Morgunblaðið - 07.05.1955, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 7. maí 1955
Tónlisfarfélag Akraness
hefur starfsemi sína
Ferraing að Lága-
felli á raorgun
FERMINGARBÖRN í Lágafells-
sókn sunnudaginn 8. maí.
DRENGIR:
Gestur Pálsson, Hraðastöðum
Guðmundur Freyr Halldórsson,
Smálandsbr. 17, Smálöndum
Gunnar Hákonarson, Selja-
brekku
Ingólfur Gísli Ingólfsson,
Fitjakoti
Jón Eiríkur Sveinsson, Bjargi
Ketill Oddssen, Reykjalundi
Steingrímur Björgvinsson,
, Dallandi ■’? -
Á tnyndinni eru, talið frá vinstri: Fritz Weisshappel, Guðrún Á.
Símonar, Magnús Jónsson, Þuríður Pálsdóttir og Guðm. Jónsson.
FYjRSTU hljómleikarnir á veg-
u mj hins nýstofnaða Tónlistarfé-
lags Akraness voru haldnir í
Bíáhöllinni á Akranesi sunnu-
daf^inn 21. apríl s.l. Þar komu
frajn söngvararnir: Guðrún Á.
•Sínjonar, Þuríður Pálsdóttir,
Guðmundur Jónsson og Magnús
Jónsson, og sungu þau aríur og
dú$tta úr óperum með píanóund-
irlaík Fritz Weisshappel.
Hljómleikar þessir voru mjög
glsésilegir og munu seint líða úr
miáni þeim, er á hlýddu, enda
var auðheyrt og séð, að áheyr-
endur voru alveg á valdi tón-
anria og lýrir það betur en nokk-
■uð >annað hrifningu þeirra. Söngv
arárnir voru ákaft hylltir af á-
heýrendum og bárust þeim blóm.
Má óhætt telja hljómleika
þessa einn mesta tónlistarvið-
burð á Akranesi til þessa.
Hvert sæti Bíóhallarmnar var
skipið og urðu margir frá að
hverfa.
í lok hljómleikanna ávarpaði
formaður Tónlistarfélags Akra-
ness, Jón Sigmundsson, tónlist-
armennina og þakkaði þeim kom
una, en Guðmundur Jónsson
þakkaði af hálfu tóniistarmanna
og árnaði ninu nýstofnaða Tón-
listarfélagi Akraness heilla.
Tónlistarfélag Akraness var
stofnað í febrúarmánuði s.l. —
Framkvæmdastjórn skipa: Jón
Sigmundsson formaður, Geir -
laugur Ármson varaformaður og
Valgarður Kristjánsson, ritari.
Gjaldkeri hefur verið ráðinn
Jón Ben. Ámundason.
V. K.
STULKUR:
Anna Margrét Höskuldsdóttir,
i Dælustöð
Guðrún Bjarnadóttir, Hraða-
I stöðum
Kolfinna Snæbjörg Haraldsdóttir,
Markholti
' Lára Bjarnadóttir, Hraðastöðum
Olöf Jóna Ingimundardóttir,
| Hrísbrú
Sigríður Birna Ólafsdóttir,
I Hamrafelli
Sigurbjörg Eiríksdóttir, Meltúni
Svanhildur Karlsdóttir, Grafar-
holti.
Óvenjulega óheiðarlegur
málfluftningur á þingi
Rangfærslur Haraldar Guðmundssonar bæta
ekki um fyrir góðu málefni
T TMRÆÐUR um húsnæðismálafrumvarpið fóru fram í Efri deild
tJ Alþingis í gær. Þar hélt Haraldur Guðmundsson Alþýðuflokks-
þingmaður áfram árásum sínum á þetta merka umbótamál. Réðist
hann einkum harkalega gegn því að byggingarsjóði sveitanna væru
tryggðar 12 millj. kr. Hélt hann fram fyrri ásökunum um að með
þessu væri verið að mismuna sveitum og kaupstöðum.
