURBÆTT *
Sir Winston skrifaði áður-
nefnda sögu eftir síðustu heims-
styrjöld, en vinnur nú að endur-
bótum á bókinni.
ÓHEPPINN MEÐ VEÐUR
Sir Winston dvelur sér til
hvíldar á Sikiley. Nepja og rign-
ing hefur orðið til þess að halda
gamla manninum inni undan-
farna tvo daga eða frá því hann
kom til hótels síns. í kvöld fór
hann þó öllum á óvart út í hótel-
garðinn i stutta göngu. ítalskir
blaðamenn og ljósmyndarar er
setið höfðu og beðið eftir tæki-
færi til að tala vi.ð eða taka
myndir af honum, voru fljótir tii.
Lögreglan var þó nærstödd og
rak þá á brott, en þó ekki fyrr
en svo, að nokkrum er fyrstir
vóru til hafði tekizt að ná mynd-
um af gamla manninum.
Sr. Gunnar Gíslason
I é jjingi
SR. GUNNAR Gíslason prestur á
Glaumbæ í Skagafirði tók í gær
sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn sem varamaður Jóns
Sigurðssonar á Reynistað, en
hann hafði ritað forseta Samein-
aðs þings og kvaðst af óviðráðan-
legum orsökum ekki geta setið
áfram á yfirstandandi þingi.
Er þetta í fyrsta skipti, sem sr.
Gunnar tekur sæti á þingi. Var
kjörbréf hans athugað og sam-
þykkt í einu hljóði og undirritaði
hann að því loknu eiðstaf að
stjórnarskránni.
Auglýsingar
sem birtast eiga í
sunnudagsblaðinu
þurfa að hafa borizt
fyrir kl. 6
á fösfudag
Austurríkis-
múlin leyst ?
MOSKVU, 14. apríl: — í dag
fór fram síðasti viðræðufund-
ur áströlsku stjórnmálamann-
anna og valdhafanna í Kreml.
Að þeim fundi loknum sagði
sendiherra Austuríkis í
Moskvu, að öllum hindrunum
á vegi samkomulags um sjálf-
stæði Austuríkis væri nú rutt
úr vegi.
Hann var að því spurður,
hvort þessar viðræður í
Moskvu myndu leiða til fjór-
veidafundar um Austurríki og
kvaðst hann vongóður um að
svo yrði, enda væri það fjór-
veldanna að semja um Austur
ríkismálin. — Reuter.
Danlr ræða
Parísai
KAUPMANNAHÖFN, 14. apríl
— Danska þingið fjallaði í dag
um staðfestingu Parísarsáttmál-
anna og var málið sent til nefnd-
ar. Allir er til máls tóku mæltu
með staðfestingunni nema full-
trúi radikala, sem aðeins hafa
14 sæti á þingi. Kommúnistarnir
eru að sjálfsögðu og á móti stað-
festingunni. — Reuter.
Verbíullið við
brezku blöðin
LUNDÚNUM, 14. apríl. — í all-
an gærdag stóðu yfir samninga-
viðræður milli blaðaútgefanda í
Lundúnum og þeirra starfsmanna
biaðanna er verið hafa í verk-
falli undanfarnar 3 vikur. Ekki
höfðu þær borið árangur, en
fundir stóðu enn yfir.
Variið er þeir
stóru fljúga
SINGAPOORE, 14. apríl — frá Reuter.
NOKKURS uggs við flugferðalög hefur gætt
í Austurlöndum frá því er indverska flug-
vélin fórst fyrir páskana og með henni m. a.
nokkrir fulltrúar Kínverja er sitja áttu Afro-
Asíu ráðstefnuna er hefst á mánudaginn í
Jakarta í Indónesíu.
Loforðið yfir
kokteilglasinu
WASHINGTON, 14. apríl — frá Reuter.
jESS ER nú beðið með mikilli eftirvæntingu
hver verður framkvæmd og árangur af
loforði Bulganins marskálks, er hann gaf sendi-
herra Bandaríkjanna í Moskvu, Charles Bohlen,
er þeir ræddust við óformlega í kokteilveizlu
er haldin var í Moskvu á þriðjudag.
