Morgunblaðið - 03.09.1955, Síða 12
IX
MORGUNBLAÐiB
Laugardagur 3. sept 1955
THAT'S A GREAT^)
STOR.Y, MARK, BUT IT /
HAS A VERY SAD ^
ENDING...AFTEA HS
DROPPED YO',1, iYAJOR
NEWTON V/ 1 .ED
IN A CRA* 1,: ) Æ
« YVcCK LATER
IN WASHINGTON
I|N A PEW
MINUTES
, MARK HAS
TOLD CCL.
BLAOKBURN
V TH5 SHORY
OF HIS
I SURVIVAL
3 EXPERIENCES
ACCLOíJ£». ”*í
fs i£-oci'a'jnNÍ(
ISVIWL LNjyJ
VOU , . .N THE WRONG «1
'FPICE, /AS. TRAIL...THE MAN )
YOU V/ANT TO SEE IS
IOL. FREDERICK BLACKBURN f
Tripolibíó:
„NÚLL ÁTTA FIMM“
Á ÁRUNUM fyrir heimsstyrjöld-
ina fór mikið orð af þýzka hern-
um og þeim stranga aga sem þar
ríkti. Að vísu var það ekkert nýtt
að þýzkir hermenn ættu við harð-
ari aga að búa en tíðkaðist með
öðrum þjóðum, því. heraganum
prússneska hefur löngum verið
við brugðið. í þessari þýzku kvik
mynd, sem hér ræðir um og nefn-
ist „Núll átta fimm“, er lýst líf-
inu í þýzkum herbúðum skömmu
fyrir stríðið síðasta, en þó með
nokkrum öðrum hætti en búast
hefði mátt við, því að myndin
er full af margskonar bráðfyndn-
um og skemmtilegum atriðum og
yfirleitt meiri „humor“, en menn
skyldu ætla að hefði átt sér stað
innan þýzkra herbúða. Myndin er
að vísu nokkuð hrottaleg á köfl-
um og ýmis atriði hennar sýnd
með meiri raunsæi og hispurs-
leysi en almennt gerist í kvik-
myndum en einmitt sum þessara
atriða eru hvað skemmtilegust ef
menn eru ekki alltof viðkvæmir
og hneykslunargjarnir. — Mynd-
in er gerð eftir bókinni „Asch
liðþjálfi gerir uppreisn" eftir
Hans Helmut Krist; en hún er að
sögn byggð á sönnum viðburð-
um. — Er myndin afbragðsvel
gerð, ágætlega byggð, bæði í
heild og einstök atriði hennar, vel
tekin og prýðilega leikin. Einkum
er afbragðsgóður leikur þeirra
Pauls Bösiger, er leikur nýliðann
Vierbein, sem allt fer í handa-
skolum fyrir nema túlkun hans á
sónötum Beethovens, Joachims
Fuchsberger er leikur aðalhlut-
verkið, Asch liðþjálfa, Emme-
richs Schrenkð er fer með hlut-
verk Schuiz, undirforingja og
Wilfriods Seyferth er leikur
Luschke undirforingja. — Einnig
er ágætur leikur Helen Vita, er
fer með hlutverk hinnar létt-
lyndu og breyzku frú Schulz.
Er þetta mynd, sem vissulega
gr vert að sjá. Ego,
Engin verBlaun fyrir
fegursfa garðinn
í Hafnarfirði
UNDANFARIN ár hefur Fegrunarfélag Hafnarfjarðar veitt verð-
laun og viðurkenningar fyrir fegursta og bezt hirtu garða í
Hafnarfirði. Á þessu sumri hefur veðrátta, svo sem kunnugt er
verið óvenju stirð og votviðrasöm, og því allur gróður átt erfitt
uppdráttar. Samt hefur komið í ljós, við athugun, að margir gai’ðar
hefðu verið mjög fagrir, ef veðrátta hefði verið sæmileg.
Hinsvegar hafa garðeigendur | Stjórn fegrunarfélagsins villi
ekki almennt átt þess kost að hér nota tækifærið til þess að
hafa garða sína í þeirri umhirðu þakka þeim aðilum, sem stutt
og grósku, sem þeir hefðu óskað. hafa viðleitni þess til fegrunar
og leyfir sér um leið að hvetja
- Iðiiaðarmála-
EN AFTITR NÆSTA SUMAR
' Af þeim sökum hefir fegrunar-
félagið ákveðið að fella niður að
dæma um fegurstu garða, að
þessu sinni, en mun taka það þeg-
ar upp aftur á næsta sumri.
Félagið vill þó ekki láta hjá
líða að þakka þeim garðeigend-
um, sem þrátt fyrir óblíða veð-
ráttu og erfiða aðstöðu, hafa hald
ið vel við görðum sínum í sumar.
Fegrunarfélagið hefir, enn á
þessu sumri haldið áfram við
fegrun opinna svæða í bænum.
