Morgunblaðið - 16.07.1955, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 16. júlí 1955 ]
FramKaldssagan 32
Það var vissulega mjög eðli-
leg, mjög rökrétt og mjög venju-
leg hvöt, sem ól af sér þetta á-
form mitt, en í þetta skifti var ég
ánægður með að gera hið sama
og bóndinn, sem leitar, í auðsveip
um armlögum konu sinnar, að
huggun og bótum fyrir þann
skaða og tjón, sem haglbylur hef-
Ur unnið honum.
Þegar allt kom til alls, var ekk-
ert fyrir mig annað að gera, eft-
ir skipbrot hégómagirndar minn-
ar og langana, en að viðurkenna
aðstöðu mína, sem mannlegrar
veru, áþekka aðstöðu annarra
manna. Eftir þessa nótt mundi
ég svo sætta mig við að vera hóg-
vær náungi með dálitla bók-
menntalega þekkingu og hæ-
verska vitneskju um eigin tak-
markanir, en jafnframt elskhugi
og elskaður af yngri og fallegri
konu. Til hennar mundi ég beina
óhamingjusömu ást minni á
skáldskap. Konur elska þessa ó-
heppnu og sigurvana menn, sem
hafa afneitað öllum þrám sínum,
nema þeirri, að gera þær ham-
ingjusama.
Meðan ég glímdi við þessar
hugsanir, gekk ég eftir akvegin-
um, niðursokkinn í heilabrot og
niðurlútur.
En skyndilega leit ég upp og
kom auga á Ledu, eða réttara
sagt, ég sá henni bregða fyrir
sem allra snöggvast, langt í
burtu, þegar hún hvarf sjónum
mínum í einni krappri beyju
vegarins. Aðeins eitt andartak
sá ég greinilega hvíta kjólinn
hennar, beran hálsinn og loga-
gvllt hárið. En svo hvarf hún og
ég var sarmfærður um það, að
hún hefði haldið í áttina til
bændabýlanna.
Sú hugsun gladdi mig að hún
hefði ætlað út að þreskiloftinu,
staðarins þar sem ég vildi að við
hylltum ást okkar og svöluðum
þrám hennar, eins og hún ætlaði
til ástafundar, án þess þó að vita
það, að ég var hinn aðilinn í því
stefnumóti.
Þegar ég hafði einnig farið yf-
ir beygjuna, rétt á eftir henni,
sá ég hana aftur, um leið og hún
gekk inn á hliðarstíg, sem ég
vissi að lá inn á veginn, er skildi
sundur akurlendið og skemmti-
garðinn. Ég var nærri farinn að
kalla til hennar, en sá mig um
hönd og ákvað að koma að henni
óviðbúinni.
Ég var staddur á stígnum, þeg-
ar hún lagði inn á veginn og þeg-
ar ég kom á veginn, var hún þeg
ar stödd við rætur þess hóls, sem
sveitabæirnir stóðu á.
Hún hljóp við fót og nú var
það í fyrsta skifti, sem hvítt and-
lit hennar í dökkum skuggunum
frá trjánum, kom mér einhvern
veginn ókunnuglega fyrir sjónir.
Þegar ég kom að hólsrótunum,
nam ég staðar, snortinn ein-
hverju hugboði, sem ég gat ekki
skýrt.
Nú sá ég, hvar Leda klifraði
upp snarbratta brekkuna, til
þreskiloftsins sem fyrr er getið.
Hún laut fram og greip í gras-
skúfana, þegar hún riðaði í spori
og hrasaði og á hinu þanda og
æsilega andliti hennar, með star
andi augunum, og jafnframt í
hreyfingum alls líkamans virtist
mér ég sjá eitthvað sem minnti
mig á geit, klifrandi í fjallshlíð,
í leit að fæðu.
Þegar hún kom upp á toppinn,
sá ég að karlmaður kom út úr
skugganum, laut niður, tók hana
í arma sína og reisti á fætur, en
er hann sneri sér við til að styðja
hana, þekkti ég strax manninn,
því að hann var enginn annar
en Antonío, rakarinn minn fyrr-
verandi.
