Morgunblaðið - 04.08.1955, Blaðsíða 1
16 síður
Gervihnetfirnir
Þetta eru myndir af gervihnöttunum, sem Bandaríkjamenn eru að framleiða og munu svífa um-
hverfis jörðina innan langs tíma. — Geimfræðingurinn S. F. Singer, prófessor við Maryland-
háskóla gerði þessar teikningar af gervihnöttunum, sem eru 60 sentímetrar í þvermál og vega um
50 kíió að þyngd. —
1. gagnsæ linsa. 2. Mælir fyrir gammageisla. 3. Mælir fyrir últra-fjólubláa geisla. 4. loftnet.
5. Elektrónuteljari. 6. Mælir fyrir röntgengeisla. 7. Segulmælir. 8. Rafhlöður. 9. Senditæki. 10.
Vél. 11. og 12. eru radar- og stuttbylgjutæki.
Hækkar kaffi upp
úr öllu valdi?
Miklar froslhörkur í Brasilíu.
RÍÓ DE JANERO — Ein
versta kuldabylgja, sem geng-
ið hefar yfir Suður Ameríku,
drap nýlega fjórar manneskj-
ur í suðurhluta Brasilíu. — Þá
hefir kuldinn einnig valdið
geysitjóni á kaffiekrunum í
Brasilíu.
VERRA ÁSTAND EN 1953
Formælandi eins stærsta kaffi
útflutningsfyrirtækis í Brasil-
íu sagði nýlega, að frosthörk-
urnar í Londrínahéraði í Par-
ani hafi eyðilagt stóran hluta
af kaffiekrunum þar. Er nú
svo komið, að ástandið er orð-
ið verra en 1953, en þá varð
gífurlegt tjón á kaffiekrum
landsins.
HELMINGINN KÓL
Helmingur kaffitrjánna í Lond
rína hefir nú eyðilagzt af
frostum, að því er fregnir
herma. — Þá hefir fallið mik-
ill snjór víða annars staðar í
landinu og valdið miklu tjóni.
MIKLIR KULDAR
í ARGENTÍNU
í Argentínu eru einnig miklir
kuldar. Muna menn ekki eftir
jafnmiklum frosthörkum þar í
landi.
•
HÆKKAR KAFFI’
Þess má að lokum geta, að
geysileg verðhækkun varð,
eins og menn muna, á kaffi,
eftir frosthörkurnar > Brasilíu
1953 Er nú hætta á, að sama
sagan endurtaki sig í ár.
Mislingar hafa leikið
Grænlendinga grátt
Hætta á, að nýr faraldur brjótist út
„Geislar“ himinhvolfsins verða
geimförum hættulegastir
Hvernig á að gera þá skaðlausa! *
TÉR í BORG er nú haldin ráðstefna stjarnfræðinga og sitja
hana margir heimsfrægir vísindamenn.
í viðtali við danska blaðið Dagens Nyheder sagði svissneski
vísindamaðurinn, dr. Stemmer, að geimgeislarnir stæðu geim-
* förum helzt fyrir þrifum, enda eru þeir mönnum mjög hættu-
legir. —
Verður því að finna leið til þess að gera þá skaðlausa, áður en
við höldum upp í háloftin, sagði doktorinn enn fremur. Að
þessu vinnum við nú í Sviss og sendum lifandi vefi mörg hundruð
kílómetra upp í himinhvolfið til þess að sjá, hver áhrif geislarnir
hafa á þá. Vefina græðum við svo í dýr og athugum áhrifin.
LAMAST OG VERÐA
BLINDIR
Varla er „geislar“ þó réttnefni,
því að hér er um að ræða efni,
sem hægt væri að þreifa á, ef það
væri stækkað mjög. — Ef þetta
efni lendir í auga manns, verður
hann blindur, ef það kemur við
Stóð éjg úti
í tunglsljósi
LUNDÚNUM og WASHING-
TON, 3. ágúst — Bæði Banda-
ríkjamenn og Bretar hyggjast
reyna að framleiða gervi-
tunglsljós í næsta mánuði. —
Þeir ætla að setja nokkur kíló
af natríum í eldflaug, sem
skotið vei-ður upp í háloftin,
og á að lýsa af eldflauginni,
eins og tunglsljós sé. — Eld-
flaugar þessar eiga að komast
í 190 kílómetra hæð.
taugakerfið, lamazt hann o. sv.
frv. Það verður því að sjá svo
um, að geimför framtíðarinnar
standist þessa hættulegu „geisla“
himinhvolfsins.
TIL TUNGLSINS
Þýzki vísindamaðurinn
Kraft Enricke sagði á ráð-
stefnunni í dag, að þess verði
skammt að bíða, að menn geta
smíðað geimför, sem komast
upp í 150 kílómetra hæð, og
fara með eigin vélarafli á 2
klst. umhverfis jörðina. — Þá
var sú skoðun og látin í ljós
á ráðstefnunni, að menn geti
á næstu 30 árum smíðað geim-
för, sem komast til tunglsins
og e. t. v. einnig til Marz.