í fyrra vann það, ásamt öðrum
aðilum að því að koma upp opn-
um garði sunnan Apoteksins við
Strandgötu og að græðingu og
fegrun á Thorsplani.
NÝR SKRÚÐGARÐUR
Nú í sumar hefir verið komið
upp opnum skrúðgarði neðan
Sýslumannshússins, og hefir fé-
lagið þar notið aðstoðar eiganda
lóðarinnar, dóms- og kirkjumála
ráðuneytisins, svo og bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar og stofnana hans.
; Á því svæði hafa verið gróðursett
blóm og tré, lagðir gangstígar og
komið fyrir bekkjum. Hefir það
verið gert samkvæmt skipulags-
teikningu Jóns Björnssonar skrúð
garðaarkitekts.
Garður þessi er hugsaður sem
: miðsvæði, eða Vz hluti af stærri
* skrúðgarði ofan Strandgötu. Þess
er vænzt að á næsta sumri fáist
kirkjulóðin opnuð og svæðið sunn
an garðsins lagfært og þar komið
fyrir litlum barnaleikvelli.
bæjarbúa til áframhaldandi
starfa um að fegra bæ sinn.
(Frá Fegrunarfélagi Hafnarfjarð-
ar)
fundur
Framh. af bls. 9
grein fyrir viðræðum af hálfu
þess við fulltrúa þýzka íðnsam-
bandsins um möguleika á stofnun
6jálfstæðs alþjóðasambands iðn-
aðarmanna, en mál það er áfram
í athugun, og má vænta þess að
það liggi skýrar fyrir eftir þing
þýzka sambandsins í haust.
Fráfarandi formaður danska
iðnsambandsins, Rasmus Sören-
6en, hefir verið formaður Nor-
ræna iðnsambandsins s.l. 3 ár, en
nú lét hann af formennsku og við
tók formaður norska iðnsam-
bandsins, Kaare Aass verkfræð-
ingur, en formenn iðnsambanda
Norðurlanda skulu til skiptis eft-
ir ákveðinni röð gegna for-
mennsku í Norræna iðnsamband-
inu í 3 ár í senn.
í sambandi við þingið bauð
danska iðnsambandið þingfull-
trúum til kvöldverðar sunnudag-
inn 14. ágúst og Iðnaðarmannafé-
lagið í Kaupmannahöfn bauð
og allmörgum gest
í hátíðasal
mánudag-
»Þess skal getið
Framh. af bla. 9
sú fyrsta, sem kvenfélagið gefur
kirkju sinni. Hefur það oft áður
eýnt velvild sína og rausn í garð
Eyrarkirkju (nú Patreksfjarðar-
kirkja) bæðí með gjöfum og
starfi fyrir kirkjuna. Ég segi því
aftur: Hjartans þökk fyrir gjöf-
ina 1 vor og allan góðhag ykkar
kvenfélagskvenna á Patreksfirði
til kirkju vorrar fyrr og síðar.
Landspítalanum Rvík, 28. ágúst.
Einar Sturlaugsson,
L sóknarprestur.
AÐFARANÓTT föstudagsins var
stolið allmiklu af mótatimbri við
bygginguna 2—4 við Stigahlíð.
Timbur þetta var nýtt og heflað
iiðru megin. Ekki hefur hafst
uppi á sökudólgnum, en þykir
sennilegt að fleiri en einn hafi
verið að verki, þar sem timbrið
hefur verið flutt burt á bíl
Rannsóknarlögreglan hefur beð
ið blaðið að beina þeim tilmæl-
um til fólks, sem orðið hefur vart
við ferðir þjófanna barna, að hafa
samband við Rannsóknarlögregl-
una hið fyrsta.
Fvrsta óveðrið á sumrinu
J
í Þingeyjarsýslu
Bláberjaspreffa góðr en krækiber varf sjáanfeg
Húsavík, 31. ágúst.
IDAG má heita, að komið hafi fyrsta óveðrið á sumrinu. Ausandi
rigning og norðanátt hefur verið í alla nótt og dag. Fjöll eru
alhvít, og hefur fennt niður í byggð. Stórbrim er einnig eins og verst
gerir að vetrarlagi. Menn eru almennt búnir að koma heyjum sín-
um í hlöður en útengjaheyskap er enn víða haldið áfram. Heldur
er að létta til, þegar álíður daginn og búizt við áframhaldandi
þurrki næstu daga.
ENGIN KRÆKIBER
Berjatínsla er nú hafin hér, og
virðist ætla að verða góð. Að
vísu talsvert misjöfn. Svo ein-
kennilega bregður þó við, að eng-
in krækiber sjást að heita má,
en eingöngu bláber sem eru vel
sprottin. Kenna menn hér um
rjúpunni, en hún hefur verið
óvenjumikil hér um slóðir bæði
í fyrra og i sumar. Einnig er álit
manna, að maíhretið í vor hafi
ekki bætt um berjasprettuna.
