Morgunblaðið - 13.07.1955, Síða 1
lé síður
tt. árguru
155. tbl. — Miðvikudagur 13. júlí 1955
PrentsmlSja HorgunblaSsiiu
Bóndi—og ungur tengdasonur
hans, drukkna á Tvídægru
> &
Fóru tlB siiuugsveiða að Ulfsvatni —'
Leitarmenn fundu ekki lík þeirra
Borgarnesi, 12. júlí.
ÞÆR FREGNIR bárust hingað til Borgarness í dag, að
einstaklega hörmulegur atburður hefði átt sér stað á
Silungsfjalli, eins og það er kallað. Bergþór Jónsson bóndi
að Fljótstungu á Hvítársíðu og tengdasonur hans, Hjörtur
Jóhannsson, bóndi, hafa báðir farizt í Úlfsvatni á Tvídægru,
að því er talið er. Lík þeirra höfðu ekki fundizt síðdegis
í dag.
Forsaga þessa hörmulega atburð- *
ar er skiljanlega ekki kunn nema
að litlu leyti. Það hefur verið fast-
ur liður i búskap Bergþórs í Fljóts
tungu í áratuga raðir, að fara á
Silungsfjall, a.m.k. tvisvar á ári.
Adenauer
fær herinn!
FÓRF Á LAUGARDAG
Fyrri hluta dags á laugardag
lögðu þeir upp frá Fljótstungu,
Bergþór og Hjörtur tengdasonur
hans. Tók hann við búskap í
Fljótstungu í vor er leið. Þeir voru
ríðandi og auk þess með nokkra
hesta, sem þeir ætluðu að flytja
silunginn heim á.
FARIÐ AÐ IJLFSVATINI
Á mánudaginn er þeir voru ekki
komnir heim á þeim tíma, sem
búizt var við þeim og heimkoma
þeirra drógst, fór fólk að undrast
um þá, og lögðu þá nokkrir menn
upp á heiðina. Ætluðu þeir Berg-
þór og Hjörtur að vatni því, sem
Úlfsvatn heitir, en þangað er um
5—6 klst lestaferð frá Fljóts-
tungu.
FUNDUST EKKI
begar þessir menn komu a3
Úlfsvalni, fundu þeir tjald þeirra
félaga Bergþórs og Hjartar mann-
laust, en viS bakka vatnsins létl-
bát þann, sem veitt er úr, þegar
farið er út á vatnið. Hestarnir voru
spöl frá vatninu. Þótti sýnt, að
þeir Fljótstungubændur hefðu
drukknað í vatninu, en þeir fund-
ust þó ekki.
Aðfaranótt sunnudags var hvass
viðri við Úlfsvatn.
1 dag var verið að skipuleggja
leitarflokk til að fara upp að
Úlfsvatni og leita þar, — og
éinnig hefur komið til tals að fá
flugvél til þess að leita við vatnið.
HÖRMULEG TÍÐIND
Þessi hörmulegu tíðindi hafa
eðlilega komið sem reiðarslag á
Borgfirðinga, því að flestir höf-
um við haft meiri og minni kynni
af Fljótstunguheimilinu, sem orð-
ið hefur fyrir þeim harmi, sem
orð fá eigi lýst.
★
Bergþór heitinn Jónsson var 68
ára að aldri. Tengdasonur hans,
Hjörtui’, var innan við þrítugt,
lývæntur Ingibjörgu, og áttu þau
ungt barn. Hann tók við búinu að
mestu leyti í vor.
Bergþór lætur eftir sig uppkom-
iji, börn og konu, Kristínu Páls-
dóttur, sem verður sjötug á morg-
án (miðvikudag, 13. júlí) — F.
MOSKVU, 12. júlí: -— Þrettán
búnaðarsérfræðingar Sovétríkj-
Snna lögðu af stað flugleiðis í
dag áleiðis til Bandaríkjanna og
eetla þeir að ferðast mánað-
ártima um landbúnaðarhéruð
vestra.
