Morgunblaðið - 21.06.1955, Blaðsíða 1
16 siður
43. árgangur
136. tbl. — Þriðjudagur 21. júní 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bræðurnir og systurnar
Þjóðréttarnefnd S.Þ. sœttist á 12
í föstudagsblaðinu var getið um hjónavígslu, sem á ekki sinn
líka á íslandi. Fjórir bræður voru vígðir í hjónaband í einu — þrír
þeirra kvæntust systrum.
Athöfnin fór fram í Torfastaðakirkju á laugardaginn og
framkvæmdi hana sr. Eiríkur á Torfastöðum og var það síðasta
prestsverk hans þar í sveit eftir 49 ára prestsstarf. Hér sést mynd
af ungu hjónunum fjórum. Frá vinstri talið: Erla Brynjólfsdóttir
og Kormákur Ingvarsson. Eygló Guðmundsdóttir og Sumarliði
Ingvarsson, Sigr.ður Guðmundsdóttir og Kristinn Ingvarsson,
Guðrún Guðmundsdóttir og Hárlaugur Ingvarsson.
(Ljósm. Vigfús Sigurgeirsson).
TVÖ STÆIÍSTU blöð Sovétríkjanna Pravda (sannleikurinn) og
Isvestia (frétíir) — um þau segja gárungarnir, að engar frétt-
ir séu í „Sannleikanum" og enginn „Sannleikur í Fréttunum" —
koma út í geysistóru upplagi og við þau vinna fjölmargir menn.
Þau eru samt sem áður mjög lítil — sjaldan stærri en 4 síður —
og í þeim eru aldrei neinar fréttir, aðeins greinar. Má með nokkr-
um sanni segja, að þau séu merkiicgustu dagblöð, sem út eru gefin.
Pravda, sem er málgagn
flokksins, var stofnað af Lenin
og Stalin 1912. Izvestia er mál-
gagn Æðsta ráðs Sovétríkjanna
og hóf göngu sína í febrúar
1917.
FJÓRAR SÍÐUR
Eins og fyrr segir eru blöðin
sjaldnast yfir fjórar síður, og
aldrei eru myndir í þeim nema
við sérstök tækifæri (t. d. þegar
Stalín lézt o. s. frv.) Ekki eru
heldur neinar auglýsingar í þess-
um ágætisblöðum, en þó er listi
yfir leikhússýningar.
3 MILLJ. EINTAKA
Enda þótt blöðin séu ekki
stærri en hér hefir verið frá
sagt, vinna hundruðir manna
við þau. Þvi viðvíkjandi má geta
þess, að við Pravda vinna um
2500 manns, þar af 1500 frétta-
ritarar, þótt undarlegt megi
virðast. Hafa þeir aðsetur hing-
að og þangað um allt landið. —
Þá eru 350 „leiðbeinendur" við
blaðið, sem eiga að sjá um, að
allt, sem blaðamennirnir skrifa,
sé í samræmi við hina pólitísku
stefnu í það og það sinnið. Og
blaðamennirnir eru um 400 tals-
ins. Loks má geta þess, að bæði
blöðin eru prentuð í 3 millj.
eintaka.
★
Aðalritstjóri Pravda er Sjepi-
Iov, sem er mjög áhrifamikill í
stjórnmálum Sovétríkjanna. Hef-
ur jafnvel verið talað um, að
hann tæki við utanríkisráðherra-
embættinu af Molotov gamla.
Honum til aðstoðar eru 14 rit-
stjórar. Hver blaðamaður verð-
ur að leggja fram starfsáætlun
um hver mánaðarmót, og er
stundum vikum saman að skrifa
eina grein. Blaðamannalaunin
eru geysihá, flestir blaðamenn
við Pravda eiga bíl, hafa einka-
bílstjóra og þjónustufólk. En
áhættan er líka mikil. í hvert
skipti, sem til tíðinda dregur í
stjórn landsins, missa allmargir
þeirra atvinnu sína.