Nú skildi ég allt. Einhver und-
arlegur kuldi greip mig heljartök
um, en jafnframt alger undrun
yfir því, að ég skyldi ekki hafa
skilið áður — ekki skömmu áð-
ur, er ég kom inn í herbergið
hennar og fann það mannlaust,
heldur fyrir þremur vikum, er
hún bað mig um að reka rakar-
ann. Þessi undrun mín var bland-
in bitrum vandræðum, sem
gerðu mér erfitt með andardrátt-
inn og ollu mér sviða í hjarta.
Sjálfsvirðingar minnar vegna
vildi ég ekki horfa á þetta, en
samt starði ég græðgislega með
galopnum augum.
Þreskiloftið var áþekkast leik-
sviði, hátt uppi yfir mér, lýstu
af geislum tunglsins.
Þegar Leda var aftur staðin á
fætur, sá ég manninn þrífa til
hennar og reyna að draga hana
til sín, en hún veitti viðnám,
sneri sig úr greipum hans og sleit
sig lausa. Tunglsbirtan féll á and-
lit hennar og ég sá, að það var
afskræmt af hinum þögulu og
þöndu grettum, sem ég hafði séð
við önnur tækifæri. Munnurinn
var hálf opinn í glotti, sem lýsti
bæði viðbjóði og frumstæðri
girnd. Augun voru galopin og
þanin út, en hakan teygð fram.
Allur líkami hennar, sem hlykkj-
aðist og engdist til, eins og í ein-
hverjum undarlegum dansi, virt-
ist sem beint framhald af afmynd
unum andlitsins.
Antonío reyndi að draga hana
að sér, en hún barðist á móti og
reyndi að kippa sér frá honum.
I>á__ég veit ekki á hvern hátt —
sneri hún skyndilega baki að hon
um, hann greip um olnboga henn-
ar og hún tók aftur til að engj-
ast sundur og saman og hlykkj-
ast til, en kastaði sér svo aftur
á bak upp í fang hans, enda þótt
hún neitaði honum ennþá um
munn sinn og hinar votu, mun-
aðarlegu varir.
Ég veitti því athygh, að 1 þess-
um krampakenndu vindingum,
tyllti hún sér á tærnar og aftur
datt mér í hug, einhver kynlegur
dans.
Nokkra stund héldu þau þann-
ig áfram að brjótast um, en því
næst breyttu þau um stöðu, eins
og í hægum dansi, og stóðu nú
samhliða. Armar hennar vöfðust
um brjóst hans, handleggir hans
lágu yfir um mitti hennar og
höfuð hennar var reigt aftur á
bak. Þá sneru þau sér snöggt við
og stóðu nú andspænis hvoru
öðru. í þetta skifti reigði hún höf-
uð og brjóst aftur, þar sem Ant-
onío hélt henni í faðmi sínum,
en lyfti samtímis upp pilsunum,
svo að naktir fótleggirnir og lær-
in komu í ljós.
Ég sannfærðist nú í fyrsta
skifti um það, að þessir fótleggir
voru fótleggir dansmeyjar, hvít-
ir, stæltir, grannir og fagurlag-
aðir.
Hún sveigði efri hluta líkamans
aftur, en skaut mjöðmunum
fram, í þéttri snertingu við Ant-
onío, sem stóð algerlega hreyfing
arlaus og reyndi að halda henni
uppréttri, til þess að auðvelda,
með því, faðmlög sín
Tunglið varpaði birtu sinni yfir
þau og nú var alveg að sjá, eins
og þau væru að stíga einhvern
ástríðuþrunginn dans, hann upp-
réttur og nærri hreyfingarlaus,
hún með líkamann sveigðan og
undinn í faðmi hans. Það var
dans án hljóðfæraleiks og leik-
regla, en engu að síður háður æð-
isgengnu hljóðfalli.
Að lokum virtust þau missa
jafnvægið og hnigu, í þéttum
faðmlögum, útaf og hurfu í
skugga eins heystakksins,
Fimmtándi kafli.
Ég varð næstum hryggur, er
þau hurfu mér sýn. Tunglið skein
skært á mannlaust og yfirgefið
þreskiloftið, þar sem ég hafði
stuttu áður, séð þau þrýsta sér
saman í þéttum faðmlögum, í hin
um æsandi dansi, og um stund
hugsaði ég, að þetta hefðu ekki
verið eiginkonan mín og rakar-
inn, sem ég sá, heldur tveir næt-
urandar, sem hið töfrabjarta
tunglsskinsflóð hefði vakið upp.