Svipaður hópur amerískra
bænda eru á förum frá Banda-
ríkjunum til Rússlands.
Storkinum
var nóg boðið
STRASSBURG — Fulltrúi á
ráðgjafaþingi Evrópuráðsins
var að tala um „hættuna, sem
stafaði frá ofmikilli fólks-
fjölgun“ er storkur settist fyr-
ir framan þinghöllina. Stork-
urinn leit á dyraverðina,
hristi höfuðið, sneri sér við
og flaug á burt.
Þetta gerðist síðastliðinn
fimmtudag.
Rússar éttas! ekki
sameinað Þýzkaiand
MOSKVA, 12. júlí: — Tassfrétta-
stofan segir í dag, að það sé rang-
látt af vestrænum blöðum að halda
því fram að sovétríkin séu andvíg
sameiningu Þýzkalands, vegna þess
að þau séu hrædd við sameinað
Þýzkaland.
Sovétríkin eru svo voldug, segir
fréttastofan, að þau þurfa ekki að
óttast sameinað Þýzkaland. Á hinn
bóginn kann að vera rétt að gera
hlutleysisbelti í Evrópu.
Myndin er tekin í vestur-þýzka þinginu, er umræðurnar um vest-
ur-þýzka herinn stóðu yfir á dögunum. Varnarmálaráðherrann
Theodor Blank er i ræðustólnum. Adenauer t. v.
BONN, 12. Júlí: — Öryggismála-
nefnd þýzka þingsins hefur sam-
þykkt sjálfboðaliða-frumvarp Ad
enauers kanslara nokkuð breytt.
Frumvarpið fer nú fyrir neðri
dcildina og er talið líklegt að
það nái endanlegu samþykki
fyrir Gcnfarfundinn.
Smakkarar66 í fylgdarliði forsetans
New York, 12. júlí:
MAMIE Eisenhower, kona fct:-
seta Bandaríkjanna verður
í för með manni sínum á fund
æðstu manna fjórveldanna í
Genf. Með forsetanum verða
einnig sex tugir vopnaðra varð-
manna og starfsmenn öryggislög-
reglunnar.
Meðal þeirra verða „smakkar-
ar“, sem eiga að bragða á mat og
drykk áður en hann verður bor-
inn fyrir forsetann.
Hin gamla atvinnugrein
„smakkarar konungs" hefur
þannig verið vakin upp að nýju
af hinni stórgætnu (FBI-) leyni-
lögreglu og af ráðgjöfum forset-
ans.
Leynilögreglan hér viðurkenn-
ir að hún telji ferðalag Eisen-
howers til Genf stofna forsetan-
um í meiri hættu, en hann hefur
komizt í, frá því hann tók við
embætti.
Máltíðir forsetans verða mat-
reiddar af sviss>.eskum elda-
manni, og matsveinar, sem unn-
ið hafa áður í Hvíta húsinu í
Washington munu ganga um
beina.
GÆTNI RÚSSA
Rússneska sendinefndin gerir
jafnvel enn strahgari varúðar-
ráðstafanir heldur en forsetinn.
Hún flytur með sér'frá Moskvu
allan mat og drykk og eigin elda-
menn, Matreiðslan fér fram und-
Góð tíðindi fyrir
reykingamerm
London 12. júlí: —
IÁRSSKÝRSLU „Baráttufélags
brezku samveldislandanna gegn
krab.bameini“ („British Empire
Cancer Campaign") segir að gerð-
ar hafi verið víðtækar tilraunir til
þess að finna samband milli tóbaks
reykinga og krabbameins, en ár-
angurinn hafi orðið neikvæður.
Mikill fjöldi músa voru látnar
verða fyrir ýmiskonar áhrifum
tóbaksreyks, en engar bólgur
(tumor) mynduðust. Til mála gat
komið að mýs væru ekki heppileg-
ar. til þessara rannsókna og er því
farið að nota í þessu skyni
kamstra (criceleus) sem eru dýr
lítið eitt stærri en mýs. Dýr þessi
hafa nú verið látin „reykja“ 50
sígarettur daglega í 800 klst., en
árangurinn hefir enn orðið nei-
kvæður. Engra áhrifa, sem bentu
til krabbameins, hefir orðið vart.