20 skriður
á veginn milli
ísafjarðar
og Hnífsdals
ÍSAFJÖRÐUR, 14. apríl. —
Geysimikil úrhellisrigning var
hér á ísafirði í gær og í dag.
Er rigningin hafði enn staðið
um sinn í dag, féllu 12 aurskriður
úr fjallinu á veginn milli ísa-
fjarðar og Hnífsdals. Gerðist
þetta milli kl. 5 og síðdegis. Ein
bifreið er var á veginum lokað-
ist inni milli tveggja skriðna, í
brekkunni við svonefnda Götu.
Vegurinn milli ísafjarðar og
Hnifsdals er því ófær sem stend-
ur, en þegar verður unnið að
lagfæringu hans og vænta menn
þess að hann verði aftur orðinn
fær á morgun. Það er mjög sjald-
gæft að skriður loki þessum veg-
arkafla. Jón Páll.
★ BILADIR HREYFLAR «
Það, sem valdið hefur þessum
kvíða flugfarþega er þrálátur
orðrómur um að hreyflar ind-
versku vélarinnar hafi verið bil-
aðir. Rekja mörg blöð sögu um
það efni og bera íyrir henni
mann einn, sem sagður er hafa ||
flogið með vélinni næst síðustu
ferð hennar. Segir hann m. a.
frá harðri rimmu er átt hafi sér
stað milli flugmannanna, sem
sögðu hreyflana bilaða og flug-
virkja á uirðu niðri, sem sögðu
þá vera í lagi.
* VARÚÐARRÁÐSTAFANIR
í tilefni af flugslysinu verða
hafðar sérstakar varúðarráð-
stafanir í frammi í sambandi
við flug Nelirus, Nassers for-
sætisráðherra Egyptalands og
forsætisráðherra Afhanistans
er þeir á morgun halda tii i
Jakarta, þar sem ráðstefnan j
verður haldin, en þeir taka sér
far með annarri flugvél frá
indverka flugfélaginu, er átti
vélina er fórst.
★ MEÐ LEYND
í dag komu til Rangoon í
Burma m. a. Chou En Lai og
fleiri kínversku fulltrúarnir. Sat I
hann boð forseta landsins, en.
átti siðar að ræða við U Nu for- j
sætisráðherra. Allar ferðir Chou
þar í land, eru með leynd, og
'hann gistir í höll, sem er varin
af sterkum hópi hervarða.
* MIÐLA MÁLUM
Þegar r-áðstefnan hefst á mánu
dag, er það álit sérfræðinga að
Nehru og Christna Menon muni
mjög reyna að milda skoðanir
fulltrúa á ráðstefnunni, svo að
þar verði ekki myndað banda-
lag gula kynstofnsins, sem hafi
fjandskap við hinn hvíta að
fyrsta keppikefli.
BOHLEN:
— Fékk loforð af Bulganin.
BELGRAD — í júlímánuði n.k.
mun nefnd júgóslavneskra þing-
manna fara í heimsókn til Sýr-
lands og Lebanon. Er það gagn-
heimsókn fyrir sýrlenska þing-
mannaheimsókn til Júgóslavíu er
lauk í dag (14. apríl).
* ÆTLAÐI AÐ ATHUGA ....
Veizla þessi var haldin í til-
efni af komu austurrísku sendi-
nefndarinnar til Moskvu. Rædd-
ust þeir við vingjarnlega og ó-
formlega sem áður segir, Bohlen
og Bulganin, og töluðu um
heimsvandamálin. Kom að því, að
Bulganin marskálkur lofaði að
ræða við Molotov utanríkisráð-
herra um möguleika á því að
aukin og víðtækari tengsl mættu
takast milli fulltrúa Vesturveld-
anna í Moskvu og leiðtoga Sovét-
ríkjanna.
* LEIÐINLEGT OG ERFITT
Þeir höfðu ræðst nokkra stund
við um þetta mál, og Bohlen
hafði skýrt Bulganin frá hinu
leiðinlega og erfiða lífi vestrænna
sendifulltrúa í Moskvu vegna
hinnar ströngu einangrunar er
Sovétstjórnin setti um sendiráðs-
byggingarnar.