- og
50 þús. pund
BREZKA blaðið „Fishing
News“ skýrir frá því, hinn
17. júní s.l., að íslendingar
hafi tekið togarann „Hekla“ í
landhelgi og sektað skipstjór-
ann, Davvson, um £1,635, auk
þess sem aflinn og veiðarfæri
hafi verið gerð upptæk.
Bæíir blaðið því við, að nú
hafi brezkir togarar greitt yfir
£ 50,000 í sektir fyrir landhelg
isbrot síðan nýju fiskveiðitak
mörkin voru sett.
erjar
deila kálið
BONN, 20. júní: — Talsmaður
vestur-þýzku stjórnarinnar sagði
í dag, að ef Adenauer þiggi boð
Sovétstjórnarinnar verði ekki
hjá því komizt, að ræða um örlög
þeirra þýzku stríðsfanga, sem
enn sitja í rússneskum þrælabúð-
um.
Formælandinn var að því
spurður, hvort rætt yrði um aust-
urlandamæri Þýzkalands, og svar
aði hann því til, að það væri að-
eins hægt að ákveða þau í endan-
legum friðarsamningum.
— NTB-Reuter.
Alltaf má fá
antiað skip — og
annað föruneyti
RÓMABORG, 20. júní.
■■ Allir ráðherrarnir í hinni
16 mánaða gömlu ríkis-
stjórn Scelba afhentu honum
lausnarbeiðni sína í dag.
■| Fréttaritari BBC í Róm
símar, að það sé skoðun
manna þar í landi, að ný ríkis-
stjórn verði mynduð með þátt-
töku kristilegra demókrata,
sósíaldcmókrata og frjálslyndra.
BH Síðar í þessari viku hyggst
*** Scelba fá samþykkt traust
á hina nýju ríkisstjórn sína.
KHOFN — Á landsspítalanum í
Lundi fengu 1000 sjúklingar
matareitrun og einn þeirra dó.
Var það nýrnakássa, sem var
svo görótt og sannar það enn
einu sinni hina alkunnu stað-
reynd, að kássur eru bráðhættu-
legur matur.
mílna landhelgi
Merkileg ákvörðun, — en ekki endanleg
ÞJÓÐRÉTTARNEFND S. Þ. ákvað á fundi sínum í Genf fyrir
ekki alllöngu, að landhelgin megi í hæsta lagi vera 12 milur.
Ákvörðun þessi var tekin eftir margra vikna umræður. Bret-
land og Bandaríkin hafa viljað hafa landhelgina 3—4 milur og
Suður-Ameríkulöndin sum hafa krafizt allt upp í 200 mílna
landhelgi. , f f
ÖNNUR STEFNA?
, Meðal þeirra 15 fulltrúa, sem
Veí getur svo farið, að mál- í nefndinni sitja, eru Edmonds
ið taki aðra stefnu þegar að loka- frá Bandaríkjunum, Fitsmauric
ákvörðuninni kemur, en þetta er frá Bretlandi, Krylov frá Rúss-
í fyrsta skipti, sem nefndin hef- landi, Amado frá Brasilíu og
ir stigið svo ákveðið spor í land- Zourek frá Tékkóslóvakíu.
helgisþrætunni.
(Ur NEWS 15. júní s. 1.)
10 dra afmælis i>.
minnzt í viJkumti
40 utanríkisráðherrar sitja
afmœlishátíöina
SAN FRANSISKÓ, 20. júní. — Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
FJÖLMENNASTA alþjóðaráðstefna, sem haldin hefir verið síð-
an S. Þ. voru stofnaðar, hófst í dag hér í borg og mun standa
yfir til vikuloka. — 6ð þjóðir eiga fulltrúa á ráðstefnunni, og
meðal þeirra eru utanríkisráðherrar 40 landa.