Þá hefir tjöru úr sígarettum,
sem reyktar eru með tækjum, ver-
ið veitt inn í lungu músa og hefir
það enn borið hinn sama árangur
— ekkert krabbamein.
Hollenzki methafinn í langstökki,
H. Viswr. — Fyrir hálfum mán-
uði stökk hann 7,47 m., er er
prýðilegur árangur, enda beit
hann harkalcga á jaxlinn. eins og
myndin sýnir. (Sjá grein á bls. 6)
4 stórmál
í Genf
Línur skírast
Washington, 12. júlí.
ÞÓTT látið sé í veðri váka hér
í dag, að leiðtogar vesturveld-
anna fari til Genf án nokkurra
fyrirfram gerðra áætlana, — en
á hinn bóginn með ýmsar sam-
ræmdar hugmyndir, — þá þykir
nú Ijóst, að á fundunum verður
höfuðáherzlan af þeirra hálfu
lögð á:
1) Sameiningu Þýzkalands
2) Afvopnun í einhverri mynd
3) Leppríkin í Austur-Evrópu
4) Aukið verzlunarfrelsi.
Að því er leppríkin varðar er
nú farið að tala um það opin-
skátt í blöðum vesturveldanna,
að ekki geti verið um frið að
ræða í Evrópu, nema breytt sé
um stjórnarhætti í lepprikjum
Austur Evrópu, svo að hægt sé
að halda uppi þolanlegu stjórn-
málasambandi við þær.
Um afvopnunarmálin er tónn-
inn síðustu dagana sá, að auð-
velt sé að ná samkomulagi um
herbúnað í löndum Evrópu, en
á hinn bóginn erfiðara er til þess
kemur að ákveða afvopnun sov-
étríkjanna og Bandaríkjanna.
Hammarskjold, framkvæmda-
stjóri S.Þ. er nú staddur í Genf
og sagði í ræðu þar í dag, að
efnahagslíf í Evrópu væri nú
traustara en um langan tima áð-
ur og því góð skilyrði fyrir hendi
til þess að draga úr viðskipta-
hömlum og að því bæri að stefna
að tekin yrðu upp frjáls við-
skipti með sterlingspundið.
Spáð hækkuðu fisk-
verði í BreHandi,
vegna hækkana á
koiaverði
London, 12. júlí.
ÞEGAR kolaverð hækkar i
Bretlandi n.k. mánudag, 18.
júlí, um ellefu og hálfan shilling
(rúml. 26 kr.), mun það þegar í
stað hafa víðtæk áhrif á almennt
verðlag í Bretlandi. Reiknað er
með að rafmagn hækki í verði
um 3 shillinga (kr. 6.80) í hverju
sterlingspundi, sem greitt er fyr-
ir rafmagn.
Þegar hækkunin var tilkynnt
fyrir helgina, gaf Samband
brezkra togaraeigenda út eftir-
farandi yfirlýsingu:
„Verðhækkunin, sem boðuð
hefur verið af kolaráðinu mun
kosta okkur lítið eitt yfir £ 1.000.
000 á ári.
Sennilega mun hún gera gjald-
þrota og stöðva rekstur fiskiflot-
anna í Mildford Haven, Swansea
og Cardiff. Óhjákvæmilegt er að
fiskur hækki í verði.
Harðast mun verðhækkunin
koma niður á heimaflotanum, en
80 hundraðshlutar hans nota kol
til kyndingar“.
LONDON, 12. júlí: — Brezka
stjórnin hélt ráðuneytisfund í
dag til þess að ræða andstöðuna,
sem risið hefur gegn hinni ráð-
gerðu hækkun á kolaverðinu. —
Vart hefur orðið harðrar and-
stöðu gegn stefnu Edens í þessu
máli, bæði af hálfu stjórnarand-
stæðinga og stjórnarsinna.