* ÓÞREYJA
Síðan vínið hætti að flóa í
áðurnefndri móttöku til heiðurs
hinum austurrísku stjórnmála-
j mönnum, eru tveir dagar liðnir
I — og nú bíða fréttamenn þess
' með óþreyju hverjar verði efnd-
I ir loforðs Bulganins marskálks.
r
Ur ýmsum áttum
frá fréttariturum Reuters
-fo Kampavín + BySSUllIUS
Sveif yfir
Mont Blanc
PARÍS 14. apríl: — í fyrsta sinn
í sögu veraldar sveif sviffluga
yfir Mont Blanc í dag. Svifflug-
maðurinn var Frakki, Rene
Dranciart, að nafni.
Hann kom svifflugu sinni í
5900 metra hæð og sveif því hátt
yfir hátind fjallsins, sem er 4807
metra yfir sjávarmál — Reuter.
í opinberri
heimsókn
ADDIS ABABA, 14. apríl: — For
sætisráðherra Sudans, Azhary,
hélt heimleiðis frá Addis Ababa
í dag að aflokinni fjögurra daga
opinberri heimsókn í boði
Ethiopíukeisara. Forsætisráðherr
ann átti marga viðræðufundi við
valdamenn í Ethiopíu um landa-
mæramál og vandamál í sam-
bandi við Níl. — Reuter.
PARÍS, 14. apríl: — Karlar og
konur í Frakklandi hafa drukkið
eða geyma nú tvo þriðju hluta
allrar kampavínsframleiðslu
heimsins árið 1954. — Næstir
koma Englendingar.
Unnendur kampavíns keyptu
33400000 flöskur — þar af voru
í Frakklandi keyptar 22153428
flöskur. Sovétstjórnin flutti inn
í land sitt 3024 flöskur til neyzlu
í veizlum stjórnarinnar; Banda-
ríkin keyptu 2178054 flöskur;
Bretar keyptu 2195833 flöskur;
Rúmenía og Ungverjaland 384 og
468 flöskur. (Tölurnar eru úr
skýrslu franskra vínsala er birt
var í dag).
jr Sigurbogi
BUENOS AIRES 14. apríl: —
Argentinsk blöð gátu þess í
dag í gleiðletruðum fréttum,
að reisa ætti risamikinn sigur-
boga til heiðurs Peron forseta
landsins. Boginn mun standa
við borgarhlið Evu Perons
borgar sem heitin er eftir konu
forsetans.
Sigurboginn verður á hæð
við þriggja hæða hús, fagur-
lega byggður og hann mun
skreyttur verðtt- með högg-
myndum er bregða upp mvnd-
um úr sögu landte og þjóðar.
Sigurboginn verður fullgerð-
ur í árslok 1957.
PARÍS, 14. apríl: — 24 ára gam-
all bandarískur dýrafræðingur
lagði flugleiðis upp frá París í
dag til Kairo en þaðan fer hann
að leita nokkurra elztu dýrateg-
unda heims. Fer þessi maður
ferðina á vegum alþjóðasambands
er vinnur að söfnun og vernd
náttúrumuna.
Fyrst mun hann leita viltrar
asnategundar í Sýrlandi. Til þess
verður hann að ferðast fram og
aftur um eyðimörkina norður af
Sýrlandi og Iraq. — Síðar mun
hann fara til Nepal og Burma í
leit að dýrategundum sem eru að
deyja út, og enn síðar leita í
frumskógum á Jövu og Borneo
að sérstakri og fágætri nautsteg-
und. En það sem furðulegast er
við ferðalag mannsins er, að hann
hefur ekki einu sinni skamm-
byssu við belti sitt, hvað þá stærri
byssur meðferðis.
Lömunarveiki
WASHINGTON, 14: apríl: —
A£ skýrslum heilbrigðismálá-
stofnunarinnar hefur komið í
ljós að lömunarveikistilfelli
eru færri það sem af er þessu
ári, en var á sama tímabili árs
í fyrra. Skýrslurnar sýna að
1955 hefur orðið kunnugt um
1125 tilfelli veikinnar, en á
sömu mánuðum s.l. árs var
tilfellafjöldinn 1650.