PARADÍSARGARÐURINN
18
í hundrað ár verð ég að ítreka þetta á hverju kvöldi. í
hvert sinn, sem sá tími er liðinn, mun þér aukast þrek, og
að síðustu muntu aldrei láta þér það í hug koma. í kvöld
er þetta í fyrsta sinn, og hef ég nú varað þig við.“
| Og álfkonan leiddi hann inn í stóran sal, sem allur var
úr hvítum gagnsæjum liljum. Ofurlítil gullharpa var í hverri
lilju og ómaði með strengjxhljómi og flaututónum. Fríðustu
(stúlkur stigu þar dansinn, svifléttar og fagurvaxnar, klædd-
ar bylgjandi netvefjarhjúpum, svo að sjá mátti þar í gegnum
hið yndisfagra limalag þeirra, og sungu þær um það, hve
dýrðlegt væri þar að lifa, — að þær mundu aldrei deyja
‘ og paradísargarðurinn um eilífð standa í blóma.
) Og sóhn rann, og allur himinninn glóði sem gull og brá
bjarma yfir liljurnar, svo að þær urðu sem fegurstu rósir,
og kóngssonurinn drakk af freyðandi víni, sem stúlkurnar
báru hQnum. Og svo mikinn sæluunað fann hann streyma
um sig allan, að aldrei hafði hann áður fundið slíkan.
Hann sá salargaflinn opnast og skilningstréð standa þar
í svo miklum blóma, að glýju gerði fyrir augum hans. Söng-
urinn, sem þaðan ómaði, var þýður og inndæll eins og rödd
móður hans, og var sem hún syngi: „Komdu barnið mitt!
Komdu, elsku barnið mitt!“
Þá benti álfkonan honum og kallaði svo ástúðlega:
„Komdu með mér! Komdu með mér!“ Og hann skundaði
til hennar og gleymdi heiti sínu, gleymdi því nú þegar
fyrsta kvöldið.
Smásöluverð
er nú
kr. 1,65 flaskan
Kostajörð til sölu
Öndverðarnes í Grímsnesi, Árnessýslu, er til sölu ásamt
allri áhöfn, vélum og verkfærum. — Jörðin er mjög vel
hýst, tún stórt og gott og ágæt skilyrði til aukinnar
ræktunnar. Mikill jarðhiti er í landareigninni. Til hlunn-
inda má ennfremur telja lax- og silungsveiði. bruna-
tekju og skóglendi. — Nánari upplýsingar gefur Þór-
hallur Pálsson, lögfræðingur í Reykjavík, sími 80157.
Stór fjögurra herbergja íbúð
x nýju húsi í Hlíðahverfi, til leigu nú þegar. — Leigu-
tilboð óskast send Mbl. fyrir n. k. miðvikudag, merkt:
.,41“.
HOTEL BORGARNES
Hvíldarhótel — Ferðamannahótel
Nýtt og glæsilegt hótel er tekið til starfa i Borgarnesi
Ákjósanlegur gisti- og viðkomustaður fyrir ferða-
menn og dvalarstaður fyrir þá, sem njóta vilja hvíld-
arr á kyrrlátum stað. — Snyrtiieg og björt svefn-
herbergi með þægilegum rúmum. Fallegur og stór
veitingasalur. Vandaðar veitingar. Góður aðbúnaður.
Vegna þeirra, sem vilja ferðast um fegurstu sveitir
landsins, Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dali, er Hótel
Borgarnes ágætlega í sveit sett. — Vegna hinna, sem
vilja hvíld og kyrrð, er Borgarnes friðsæll og aðlað-
andi staður.
HRINGIÐ í SÍMA 82700
STEINUNN HAFSTAÐ
■»j
■ 4
M Ó TAV ÍR
i ilNDIVIR BINDILYKKJUR
H. Bl im 1IKTSS0 \ & CO. H.F.
Hafnarhvoll — Sími 1228
- Morgunblaðið með morgunkaffinu