Samsæii fyrir
Jónas Jónsson
JÓNASI JÓNSSYNI frá Hriflu
var haldið samsæti að Hótel Borg,
á sjötug'safmæli hans 1. mai. —
Komu þar saman fjöldi nemenda
hans og vina. Albert Guðmunds-
son, knattspyrnumaður stjórnaði
hófinu og fjöldi ræðna og ávarpa
var haldinn. Þá söng ítalski
söngvarinn Primo Montanari, í
hófi þessu, sem stóð fram eftir
nóttu.
HLUTUR VERKAMANNSINS
KKKI FYRIR BORD BORINN
Eins og áður hefur verið
skýrt frá, létu tveir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, þeir Lár-
us Jóhannesson og Gisli Jóns-
son í Ijósi undrun yfir þeim
vinnubrögðum, sem Haraldur
Guðmundsson (ella frekar
dagfarsgóður) beitir í þessu
máli. Sýndu þeir fram á það,
að allt tal hans um að íbúum
sveitanna væri gert hærra
undir höfði, væri fjarstæða og
falsanir. Því að sannleikurinn
er sá, að verkamenn fá 75%
íbúðarverðs lánað með góðum
kjörum, meðan sveitamaður-
inn fær aðeins 30% með góð-
um kjörum.
V7NNUF, MÁLEFNINU
I.ÍTIÐ GAGN
Steingrimur Steinþórsson fé-
lagsmálaráðherra tók undir þessi
orð Sjálfstæðisþingmannanna og
sýndi fram á að ummæli Har
aldar í þessu væri hreinasta fjar-
stæða.
Svo virðist sem Haraldur hafi
leiðst út á þessa braut rang-
færslna í áhuga sínum fyrir bygg
ingarsjóði verkamanna. En það
er víst að hann vinnur þeim sjóði
lítið gagn með því að þyrla upp
í kringum hann moldviðri rang-
færslna og óbilgirni.
ALVARLEG ÁSÖKUN
f þessu sambandi minntist
Steingrímur Steinþórsson á eitt
atriði varðaridi verkamannabú-
staðina, sem virðist að sumu leyti
Tapkkuð alvarlegt. Það er ætlazt
til þess, að verkamannabústaðirn-
ir séu byggðir fyrir efnalítið fólk,.
aem gæti ekki af eigin rammleik1
komið sér upp húsi. f þessu skyni
væri veittur mikill fjárhagsstuðn
ingur frá því opinbera.
En Steingrímur kvaðst hafa
heyrt frásagnir af því að all-
margt fólk hefði komizt inn í
verkamannabústaðina, sem væri
þannig efnum búið, að það hefði
fullkomlega bolmagn til að
byggja sér sjálft. Slíkt væri að
sjálfsögðu all alvarlegt ef satt
væri, því að á sama tíma er hús-
næðisskortur og fjöldi þurfandi
fólks ætti frekar að komast inn
í verkamannabústaðina.
HARALDUR SPILLIR FYRIR
Félagsmálaráðherra sló þessu
ekki föstu. En bygging verka-
mannabústaða er svo mikið
nauðsynjamál fyrir þá sem
ekki eru nægilega efnum bún-
ir til að byggja sér sjálfir
íbúðarhús, að þeir munu líta
framkomu Haraldar Guð-
mundssonar alvarlegum aug-
um, ef hann spillir fyrir mál-
efninu með rangfærslum og
fölsunum. Þeir munu og líta
það alvarlegum augum, ef
ásökun Steingríms Steinþórs-
sonar er rétt, sem við skulum
þó vona að sé ekki.
Annars var hlálegt að hlusta
á þessar umræður og deilur milli
Framsóknarmannsins og Alþýðu-
flokksmannsins og varð mönnum
á að hugsa, hvort hér væri sýn-
ishorn af samkomulagi flokkanna
í „vinstri stjórn".
1.892,535 firþsgar
með sérleyfiSYökn-
um s. I. ár
SAMKVÆMT upplýsingum frá
póst- og símamálastjórninni
voru s. 1. ár 133 sérleyfisleiðir ut-
an Reykjavíkur og voru sérleyf-
ishafarnir 81. Vegalengdin var
samtals 11.966 km., en bifreiðar,
sem notaðar voru á þessum leið-
um 215—235.