Fara
til Moskvu
PARÍS, 3. ágúst — Ákveðið hefir
verið, að Faure forsætisráðherra
Frakka og Piney utanríkisráð-
herra fari í opinbera heimsókn til
Moskvu í október n.k.
Verkamannaflokk-
urinn lapaöi
þingsætum
TEL AVIV, 3. ágúst — Lokaúr-
slitin í þingkosningunum í Israel
eru þau, að verkamannaflokkur-
inn fékk 40 þingsæti af 120. Hann
tapaði 5 þingsætum.
Næst stærsti flokkur þingsins
er hægri flokkurinn, sem hlaut
15 þingsæti.
GODTHAAB, 3. ágúst. — Þegar uppgötvað var nýlega, að græn-
lenzk börn hefðu verið send heim frá berklahæli á Jótlandi með
mislinga, óttuðust menn, að nýr mislingafaraldur mundi brjótast
út i Grænlandi innan skamms.
VORU SMITUÐ
SkÖmmu eftir að börnin voru
farin heim til Grænlands komu
mislingar upp á berklahælinu og
þótti þá sýnt, að grænlenzku
börnin hafi verið búin að smit-
Jvar" - og
„verndar-
■ ....... ■ ’ ''SV-* -
4 • ' I
ast af veikinni,
úr höfn.
þegar þau létU
arnir
ni
í GÆR fékk Þjóðviljinn skeyti
frá Varsjárförunum. — Aldrei
þessu vant. — Þar segir m. a. á
þessa leið:
A „Við Iandarnir höfum að-
T setur í miðborginni, í
skóla fyrir daufdumb
börn . . . .“
„f gærkvöldi sáum við öll
pólska sirkussýningu . .“
,.í morgun heimsóttu
okkur sérstakir gestgjaf-
ar og verndarar okkar
*
*
ívar.
Við skulum vona, að „ívör-
unum“ líki vel skólavistin —
og „verndaramir" tali ekki af
sér!
Nýtt heimsmet í 800 m hloupi
20 þús. stríðsfangar
SEOUL, 3. ágúst — Stjórn Suð-
ur-Kóreu krafðist þess í dag, að
kommúnistar í norðurhluta lands-
ins skili um 20 þús. stríðsföngum,
sem þeir tóku fangna í Kóreu-
styrjöldinni.
LUNDÚNUM, 3. ág. — Belgiski
hlauparinn, R. Moones, setti í
dag nýtt heimsmet í 800 metra
hlaupi. Hljóp hann vegalengd-
ina á 1.45,7 mín., sem er 9/10
úr sekúndu hetri timi en heims-
met þýzka hlauparans Rudolfs
Harbigs. Harbig setti heimsmet
sitt á Olympíuleikunum í Berlín
1936 og þótti það mjög gott af-
rek, enda hefir það staðið öll
þessi ár.
Belgíski hlauparinn setti heims
met sitt á íþróttamóti í Ósló
dag. Annar i hlaupinu var Norð-
maðurinn Boysen. Hann hljóp
vegalengdina á 7/10 úr sek
betri tíma en Harbig.
LÖGÐUST Á LEIÐINNI
Sú var og raunin. Börnin lögð-
ust í mislinga á leiðinni heim og
voru sett í sóttkví, þegar heim
kom, því að mislingar eru venju-
lega háskaleg farsótt í Grænlandi.
T. d. lögðu mislingai mr marga
Grænlendinga að velli þegar þeis
herjuðu þar í landi í fyrra.
VONANDI BRÝ2T NÝR
FARALDUR EKKI ÚT
Nú bíða menn þess með eftir-
væntingu, hvort mislingafar-
aldur brýzt út, — en vonandi
er, að svo verði ekki.
Ráðstefna um
kjarnorkumál
LUNDÚNUM, 3. ágúst — 1 dag
hófst hér í borg ráðstefna vís-
indamanna um kjarnorkuna og
notkun hennar í stríði og friði.
Brezki heimspekingurinn Bert-
rand Russel, sem er aðalhvata-
maður þess, að boðað var til ráð-
stefnunnar, hélt í dag ræðu og
lagði fram tillögu þess efnis, að
vísindamenn kynni mönnum liælt-
una af kjarnorkuvopnum og svni
fram á eyðingarmótt þeirra. -—
Ef kjarnorkustyrjöld skellur á,
sagði* heimspekingurinn, verður
allur heimurinn rjúkandi rúst. —■
Þetta verða menn að vita — og
skilja. — Reuter.
160 þús. japanskir hermenn
TÓKÍÓ, 3. ágúst — Japanir
hyggjast stækka her sinn. — Er
gert ráð fyrir, að 160 þús. her-
menn verði í honum innan
skamms.