KARTÖFLUUPPSKERA GÓÐ
Kartöfluuppskera virðist ætla
að verða ágæt, þrátt fyrir að
lítið hefur sprottið undanfarið
vegna þurrka. Eru kartöflugrös
víða orðin visin í görðum af þeim
sökum. Ekki er farið að taka upp
úr görðum almennt ennþá, en
MMzurgrerðishúsið rifíð
— irystíhús hyggt
HAFNARFIRÐI — Aður en langt
um líður verður hið svokallaða
Akurgerðishús rifið og á grunni
þess byggt hraðfrystihús. — Eru
framkvæmdir hafnar fyrir
hinu nýja húsi.
Hin gömlu fiskverkunarhús
hafa á sinn hátt sett svip á bæinn
á liðnum árum. Um langan aldur
hefir farið fram verkun fisks í
húsum þessum og fjöldi bæjarbúa
átt margar stundir tengdar við
^vinnu í þeim, sérstaklega á ár-
unum fyrir stríðið, þegar salt-
fiskverkunin var hér sem mest.
Var þá bæði vaskað og umstafl-
að í Akurgerðishúsunum, og er
reyndar svo enn í dag, þótt ekki
sé í eins ríkum mæli og áður fyrr.
Þessi hús hafa verið snar þáttur
í atvinnulífi Hafnfirðinga um
tugi ára og stuðlað á sinn hátt
að vexti og framgangi bæjarins.
— Ljósmyndina tók Gunnar Rún-
ar. — G.E.
síðan í byrjaðan ágúst, hafa menn
tekið upp kartöflur sér til matar.
— Fréttaritari.
- Stokkhó]ms!)réf
Framh. af bls. 11
áreiðanlega veitt sterku víni
harða samkeppni. Með því væri
þá a. m. k. eitthvað unnið frá
sjónarmiði bindindismanna. En
nú er hætt við, að margir, sem
annars vildu fá sér ölgl.as, muni
líta svo á, að verðmunur á sterku
öli og sterku víni sé svo lítill, að
það borgi sig fremur að kaupa
vínið. „Ölsneiðin" (ölsmörgásen)
svonefnda, sem á að vera hindr-
un fyrir neyzlu áfenga ölsins, má
því hæglega verða til þess að
auka neyzlu sterkra drykkja.
Annað umrætt atriði í hinum
nýju áfengisreglum er breyting
á stærð „snafsanna“. Nú er
„snafsinn" 2Vz sentilítri, en eftir
breytinguna verður hann 2 sl.
Veitingahús þurfa því að breyta
mælum sínum samkvæmt því.
Mörgum virðist allt þetta um-
stang gera einfalda hlufi flókna
og sjá ekki, hvað unnið er með
þessum reglum, þegar áfengi
verður selt í einkasölu ríkisins
eins og hver annar varningur á
venjulegum búðartíma og án
nokkurrar skömmtunar nema
þeirrar, sem hver og einn setur
sér.
Nú stendur svo á, að 1. okt.
n. k. er laugardagur, og hefir þvi
verið ákveðið, að frjáls útsala á
áfengi hefjist ekki fyrr en 3. okt.
Verður fróðlegt að sjá, hvernig
Svíar bregðast við. En vafalaust
má víða sjá brostin klakabönd!
Stokkhólmi í ágúst 1955.
Baldur Jónsson.
- Jón Ban
Framh. af bls. 7
menntir þarfnast eitt öðru frem-
ur, — elskhuga.
— Elskhuga?
— Já, manns, sem af hreinu
hjarta og brennandi ástríðu elsk-
ar íslenzkar nútíma bókmenntir;
ungs manns, gáfaðs og lærðs,
með sýn yfir bókmenntir heims-
ins, sem getur telcið nútíma bök-
menntir okkar í faðm sér og elsk-
að þær, eins og þær eru, huggað
þær í hörmum, varið bær í nauð-
um, borið af þeim blak eða att
þeim fram hreiknurrt huga,
manns sem skilur þær, túlkar
og hirtir og segir þjóðinni frá
því sem hún á. —M.
MARKÍJS Kftlr Ed Dod4
1) Viku seinna í höfuðbæki-
stöðvunum:
— Nei, þér skuluð fara í næsta
herbergi og tala við Friðrik Blá-
nef liðsforingja.
2) Vegna þess að liðsforing-
inn kunningi Markúsar fórst í
flugslysinu, verður hann að snúa
sér til annars manns.
3) Markús segir Blánef liðs-
foringja frá öllum raunum sín-
um.
Jæja, það var merkilegt að
hlusta á þetta. En það leiðinlega
atvik gerðist, eftir að flugliðs-
foringinn hafði varpað þér út 1
fallhlíf að hann missti stjóm &
flugvél sinni og hún fórst. j