Farþegar voru alls 1.892.535 og
greiddu þeir samtals um 14,8
| millj. kr. í fargjöld. Ér það
, nokkru minna en árið 1953, en
þá voru greiddar 15,3 millj. kr.
í fargjöld. Voru farþegar þó
nokkru færri þá, eða 1.680.887,
en notaðir sætiskm. voru aftur á
móti fleiri, eða 54.834.534 á móti
45.586.202 árið 1954.
Fsrðafélag íslands:
um
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS efnir
til tveggja ferða á morgun, báð-
ar um Reykjanesskagann.
Önnur ferðin er að Keili og
Trölladyngju. Verður farið vest-
ur fyrir Hvassahraun í Kúagerði,
þaðan haldið meðfram hraun-
brúninni að Keili. Þaðan haldið
að Trölladyngju og síðan um
Lækjarvelli að Ketilsstíg og um
AusturAusturháls í Krísuvík og
UmferðaRefnd
ræðir við \ msa
aðila
UMFERÐARNEFND sú, sem
skipuð var seinnhluta vetrar, hef-
ur haldið allmarga fundi. — Hún
hefur t. d. kallað á fund sinn for-
menn Bifreiðastjórafélagsins
Hreyfils og Vörubílstjórafélags-
ins Þróttar. Hafa nefndarmenn
rætt við formanninn um umbæt-
ur í umferðamálum bæjarins. —
Hafa þeir síðan óskað eftir á-
kveðnum tillögum frá þessum fé-
lögum.
Mun nefndin halda áfram að
boða til fundar við sig forráða-
menn þeirra félaga og stofnana,
sem umferðamálin snerta einkum
— Alla þessa aðila mun nefnd-
in biðja að senda ákveðnar til-
lögur, sem hún síðan mun vinna
úr.
- Alþingi
Framh. af bls. 1
NAUÐSYNLEGUSTU
RITIN ÓKEYPIS
Sérstaklega er tekið fram, að
bókasöfnin fái ókeypis eintak af
Alþingistíðindum, stj órnartíðind-
um, skýrslum hagstofunnar,
lagasafni, Hæstaréttardómum o.
fl. og er héraðsbókasöfnum gert
að skyldu að láta binda inn Al-
þingistíðindi og Stjórnartíðindi.
SAMSTARF BÓKASAFNA —
BÓKAFUILTRÚI
Að lokum má geta ákvæða sem
miða að þvi að koma á samstarfi
milli bókasafna og hefja bóka-
skipti. Þá er ákveðið að sérstak-
ur bókafulltrúi verði skipaður í
skrifstofu fræðslumálastjóra,
sem skal rafa eftirlit með öllum
almenningsbókasöfnum landsins,
leiðbeina stjórnum þeirra og
bókavörðum um bókaval og allt,
sem að rekstri bókasafna lýtur.
Lögin eru mjög ýtarleg, ba ði
um f járhagshlið, stjórn og
rekstur bókasafna. Hefur meS
setningu þeirra verið unniS, ó
skömmum tíma, merkilegt
framfarastarf, sem er góður
minnisvarði um stjórnsemi nú-
verandi menntamálaráSherra,
Bjarna Benediktssonar.
Togarinn Norðlendingur
landar á Sauðárkróki
inn uitjarspjö
SAUÐÁRKRÓKI, 6. maí — Tog-
arinn Norðlendingur kom hing-
að í morgun í fyrsta sinn. Á
tíunda tímanum lagðist hann að
hafnargarðinum og hófst þá þeg-
ar vinna ' ið affermingu. í þess-
ari veiðiför mun togarinn hafa
fengið um 200 lestir og var 120—
130 lestum landað hér. Það sem
eftir var, sem var mestmegnis
karfi, fór til Ólafsfjarðar. Fisk-
urinn sem hér fór í land er verk-
aður hjá Hraðfrystistöðinni h. f.
og Kaupfélagi Skagfirðinga.