OMAHA, Nebraska, 20. júní: —
„Farðu fjandans til, Mólótov“
stóð á allmörgum kröfuspjöldum,
sem blöstu við hinum rússneska
utanríkisráðherra, þegar hann
hafði viðdvöl hér í borg á leið
sinni til San Franciskó. — En
Molotóv tók ekki eftir þessari
óvináttu og svaf svefni hinna
réttlátu ásamt fylgdarliði sínu á
meðan lestin hafði viðdvöl í borg
inni. — Þeir, sem stóðu fvrir þess
um móttökum, lýstu því yfir, að
liðin væru nákvæmlega 15 ár frá
innrás Rússa í Lettland. -- Reuter
Ráðstefnan er haldin í Óper-
unni hér í borg, þar sem stofn-
skrá samtakanna var undirrituð
fyrir 10 árum.
RÆÐA EISENHOWERS
Forseti Allsherjarþings S. Þ.,
Hollendingurinn Van Kleffens,
setti ráðstefnuna, en aðalhátíð-
arræðuna flutti Eisenhower,
Peron bœldi uppreislina
niður — en missti völdin
Herinn heldur stjórnartaumunum
og slakar á einræbisólinni
BUENOS AIRES, 30. júní. — Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
STJÓRNMÁLAMENN hér í borg eru þeirrar skoðunar, að Peron,
forseta, hafi tekizt að bæla uppreisnina niður — en það hafi
kostað hann öll völd.
Uppreistin var kæfð í fæðingu af her landsins, en fullyrt er,
að yfirmenn hersins hafi sett Peron úrslitakosti og séu dagar
hans nú taldir, því að ekki er annað að sjá, en forsetinn hafi misst
tögl og hagldir í landinu.
★ 3 ATRIDI
Engin tilkynning hefir verið
gefin út um það, í hverju úrslita-
kostirnir voru fólgnir, en þrjú
meginatriði þeirra eru þessi:
o'
'J)
Að óheimilt sé að kjósa
forseta tvisvar i röð.
Að þjóðaratkvæðagreiðsla
skeri úr um aðskilnað ríkis
og kirkju.
Að bundinn verði endi á
ritskoðunina í landinu
r ÞOKAST I ATT TIL
LÝÐRÆÐIS
Af þessu má sjá, að völd Per-
ons eru nú að engu orðin, og má
raunar segja, að þar suður frá
bjarmi af nýjum degi frelsis og
mannréttinda.
Enn er þó of snemmt að spá
um, hvort lýðræðið beri að fullu
sigurorð af einræðisstefnu hinnar
gömlu Argentínustjórnar. — í
svipinn bendir margt til þess, að
herinn hafi tekið við stjórn lands
ins undir forustu Lucerós, hers-
höfðingja og hermálaráðherra. •—
Hélt hann ræðu i dag og kvað
uppreistina að fullu bælda niður.
Sagðist hann rnundu beita valdi,
ef uppreistarmenn létu aftur á
sér kræla.
Thor Thors,
aðalfulltrúi íslands hjá S.Þ.
Bandaríkjaforseti. Sagði hann m.
a., að því aðeins sé von um ár-
angur á væntanlegum fjórvelda-
fundi í Genf, að andi S. Þ. svífi
þar yfir vötnunum.
TILLÖGUR MOLOTOVS
Eftir fundinn í dag bauð
Dulles utanríkisráðherrum fjór-
veldanna til kvöldverðar, þar
sem rætt var um tilhögun vænt-
anlegs fjórveldafundar í Genf
hinn 18. næsta mánaðar. —■
Mun Molotov hafa lagt þar
fram -tillögur um fund þennan,
en óvíst er enn um kjarna
þeirra.
BONN — Dr. Aaenauer kom I
dag til Washington. Óskar hann
eftir því að Bandaríkin setji
fram afvopnunaráætlun á vænt-
anlegri fjórveldaráðstefnu.
Lélegar kræsingar ,það!