★
Þetta var sannkallaður hátíðis-
dagur fyrir íbúana hér, enda bar
staðurinn þess glögglega merki.
Á öllu hafnarsvæðinu gat að líta
vinnuglatt fólk, sem þráð hefur
úrræði til aukinnar atvinnu. Bær-
inn var fánum skreyttur og bæj-
arstjórnin hafði boð inni í þessu
tilefni.
Von er á dýpkunarskipinu
Gretti hingað innan skamms.
Ekki er hægt að taka togarann
að eða frá hafnarfarðinum nema
um háflóð fyrr en uppmokstur
hefur farið fram.
Sauðárkróksbúar glöddust yfir
komu togarans og þeirri björg
sem hann færði í bú. Þeir óska
áhöfn og skipi heilla og vonast
eftir togaranum hingað aftur
sem allra fyrst. —Jón.
þaðan heim. Ferð þessi er Ijóm'
andi skemmtileg og sjálfsagt fyr-
ir Reykvíkinga, sem ætíð hafa
þetta landslag fyrir augunum að
kynnast því nánar. (
Hin ferðin verður farin alla
leið út að Reykjanesvita og síð-
an gengið um nágrenni hans, unj
nesið og hverasvæðið og vitinn
skoðaður. Einnig verður farið út
að strandstað b.v. Jóns Baldvins-
sonar. Á heimleið verður gengið
á Háleyjarbungu og staðið við I
Grindávík nokkra stund. Lands-
lag er þarna, sem kunnugt er,
mjög sérkennilegt og ef brim er,
er það óvíða eins tilkomumikið og
við Reykjanesið.
Ferðirnar verða farnar frá
Austurvelli kl. 9 árdegis.
Albro offursfl
I SAMBANDI við 60 ára starfs-
afmæli Hjálpræðishersins á Is-
landi koma til landsins aðalrit-
ari Hjálpræðishersins í Noregi,
ofursti Albro og kona hans.
Hjálpræðisherinn hélt fyrsttl
samkomu sína hér á landi 12.
maí 1895, daginn eftir að fyrstu
Hjálpræðishermennirnir stigu á
land í Reykjavík.
Ofursti Albro hefur verið for-
ingi í Hernum um 40 ára skeið
og gengt helztu trúnaðarstöðum
Hersins í Danmörku, Finnlandi
og Noregi. Hann er mikill ræðu-
maður og hefur mikil blessun
hlotist af starfi hans. Kona hang
sem einnig er foringi hefur styrkt
mann sinn mæta vel í starfinu.
Þau hjónin munu tala á almenn-
um samkomum laugardag og
sunnudag 7. og 8. maí og einnig
miðvikudag og fimmtudag 11. og
12. maí. Hátíðarsamkoman mið-
vikudag, verður haldin í Dóm-
kirkjunni, aðrar samkomur verða
haldnar í samkomusal Hersins,
Kirkjustræti 2. Foringjar Hers-
ins á ísafirði og Akureyri taka
einnig þátt í samkomunum.
Forsefsfíú alvar-
lega vefk
WASHINGTON — Eisenhowefl
forseti skýrði frá því á síðasta
fundi er hann átti með blaðai
mönnum, að kona sín væri nú á
góðum batavegi. i
Tal manna á blaðamannafundl
forsetans barst að þessu er einra
þeirra spurði varlega að þv|
hvort rétt væru ummæli demo-
krata eins, en hann hafði sagl
að veikindi forsetafrúarinnafl
væru ein orsök þess, að Eisen-
hower hyggðist ekki vera í kjörl
til forsetaembættisins næsta ár,
Eisenhower kvað konu sína
hafa verið heilsuhrausta yfirleitt,
en síðustu vikurnar hefði húrs
þjáðst af alvarlegum virussjúk-
dómi. Nú, hélt forsetinn áfram,
lítur hins vegar út fyrir, að henn|
muni takast að vinna sigur yfiij
sjúkdóminum, því heilsu hennarj
fer nú stöougt batnandi.
^Reuter. i